Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 30. MARS 1996
lönd 4»
Bob Dole loks öruggur með útnefningu sem forsetaefni repúblikana:
Heiðruð stríðshetia og
kænn samningamaður
Bob Dole fagnar sigri ásamt eiginkonu sinni, Elizabeth Hanford. Hún er
gegnheill repúblikani eins og hann og hefur reynslu sem ráðherra.
Símamyndir Reuter
Fréttaljós á
laugardegi
endanlega niður í efasemdaröddum
birti hann læknaskýrslur um sig
sem sýndu að hann var við hesta-
heilsu. Gortaði hann meira að segja
af því að hafa lægra kólesterólmagn
i blóði en Clinton forseti.
„Ef ég væri jafn gamall í anda og
líkamlegur aldur segir til um væri
ég ekki hér. Ég er í góðu formi og
hugsa vel um sjálfan mig. Ég stunda
líkamsrækt og sé til þess að hafa
nóg að gera,“ sagði Dole í nýlegu
viðtali.
Kynslóðaslagur
En þrátt fyrir fullyrðingar Doles
er fullyrt að kosningabaráttan verði
komst hjá herskyldu en er nú æðsti
yfirmaður öflugasta herveldis í
heimi.
Ófáir hafa sagt að Dole sé of gam-
aO til að standa í þessum slag og sé
að auki rúinn allri framtiðarsýn.
Þetta með aldurinn þóttist hann
reyndar hafa afgreitt með vottorð-
um læknanna. Annars segist Dole
standa öðrum frambjóðendum fram-
ar hvað varðar þroska og yfirsýn.
Dole þykir afar raunsær og snjail
samningamaður. Sá hæfileiki þótti
koma vel í ljós þegar fjárlagadeilan
stóð sem hæst fyrir jólin. Dole sá að
lokun ríkisstofnana skaðaði Repú-
blikanaflokkinn og ákvað að semja.
En þessi styrkur er einnig túlkaður
sem veikleiki en andstæðingar
Doles segja hann of fljótan til að
leita málamiðlana. Dole var orðinn
þreyttur á þeirri gagnrýni og í pirr-
ingi lét hann afar umdeild orð falla
verði hann kjörinn forseti 5.
nóvember næstkomandi verð-
ur hann elstur manna til að
verða forseti Bandaríkj-
anna. Ronald Reagan á ald-
ursmetið, var tæplega sjö-
tugur þegar hann sór emb-
ættiseið sinn í fyrra skiptið.
En Dole tekur aldurinn
ekki alvarlega og gefur
andstæðingum ekki tæki-
færi á að smjatta á þeirri
staðreynd að hann var skor-
inn upp við krabbameini í
blöðruhálskirtli
1991. Til að
þagga
ekki síst slagur kyn-
slóðanna þar
sem heiðruð
stríðshetja
etur kappi við
23 árum yngri
frambjóðanda
sem hlaut
þroska á tím-
um Víetnam-
stríðsins,
upp noroum nonaum.
Robert Joseph Dole fæddist 22.
júlí 1923 í smábænum Russel í
Kansas. Hann ólst upp á litl-
um sveitabæ með foreldr-
um sínum, tveimur
systrum og bróður.
Faðir hans seldi
rjóma og egg en
móðir hans
saumavélar. Á
tímum krepp-
unnar flutti
fjölskyldan í
kjallara húss-
ins og leigði
efri hæðina út til
að endar næðu sam-
an. Dole réð sig í
vinnu sem búðar-
drengur í Russel þar
sem hann lærði gildi
þess að vinna og mik-
ilvægi fjárhagslegs
sjálfstæðis.
Fyrrum nágrann-
ar segja að Dole hafi
ungur þótt dæmi-
gerður bandarískur
unglingur sem
tók virkan þátt í
íþróttum, þótti
skemmtilegur og var eftirlæti
stelpnanna. Síðar varð hann virtur
fyrir heiðarleika og ríka fóðurlands-
ást.
i viuicui. „rtin i iagi, eg
annar Ronald Reagan, ef það er það
sem þið viljið."
