Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 25
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 25 skák Skákþing íslands: Stefnir í úr- slitaskák í síð- —* ustu umferð Stórmeistararnir Hannes Hlifar Stefánsson og Jóhann Hjartarson berjast um sigurinn í landsliðsflokki á Skákþingi íslands. Keppnin fer fram í húsnæöi Þýsk-íslenska, Lyng- hálsi 10 í Reykjavík, og veröa tvær síðustu umferðirnar tefldar um helg- ina. Taflið hefst kl. 17 báöa dagana. Efstu menn áttu í basli í 8. umferð- inni sem tefld var á fimmtudags- kvöld. Jóhann tefldi við Áskel Örn Kárason og mátti þakka fyrir jafn- tefii en Hannes hafði betur gegn Rún- ari Sigurpálssyni frá Akureyri. Skák þeirra lauk ekki fyrr en á ellefta tím- anum er Hannesi tókst að knýja fram sigur eftir 55 leikja taflmennsku. Þar með jók hann forystuna - átti vinn- ingi meira en Jóhann er þremur umferðum var ólokið. Staðan að loknum átta umferðum: 1. Hannes Hlífar Stefánsson 7 v. 2. Jóhann Hjartarson 6 v. 3. Jón Garðar Viðarsson 5,5 v. 4. -5. Helgi Áss Grétarsson og Ágúst Sindri Karlsson 5 v. 6.-8. Rúnar Sigurpálsson, Sævar Bjarnason og Magnús Pálmi Örnólfs- son 3,5 v. 9. Benedikt Jónasson 3 v. 10. Áskell Örn Kárason 2,5 v. 11. Kristján Eðvarðsson 2 v. 12. Júlíus Friðjónsson 1,5 v. Helgi Áss, þriðji stórmeistarinn í hópnum, hefur sótt í sig veðrið eftir dapra byrjun og gæti enn gert efstu mönnum skráveifu. Hann átti að tefla við Hannes í 9. umferðinni í gærkvöldi. En mesta athygli vekur frammi- staða Jóns G. Viðarssonar, sem gerði sér lítið fyrir og lagöi Hannes að velli í 5. umferð. Ágúst Sindri hefur sömu- leiðis teflt vel og stendur vel að vígi. í 8. og 9. umferð mætir hann tveimur neðstu mönnum en í lokaumferðun- um tveimur teflir hann mikilvægar skákir við Jón Garðar og Helga Áss. Athyglin mun beinast að skák Hannesar og Jóhanns í síðustu um- ferð en líklegt er að þar verði um hreina úrslitaskák að ræða. Auk Jó- hanns á Hannes eftir að tefla við Helga Áss og Magnús Pálma. Jóhann átti í höggi við Benedikt í gær og mætir Rúnari í dag, laugardag. Því miður hefur verið allt of lítið um áhorfendur í vistlegum sal Þýsk- íslenska en aðgangur er ókeypis. Full ástæða er hins vegar til þess aö fylgjast með taflinu, því að ekkert er gefiö-eftir. Eftirfarandi skák sýnir þetta ljóslega en þar hreinlega „neyð- ir“ svartur mótherja sinn til þess að fórna til vinnings. Hvítt: Helgi Áss Grétarsson Svart: Sævar Bjarnason Benóní-vörn. 1. d4 RfB 2. c4 c5 3. d5 e5 Hefðbundin Benóní-vörn hefst með 3. - e6 4. Rc3 exd5 5. cxd5 g6 o.s.frv. 4. Rc3 d6 5. e4 Be7 Vörn svarts er gjarnan nefnd „tékkneskur Benóní" og dregur nafn sitt af því aö tékkneskir stórmeistar- ar, sem einu sinni voru - með Vlas- timil Hort í fararbroddi, blésu lífi í hana á sjöunda áratugoum. Áður þótti hún of hægfara og hreint ekki spennandi á svart, sem má búa við nokkur þrengsli fram eftir tafli. 6. Be2 0-0 7. Be3 Re8 8. Dd2 g6 9. g4! Rg7 10. 0-0-6 Hvítur velur beittustu áætlunina. Svartur er reiðubúinn að losa um taflið meö f7-f5 en þá opnast línur að svarta kónginum. 10. Rd7 11. Rf3 Rf6 12. h3 De813. Kbl Bd7 14. Hdgl Kh8 15. Kal Rg8 16. Bd3 f6 17. h4 Df7 18. Hg2 a6 19. Rel f5 Skák Jón L. Árnason Að öðrum kosti kærni 20. f4, því aö svartur hefur stillt mönnum sínum svo varfærnislega upp að hann nær ekki að hreiðra um sig á e5 eftir upp- skiptin. Svartur vill verða fyrr til en hvítur hefur hag af opnun g-línunn- ar. 20. gxf5 gxf5 21. Hhgl Rh5 1 1 Á iif A A A A&AA & & i & & & w & s á? s ABCDEFGH 22. Rf3! f4?! 23. Bxc5 Það er augljóst að hvítur á ekki annars úrkosti en að fórna manni en auðvitað var það hugmyndin meö síðasta leik hans. Svartur vanmetur fórnina, sem gefur hvítum býsna sterka stöðu. 23. - dxc5 24. Rxe5 De8 25. Rxd7 Dxd7 26. e5 Peðin eru sterk, kóngsstaöa svarts opin og svörtu mennirnir ná ekki að vinna saman. 26. - Dh3 27. Re4 Bxh4 28. Dc3 Rh6 29. e6 Bf6 30. Rxf6 Hxf6 Ef 30. - Rxf6 31. Hg7 og góð ráð gegn hótuninni 32. Hxh7 mát eru dýr. T.d. 30. - Rf5 31. Bxf5 Dxf5 32. Hlg5 Dh3 33. Hg8 + ! og mátar. 31. Hg5 Hg8 Fátt er til varnar. Hvítur hótaði einfaldlega 32. Hxh5. 32. Hxg8+ Rxg - Laglegur lokahnykkur. Ef 33. - Kxg8 34. Bxh7+ Kxh7 35. Dxh3 og eftirleikurinn er auðveldur. Svartur gafst upp. Innrömm uð gjafa vara Listaverkaeftirprentanir Ný sending. Sérpantanir óskast sóttar. ítalskir rammalistar Falleg gjafavara. I TI /~) Innrömmunarþj ónusta Fákafeni 9 - sími 5814370. ' W f N ‘ ! a tonleikum arleikhúsinu þriðjudaginn 28. nóvember miKiRcIi] prógrammið byggir á gömlum og nýjum lögum. einnig verða flutt lög sem haukur morthens söng á ferli sínum. með Dubba spjía: PQr|eifur guðjons§on a bassa þonr balctursson a hamjnond orgel guðmupdurpetursson a gitar gulli briem a trommur og slagverk kristín eysteinsdóttir hitar upp ásamt hljómsveit sinni og benedikt elvar tmbador forsala aðgöngumiða í borgarleikhúsinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.