Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 2
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 ★ * Staðan í kjaramálunum: Eins og að handsama kvikasilfur á borðplötu - segir Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins „Staðan er viðkvæmari en svo að ég ætli að reyna að meta hana. Það má segja að hún sé eins og kvikasilf- ur á borðplötu. Reynir einhver að handsama það?“ sagði Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambands- ins, síðdegis í gær, inntur eftir stöðumati í kjaramálunum. í gær voru og verða í dag og á morgun og frameftir næstu viku stíf fundahöld í verkalýðsfélögum, landssamböndum og síðan hjá sam- bandsstjóm ASÍ um kjaramálin. Samkvæmt heimildum DV ætla Vinnuveitendasambandið og ríkis- stjómin að koma með eitthvert til- boð til verkalýðshreyfingarinnar. Menn em orðnir alvarlega hræddir um að allt sé að fara úr böndunum á vinnumarkaði sem það gerir ef launanefndin segir kjarasamning- unum upp næstkomandi fimmtu- dag. Það er síðasti dagurinn til að gera það ef uppsögnin á að miðast við áramót. „Þó ég vissi það myndi ég ekki geta um það i fjölmiðlum eins og staðan er nú, sagði Þórarinn V. Þór- arinssopn, framkvæmdastjóri VSÍ, í gær þegar hann var spurður hvað yrði í boði frá VSÍ til verkalýðs- hreyfingarinnar. Hann sagði að það væri þó ljóst að málið væri þrískipt: bætur til hinna lægst launuðu, verð- lagsmál og 'síðan það sem að ríkis- valdinu snýr. Efhislega vildi hann ekki ræða þessa þrjá þætti. Pétur Sigurðsson, formaður Bald- urs á ísafirði, sagðist óttast að verkalýðshreyfingin ætlaði enn einu sinni að kaupa eitthvað út úr fjárlögum gegn því að stilla kröfúr sínar. Þetta væri gamalt bragð sem ríkisstjómir hefðu oft notað. DV hefur heimildir fyrir því að haukamir í verkalýðshreyfingunni vilji að launanefndin segi samning- unum upp. Benedikt Davíðsson sagði að mikill tími síðasta fundar formanna landssambanda innan ASÍ hefði farið í að samræma sjón- armið hvað þetta varðaði. Hann sagðist telja að það yrði alger sam- staða innan ASÍ ef launanefndin ákvæði að segja samningum upp. -S.dór Flytja varð ökumenn tveggja bíla á slysadeild eftir harðan árekstur þriggja bfla á mótum Laufásvegar og Hringbraut- ar síðdegis í gær. Hvorugur mannanna var þó alvarlega slasaður. Bílarnir lentu hver aftan á öðrum og skemmdust þeir allir mikið. Draga varð tvo þeirra af slysstað með kranabíl. DV-mynd S Ársfundur Ríkisspítala: Styttri legutími leiðir til aukins kostnaðar - letjandi flármögnunarkerfi vinnur gegn hagræðingu Ólafsfjörður: Afmælisgjöfin frá dómsmálaráðherra „Þetta er víst afmælisgjöfin frá dómsmálaráðherranum. Ólafsfjarð- arbær á 50 ára afmæli í ár og þá þykir rétti tíminn til að leggja niður sýslumannsembættið á staðnum,“ segir Þorsteinn Ásgeirsson, forseti bæjarstjómar á Ólafsfirði, í samtali við DV. í haust hefur bæjarstjómin á Ólafsfirði staðið fyrir undirskifta- söfnun til að mótmæla ákvörðun dómsmálaráðherra um að leggja embætti sýslumanns í Ólafsfirði niður. Á fimmta hundrað manns skrifaði undir mótmæli og vom list- æ með nöfnum þeirra afhentir Þor- steini Pálssyni dómsmálaráðherra í gær. -GK Gefraunatfmi: 904 <750 8 síðna jólagjafahandbók frá Bónus- radíói fylgir DV í dag. Þar verður kynnt glæsilegt úrval tækja sem fæst í Bónusradíói, Grensásvegi 11. í jólagjafahandbókinni er einnig kynntur skemmtilegur símaleikur sem lesendur geta tekið þátt í með því að hringja í síma 9041750. Fjöldi eigulegra vinninga verður dreginn út, svo sem YOKO útvarps- og seg- ulbandstæki, AFFINITY GSM-símar. Aðalvinningurinn er CMC-tölva sem dregin verður út á Þorláksmessu. Heildarverðmæti vinninga í Jólaleik Bónusradíós er um 460.000 krónur. Styttri legutími sjúkinga á sjúkra- húsum og veikari sjúklingar hafa leitt til aukins kostnaðar