Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Síða 30
LAUGARDAGUR 23. MARS 1996
3. fréttir
Menendez-bræður fundnir sekir um ad hafa myrt foreldra sína að yfirlögðu ráði:
Myrtu móður sína af miskunnsemi
Lyle Menendez og lögfræðingur hans, Charles Gessler, hlýða á úrskurð
kviðdómsins sem fann hann og Erik bróður hans seka um að hafa myrt for-
eldra sína að yfirlögðu ráði. Símamyndir Reuter
Hinn 25 ára gamli Erik Menendez
sneri sér að ömmu sinni, Mariu
Menendez, og sagði þessi orð þegar
kviðdómur í Los Angeles hafði
fundið hann og bróður hans, hinn
28 ára gamla Lyle, seka um að hafa
myrt foreldra sína af yfirlögðu ráði
fyrir hartnær sjö árum. Hvorki Erik
né bróðir hans sýndu nokkur svip-
brigði þegar úrskurður kviðdóms-
ins var lesinn upp í réttarsalnum.
Bræðurnir eiga yfir höfði sér að
vera dæmdir til dauða fyrir morðin
en farið verður að ræða refsinguna
yfir þeim eftir helgi. Ekki er víst að
niðurstaða liggi fyrir fyrr en eftir
margar vikur.
Dómarinn meinaði lögfræðingum
bræðranna að byggja vörn sína á
því að bræðurnir hefðu drepið for-
eldrana í sjálfsvörn vegna síendur-
tekins kynferðislegs og andlegs of-
beldis. Kviðdómendur virðast
einnig hafa tekið þá fullyrðingu
sækjenda trúanlega að bræðumir
hafi verið knúðir áfram af fégræðgi,
að þeir hafi aðeins viljað komast
yfir auðæfi foreldra sinna sem voru
metin á tæpan milljarð króna.
Með vasapeninjga á við
árslaun meðaljonsins
Bræðumir hafa mátt dúsa í
þröngum fangaklefa frá því þeir
voru handteknir fyrir morðin í
marsmánuði 1990. Það er langur
vegur frá glæsivillunni í spænskum
stíl sem þeir bjuggu í með foreldr-
um sínum í Beverly Hills, húsi sem
einu sinni hafði verið í eigu popp-
stjarnanna Eltons Johns og
Michaels Jacksons.
Af öllum ytri aðstæðum mætti
ætla að bræðumir hefðu haft allt
sem hugurinn gimtist og að þeir
myndu lifa í vellystingum praktug-
lega það sem eftir væri ævinnar;
þeir fengu til dæmis meira í vasa-
peninga en meðalmaðurinn hefur í
árslaun. En líf bræðranna var langt
frá því að vera dans á rósum, ef
marka má miður fallegan framburð
þeirra í réttarhöldunum tvennum
sem haldin vora yfir þeim. Þeir
héldu því fram að faðir þeirra hefði
misnotað þá kynferðislega og að
þeir hefðu sætt andlegum misþyrm-
ingum af hálfu móðurinnar. Þeir
hefðu því orðið að drepa foreldra
sína til að binda enda á eymd sína.
SHaglabvssuskothríð í
læsivillunni á Elm
rive
Tveir kviðdómar, einn fyrir
hvom bróður, gátu með engu móti
komist að niðurstöðu þegar fyrri
Erik Menendez segir ömmu sinni að
hann elski hana eftir að kviðdómur
hafði kveðið upp sektardóm sinn
yfir honum og bróður hans Lyle fyr-
ir foreldramorð.
réttarhöldunum yfir bræðmnum
lauk í janúar 1994 og því varð að
rétta yfir þeim að nýju. I síðari rétt-
arhöldunum var sameiginlegur
kviðdómur fyrir þá báða og hann
komst að þeirri niðurstöðu að þeir
væru sekir um að hafa myrt for-
eldra sína þann 20. ágúst 1989.
Erlent
fréttaljós
Þann dag læddust þeir Lyle, sem
var 21 árs, og Erik, sem var 18 ára,
inn í fjölskylduherbergi glæsivill-
unnar við Elm Drive þar sem José
Menendez og hin aðlaðandi eigin-
kona hans, Kitty, voru að horfa á
sjónvarpið. Bræðurnir hófu skot-
hríð á þau úr haglabyssum sem þeir
höfðu keypt í San Diego nokkrum
dögum áður. José Menendez var
skotinn fimm sinnum í hnakkann
en Kitty veu sölluð niður þegar hún
reyndi að flýja árásarmennina. Hún
var skotin tíu skotum. Síðar sögðu
þeir sálfræðingi Eriks að þeir hefðu
drepið móður sína af miskunnsemi.
Bræðurnir tilkynntu lögreglunni
sjálfir um atburðinn, bám við að
þeir hefðu verið i bíó og fundið lík
foreldra sinna þegar þeir komu
heim. Þeim tókst meira að segja að
gera sér upp grát.
Úr einu fínu hverfinu í
annað
Engum sem þekkti fjölskylduna
hefði nokkru sinni getað dottið í
hug að nokkuð þessu líkt gæti gerst
en það gerðist nú samt.
Þegar bræðurnir fæddust bjuggu
foreldrar þeirra í Monsey sem er
miðstéttarúthverfi við New York
borg. Faðir þeirra var á þeim tíma
endurskoðandi hjá mjög virtu end-
urskoðunarfyrirtæki.
José Menendez hlaut skjótan
frama og á örfáum árum náði hann
að verða yfirmaður RCA-Arolia,
hljómplötudeildar RCA fyrirtækja-
samsteypunnar. í kjölfar þess flutti
fjölskyldan til Princeton í New Jers-
ey þar sem drengirnir gengu í mjög
svo finan skóla.