Ólst upp við kröpp kjör
Þegar Steve Forbes var kynntur á
þessum vettvangi fyrir nokkrum
vikum kom fram að hann hafði
enga sögu að segja, hafði ekki orðið
fyrir neinni lífsreynslu sem höfðaði
til Bandarikjamanna. Öðru máli
gegnir um Dole og sá þáttur verður
óspart notaður í baráttuni sem er
fram undan. Dole er stríðshetja af
gamla skólanum og kominn á eilíf-
an stall sem slíkur. En hann barðist
líka til metorða úr fátækt, vann sig
Konan harður repúblikani
Dole er fráskilinn en núverandi
eiginkonu sinni, Elizabeth Hanford,
kynntist hann á miðjum áttunda
áratugnum. Elizabeth er harður
repúblikani og var samgönguráð-
herra í ríkisstjórn Ronalds Reagans
og ráðherra atvinnumála hjá
George Bush. í dag er hún formaður
bandaríska Rauða krossins.
Hvergi var heimildir að finna um
börn Doles en ekkert er minnst á
þau í persónuupplýsingum á heima-
síðu hans á Intemetinu.
Forskot Clintons
Þótt Dole hafi tryggt sér útnefn-
ingu repúblikana er erfið barátta
fram undan. Það er löng leið aö
Hvíta húsinu. Hann er 10-20 pró-
sentustigum á eftir Bill Clinton for-
seta í skoðanakönnunum og svo
. kann að fara að Ross Perot, og jafn-
vel Pat Buchanan, steli af honum at-
kvæðum með óháðu framboði.
Clinton hefur mikið forskot á Dole,
hefur ekki þurft að fara í gegnum af-
hjúpanir og átök við flokksbræður á
leið sinni til tilnefningar enda eng-
inn mótframbjóðandi. Þá hefur
Clinton aðgang að digrum kosninga-
sjóðum og kosningavél hans er vel
smurð.
Engu að síður eru allir sammála
um að baráttan verði jöfn og tvísýn
þegar á hólminn verður komið og
Clinton sé engan veginn öruggur
með endurkjör.
Reuter
Öldungadeildarþingmaðurinn
Bob Dole fagnaði sigri í baráttunni
um útnefningu sem forsetaefni
Repúblikanaflokksins á þriðjudag.
Þá hafði hann sigur í þremur ríkj-
um, Kaliforníu, Washington og
Nevada, og náði þeim lágmarks-
íjölda kjörmanna sem þarf til að fá
útnefningu á flokksþingi repúblik-
ana sem fram fer í San Diego í
ágúst.
Þetta er í þriðja skipti sem Dole
reynir að fá útnefningu sem forseta-
frambjóðandi en hann tapaði i slag
um útnefningu árin 1980 og 1988. Er
talað um að hann sé nú í síðasta
verkefni sínu fyrir stríðsárakyn-
slóðina. Enda hefur Dole verið
hampað mjög sem stríðshetju sem
barðist fyrir málstað frelsis og lýð-
ræðis.
Nær dauða en lífi
Dole gaf kost á sér sem forseta-
frambjóðandi í aprU síðastliðnum
en þá voru liðin 50 ár síðan hann
hlaut alvarleg sár í orrustu í
seinni heimsstyrjöldinni. Sem
ofursti í Bandaríkjaher leiddi
Dole áhlaup á fallbyssuhreiður
nasista á hæð í Pódalnum á
Ítalíu. En sprengja varð hon-
um næstum að fjörtjóni.
Hægri öxlin eyðUagðist,
hægri handleggurinn lamað-
ist, hann hryggbrotnaði,
varð fyrir ótal sárum af
völdum sprengjubrota og
missti annað nýrað.
Dole var sæmdur tveim-
ur orðum fyrir hetjulega
framgöngu í stríðinu en
barátta hans til að ná heUsu
á ný kostaði þrautseigju og
þolinmæði þar sem hann lá
rúm þrjú ár á sjúkrahúsi.
Tvísýn barátta
Og það er einmitt þolinmæð-
in og þrautseigjan sem hafa gagnast
Dole í baráttunni um tilnefningu. í
upphafi baráttunnar var útlitið
heldur svart þar sem helsti keppi-
nautur hans, íhaldsmaðurinn Pat
Buchanan, hafði betur í fyrstu for-
kosningunum. Flestir héldu að Dole
yrði að bíða sinn þriðja ósigur í bar-
áttu um tUnefningu sem forseta-
frambjóðandi. Dole varð að bíta á
jaxlinn og gæta þess að láta mikla
skapsmuni sína ekki koma sér í
koll. Þetta var orrusta sem hann
ætlaði að koma heill og óskaddaður
út úr.
