Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Qupperneq 41
JjV LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
57
Enginn ísienskur þátttakandi í Miss World:
Kostnaður
ekki
ástæðan
- segir Ólafur Laufdal veitingamaður
Ólafur Laufdal veitingamaöur og
forráðamaður Fegurðarsamkeppni
íslands segir að Hrafiihildur Haf-
steinsdóttir, fegurðardrottning ís-
lands, hafi verið ósanngjöm í viðtali
við helgarblað DV fyrir viku. Ólafur
segir að tekin hafi verið ákvörðun
um það í maí sl. að senda ekki þátt-
takanda i keppnina Miss World og
var bréf þess efnis sent til aðstand-
enda hennar. „Sú ákvörðun var tek-
in eftir fund með stúlkum, sem tek-
ið hafa þátt í keppninni undanfarin
ár, að vera ekki meðal þátttakanda í
Miss World þetta árið. Fegurðar-
drottningamar töldu að fyrirkomu-
lag keppninnar, eftir að hún var
flutt til S-Afríku, hentaði ekki ís-
lensku keppendunum. Áhugi dóm-
ara keppninnar virðist hafa beinst
að lituðum stúlkum eða dökkum,"
segir Ólafur.
Rætt var um að þátttökugjald í
Miss World, 300 þúsund krónur,
hefði orðið til þess að keppandi var
ekki sendur. Ólafur segir þetta
rangt. „Þetta era vissulega miklir
peningar, því síðan bætist flugfar-
gjald og annar kostnaður við, en það
var ekki ástæðan fyrir því að engin
íslensk stúlka var meðal þátttak-
enda. Einu peningar fegurðarsam-
keppninnar em þeir sem koma inn
kvöldið sem hún er haldin. Hún hef-
ur þó alltaf komið út í mínus en við
settum samt þennan kostnað ekki
fyrir okkur.“
Ólafur segir einnig rangt að
sænskir aðilar hafi kostað Bimu
Bragadóttur á Miss World fyrir ári,
eins og Hrafiihildur sagði, það hafi
Fegiurðarsamkeppni íslands gert.
„Hrafnhildur minnist á ferðamálayf-
irvöld og utanrikisráðuneytið sem
styrktaraðila en sannleikurinn er sá
að þessir aðilar hafa ekki viljað
styrkja þátttakendur. Ávallt hefur
verið borgað fullt fargjald fyrir
stúlkumar og Flugleiðir hafa ekki
einu sinni séð sér fært að fella nið-
ur greiðslu fyrir yfirvigt hjá stúlk-
unum.“
Ólafúr segir að titlinum Fegurðar-
drottning íslands fylgi ekki loforð
um þátttöku í keppni erlendis. „Það
er einungis ákvörðun okkar hvort
stúlka verður send i keppni en það
fylgir ekki titlinum. Hvort ungfrú
ísland taki þátt í Miss World, Miss
Universe eða Miss Europe er ekkert
Það er ekki sjálfgefiö að þær stúlkur
sem vinna fegurðarsamkeppni ís-
lands fari til útlanda og keppi þar.
DV-mynd GVA
sem er ákveðið fyrirfram. Það er
ekki einu sinni sjálfgefíð að við
sendmn Hrafhhildi í keppnina Miss
Universe enda fer hún ekki fram í
apríl, eins og hún sagði, því ennþá
er óákveðið hvar og hvenær hún
verður.“
Ólafúr Laufdal segir að það sé
hrein móðgun við Karl Aspelund
fatahönnuð að kalla búning þann
sem Hrafnhildur fór með til Tyrk-
lands peysuföt eins og hún gerði í
viðtalinu. „Bima var í þessum kjól
árið áður og Karl bauðst til þess að.
breyta kjólnum og lána henni end-
urgjaldslaust,“ segir Ólafur Laufdal.
-ELA
Braaðbættur hjúpur,
orange og piparmintu,
BREMSUR!
* Klossar * Borðar
* Diskar * Skálar
Ml
©
RENNUM!
skálar og diska
allar stærðir
Allar álimingar!
ÁLÍMINGAR
Síðumúla 23-s. 5814181
Selmúlamegin
9 0 4 • 1 7 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
21 Handbolti
31 Körfubolti
4 j Enski boltinn
5 j ítalski boltinn
6 Þýski boltinn
7 j Önnur úrslit
_8j NBA-deildin
Á BEINNI BRAUT TIL
Styrktaraðilar:
Stórstúka íslands I.O.G.T.
Þingstúka Reykjavíkur
Rauði kross íslands
Búnaðarbankinn
Mjólkursamsalan
íslandsbanki
Sjóvá-Almennar hf.
Veltubær
Ábyrgð hf.
Slysavarnafélag íslands
Vífilfell hf.
Heilbrigðisráðuneytið
Umdæmisstúkan
Bílaleiga Akureyrar
Hans Petersen
Sportleigan
BAKKUSAR!
- foreldrar í fararbroddi?
Er þaö virkilega svo?
Á Bindindisdegi fjölskyldunnar vekjum við athygli á ábyrgð foreldra
og annarra uppalenda. Á flaskan að vera fordæmið sem þeir gefa?
• Enginn veit hvert fyrsta glasið leiðir
• Áfengisneytendur verða sífellt yngri
• Afbrotum vegna áfengisneyslu fjölgar
• Áfengissjúkir og aðstandendur þeirra þjást
• Ofbeldi og agaleysi vex óðfiuga, þar er áfengið með í för
• Áfengisneysla vex, landabrugg og landaneysla herja á
samfélagið og aukin fíkniefnaneysla siglir í kjölfarið
Á Bindindisdaginn fjölmennum við á fjölskylduhátíðina í Vinabæ
klukkan 15:30 til 17:30. Þar mæta þeir Kasper, Jesper og Jónatan og
Lína langsokkur. Þar syngja Lögreglukórinn og barnakórar úr
Hveragerði og Furðuleikhúsið mun birtast á sviðinu. Margt fleira
verður til gamans gert. Aðgangur ókeypis. Þar verður gott að vera.
Þú þangað með fjölskylduna, auðvitað! Nema hvað?
Gerum Bindindisdaginn 1995 að áfengislausum degi.