Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1995, Side 64
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALÐREI SEFUR
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
Frjalst,ohaö dagblaö
MUNIÐ NYTT SIMANUMER
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995
^Spilakassar:
Krónan gekk
sem hundr-
aðkall
„Þetta var smáslys. Tveir kassar
voru ekki rétt forritaðir þannig að
það var hægt að nota krónupeninga
i stað nýju hundrað króna pening-
anna. Þetta voru mannleg mistök
sem voru leiðrétt eftir stuttan
tíma,“ segir Magnús Snæbjörnsson,
framkvæmdastjóri íslenskra söfn-
unarkassa, sem reka spilakassana
fyrir Rauða kross íslands.
Fyrr í vikunni varð uppi fótur og
fit í sölutuminum Svarta svaninum
við Hlemm vegna þess að áhuga-
samir spilamenn höfðu uppgötvaö
að krónur voru orðnar ígildi hund-
rað króna í spilakössum frá Rauða
krossinum.
Gekk svo í sex klukkutíma að
hægt var að spila drjúgt fyrir smá-
peninga. Þá var gert við kassana og
urðu margir óánægðir krónukarlar
frá að hverfa eftir að hafa náð í
gamalt klink heim til sín.
Magnús sagði að Rauði krossinn
hefði tapað óverulegu fé á mistök-
unum en samkvæmt öðrum heim-
ildum mun um umtalsverðar fjár-
hæðir að ræða, jafnvel hundrað þús-
und krónur. Forritunarvillan kom
bara fram í þessum tveimur köss-
um. -GK
Blinduðust
í sólinni
Stálu löggU'
Ijósum
Akureyri:
Þrir árekstrar
Loksins var krónan
í fullu verðgildi!
Annað málið á skömmum tíma þar sem refsiheimild ónýtist vegna seinagangs yfirvalda:
Nær allt skilorðsbundið
í 33 milljóna svikamáli
dómstóllinn átelur ríkissaksóknara á ný fyrir ámælisverðan drátt á málsmeðferð
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað
í gær upp annan dóminn á skömm-
um tíma þar sem refsing fyrir stór-
felld efnahagsbrot var færð niður
og gerð skilorðsbundin að nær öllu
leyti þar sem málsmeðferð dróst á
ámælisverðan hátt, einkum hjá
ríkissaksóknara en einnig hjá
rannsóknaraðilum.
í málinu í gær var Magnús Jóns-
son, framkvæmdastjóri fyrirtækis
sem flutti inn franskar kartöflur,
dæmdur fyrir að hafa svikist und-
an þvi að greiða rúmar 33 milljón-
ir króna í innflutningsgjöld með
því að gefa tollayfirvöldum aðeins
hluta upp af raunverulegu kaup-
verði 75 vörusendinga á tímabil-
inu 1988-1992. Þannig hafi hann
samið við hollenskan seljanda var-
anna að gefa út vörureikninga upp
á nær 50 prósent lægra verð en
rétt var en þess í stað fengið hann
til að senda verulegt magn af um-
búðum, í lægri tollaflokki en á
hærra faktúruverði, til að seljand-
inn fengi sitt fyrir kartöflurnar.
Refsingin var dæmd 24 mánaða
fangelsi en 21 mánuður er skilorðs-
bundinn. Brotin voru því orðin
það gömul að það var andstætt
Evrópuráðssamningi um mann-
réttindi og lögum um meðferð op-
inberra mála að dæma sakborn-
inginn til meiri refsingar en raun
ber vitni.
í niðurstöðu dómsins kemur
meðal annars fram að brot ákærða
séu engu aö síður stórfelld. Dóm-
urinn telur að „undir venjulegum
kringumstæðum" komi skilorðs-
binding refsingar ekki til álita
enda séu sakarefnin það mikil.
„Hins vegar og vegna hins ámælis-
verða dráttar í máli þessu sem rak-
inn var þykir rétt að skilorðsbinda
refsivist ákærða svo sem dóma-
framkvæmd býður..."
Magnús var ákærður fyrir rúm-
lega 46 milljóna króna tollsvik
vegna 92 vörusendinga en var
sýknaður af sakargiftum um að
hafa gerst brotlegur við síðustu 18
sendingarnar.
