Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Blaðsíða 4
Kynning á
Renautt Mégane
Um helgina verður kynning á
{Renault Mégane (frb. Megann) hjá
Renaultumboðinu, Bifreiðum og
landbúnaðarvélum. Mégane er
nýr bíll í miUistæröarflokki og
tekur við af Renault 19.
Mégane er boðinn sem 1400 RN
og 1600 RT og kostar frá 1.298.000
Ikrónum. Mismikiil búnaður er í
bílunum en í grunnbúnaði er
meðal annars vökva- og veltistýri,
samlæsing með fjarstýringu og út-
varp/segulband með fjarstýringu.
Allir biiarnir eru fjögurra dyra
hlaðbakar.
Sýningin er opin í dag, frá kl. 10.
til 17, og á morgun frá kl. 13 til 17.
I
I
I
<
Peysufatadagur
Kvennaskólans
Kvennaskólastúlkur litu inn hjá
frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta
íslands, í Stjórnarráðinu í gær,
íklæddar peysufotum, og færðu for-
setanum blómvönd. Stúlkurnar
héldu upp á árlegan peysufatadag og
komu víða við. Þar á meöal litu þær
inn á nokkur elliheimili, komu við
á Ingólfstorgi og i Kringlunni. Um
kvöldið borðuðu þær í Skíðaskálan-
um í Hveradölum. -em
Peysufatastúlkur með Vigdísi forseta í gær.
DV-mynd ÞÖK
Subaru Impreza.
Ingvar Helgason hf.:
Sýnir Subaru
Impreza um
helgina
Ingvar Helgason hf. hefur feng-
ið Subaru Impreza aftur til sölu
eftir langt hlé en nú með öflugri
tveggja lítra og 115 hestafla vél.
Fjórhjóladrifsbúnaður er sá sami
og í Legacy en hann hefur reynst
vel hér á landi.
Subaru er eini bílaframleiöand-
inn sem býður upp á fjórhjóla-
drifna fólksbila með sjálfskiptingu
eða handskiptingu með háu og
lágu drifi.
Hægt er að velja um 4 eða 5
hurða útfærslur og á verði frá kr.
1.696.000.
Subaru Impreza 555 var heims-
meistari í rallakstri á síðasta ári.
Subaru Impreza veröur til sýn-
is i sýningarsal Ingvars Helgason-
ar að Sævarhöfða 2 laugardag og
sunnudag, frá kl. 14 til 17 báða
dagana.
réttir
LAUGARDAGUR 23. MARS 1996
Mitsubishi Lancer - með skyn-
virkri sjálfskiptingu.
Nýr Lancer sýnd-
ur um helgina
Hekla hf. sýnir nýjan Mitsubis-
I hi Lancer í dag og á morgun, nýj-
1 an og breyttan bíl, svo sem frá var
' sagt í DV-bilum sl. mánudag. Nýr
; Colt kemur ekki fyrr en að áliðnu
I ári og þá sem árgerð 1997.
Lancerbílarnir, sem nú verða
sýndir, eru með 1300 rúmsentí-
metra vél og kosta 1.330.000 krón-
ur handskiptir en 1.450.000 sjálf-
I skiptir, en sjálfskiptingin í Lancer
er mjög áhugaverð og hefur til
( þessa aðeins verið í dýrari bílum.
; Hún er af svokallaðri skynvirkri
gerð sem felur í sér að tölvubún-
aður skiptingarinnar skynjar
I aksturslag ökumannsins og breyt-
| ir forriti skiptingarinnar sam-
l kvæmt því til að fá út hagkvæm-
| asta skiptingu og skemmtilegast-
I an akstur.
tSýningin er opin í dag og á
morgun, klukkan 12 til 17 báða
dagana.
Renault Mégane - nýr bíll í milli-
stærð.
Tígri er lukkudýr Krakkaklúbbs DV.
Tígrapenninn 96:
Smasagnasamkeppni
um Tígra í umferðinni
- allir krakkar fá verðlaun
Margir krakkar kannast við
lukkudýr Krakkaklúbbs DV, hann
Tígra. Bráðlega hefst smásagnasam-
keppni meðal grunnskólanema á
aldrinum 6-12 ára. Samkeppnin ber
yfirskriftina Tígri í umferðinni og
er haldin í samstarfi við Umferðar-
ráð og lögregluna. Tígri er um þess-
ar mundir að læra umferðarregl-
urnar. Hvernig skyldi honum ganga
að fara yfir göturnar? Ætli hann
kunni á umferðarljósin? Skyldi
hann eiga reiðhjól og endurskins-
merki? Það er margt sem getur
komið fyrir Tígra í umferðinni ef
hann fer ekki varlega.
í smásögu sem ekki er lengri en
þrjár blaðsíður eiga þátttakendur að
fjalla um Tígra, sem er lukkudýr
Krakkaklúbbs DV, og ævintýri hans
í umferðinni. Tilgangur samkeppn-
innar er bæði að vekja athygli á
hinu ritaða máli og svo áhuga á um-
ferðarmálum.
Allir krakkar sem senda inn sögu
fá að launum teinaglit á reiðhjólið.
