Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 30. MARS 1996 DV Panasonic / / Anna Mjöll Olafsdóttir undirbýr evrópsku söngvakeppnina í Osló: Ferðatæki RX DS25 Ferðatæki með geislaspilara, 40W magnara, kassettutæki, útvarpi m/stöðvaminni og fjarstýringu. Bandarískir söngvarar syngja bakraddirnar JAPISS 8RAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI Anna Mjöll Ólafsdóttir söngkona er þessa dagana með fulltrúum Sjónvarpsins í myndveri og hljóð- veri að taka upp lagið Sjúbídú, en hún flytur það ásamt fóður sínum, Ólafi Gauki, sem verður hljómsveit- arstjóri fyrir íslands hönd, og bandarískum söngvurum í Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva í Ósló um miðjan maí. Anna Mjöll og félagar hennar fá aðeins Qóra daga til að taka lagið upp og búa til myndband meö því, þó að venjulega taki slík vinna nokkrar vikur. „Öll lögin verða sýnd í sjónvarpi fyrir keppnina og þetta video verð- ur að vera tilbúið áður en það hefst þannig að þetta er eitt lítið maraþon hjá okkur,“ sagði Anna Mjöll þar sem hún var við upptökur ásamt nokkrum mönnum frá Sjónvarpinu nú í vikunni. Hún sagði að upptök- urnar gengju mjög vel. Á þeytingi Það fylgir því heUmikið umstang að " vera fulltrúi íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva. Norska ríkissjónvarpið er með nokkur upptökulið, sem það sendir til allra landanna 23ja, til að gera heimildarmynd um flytjendur laganna og gera stuttar kynningar- myndir um löndin. Myndirnar verða sýndar meðan lögin eru kynnt og áður en tónlistarmennirn- ir stíga á sviðið. Norskt upptökulið kom hingað til lands í vikunni og var Anna Mjöll á miklum þeytingi með upptökumönnunum. „Við æddum um allt í tólf klukku- tíma og vonandi kemur eitthvað út úr því. Fyrst vildu þeir fá myndir inni á heimili, síðan fórum við upp í Bláfjöll og þaðan fórum við í Bláa lónið. Ég var drifin ofan í það án þess að hafa ætlað ofan í. Þeir eru mjög ákveðnir, Norðmenn. Síðan fórum við niður í miðbæ og tókum myndir af miðbænum, Tjörninni, öndunum og svoleiðis," segir Anna Mjöll. ROBERT DOWNEYJR. DYLAN McDERMOT A JODIE FOSTER FILM TIOME FORTHE fiOLIDÆTS GERALDINE CHAPLIN HOLLY HUNTER CHARLES DURNING ANNE BANCROFT CYNTHIA STEVENSON Jakob Frímann sár um kynningu Það er um tíu manns sem fara til Óslóar 12. eða 13. maí, Anna Mjöll, Ólafur Gaukur, pabbi hennar sem er höfundur lags og texta ásamt henni, fjórir bandarískir stúdíó- söngvarar, sem sungu lagið með Önnu Mjöll úti í Bandaríkjunum áð- ur en hún sendi það til Sjónvarps- ins, og fulltrúar Sjónvarpsins, auk þess sem Jakob Frímann Magnús- son ætlar að sjá um kynninguna, halda blaðamannafundi og þvíum- líkt. „Þar sem þessir söngvarar eru búnir að syngja þetta og eru í æf- ingu þá ætla ég að fá þá með mér. Þeir hafa sungið inn á hundruð af plötum og syngja með mörgum af helstu poppstjörnunum í dag. Einn þeirra var að segja mér að hann var ráðinn til að syngja með einhverri Ninu Hagen. Hann hafði aldrei heyrt um hana,“ segir Anna Mjöll og bendir á að í fyrra hafi verið fenginn útlendur útsetjari og ís- lenskir söngvarar. í ár verði það ís- lenskur útsetjari og útlendir söngv- arar. Mikið lagt í keppnina Fyrsta æfingin af tveimur hjá ís- lenska keppnisliöinu verður 14. maí en sjálf keppnin er 18. maí. Anna Mjöll segir að söngvakeppnin verði haldin á risastórum leikvangi í Ósló. „Sviðið verður víst alveg risa- stórt, 60 metrar að lengd, og það komast þrjú atriði fyrir á því í einu, sem auðveldar alla uppsetningu. Þetta á að vera voðalega flott og þeir ætla að nýta sér tölvutækni og leggja ofsalega mikið í þetta," segir hún. Anna Mjöll er búin að klára tón- listarnám í Bandaríkjunum og hef- ur verið að taka upp með hljóm- sveitinni Garden of Joy með útgáfu í huga. Hún hefur einnig verið að syngja sem aðalsöngkona með 10-15 manna big böndum. „Þetta er svona Michelle Pfeiffer- týpan að syngja litlu standardana og stundum eru Las Vegas-dansarar með okkur eins og í bíómyndun- um,“ segir Anna Mjöll um vinnu sína úti og er ekki á leiðinni heim í bráðina. -GHS PASKAMYND HASKOLABIOS Anna Mjöll Ólafsdóttir hefur undanfariö veriö að taka upp myndband fyrir Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður í Ósló um miðjan maí. Myndbandið verður sent til allra landanna, sem taka þátt í keppninni, til kynningar í sjónvarpi. DV-mynd GS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.