José Menendez var haldinn full-
komnunaráráttu. Það átti ekki að-
eins við um vinnuna, heldur heimil-
islífið líka, og hann ætlaðist til
einskis annars en fullkomnunar af
ungum sonum sínum tveimur.
„Faðir minn þjáðist vegna full-
komnunaráráttu sinnar,“ sagði Lyle
Menendez eitt sinn við blaðamann
sem tók viðtal við hann. „Hún náði
einnig inn fyrir veggi heimilisins og
gerði okkur Erik stundum erfitt fyr-
ir,“ bætti hann við.
r
Ut á tennisvöll klukkan
sex á morgnana
Þegar drengimir voru níu og tólf
ára ákvað faðir þeirra að gera úr
þeim tennisstjömur. Á hverjum
morgni klukkan sex rak hann þá út
á tennisvöllinn við glæsiheimili
þeirra í Princeton og neyddi þá til
að æfa sig og æfa. Hann réð fjölda
þjálfara til að veita þeim tilsögn og
gerði svo lítið úr þeim þegar honum
fannst þeir ekki standa sig nógu vel.
En José Menendez gerði kröfu
um framúrskarandi árangur á ýms-
um öðrum sviðum þegar drengimir
voru að vaxa úr grasi. Þótt þeir
væm rétt komnir á táningsaldurinn
var engu að síður ætlast til þess af
þeim að þeir gætu rætt alþjóðamál-
in af sæmilegu viti við kvöldverðar-
borðið.
Bræðurnir brugðust misjafnlega
við þessum miklu kröfum foður
síns. Vinir sem þekktu þá á þessum
tíma segja að Lyle hafi orðið dálítið
drjúgur með sjálfan sig en á sama
tíma hafi Erik orðið sífellt feimnari
og dregið sig meira inn í eigin skel.
Lyle var stoltur af föður sínum og
hafði gaman af því að fara með
uppáhaldsspakmæli hans: „Ég var
ekki borinn í þennan heim í ósigri,
né heldur renna mistök mér í
æðum.“
Meiri peningar í óhreina
þvottinum
Einhverju sinni á unglingsárun-
um, þegar leiðindin heima fyrir
voru alveg að drepa hann og tÚ að
þéna dálitla vasapeninga auka-
lega, fékk Lyle sér vinnu á veit-
ingastað í Princeton. •Vinir hans
minnast þess að þegar hann fékk
laimin fyrir fyrsta kvöldið, ávísun
upp á sem svarar um tvö þúsund
krónum, hefði hann sagt stundar-
hátt: „Ég finn nú svona bara með
því að fara í gegnum óhreina tauið
mitt.“ Og með þeim orðum tók
hann hatt sinn og staf og fór og
kom ekki aftur.
Fjölskyldan flutti til Kalifomíu
árið 1986 þegar José Menendez lét af
störfum hjá RCA og gekk til liðs við
kvikmyndafyrirtækið Carolco þar
sem honum var ætlað að blása nýju
lífi í dótturfyrirtæki þess, Int-
emational Video Entertainment,
sem var á hraðri niðurleið. Lyle
varö eftir í Princeton og gekk í hinn
virta háskóla sem kenndur er við
bæinn. Erik fór hins vegar með for-
eldrum sínum til vesturstrandar-
innar og gekk í Beverly Hills
menntaskólann.
En Adam var ekki lengi í Paradís
því mikil vandræði vora í uppsigl-
ingu. Árið eftir að fjölskyldan flutti
vestur var Lyle rekinn frá
Princeton með skít og skömm fyrir
að stela verki annars manns og
setja í sálfræðiritgerð sem hann
skrifaði. Árið eftir, 1988, komst Erik
í kast við lögin þegar upp komst að
hann var einn úr hópi fordekraðra
ríkisbubbabarna sem höfðu lagst i
innbrot í San Fernando dalnum,
bara „upp á sportið".
Saksóknarinn með
kátari mönnum
Fréttir af sakfellingunni fóru
eins og eldur í sinu um Los Angel-
es borg á miðvikudaginn var og um
fátt annað var rætt í blaðurþáttum
útvarpsstöðvanna. Þar lýstu flestir
sig ánægða með úrskurð kviðdóms-
ins. En sá sem líklega var hvað kát-
astur var saksóknarinn, Gil Garc-
etti, sem var farinn að hafa það orð
á sér að tapa öllum stóru málunum.
Er þar skemmst að minnast máls-
ins gegn ruðningshetjunni O.J.
Simpson og máls rapparans Snoop
Doggy Dogg.
Vorleikur
9041750
\
9090
Nú bregðum við á leik með
Sjónvarpsmiðstöðinni,
Síðumúla 2. Hringdu í síma
904 1750 svaraðu þremur
iéttum spurningum rétt.
Þar með ertu komin(n) í
vinningspottinn og gœtir
orðið ein(n) hinna heppnu
sem fá verðlaun í vorleiknum.
Glœsileg verðlaun frá
Sjónvarpsmiðstöðinni, AKAI
MX-66 Karaoke hljómtœki,
að verðmœti
kr. 34.900 -
í tœkinu er:
* Digital útvarp með 30 minnum
* Karaoke-kerfi
* Handahófsspilun á geislaspilara
* Tvöfalt segulband
* Fjarstýring og margt fleira
Sex heppnir þátttakendur fá einnig útvarpsvekjaraklukku í aukavinning
/
* 80 watta magnari
* Geislaspilari með 32 minnum
Tónjafnari með bassa og diskantstilli
* Innstunga fyrir heyrnartól og hljóðnema
Hrinadu í 9041750
Verð 39,90 mínútan
Reuter