fyrir Rikis- spítalana og meira álags á starfs- fólk. Núverandi fjármögnunarkerfi sjúkrahúsanna hvetur ekki til ha- græðingar og því hefur rekstrar- vandi þeirra aukist. í raun auðvelda minni afköst spítölum að halda sér innan ramma fjárlaga. Á meðan lengjast biðlistar og kostnaður fyrir þjóðfélagið eykst vegna vinnutaps og bóta til hinna sjúku. Þetta kemur fram í ársskýrslu Ríkisspítalanna, en ársfundur stofh- unarinnar var haldinn í gær. Á fundinum var fjallað sérstaklega um notkun upplýsingatækni á sjúkra- húsum. Að mati forráðamanna sjúkrahúsanna er mikilvægt fyrir Ríkisspítalana að nýta alla mögu- leika tækninnar til að bæta þjón- ustu við sjúklinga og auka hagræð- í viðtali við DV ásakaði Brjánn Jónsson, framkvæmdastjóri Iðn- nemasambandsins, Valgerði Sverr- isdóttur, formann þingflokks Fram- sóknarflokksins, um að hafa sýnt þeim iðnnemum, sem til hennar leituðu vegna launalausu matar- tæknanna, ókurteisi. „Þetta eru hrein ósannindi. Ég sýndi þeim fyllstu kurteisi og gest- risni, eins og ég sýni, öllum gestum mínum. Ég ræddi við þá um málið og sagðist ætla að skoða það. Ég ingu i rekstri. Á síðasta ári námu útgjöld Ríkis- spítala umfram sértekjur 6,7 millj- örðum króna. Fjárveitingar á árinu námu 6,6 milljörðum og fór stofnun- in 127 milljónir fram úr fjárheimild- um. Stærsti útgjaldaliðurinn var launaútgjöld. Á árinu 1994 námu þau tæplega 4,8 milljörðum. ræddi síðan við formann stjómar Ríkisspítalanna um málið og hann bauðst til að ræða við iðnnemana og ég sagði þeim það. Daginn eftir sá ég að Iðnnemasambandið var komið af stað með fréttatilkynningu þar sem hallað var réttu máli og þá um leið sá ég að það ætlaði ekki að reka þetta mál af heiðarleika. Þá reiddist ég og skammaði framkvæmdastjóra þess fyrir það,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir í samtali við DV. -S.dór Stuttar fréttir Hærri iögjöld? Iðgjöld í bílatryggingum og framfærsluvísitala hækka ef far- ið verður að tillögum nefndar um breytingar á skaðabótalögum. Vísbending greindi frá þessu. Aukinn halli Úrskurðamefhd sjómanna og útvegsmanna mn fiskverð hefur valdið hærra hráefnisverði og auknum hallarekstri í botnfisk- vinnslu. RÚV hafði þetta eftfr for- manni Samtaka fiskvinnsluhúsa. Hátt metiö fyrirtæki íslenska tölvufyrirtækið OZ er metið á um 670 milljónir króna. í vikunni keypti tælenskt fyrir- tæki 5% hlut í fyrirtækinu á 33,5 milljónir. Bylgjan greindi frá.. Gjaldtöku hafnaö Ungir framsóknarmenn hafna alfarið framkomnum hugmynd- um um innritunargjöld á sjúkra- húsum. í samþykkt stjómar FUF segir að gjöldin séu í algerri and- stöðu við grundvallarstefnu Framsóknarflokksins. Vandi Ríkisspítala eykst Rekstrarhalli Ríkisspítalanna í ár stefnir í að verða 280 milljónir samanboriö við 127 milljónir í fyrra. Þetta kom fram á aðalfúndi stofnunarinnar í gær. Jöfnuöur mikilvægur Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, varar við því að horfið verði frá markmiðum um jöfnuð í ríkisfjármálum þótt behn- horfi í efiiahagslifinu eftir samning um álversstækkxm. Vís- bending greindi frá. Ráöherra íhugar frestun Samgönguráðherra ákveður á mánudaginn hvort uppsögn flug- umferðarstjóra um áramótin verði frestað eins og lög heimila. Bylgjan greindi frá þessu. Fyrstur islendinga Benedikt Valsson, fram- kvæmdastjóri FFSÍ, hefur fyrstur Islendinga tekið sæti i stjóm Nor- ræna flutningamannasambands- ins. Vestmannaeyjar: Kona slasað- istí vindhviðu Flytja varð konu á miðjum aldri á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum eftir að hún lenti í snarpri vindhviðu og féll í götuna. Veður var slæmt í Eyj- um í gær og gekk á með snörpum hviðum af norðri. -GK Iönnemadeilur: Sýndi þeim fyllstu kurteisi - segir Valgerður Sverrisdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.