Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 30. MARS 1996 JLlV Dagur í lífi Margrátar Guðjónsdóttur, ferðamálafulltrúa Reykjavíkurborgar: Slappað af í sundi eftir strembinn dag fólkið. Við erum þrír fastir starfs- menn en auk þess hafa ýmsir góð- ir embættismenn sest að hjá okkur til lengri eða skemmri tima þannig að umræðurnar á kafílstofunni eru alltaf frjóar og skemmtilegar. í þetta sinn hófst vinnudagurinn á því að undirbúa fund með for- stöðumönnum helstu menningar- stofnana í borginni en ég hef fund- að með þeim reglulega frá því ég hóf störf. í þetta sinn var ætlun mín að reyna að komast að niður- stöðu varðandi svonefnda safna- rútu sem fyrirhugað er að fara af stað með nú í sumar. Maetingin á fundinn var góð og umræður opinskáar. Við komumst að samkomulagi um akstursleið og flestir voru opnir fyrir því að breyta og samræma sýningartíma safnanna. Þegar ég gekk út af fund- inum fannst mér sem þetta hefði verið einn árangursríkasti fundur sem ég hef setið í langan tíma og hófst þegar handa við að fylgja málinu eftir. Hugmyndin að safnarútunni er sótt erlendis frá en hún byggist á því að rúta (í þessu tilfelli einn af vögnum SVR) ekur með reglulegu millibili milli safna og menningar- stofnana. Ég var um það bil að hlaupa út til fundar við vin minn í hádeginu þegar Þórhildur ritari á skrifstof- unni stoppaði mig og tilkynnti að búið væri að slá upp veislu á kafíi- stofunni. Tilefnið var svolítið sér- stakt (látum það liggja milli hluta) en svona er þetta hjá okkur - ynd- islegt fólk sem kann að njóta augnabliksins og krydda tilveruna. Eftir hádegi tóku við hefðbundin störf hjá mér, þ.e.a.s. að svara sím- hringingum en talsvert hafði hlað- ist upp frá morgninum. Inn á borð til mín berst mikið af alls kyns fyr- irspurnum enda ferðaþjónusta at- vinnugrein sem kemur inn á marga þætti. Ég náði að greiða úr nokkrum málum áður en Baldvin Jónsson hjá Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins kom til mín um tvöleytið. Landbúnaður og Reykjavíkurborg Hann var kominn til að kynna fyrir mér tvö áhugaverð mál, ann- ars vegar komu erlends sérfræð- ings á sviði umhverfismála og hins vegar stefnumótun í landbún- aði með áherslu á vitræna búskap- arhætti. Nú kann eflaust margan að undra að ferðamálafulltrúi Reykjavikurborgar skuli blandast urborgar tók þar á móti ferðafröm- uðum í Lúxemborg. Móttakan var stutt, aðeins um klukkutími, þannig að ég gat sem betur fer staðið við loforð mitt um að bjóða börnunum út að borða um kvöldið. Tilefnið var ærið, Hildur hafði staðið sig vel á prófum, þannig að hún verðskuldaði svo sannarlega að dekrað væri við hana. Vita- skuld naut Haukur góðs af því líka. Það var gott að koma heim um tíuleytið og ég gerði lítið annað en að njóta þess að vera heima hjá mér og undirbúa ferð í drauma- landið. Þegar vekjaraklukkan hringdi upp úr kl. 7 fannst mér eins og ég hefði ekkert náð að sofa enda varla nema von þar sem ég hafði kvöld- ið áður verið við opnun á nýjum veitingastað i borginni og því farið óvenju seint i rúmið. En hvað um það - skyldan kall- aði og mér var því ekki til setunn- ar boðið. Ég vakti Hildi dóttur mína, sem er tæplega 13 ára, en hún þarf að fara fyrst að heiman á morgnana. Hún er sem betur fer mjög dugleg að drífa sig á fætur og hafa sig til, þannig að það er aldrei vandamál að koma henni af stað á morgnana. Öðru máli gegnir um Hauk sem er sjö ára. Honum þykir mjög gott að sofa fram eftir (nema á laugardögum og sunnudögum) þannig að á morgnum sem þessum er stundum hætt við að við mæðginin séum á seinni skip- unum úr húsi, Þetta hafðist þó allt saman og við vorum bæði mætt á tilsettum tíma, hann í skólann og ég til vinnu. Skemmtilegur vinnustaður Vinnustaður minn, Atvinnu- og ferðamálastofa, í gömlu Moggahöll- inni er alveg einstaklega skemmti- legur og á það bæði við um um- hverfið en ekki síður samstarfs- Anna Margrét Guðjónsdóttir, ferðamálafuiltrúi Reykjavíkurborgar. DV-mynd inn í landbúnaðarmál en því er til að svara að ferðaþjónustan í borg- inni byggist mikið á landsbyggð- inni og öfugt og því nauðsynlegt að tengslin séu góð milli þessara að- ila. Eftir að Baldvin var farinn tók ég til við verkefni sem vegur mjög þungt í mínu starfi núna en það heitir „Stefnumót 2002“ og snýst um mótun stefnu fyrir ferðaþjón- ustu í Reykjavíkurborg. Að þessu verkefni koma mjög margir og er hlutverk mitt sem verkefnisstjóra að halda utan um starfið. Að þessu sinni fór ég í það að ganga frá fundargerð verkefnisstjórnar og útbúa skrá yfir þá sem hugsanlega munu starfa í vinnuhópum. Áður en ég vissi af var kominn timi til að hlaupa út og sækja Hauk á skóladagheimilið. Ég stakk upp á að við færum í sund en hann vildi frekar fá að vera heima með vini sínum. Þar sem Hildur var farin í tónlistarskólann fór ég ein í þetta sinn en oftast reynum við að fara þrjú saman. Að fara I sund eft- ir erilsaman vinnudag er ein besta hvfíd sem ég þekki og því reyni ég að komast eins oft og ég get. Um kvöldmatarleytið var síðan skyldu- mæting í hanastél á Kjarvalsstöð- um en ferðamálanefnd Reykjavík- Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þeg- ar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilis- fangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegaranna. 1. verðlaun: ELTA útvarpsvekjari að verðmæti kr. 4.275, frá Bræðrunum Ormsson, Lág- múla 8, Reykjavík. Fyrir litlar 100 þúsund krónurfærðu stærri vél með hjólinu þannig að hægt sé að aka því með allan þennan aukabúnað. Nafn: Heimili: Vinningshafar fyrir þrjú hundruð og fimmtugustu getraun reyndust vera: 1. Kristinn Hlíðar Grétarsson 2. Þórdís Sigurðardóttir Jörundarholti 19 Vitastíg 15 300 Reykjavík 415 Bolungarvík 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1.790. Vinningarnir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 352 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.