Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Blaðsíða 6
6 (útlönd LAUGARDAGUR 30. MARS 1996 stuttar fréttir Dæmdir fyrir morð Níu hægriöfgamenn í Suður- ; Afríku voru fundnir sekir um að hafa myrt 20 manns í sprengjutil- ræði sem ætlað var að trufla | fyrstu lýðræðislegu kosningarn- ar í landinu 1994. Sprengt fyrir mistök Rússnesk sprengja, sem kastað var á griðasvæði í Tsjetsjeníu ; fyrir mistök, varð að minnsta : kosti tiu óbreyttum borgurum að bana og jók spennuna á svæðinu. Jeltsín hæðir komma Boris Jeltsín Rúss- landsforseti 1 hæddist að frambjóðend- I um kommún- ?: ista í kom- andi forseta- kosningum og kallaði þá menn gærdagsins sem væru á leið út úr stjórnniálum. Mannskæður bruni Talið er að 77 manns hafi g farist í bruna sem geisaði í versl- unarmiðstöð í Bogor í Indónesíu. Barði ungbarn til bana Breskur hermaður, með aðset- ur i Þýskalandi, var dæmdur í lífstiðarfangelsi fyrir að hafa barið þriggja mánaða dóttur sína til bana í reiðikasti. Frekar reykja en skera James Parkinson, 67 ára Breti, | neitaöi að láta skera sig upp I vegna meins í blöðruhálskirtli : þar sem hann fær ekki að reykja á spítalanum. Spitalinn stendur við reykingabannið. Hvetur til samstöðu Á kosn- ingafundi hvatti for- setakandídat repúblikana, Bob Dole, til samstöðu fyr- ir forstakosn- ingamar og hvatti enn fremur Pat Buchanan og Ross Perot til að láta af fram- boðshugleiðingum undir merki ’ þriðja stjórnmálaflokksins. Hættu að sýna Nixon Kvikmyndahús i Mexlkó | hættu skyndilega sýningum á mynd Olivers Stones, Nixon, eft- ir að hann hafði lýst yfir stuðn- ingi við zapatista- skæruliða. Efast um sakleysi Antanas Mockus, borgarstjóri Bogotá í Kólumbíu og með vin- sælli mönnum þar í landi, sagð- ist efast um sakleysi Sampers forseta en hann er grunaður um að hafa fjármagnað kosningabar- áttu sína með eiturlyfjagróða. Reuter Erlendir markaðir: Verð á olíu og bensíni hækkaði Verð á bensíni og olíu hefur hækkað verulega undanfarna viku. Þannig hækkaði til dæmis 92ja okt- ana bensín úr 197 dollurum tunnan í 205 dollara og gasolía hækkaði úr 197 dollurum í 214 dollara þegar mest var. Verðið lækkaði örlítið í lok vikunnar en hélst þó hátt. Sigurgeir Þorkelsson hjá Esso segir að í byrjun hafi verið talið að verð á olíu og bensíni hafi hækkað vegna pólitísks óstöðugleika í Asíu, sérstaldega út af ógnun Kínverja við Taívan. Svo virðist þó ekki hafa ver- ið og því kenni menn nú um auk- inni eftirspurn eftir eldsneyti. Hlutabréfavísitalan í New York, Lundúnum, Hong Kong og Frank- furt lækkaði í vikunni en hækkaði í Tokyo. Ekki barst verð á sykri og kaffi. Reuter Fjögur fyrrum Sovétlýöveldi stofna til ríkjasamvinnu: Talið kosningabragð af hálfu Jeltsins Fjögur fyrrum Sovétlýðveldi: Rússland, Hvíta-Rússland, Kasakst- an og Kirgistan, tóku skref saman í átt til náinnar samvinnu á ýmsum. sviðum í gær þegar þau gerðu samning um ríkjasamvinnu. Samn- ingurinn, sem byggður er á evr- ópskri fyrirmynd, gerir ráð fyrir frjálsu flæði vara, þjónustu, vinnu- afls