Dómurinn dæmdi sakborning-
inn ekki til að greiða sekt til ríkis-
sjóðs vegna hinna vangreiddu inn-
flutningsgjalda þar sem ráðstafan-
ir hafi þegar verið gerðar af hálfu
sakborningsins í því skyni og
tryggingar hafi verið lagðar fram.
Guðjón Marteinsson héraðsdóm-
ari kvað upp dóminn. Eins og fram
kom í DV í gær er nýgenginn ann-
ar dómur í máli manns sem einnig
framdi stórfelld efnahagsbrot. Þar
varð einnig að færa refsingu niður
og skilorðsbinda fangelsisvist,
reyndar að öflu leyti, vegna þess
að brot hans væru orðin 6-8 ára -
of gömul til að málið teldist dæmt
„undir venjulegum kringumstæð-
um
Tillaga á Alþingi:
Sérstakur
ákærandi verði
Einn bífl skemmdist mikið og
nokkrir aðrir klesstust í fjórum
árekstrum í Vestmannaeyjum í
gær. Var einn árekstranna sérlega
harður en þó urðu ekki teljandi slys
á fólki.
Árekstrarir urðu allir með
skömmu millibili síðdegis þegar sól
var að hníga til viðar og rekur lög-
reglan óhöppin til þess að ökumenn
bílanna blinduðust. -GK
skipaður íefna-
hagsbrotum
Óprúttnir náungar stálu í fyrr-
inótt öllum ljósabúnaði af þaki bif-
reiðar lögreglunnar á ísafirði. Bif-
reiðin var á verkstæði og komust
þjófamir þar inn í skjóli nætur.
í gærkvöld hafði enn ekkert sést
til ljósanna en lögreglan átti siður
von á að þjófarnir ækju um stræti
undir bláum blikkljósum. -GK
Töluverðar skemmdir urðu á sex
bílum í þremur árekstrum á Akur-
eyri í dag. í öllum tilvikum slapp
fólk án meiðsla en eignatjón er tölu-
vert. -GK
íslenskir kjarnorkuandstæðingar réttuðu yfir Jacques Chirac Frakklandsforseta að honum fjarstöddum við Sunda-
höfn í gær og „tóku hann af lífi“ að úrskurði kviðdóms fengnum. Vildu andstæðingarnir þannig mótmæla kjarnorku-
tilraunum Frakka á Kyrrahafi en frönsk freigáta var í höfninni þegar forsetinn var dreginn fyrir dóm.
DV-mynd S
í þingsályktunartillögu, sem Jó-
hanna Sigurðardóttir og Bryndís
Hlöðversdöttir hafa lagt fram á Al-
þingi, kemur fram að þess skuli nú
freistað að ná samstöðu um að lög
verði sett um sérstakan ákæranda í
efnahagsbrotum. Þar er einnig lagt
til að málsmeðferð slikra brota
verði sýnilegri en verið hefur og
sæti í miklu ríkara mæli opinberri
meðferð ef skapa eigi almenn varn-
aðaráhrif gegn skattsvikum. Auk
þess kemur fram að íslensk yfirvöld
hafi ekki tekið á þessum brotum
sem skyldi.
í tillögunni segir jafnframt að
hugtakið efnahagsbrot sé skilgreint
sem kerfisbundin refsiverð hátt-
semi í hagnaðarskyni í annars lög-
legri atvinnustarfsemi. í tillögu
þingkvennanna segir einnig m.a.
„Hröð og skilvirk meðferð efna-
hagsbrota verður sífellt þýðingar-
rneiri. Opinber málsmeðferð er tals-
vert viðurhlutameiri og vandaðri en
lokuð skattrannsókn og skattsektar-
meðferð hjá skattrannsóknarstjóra
ríkisins og yfirskattanefnd. Ástæða
er til að huga að breytingum á því
fyrirkomulagi, ekki síst með tifliti
til varnaðaráhrifa.“ -Ótt
Veðrið á sunnu-
dag og mánudag:
Talsvert
næturfrost
Á sunnudag og mánudag
verður hæg norðlæg eða
breytileg átt. Úrkomulaust
verður að mestu og víða létt-
skýjað. Vægt frost verður
um mestallt land og talsvert
næturfrost í innsveitum.
Veðrið í dag er
á bls. 77.
Orensósveqi T1
Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888
Grœnt númer: 800 6 886