Valdar verða síðan 50 sögur sem
verða gefnar út í einni bók,
Tígrabðkinni. Dregin verða út þrjú
nöfn í fjórum aldurshópum, 6 ára og
yngri, 7-8 ára, 9-10 ára og 11-12 ára,
og fá þau heppnu glæsilega reið-
hjólahjálma.
Sérstakt Tígrahorn verður í
Kringlunni 9.-14. apríl en þar geta
krakkar fengið þátttökugögn og
nánari upplýsingar um samkeppn-
ina. Einnig er hægt að hafa sam-
band við Krakkaklúbb DV og fá
send þátttökugögn í næstu viku.
Skilafrestur er til 6. maí og er hægt
að senda sögurnar tU Krakkaklúbbs
DV, Þverholti 14, 105 Reykjavík, eða
til Umferðarráðs, Borgartúni 33,105
Reykjavik. -em
Paul McCartney.
Bítillinn Paul McCartney:
Leitar aö
upprennandi
stjörnum á
íslandi
| Újsendarar fyrrum Bítilsins
1 Paul McCartney eru á leiðinni
tU íslands í leit aö stjörnum
framtíðarinnar, „nýrri Björk“
Íeins og segir í tUkynningu frá
þeim. Tilefnið er alþjóðlegur
skóli sem McCartney hefur ný-
lega stofnað í Liverpool í Eng-
landi, Liverpool Instistute for
IPerforming Arts, LIPA, til að
kenna ungu kynslóðinni kúnstir
skemmtanaiðnaðarins.
Útsendarar McCartney standa
fyrir nokkrum sýningum í
Reykjavík í næstu viku þar sem
skoðaðir verða efnilegir tónlist-
armenn, dansarar, leikarar og
aðrir þeir sem telja sig eiga er-
indi í skemmtanaiðnaðinn. Upp-
| lýsingar verða gefnar á Scandic
Hótel Esju á pálmasunnudag
i mUli kl. 11 og 16.
Það hefur verið draumur Bít-
Usins að starfrækja skóla af
: þessu tagi. Meðal listamanna
: sem miðla reynslu sinni eru El-
vis CosteUo, Mark Knofler, Ray
Davies, Lou Reed, Alan Parker
| og George Martin. McCartney
sjálfur mun taka að sér nám-
| skeið í lagasmíðum. -bjb
Undirbúningur hafinn fyrir skiptingu Skútustaðahrepps:
Sjáum ekki aðra
leið en að kljúfa
- segir Eyþór Pétursson í undirbúningsnefnd fyrir stofnun nýs sveitarfélags
„Ég sé ekki annan möguleika en
að kljúfa sveitarfélagið. Annaðhvort
er að gefast upp og láta valta yfir sig
eða að kanna möguleikann á að
stofna nýjan hrepp fyrir suðursveit-
ina,“ segir Eyþór Pétursson, bóndi í
Baldursheimi III og einn fimm
nefndarmanna sem falið hefur verið
að kanna möguleika á að stofha nýtt
sveitarfélag út úr Skútustaðahreppi.
í fyrrakvöld héldu hreppsbúar í
suðursveitinni fund þar sem undir-
búningsnefndinni var falið að hefja
störf. Eyþór sagðist reikna með að
nefndarmenn hefðu hraðar hendur
því sveitarfélagi yrði ekki skipt
nema með lögum frá Alþingi. Undir-
búningi fyrir lagasetningu yrði því
að ljúka á næstu dögum eða vikum
ef skipta ætti hreppnum í ár.
Eyþór sagði að haft yrði samband
við alla þingmenn kjördæmisins. Þá
yrðu allar lagalegar forsendur skipt-
ingar kannaðar áður en beðið yrði
um skiptingu. Einnig þyrfti vilji
væntalegra íbúa í nýju sveitarfélagi
að liggja skýr fyrir.
„Vissulega er það skólamálið sem
ræður mestu um að við viljum
skipta sveitarfélaginu en einnig
kemur fleira til,“ sagði Eyþór. Und-
anfarin ár hefur verið hart deilt um
skólahald í hreppnum og vill meiri-
hluti hreppsnefndar aðeins reka
skóla á einum stað, þ.e. í Reykja-
hlíð. Suðursveitungar vilja hafa
sinn eigin skóla á Skútustöðum og
reka þar nú einkaskóla.
Leifur Hallgrímsson, oddviti
Skútustaðahrepps, sagði í samtali
við DV að viðbrögð meirihluta-
manna i hreppnum við þessum tíð-
indum væru engin.
„Ef þeir í suðursveitinni telja sín-
um hag betur borgið með því að
kljúfa sig út þá þeir um það,“ sagði
Leifur. Hann taldi þó að klofningur
gengi þvert á þá þróun sem verið
hefði um allt land síðustu ár að
sveitarfélög sameinuðust.
„Það er engin skynsemi í að hafa
tvö sveitarfélög í Skútustaða-
hreppi," sagði Leifur.
Eyþór sagði að enginn myndi úti-
loka sameiningu síðar við önnur
sveitarfélög í sýslunni og þá jafnvel
þannig að báðir hlutar Skútustaða-
hrepps lentu í sama sveitarfélagi ef
fleiri væru þar með einnig.
-GK
I