og fjármagns milli ríkjanna. Ríkin munu hafa samvinnu um verðlagsstefnu og stefnu I félagsmál- um og saman mynda fjölda yfirþjóð- legra stofnana. Borís Jeltsín Rússlandsforseti undirstrikaði að samkomulagið væri ekki skref í átt til endurreisn- ar Sovétríkjanna. í sjónvarpsávarpi sagði hann að það samfélag sem myndaðist með samvinnu ríkjanna væri mun traustara en heimsveldi og með því hefði verið skapaður nýr grundvöllur fyrir samvinnu sjálf- stæðra og óháöra ríkja. Stjórnmálaskýrendur túlkuðu samkomulag ríkjanna sem kosning- abragð af hálfu Jeltsíns en hann hafi stolið og útfært á eigin hátt sameiningarhugmyndir sem komm- únistar hefðu viðrað undanfarnar vikur. Samþykkt rússneska þings- ins á dögunum, þar sem gerð var til- raun til að ógilda samþykktir sem sundruðu Sovétrikjunum, ollu ugg og óróa í mörgum fyrrum Sovétlýð- veldum sem óttuðust að sjálfstæði þeirra væri í hættu. Öll ríkin þrjú, sem gera samkomulagið við Rússa, undirstrikuðu að þau mundu halda fullkomnu sjálfstæði gagnvart Rússlandi. Reuter Til skotbardaga kom í gær milli sérsveita lögreglunnar og glæpamanna í bænum Roubaix í Norður-Frakklandi. Þrír féllu í bardögunum og tveir lögreglumenn særðust. Til skotbardaganna kom eftir að glæpamenn höfðu reynt að ræna brynvarinn peningaflutningabíl. Á myndinni forðar maður sér af vettvangi með börn sín meðan lögreglumenn athafna sig í bakgrunni, gráir fyrir járnum. Símamynd Reuter Bótagreiöslur streyma til íbúa Thule á Grænlandi: Milljónirnar valda gullæði Pálmi Jónasson, DV, Kaupmannahöfn: I Qaanaaq við Thule glíma menn við allsérstakt vandamál. Það er alltof mikið af peningum í umferð í þessu 820 manna samfélagi á Norð- ur-Grænlandi. Lager verslunarinnar er á þrotum og fyrsta skip ársins nær fyrst að brjótast gegnum ísinn í júlí. Útvarps- og sjónvarpstæki eru löngu uppurin en aukasendingar hafa komið með flugi. Einnig hefur gríðarlega mikið verið pantað af bát- um og utanborðsmótorum. Vegna skömmtunar á áfengi hafa auðæfi heimamanna einkum beinst að ýmis konar varningi. Á mánudaginn verður áfengisskömmtun hins vegar aflétt með ófyrirséðum afleiðingum. Ástæðan fyrir þessu gullæði er að danska Thulenefndin er að borga 300 Grænlendingum í bænum sem svarar 600.000 íslenskum krónum hverjum í skaðabætur sem þýðir 180 milljóna króna efnahagssprautu fyr- ir samfélagið. Bandaríkjamenn byggðu árið 1953 herstöð við Thule samkvæmt samn- ingi viö dönsk stjórnvöld og árið 1968 brotlenti þar B-52 sprengjuflug- vél með fjórar atómsprengjur. Gögn um málið hafa smám saman verið að koma fram og það komst í há- mæli í fyrra þegar leyniskjal H.C. Hansens, þáverandi forsætisráð- herra Dana, frá 1957 var birt. í skjal- inu veitir hann heimild til notkunar kjarnavopna. í kjölfarið var ákveðið að grænlenskir og danskir starfs- menn herstöðvarinnar og veiðimenn sem voru við slysstaðinn fengju bæt- ur upp á 50.000 danskar krónur hver eða um 600 þúsund krónur íslensk- ar. Nefnd hefur nú farið yfir 2000 umsóknir um skaðabætur en alls mun