Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1996, Blaðsíða 32
LAUGARDAGUR 23. MARS 1996 30-"V"
4» unglingaspjall
—....-......
'k
Þórey Elísdóttir, Björk, er í landsliðinu í fimleikum:
Æfir fimleika sex sinnum í viku
„Ég er á eðlisfræöibraut, náttúru-
fræðibraut og íþróttafræðibraut í
skólanum. Það er mikið um að
sömu áfangarnir séu á þessum
brautum þannig að þetta fer ágæt-
lega saman. Ég verð hálfu ári leng-
ur í skólanum til að klára þetta,“
segir Þórey Elísdóttir, 18 ára fim-
leikakona í Björk, en hún kom á
óvart á íslandsmeistaramótinu í
fimleikum í byrjun mars og lenti þá
í þriðja sæti.
Þórey hefur ýmislegt í huga í
sambandi við framtíðina. Með því
að klára stúdentinn af þremur
brautum í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ segist hún geta gert
draum að veruleika og farið tii
Austurríkis að kenna á skíði þegar
hún er búin með stúdentinn. Svo
segist hún geta hugsað sér aö verða
íþróttakennari og íþróttalæknir
þannig að hún heldur öllum mögu-
leikum opnum.
Æft í tíu ár
Þórey hefur æft fimleika með
Björk í tíu ár. í fyrstu æfði hún
einu sinni í viku með byrj-
endahópnum en síðustu
sjö árin hefur hún æft sex
sinnum í viku. Tímafjöld-
inn hefur alltaf aukist
smám saman og nú æfir
hún íjóra tíma á dag alla
virka daga vikunnar. Á
sunnudögum er frí en í
staðinn æfa æfa Bjarkirn-
Bestu vinkonurnar
eru í fimleikum
„Ég reyni að læra eins mikið og
ég get í skólanum, í öllum eyðum og
friminútum. Bestu vinkonur mínar
eru í fimleikunum og svo einhverj-
ar í skólanum en þær verða bara að
bíða þar til um helgar. Ég hitti þær
á föstudags- og laugardagskvöld-
um,“ segir Þórey.
Um síðustu helgi var Þórey ásamt
landsliðinu í fimleikum á fimleika-
móti vinaþjóða á írlandi ásamt
nokkrum öðrum stelpum úr lands-
liðinu að keppa við landslið frá
Austurriki, írlandi og Norður-ír-
landi. Hún segir að islenska lands-
liðið hafi verið mjög ánægt með
árangurinn enda hafi þær
unnið mótið.
Þórey hefur farið nokkrum
sinnum utan með öðrum
fimleikakonum, meðal ann-
ars á Norðurlandamót til
Danmerkur og á Eyjaleikana
til Gíbraltar.
-GHS
Þórey Elísdóttir lenti í þriðja sæti á
íslandsmótinu í fimleikum nýlega.
Þórey æfir sex sinnum í viku og er í
fullu námi í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ.
DV-mynd ÞÖK
ar frá 11 til hálfsex á laugardögum.
Þórey segist vera þokkalega
ánægð með árangurinn á íslands-
mótinu. Hún segir að árangur sinn
hafi verið bestur fyrsta daginn og
þá hafi hún náð lágmarki á Evrópu-
mótið. Hina dagana hafi sér ekki
gengið mjög vel en þó hafi hún náð
þriðja sætinu á tvíslá. Tvísláin sé
sitt uppáhald.
- En hefur hún einhvem tíma fyr-
ir heimalærdóminn og vini þegar
hún æfir svona mikið?
#0 hliðin___________________________________EH
Langar mest að lesa Pollýönnu
- segir Hulda Björk Garðarsdóttir söngkona
Hulda Björk Garðarsdóttir er í
burtfararprófi frá Söngskólanum
og leikur eitt aðalhlutverkið í
nemendasýningu skólans, Okla-
hóma,
og syng-
ur hi
hlutverk
Annie. Þegar hafa
verið tvær sýningar fyr-
ir troðfullu húsi í íslensku Óper-
unni og i kvöld er þriðja og trúlega
síðasta sýning. Það er Hulda Björk
sem sýnir á sér hina hliðina að
þessu sinni:
Fullt nafn: Huida Björk Garðars-
dóttir.
Fæðingardagur og ár: 24. maí
1969.
Unnusti: Ólafur E.
Stolzenwald.
Böm: Valdís Eva.
Bifreið: Ég ferðast með strætó.
