Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 24
24 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 "3",Ur Björgunarbókin Útkall Islenska neyðarlínan eftir Óttar Sveinsson komin út: íslenskur bókarkafli á filmu í Hollywood Hér á eftir birtir DV brot úr kafla nýútkominnar bókar, Útkall, ís- lenska neyðarlínan, eftir Óttar Sveinsson, en þá frásögn kvikmynd- aði Rescue 911 í sumar. Frásögnin er af hjónunum Snæbimi Kristó- ferssyni og Kristínu Karlsdóttur sem féllu 20 metra niður í hyldýpis- sprungu á Snæfellsjökli í júní 1991. Þegar komið er til sögunnar er Hjálmar Kristjánsson björgunar- sveitarmaður frá Hellissandi að koma á vettvang þar sem örvænt- ingarfullir ferðafélagar hjónanna eru að reyna að hífa Kristínu upp. Millifyrirsagnir eru blaðsins. Sekúndur milli lífs og dauða „Þegar ég leit fram yfir brúnina sá ég hvað var að gerast. Kristín var þrútin og með blágráan blæ á andlit- inu. Það heyrðust stunur frá henni þar sem hún hékk auðsjáanlega að- framkomin í spottanum. Ég sá að hún var illa bundin. Ég gerði mér grein fyrir að nú skiptu sekúndur sköpum milli lífs og dauða. Kristín var að falla úr spottanum. Fólkið á barminum náði henni greinilega ekki upp úr sprungunni. Nú var annaöhvort að hrökkva eða stökkva - annars yrði orðið um seinan að bjarga henni. Ég snaraði sigbandi utan um mig og batt hnút á örfáum sekúndum. Því næst lét ég strákana halda í bandið og stökk fram af brúninni. Ég náði að grípa utan um Kristínu. Ég sá að Björgólfur var í öngum sín- um - mennimir gátu ekkert gert frá brúninni annað en að halda í band- ið. Þegar ég var kominn niður fyrir Kristínu ýtti ég undir hana af öflum kröftum. Nú færðist hún frá brún- inni - þetta var herslumunurinn sem upp á vantaðL Björgólfur og Baldur náðu að teygja sig í Kristínu og toga hana upp á sprungubarm- inn.“ ... Stór hangandi grýlu- kertasverð fyrir ofan Guðmundur Karl Snæbjömsson læknir virti fyrir sér aðstæður við sprungubarminn: „Ég leit niður í spranguna. Mér leist ekkert á þetta. Ég sá grýlukerti á sprunguveggnum á móti okkur - eins og stór hangandi sverð - það fór um mig hroflur. En ég einbeitti mér að aðalatriðinu - hvernig manninum liði fyrir neðan. Björg- unarmennimir vora með öll sigtæk- in tilbúin. Þeir settu á mig belti í snatri og ég fór í skó með broddum á. Ég sá aö allt var tryggilega gert hjá strákunum. Ég gekk að brúninni og fótaði mig niður. Ég gat ekki varist þeirri hugsun að grýlukertin gætu losnað. Einn maður á brúninni gaf þeim sérstakan gaum til að vara okkur við ef eitthvað gerðist. Ég reyndi að fara mjög varlega. Það var í mér talsverður kvíði en ekki var um annað að ræða en að fara niður og einbeita sér að því að vera yfirveg- aður og hugsa hvert skref fyrir ffarn. Betra var að gefa sér örfáar sekúndur til að hugsa í stað þess að flýta sér og rasa um ráð ffarn. Ég var enn ekki farinn að sjá Snæ- bjöm. Er ég nálgaðist sá ég að hann og Hjálmar voru niðri i eins konar Atburðurinn var sviðsettur á Langjökli þegar kvikmyndagerðarfólk frá Bandaríkjunum kom hingað til lands. Frá Snæfellsjökli varð að hverfa vegna óhagstæðs veðurs. Á innfelldu myndinni má sjá þegar vélsleðinn skellur ofan í sprunguna. DV-myndir GVA .. ' ‘r 'i ' j ■ -'Æ hvelfingu.“ Hjálmar fylgdist með þegar Guð- mundur Karl fór ffam af brúninni í sigbúnaði: „Þegar læknir- inn var látinn síga niður bað ég hann um að hafa ekki mjög hátt til að skapa sem minnst- an titring út af grýlukertunum. Mestar áhyggjur hafðiégþóafþyrl- unni sem ég vissi að var á leiðinni. Sagan sýnd í sjónvarpi hér og erlendis Kvikmyndatökufólk ffá Hoflywood kom til Islands í ágúst síðastliðn- um tfl að sviðsetja ffásögnina sem fjallað er um á síðunni og birtist í bók Óttars Sveinssonar. Um var að ræða ffamleiðanda og hluta af tökuliði framhaldsþáttanna Rescue 911 eða Neyðarlínunnar, sem sýnd- ir hafa verið á Stöð 2. Kvikmyndagerðarfyrirtækið Saga film sá hins vegar um upptökur hér á landi og naut