Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 23. MARS 1996 DV
Gamaldags mynstur
eða silfurlitar doppur?
ganga gjarnan bindislausir dags
daglega en fara í óhefðbundin jakka-
föt og setja upp mjó bindi samlit
skyrtunni á tyllidögum. Oft eru það
hvít bindi við hvítar skyrtur eða
svart við svarta skyrtu en aðrir lit-
ir eiga líka eftir að koma í
tísku. Það þykir líka
mjög smart að setja
upp bindi með glans-
þráðum og silfruðum
eða gylltum punkt-
um.
Ungir menn sem
klæða sig svona
þurfa ekki að láta
sér líða illa og
hafa áhyggjur
af því að vera
að „sýnast,“
eins og einn
viðmælandi
DV orðaði það.
Þessir menn
eru ekki í nein-
um „bankastjóra-
leik.“ Bindi eru
að komast í tísku
og verða það mjög mikið í haust og
næsta vetur.
Fyrir vissar manngerðir getur
verið sniðugt að vera í grófum föt-
um með gróft bindi og grófan bind-
ishnút. Einlit svart, grá og blá bindi
verða mikið í tísku í haust og innan
árs verða bindin orðin þvengmjó.
Stílhrein bindi
með ofnu mynstri
Bindi eru sígild hjá karlmönnum
um eða yfir þrítugu þó að auðvitað
geti verið sjar-
merandi að sjá
fræðimenn með
slaufu eða aldna
höfðingja með
klút um hálsinn.
Reglan er þó sú
að karlmenn yfir
þrítugu séu með
bindi og þá eru
bindin stílhrein
og klassísk og
breiddin svipuð
og hefur verið
undanfarin ár. í
staðinn fyrir áprentuð og villt
blóma- eða Mikka mús-mynstur
koma regluleg og kannski svolítið
gamaldags mynstur ofin í bindin.
Til að tolla í tískunni eiga karl-
menn nú að brjóta upp gamlar hefð-
ir og kiæða sig öðruvísi. Klassísk
bindi frá um 1950 eru að komast aft-
ur í tísku og skyrtur með langan og
mjóan flibba. Bindin geta nú verið
handsaumuð úr silki og bindishnút-
urinn breytist, nú á hann að vera
klassískur og mjór.
-GHS
Sölvi Snær Magnússon, 24 ára:
Finnst ég
frjálsari
Þorgils Óttar Mathiesen er mikill bindakarl og
í jarðlitum, gjarnan með doppum eða tíglum.
„Ég hef alltaf haft gaman af hálsbindum
og ég hef notað bindi frá þvi að ég fór að
ganga í jökkum og jakkafótum. Ég er dálít-
ið íhaldssamur í fatavali og vil hafa bind-
in klassísk og ekkert of skrautleg," segir
Þorgils Óttar Mathiesen, fyrrverandi
landsliðsfyrirliði í handknattleik. Hann
veltir bindum talsvert fyrir sér og viU að
þau skera sig dálítið úr án þess þó að vera
of skræpótt. Hann viU helst hafa bindin í
jarðlitum.
Þorgils Óttar segist vera mikill binda-
karl og eiga mikið af bindum, „hundruð,"
segir hann. Hann segist stundum kaupa
sér stakt bindi ef hann sér eitthvað sem
honum líst vel á í búðarglugga og svo hef-
ur hann það fyrir reglu að kaupa bindi
þegar hann kaupir sér föt. Hann segist
velja bindin alveg sjálfur en neitar því
ekki að hlusta á skoðanir annarra.
Þorgils Óttar Mathiesen, 34 ára:
A
A hundruð binda
vill hafa bindin
DV-mynd ÞÖK
- En eftir hverju fer hann þá við
bindisvalið?
„Þetta fer frekar mikið eftir fötunum. Ég
vU hafa einhverja liti í bindinu, kannski
doppur eða tígla en ekki blóm eða dýra-
myndir. Það er mjög hættulegt að kaupa
stakt bindi, maður þarf að vera með fötin
og skyrtuna með sér,“ segir
hann og kveðst gjarnan
velja bindið eftir tU-
efninu. Hann hefur
bindið tU dæmis
frekar litríkt ef
hann er á leið á
árshátíð og klæð-
ist þá dökkum fötum og hvítri skyrtu.
