Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Blaðsíða 30
30
LAUGARDAGUR 30. MARS 1996 jLlV
Skíðaferð á Vatnajökli í febrúar:
Feyktust í vindinum
DV, Öræfasveit__________________
Sunnudaginn 18. febrúar lögðu
þrír ungir menn af stað upp Skeið-
arárjökul á gönguskíðum og drógu
40 kíló hver á púlkum (farangurs-
sleðum).
Þrátt fyrir að móðurmál þeirra
allra væri af germönsku bergi brot-
ið urðu þeir að tala ensku sin á
milli. Tveir þeirra, þeir Florian
Piper og Henning Lehmann, komu
frá borginni Celle í Þýskaiandi en
sá þriðji, undirritaður, er nú bara
úr Öræfasveit á íslandi.
Ferðinni var heitið á Vatnajökul,
yflr hann og til baka, eða allavega
stóran hálfhring í kringum Öræfajök-
ul. Hugmyndin að þessari ferð kvikn-
aði sumarið 1994 þegar ég fylgdi þess-
um kátu og hraustu Þjóðverjum á
Hvannadalshnúk. Þá komumst við
allir að því að okkur langaði að reyna
okkur i slíkri vetrarferð.
Útbúnaður fyrir Græn-
landsjökul og Ml Kinley
Við skrifúðumst á og í haust byrj-
uðum við að undirbúa okkur af al-
vöru. Strákamir öfluðu sér stuðn-
ings frá VAUDE og GOLD- ECK í
Þýskalandi og Austurriki og ég fékk
fatnað frá GEO-SPIRIT og
Tjaldað undir Mávabyggðum eftir létta 26 km dagleið. Þegar leið á kvöldið
byrjuðu norðurljósin að dansa kringum Fingurbjörgina og yfir Mávabyggð-
um.
Þetta er qfsláttur sem munar um þegar keyptur er jafh varanlegur
hlutur og hágœðafararslgótL Kaupirðu Mongoose Sycamore 1995
þá sparurðu 13286 kronur með þvíað taka þátt í VortiIboðL Hér
dugar etíá að hika lengi því takmarkað magn er í boði á þessu
einstaka verði. Jajhframt bjóðum við nýjum Mongoose eigendum
uppáí5% aukaaf&íttqfjýlgibúnaðiámeðanvortilboðstenduryfir
Við bjóðum uppá raðgreiðslur á greiðslukorturn og fríá stillingu og
uppherslu þegarþérhentar.
21 gíra Mongoose Sycamore.
Grind: CR-MO, gfrar: Shimano
Alivio, Gripshift 300i. Almennt verð
kr. 39.900.-, verð samkv. Vortilboði
aðeins kr. 26.613.- Mjög hagstætt
verð á aukabúnaði frá virtum
framleiðendum.
leiðandi á sínu sviði
FJALLAHJÓLABÚÐIN - FAXAFENI 14 - REYKJAVlK - SÍMI: 5685580 - NETFANG: gap@centrum.is
aftur um eins konar völundarhús ís-
hryggja.
í lok dagsins vorum við komnir í
sjálfheldu aðeins 8 km frá byrjunar-
reit og ákváðum að slá þar upp
fyrstu búðum. Meðan Þjóðverjamir
voru að tjalda fór ég, vopnaður GPS-
tæki, að leita að leið út úr ógöngun-
um og fann hana sem betur fer.
Næsta dag, mánudag, gekk allt
betur og við höfðum ágætt skyggni
til allra átta. Nú fór veðurspáin að
breytast og við heyrðum ákveðnar
viðvaranir í fréttum um að mjög
slæmt vestanóveður með miklum
sjógangi ætti að herja á landið á
miðvikudag. Við höfðum nú ekki
miklar áhyggjur af sjógangi þar sem
við vorum staddir en ákváðum að
hvað sem tautaði og raulaði skyld-
um við komast í Grímsvatnaskála
næsta dag.
Þegar við komum niður á Vatnajökui skall á okkur hvöss norðanátt með ein-
um 8 vindstigum og 40-50 gráða vindkælingarfrosti. Vindurinn var í fangið
og ekki var viðlit að taka af sér vettHnga, hvað þá andlitsgrímur eða skíða-
gleraugu. DV-myndir Einar Sigurðsson
Enginn munur
á himni og jörð
Þriðjudagurinn rann upp og var
dimmt yfir. Veður var þó skaplegt
en við urðum að ganga eftir áttavita
allan daginn. Samkvæmt GPS voru
23 km eftir í Grímsvötn og hæðar-
munur 900 m svo við vissum að
þetta yrði erfiður dagur. Þegar leið
á daginn fór að hvessa og rigna og
síðan snjóa á suðvestan og þegar við
áttum nokkra km ófama í Gríms-
vötn var orðiö svo blint að við sáum
bókstaflega ekki mun á himni og
jörð. Þetta var eins og að ganga í
Þumall til vinstri og Hvannadalshnúkur til hægri. Ferðalangarnir þurftu að draga á eftir sér 40 kílóa púlkur, eða far-
angurssleða, hver.
TREZETA á Ítalíu. Við undirbúning
ferðarinnar notuðum við útbúnað-
arlista frá Grænlandsjökuls- og Mt.
Kinleyleiðöngrum.
Á fyrsta degi leiðangursins geröi
snjóleysið í vetur okkur erfitt fyrir.
Við kvöddum föður minn, sem ók
okkur að sporði Skeiðarárjökuls, og
héldum inn í sortann, uppörvaðir af
góðum veðurspám fyrir næstu vik-
una.
í venjulegu árferði er hægt að
ganga upp eða niður Skeiðarárjökul
tafalítið á þessum tíma árs. En nú
vantaði tilfinnanlega snjó í ísgjár og
sprungur sem á vegi okkar uröu svo
að við urðum að þvælast fram og