Starf: Söngnám.
Laun: Námslán.
Áhugamál: Tónlist og fjölskyld-
an.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Ég hefði unnið bónu-
svinning í lottói ef ég hefði mun-
að eftir því að fara með miöann
fyrir lokun.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera? Það sem ég er að
gera í það og það skiptiö.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Að gera ekki neitt.
Uppáhaldsmatur: Fiskur.
Uppáhaldsdrykkur Nýkreist
appelsína.
Hvaða iþróttamaður stendur
fremstur i dag að þínu mati?
Jón Arnar tugþrautarmaður.
Uppáhaldstímarit: Veit það ekki.
Hver er fallegasti karl sem þú
hefur séð? Allir eru fallegir á sinn
hátt.
Ertu hlynnt eða
Helga Björk Garðarsdóttir, söngkona í söng-
leiknum Oklahóma, sem Nemendaleikhús
Söngskólans setur upp, sýnir á sér hina hlið-
ina. Hún er hér ásamt samleikara sfnum í
söngleiknum. DV-mynd GVA
andvig rikisstjóminni? Fæst orð
bera minnsta ábyrgð.
Hvaða persónu langar þig mest
aö hitta? Mér fmnst alltaf gaman
að hitta fólk.
Uppáhaldsleik-
ari: Siggi Sig-
urjóns.
Uppáhalds-
leikkona:
Edda Björg-
vins.
Uppáhalds-
söngvari:
Kristinn Sig-
mundsson.
Uppáhaldsstjóm-
málamaður: Forseti ís-
lands.
Uppáhaldsteiknimynda-
persóna: Guli teikni-
myndaunginn.
Uppáhaldssj ónvarps-
efni: Spaugstofan.
Uppáhaldsmatsölustað-
ur: Ítalía.
Hvaða bók langar þig
mest að lesa?
Pollýönnu.
Hver útvarpsrásanna
finnst þér best? Sígild
FM.
Uppáhaldsútvarps-
maður: Enginn er
betri en annar.
Á hvaða sjónvarps-
stöð horfir þú mest?
7er eftir því hvað ég ætla
að horfa á.
Uppáhaldssjónvarps-
maður: Þeir eru allir
ágætir.
Uppáhaldskrá: Sólon.
Uppáhaldsfélag f íþróttum:
UMSE.
Stefhir þú að einhverju
sérstöku í framtíðinni? Að
vera alltaf góð manneskja.
Hvað ætlar þú að gera f
sumarfríinu? Vinna og ferðast
- innanlands með fjölskyldunni.
-GHS
Brooke Shields svaraði engum skilaboðum frá kærastanum sínum, tennis-
stjörnunni Andre Agassi, og þess vegna fór hann á nektarsýninguna.
Andre Agassi heldur fram hjá Brooke Shields:
Fór með dansmey á hótelherbergið
Nektardansmeynni Jeanna Fine
tókst að tæla Andre Agassi,
kærasta Brooke Shields, á nektar-
sýningu hjá sér og fór svo með hon-
um upp á hótelherbergi á eftir.
Tennisstjaman Andre Agassi hef-
ur tekið upp á því að halda fram hjá
kærustunni sinni, henni Brooke
Shields. Shields tekur þvi varla
fagnandi og má búast við að það
hrikti í sambandi þeirra þó að nýj-
ustu fréttir hermi að allt hafi fallið
í ljúfa löð þeirra í milli.
Agassi hafði átt í deilum við
Shields um nokkurt skeið þegar
hann hitti leikkonuna Jeanna Fine,
sem þekktust er fyrir leik sinn í
klámmyndum, á næturklúbbi í Kali-
forníu og eyddu þau einni nótt sam-
an.
Svo virðist sem Fine hafi boðið
Agassi á nektarsýningu hjá sér en
hann afþakkað. Um kvöldið hafi
hann reynt að ná sambandi við sina
heittelskuðu Shields en hún ekki
svarað. Hann hafi því ákveðið að
fara í klúbbinn og endað með
leikkonunni, uppi á hótelherbergi.
„Við áttum ljúfa ástarnótt sam-
an,“ segir leikkonan og bendir á að
hún eigi fjöiskyldu að hugsa um og
sinn leiklistarferil og Agassi hafi
Brooke Shields og sinn tennisferil
að sinna. Engum sögum fer af við-
brögðum Brooke Shields við fram-
hjáhaldinu.