danska stjórnin borga út 90 milljónir eða rúman milljarð.....is- lenskra króna. Kauphallir og vöruverð erlendis Bretarnir fengu lífstíöar- fangelsi Bresku hermennirnir þrír, sem fundnir voru sekir um að | hafa rænt danskri leiðsögukonu !! fyrir hálfu öðru ári, reynt að nauðga henni og siðan bariö hana til dauða, voru dæmdir í j líístíðarfangelsi á Kýpur í gær. Þeir neituðu allir sakargiftum en fengu tvo fimm ára dóma fyrir mannrán og nauðgunartilraun en lífstíðardóm fyrir manndráp. Mennirnir geta ekki áfrýjað dómnum en samkvæmt nýju lagafrumvarpi geta þeir losnað úr fangelsi eftir 20-25 ár. Kúariðan: Gripirnir eyöi jarðsprengjum John Major fékk stuðning ann- arra leiðtoga Evrópusambands- ríkja á rikjaráðstefhunni á Ítalíu þegar hann sagði að óttinn við kúariðu væri ekki sérstakt breskt vandamál heldur sameig- inlegt vandamál allra Evrópu- þjóða. Tóku leiðtogarnir einnig undir þá skoðun Majors að of mikið hefði veriö gert úr málinu. Það var síðan túlkað sem samúð- argjörð gagnvart Bretum þegar embættismenn ESB samþykktu kaup á 140 tonnum af bresku nautakjöti fyrir verslanir. Annars komu Kambódíumenn með frumlega hugmynd til lausn- ar vandanum. Lögðu þeir til að nautgripir yrðu fluttir i þús- undatali til Kambódíu, látnir ráfa þar um og eyða jarðsprengj- um sem árlega valda dauða og limlestingum í Kambódiu. Drap sig á yfirvinnu Réttur í Japan hefur dæmt stærstu auglýsingastofu lands- ins, Dentsu, til að greiða rúmar 73 milljónir króna í skaðabætur til foreldra fyrrum starfsmanns sem framdi sjálfsmorð 1991. í dómsúrskurði kemur fram að maðurinn hafi framið sjálfs- morö vegna stanslauss yfir- vinnuálags og svefnleysis. Mað- urinn var ráðinn til auglýsinga- stofunnar í apríl 1990 og vann langt fram eftir á hverjum ein- asta degi þar til hann fyrirfór sér í ágúst 1991. Dómarinn segir aug- lýsingastofúna hafa sýnt ábyrgð- arleysi þar sem hún hugaði ekki að velferð og heilsu starfsmanns- ins. Dómurinn er sá fyrsti í Jap- an þar sem fyrirtæki er dæmt tíl skaðabóta vegna sjálfsmorðs starfsmanns. Ekkja Schindlers: Óskar var eng- in hetja Emilie Schindler, ekkja Ósk- ars Schindlers, mannsins sem bjargaði um eitt þúsund gyðing- um undan helfór nasista í seinni heimsstyrjöldinni, fer ekki fógr- um orðum um eiginmann sinn sáluga í nýútkomnum endur- minningum sínum. Hún lýsir honum sem eigingjörnum og harðbrjósta manni og bætir við að þau verk sem leikstjórinn Steven Spielberg hafi byggt á við gerð myndarinnar, Lista Schindlers, hafi verið eintómar 1 lygar. „Mynd Spielbergs dregur upp mynd af hetju en hvorki hann né ég vorum hetjur. Við höguðum bara seglum eftir vindi. í stríði erum við öll reikandi sálir,“ sagði ekkjan þegar hún kynnti bókina. Emilie segir að þegar Óskar hafi bjargað gyðingum frá ferö til útrýmingarbúðanna í Auschwitz hafi hann einungis verið að hugsa um að hafa nægt vinnuafl i til postulínsframleiðslu sinnar. Án verksmiðjunnar hefði hann | verið sendur til vígstöðvanna. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.