Með naumum sigri í forkosning-
unum í Iowa fór að birta til en efa-
semdaraddirnar hljóðnuðu ekki. En
eftir öruggan sigur í Suður-Kar-
ólínu hófst sigurgangan.
Flokksveldið stóð á bak við Dole og
hann hafði aðgang að nægu fé. Vel
smurð og öflug kosningavél á lands-
vísu fór að skUa árangri og fagnaði
Dole hverjum sigrinum á fætur öðr-
um. Keppinautarnir játuðu sig sigr-
aða og ákváðu aö styðja Dole, utan
Pat Buchanan sem gaf sig ekki fyrr
en eftir sigur Doles sl. þriðjudag.
Buchanan hélt þá heim til Wash-
ington þar sem hann ráðfærir sig
við stuðningsmenn sína. Hann ætl-
ar að halda þátttöku í forkosningun-
um áfram og reyna hvað hann getur
að koma skoðunum sínum á fóstur-
eyðingum, innflytjendastraumnum
og viðskiptamúrum í gegn. Er tak-
mark hans að fá flokksþingið til að
fallast á sjónarmið sín svo Dole
neyðist til að gera þau, eða hluta
þeirra, að sínum. Gæti brölt
Buchanans orðið Dole skeinuhætt.
Heilsuhraustur á áttræðisaldri
Bob Dole er 72 ára gamall og
wS|
-
Slegist um
tilnefningu
24. febrúar 1985
Phil Gramm, öldungadeildar-
þingmaður frá Texas, fyrstur til
að gefa kost á sér sem forseta-
frambjóðandi repúblikana.
27.febrúar
ívi
Lamar Alexander, fyrrum ríkis-
stjóri Tennessee, fer að dæmi
Gramms.
2Ð. mars
Hinn íhaldssami Pat Buchanan
gefur kost á sér.
10. apríl
IBob Dole, for-
seti öldunga-
deildar þings-
ins, býður sig
fram seiu for-
setaframbjóð-
andi í þriðja
sinn.
21-júlí
í tilefni 72 ára afmælis síns ger-
ir Dole læknaskýrslur opinberar
en þær sýna að hann er við
hestaheilsu.
22. september
Auðkýfingurinn og útgefandinn
Steve Forbes gefur kost á sér,
segist reiðubúinn að eyða um 2,3
milljörðum af eigin fé í barátt-
una.
Auðkýfingurinn Ross Perot hef-
ur uppi áform um stofnun þriðja
stjórnmálaflokksins.
6. febrúar 1996
Pat Buchan-
í: an hefur sig-
ur í forvali í
; Louisiana
þar sem hann
Íatti kappi við
Gramm. Úr-
slitin eru
ekki talin hafa
12. febrúar
Dole mer sigur á Buchanan í for-
kosningum í Iowa.
14. febrúai
Gramm hættir við framboð eftir
útreið Howa.
20. febrúar
Buchanan hefur nauman sigur á
Dole í New Hampshire.
24. febrúar
Forbes vinn-
ur í
j i Delaware.
27 febtúar
?! Forbes vinn-
ur í Arizona
með Dole og
Buchanan á hælum sér.
2.mais
Dole sigrar í Suður-Karólínu.
5. mars
Á „littla þriðjudegi“ sigrar Dole
í forkosningum í átta ríkjum og
tekur afgerandi forustu í kapp-
hlaupinu um útnefningu.
6. mars
Alexander hættir. Styður Dole.
12. mais
Dole vinnur auðveldlega í sjö
stórum ríkjum á stóra þriðju-
degi.
14. mais
: Forbes viðurkennir ósigur sinn
og hættir. Ákveður aö styðja
Dole. Buchanan gefur sig hins
vegar ekki.
19. mais
Dole sigrar í fjórum ríkjum.
26. mais
Dole klárar dæmið með sigri í
Kaliforníu, Washington og
ÍNevada. Buchanan játar sig sigr-
aðan en leggst undir feld.
Reuter