ÞorgUs Óttar segir að litlar sveiflur séu
í bindaúrvali, bindin mjókki eða breikki
hægt og
rólega eftir tískunni. Hann segist nota
gömlu hálsbindin sín afar lítið og geymir
þau bara inni í skáp. Þó hefur komið fyrir
að hann fær allt í einu dálæti á gömlu og
lítið notuðu bindi.
„Það hefur komið fyrir að ég hef keypt
mér bindi og ekkert notað í tvö ár. Svo hef
ég allt í einu uppgötvað bindið í klæða-
skápnum og fallið fyrir því því að það
passar svo vel við fötin sem ég á,“ segir
hann. -GHS
Páll Pátursson, 59 ára:
þarfa drusla
Sölvi er lítill bindakarl en setur þó upp bindi þegar
hann er að fara út að skemmta sér. Þá verður fyrir val-
inu hvítt bindi við svarta skyrtu. DV-mynd BG
Hálsbindi eru aUtaf í tísku, að
minnsta kosti hjá flestum karl-
mönnum. Allir sem eitt-
hvað velta fyrir sér
klæðnaði eru sam-
mála um að bindi
séu mikilvæg
fyrir útlitið og
að bindin reki
í raun enda-
hnútinn á
einkennisklæðnað karlmannsins,
jakkafötin. Bindi geta prýtt og fjörg-
að en leiðinleg og litlaus bindi geta
líka dregið úr.
Sumir karlmenn safna bindum og
hafa gaman af því að setja upp nýtt
bindi daglega og sumir þeirra
eiga jafnvel gott safn inni í fata-
skáp. Þessir menn endurnýja
birgðirnar reglulega og henda
ekki gömlu bindunum. Það er
líka eins gott því að á næstu
mánuðum komast gömlu bindin
aftur i tísku. Við skulum líta
aðeins á tískuna.
Ekki í
banka-
stjóra-
leik
Ungir
menn á
aldrinum 15
ára upp í
þrítugt
LEIKJATÖLVA
M/STÝRIPINNA
Páii Péturssyni félagsmálaráðherra leiðist að
vera með bindi þó að hann láti sig hafa það
þar sem það á við. Honum finnst bindið
„óþarfa drusla." DV-mynd ÞÖK
„Ég á ekki mikið af bindum og ég velti
bindum ekki mikið fyrir mér. Mér leiðist
að vera með bindi og geri það ekki nema
út úr neyð og hef það venjulega heldur
losaralegt um hálsinn," segir Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra sem hefur
staðið i ströngu síðustu vikuna vegna
frumvarps um reglur á vinnumarkaði.
- En skyldi hann þá sleppa því oft
að vera með bindi?
„Ég reyni að vera með bindi þegar
það á við en ég geng ekki með bindi
heima hjá mér,“ segir ráðherrann og
bætir við að sér finnist bindi vera
„óþarfa drusla. Þetta er klæðnaður sem
maður þarf ekki endilega á að halda til
skjóls eða þess háttar," segir hann.
„Ég á nokkur bindi og reyni að hafa
bindið eftir því í hvaða fötum ég er í. Ég
kaupi mér ekki oft bindi. Það er frekar að
mér sé gefið bindi en það kemur fyrir að ég
kaupi mér bindi ef ég kaupi mér föt,“ segir
og veit ekkert hvaða bindi er hans uppá-
haldsbindi.
„Ég á ekkert nema látlaus bindi,“ segir Páll.
-GHS
án bindis
„Ég er ekki mikill
bindakarl og hingað til
hef ég bara verið með
bindi ef ég er að fara eitt-
hvað út en ekki dags dag-
lega. Ég er gjarnan með
hvítt bindi við svarta
skyrtu en það er margt til
í þessu og það
getur vel ver-
ið að þetta
breytist
með
þessum
nýja
stíl sem
er að
koma,“
segir Sölvi
Snær Magnús-
son innkaupa
stjóri, 24 ára.
„Ég var oft með bindi
þegar uppatískan var upp
á sitt besta. Mér finnst til-
gangslaust að halda upp á
bindin og geri það aldrei.
Þau endast aldrei neitt en
ég á einhvers staðar fullt
af bindum ef út í það er
farið,“ segir hann og
bendir á að bindi hafi
það orð á sér að vera
heftandi.
„Mér finnst ég
frjálsari án bind-
is,“ segir hann.