til þess aðstoðar fjölda hjörgun- arsveitarmanna frá SVFÍ og fleiri aðila. Araold Saphiro, aðalframleiðandi Rescue 911, sem kom sjálfúr til ís- lands í sumar, sagði í samtali við DV í gær að fhamleiðslu þáttaraðar- innar væri lokið í Bandaríkjunum. Hins vegar væri húið að selja CBS- sjónvarpsstöðinni þá þætti sem teknir hefðu verið upp og ósýndir væru í Bandaríkjunum, þar á meðal þátt byggðan á bókarfrásögn Óttars. Saphiro kvaðst þess fullviss að þættimir yrðu sýndir í Bandaríkjun- um á næsta ári og miðað viö áhugann sem var á upptökunum hér á landi væri hann ekki í vafa um að þeir yrðu sýndir Ðjótlega á íslandi. Ef stór vél lenti nálægt sprung- unni var vissu- lega hætta á titr- ingi með þeim af- leiðingum að grýlukertin losn- uðu. Mér fannst þó hæpið að þessi kerti, sem höfðu örugglega hangið þarna í langan tíma, tækju upp á því að losna nú á meðan við vær- um þama. Ekki varð hjá því komist að læknir- inn sparkaði úr sprunguveggjunum er hann fótaði sig niður í sigband- inu. ísflögur og litlir snjókögglar féllu niður til okkar. Ég hallaði mér yfir Snæbjöm til að hlífa honum. Læknirinn var vissulega óvanur að síga og treysti eðlilega ekki fótfest- unni.“ Steig í gegnum sylluna - hyldýpi fyrir neðan Guðmundur Karl nálgaðist haftið í sprangunni þar sem Snæbjöm lá: „Ég sá að sjúklingurinn lá klemmdur á syllu niðri í nokkurs konar skoru. Þegar ég kom niður og steig á sylluna fór ég með fótinn í gegn. Ég fékk í magann og tók andk- öf þó að ég væri fastur í bandinu. Ég sá að Hjálmar steig á sylluna á móti og fór líka niður þar með annan fót- inn. Undir okkur var svart hyldýpi. Hér mátti ekkert út af bera. Nú sneri ég mér að sjúklingnum. Maðurinn var greinilega með litla meðvitund. Ég reyndi að tala við hann og hann svaraði mér í hálfum hljóðum. Hann gerði hvað hann gat og sagði mér hvar hann verkjaði og hvar hann væri tilfinningalaus. Mér leist skelfílega á ástand mannsins þegar ég fór að skoða hann betur. Hann var orðinn mjög kaldur, með áverka á höfði og bólg- inn í andliti. Það var erfitt að með- höndla og skoða manninn því hann var stór, þungur og kappklæddur. Hann virtist tilfinningalaus fyrir neðan brjóst og gat ekkert hreyft sig. Þetta benti til hryggbrots. Mað- urinn hafði auk þess verið hjálm- laus og meiðst á höfði. Mitt fýrsta mat á sjúklingnum var að hann hefði hlotið höfuðkúpubrot og mæn- an skaddast, hvort sem hann væri hryggbrotinn eða ekki... Þyrlan kemur en... Hópurinn við sprungubarminn uppi á Snæfellsjökli sá nú hvar þyrla vamarliðsins birtist fyrir sunnan jökulinn. Klukkan var langt gengin í átta. Þótt ekki hefði enn tekist að ná Snæbimi upp úr sprungunni fann fólkið til öryggis við .að sjá vélina nálgast. Þyrlan færðist óðum nær. Henni var flogið ákveðið að slysstaðnum samkvæmt leiðbeiningum frá flugmönnum á flugvél Flugmálastjómar sem hring- sólaði yfir jöklinum. Þyrluflug- mennimir virtust ætla að lenda skammt austan við slysstaðinn. Kristínu hafði verið komið fyrir á sjúkrabörum og björgunarmenn gengu með hana áleiðis að áætluð- um lendingarstað. Skyndilega virtist eitthvað koma fyrir hjá þyrluflugmönnunum. Vél- in lenti í miklu niðurstreymi í kyrru en þunnu jökufloftinu. I tutt- ugu metra hæð fór þyrlan snögglegt niður og skall síðan mjög harkalega á jöklinum í um 400 metra fjarlægð frá sprungunni. Fólkið horfði agn- dofa á það sem var að gerast. Högg- ið var svo mikið þegar vélin lenti að þyrluspaðamir svignuðu og snertu snjóinn við lendingarstaðinn. Reyk- ur steig upp frá þaki vélarinnar. Nokkrum sekúndum siðar sáust fimm menn hlaupa út úr vélinni. Það virtist vera hætta á sprengingu. bók Óttars er fjaliað um sex dramatíska atburði, þar á meðal þegar bátamaður á siglingu niöur Hvítá með félögum sínum var nánast drukknaður. Á elleftu stundu tókst þó kajakræðara að bíta sig fastan í hann í orðsins fyllstu merkingu, róa með hann í land og blása f hann lífi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.