Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Qupperneq 25
í
LAUGARDAGUR 23. MARS 1996
*
■ ★'
wnnmg
25
Messa í h moll
★ ★
Nú í vikunni varð Johann Sebast-
ian Bach 311 ára. Gefúr það gott til-
efni til að hyggja að verkum hans
aftur því að seint hafa menn of mik-
ið af tónlist Bachs. Fyrir valinu
verður Messa í h moli í flutningi St.
Martin-in-the-Fields hljómsveitar-
innar ásamt með kór og einsöngv-
urum. Stjórnandi er
Neville Marriner.
H moll messan er
íslenskum tónleika-
gestum kunnug. Hún
hefur verið flutt af
Jóni Stefánssyni og
kór Langholtskirkju og ef til vill af
fleiri. Messu þessari hefur verið lýst
sem mesta tónlistarverki allra alda
og þjóða og lætur engan ósnortinn
sem leggur eyrun við. Svo sem hæf-
ir miklu listaverki fékk það vondar
undirtektir í byrjun og var ekki
einu sinni gefið út fyrr en 64 ár
voru liðin frá samningu þess og höf-
undurinn löngu dáinn og grafinn.
Samtiminn metur tónverk jafnan í
öfugu hlutfalli við gildi þeirra. Þessi
regla átti ekki síður við á dögum
Bachs en nú. Hann naut takmark-
aðrar virðingar í heimabæ sínum,
Leipzig, fyrir verk sín, svo mörg og
mikil sem þau þó voru. Greip hann
til þess ráðs að semja messu í h moll
og senda kóngi þeim er næstur var
með beiðni um að veita sér titilinn
hirðtónstjóri. Bach leit svo á að slík-
ur titill mundi vega þyngra heima
fyrir en tónverkin og gekk það
nokkuð eftir. Eftir mikið stímabrak
fékk Bach að lokum titilinn - ekki
vegna þess að kónginum hafi líkað
verkið, því ekki er vitað til þess að
það hafi verið
flutt við hirð-
ina, heldur
vegna þess að
menn báru
virðingu fyrir
þeirri miklu
vinnu sem lá í að skrifa svona
margar nótur. Auk þess var titillinn
útlátalítill. Nú hafa mál hins vegar
snúist svo að kóngs þessa væri
aldrei getið til ills eða góðs ef ekki
væri vegna þessara tengsla hans við
eitt af tónverkum hins fátæka
kantors í Leipzig.
Upptaka St. Martin-in-the-Fields á
H moll messunni er frá 1977. Hún er
ekki gerð með sögulegum hljóðfær-
um, eins og algengara er orðið síð-
an. Notkun hljóðfæra frá þeim tíma
sem verkin voru samin veitir oft
skemmtilega tilbreytingu við flutn-
ing gamalla verka. Þegar hlýtt er á
St Martin-hljómsveitina rifjast hins
vegar upp kostir nútímahljóðfæra.
Hljóðfærin eru hljómmeiri og hafa
Hljómplötur
Finnur Torfi Stefánsson
vikunni voru 311 ár liðin frá fæðingu Johanns Sebastians Bachs.
meira styrksvið. Jafnvægi kórs og
einsöngvara er betra. Allt eru þetta
mikilvæg atriði fyrir listræna túlk-
un. St Martin-hljómsveitin er löngu
víðþekkt fyrir listræna nákvæmni
og bregst ekki í þessari upptöku.
Kórinn gefur hljómsveitinni ekkert
eftir og er fyrsta flokks. Sama má
segja um framlag einsöngvaranna,
Margaret Marshall, Janet Baker,
Robert Tear og Samuel Ramey.
Þessi upptaka er góður kostur fyrir
hvem þann sem vill eiga vandaða
og sígUda útgáfu af þessu mikil-
væga verki.
TÆKNILEGAR UPPLYSINGAR:
• Digital FM/MW/LW útvarp
með 30 minnum
• 100 watta magnari
• 3ja diska geislaspilari
með 30 minnum
• Tónjafnari m. 6 forstilltingum
Tímastilling og vekjari
• Tvöfalt Dolby segulband
Innstunga fyrir heyrnartól I
og hljóðnema
Fullkomin fjarstýring
... og margt fleira.
AiKM
FULLKOMIN
1 OOW HUÓMTÆKI
^ÓHraUKPSMBSVÖMN
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090
TX-300
Litableksprautuprentari
2ja hylkja kerfi
720 dpi upplausn
30 blaða arkam atari
3 bls/mín
2ja mánaða Internetáskrift
28.800 Baud mótald
Námskeið í notkun Internetsins
8 MB minni - 850 MB diskur
4 hraða geislaspilari
SoundBlaster 16 hljóðkort
15W hátalarar - Windows 95
MS Home heimapakkinn
Megapak 3 (12 gelsladiskar)
Lltableksprautuprentari
2ja hylkja kerfi
720 dpi upplausn
4.5 bls/mín
100 blaða arkamatarl
litableksprautuprentai
4ra hylkja kerfi
720 dpi - 3 bls/mín ^
100 blaða arkamatari
Canon BJC-70
kr. 22.950
CorelDraw hönnunarpakkinn
Pressworks unitirotslorrit lylgir a CD
kr. 164.900
Kr. 47.900
kr. 29.950
1 ] 1*1 i i í r í M B1 ÍM Ti I ÍT7TT Ly V i f |1 m ■ TmTTTI 1
I [1J II H fjIJ M [ 11, fi 111IU
Opið iaugardaga 10-14
NYHERJA
SKAFTAHLIÐ 24
SÍMI569 7800
http://www.nyiierji.is/vorur/
OLL VERO ERU STCR. VERÐ M/VSK