Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Page 35
I 3'%/' LAUGARDAGUR 30. MARS 1996
43
5Usg>
txcstevfícící
SOFASETI
á veroi, sem
ekki
ak hefur
P^|;a sést
fyrr
hér á
landi
••
TM - HUSGOGN
Síöumú a 30 - sími 568-68-22
Oplð mánudaga tll föshjdaga 9-18
laugardaga 10-16 - sunnud. 14-16
30 -5^
menning
Mörgum tónlistarunnendum hef-
ur fundist erfitt aö nálgast nú-
timatónlist. Menn bera fyrir sig
óvenjulegt tónamál. Þá hefur sagan
ekki vinsað þar úr og skilið kjarn-
ann frá hisminu eins og er um
gömlu tónlistina. Nútímatónverk
geta því verið misjöfn að gæðum og
stundum tilraunakennd. Þeir sem
vilja ganga beint að því, sem örugg-
lega er vandað, geta gert það t.d.
með því að kynna sér tónlist eftir
franska tónskáldið Pierre Boulez.
Nú fæst í verslunum diskur þar sem
Boulez stjómar sjálfur verkum eftir
sig. Hljómsveitin er BBC Orchestra
ásamt með BBC Singers og ein-
söngvurunum Phyllis Bryn Julson
og Elizabeth Laurence.
Boulez var í fararbroddi ungra
róttækra tónskálda er ruddu svo-
nefndum serialisma braut á árun-
um eftir stríð. Margir féllu óbættir
hjá garði í þeim darraðardansi sem
þá gekk yfir tónlist Vesturlanda og
margar nótur skrifaðar sem fáir
hafa séð ástæðu til að spila síðan.
Boulez er einn örfárra sem komust
hnarreistir úr þeim hildarleik. Tón-
list hans er mjög markvisst unnin
og rík af fíngerðum blæbrigðum. Þá
njóta verkin oft mjög góðs af því að
Boulez er hljómsveitarstjóri í
fremstu röð. Hann hefur haft þann
sið að endurbæta verk sín sífellt,
slípa þau og fága. Hljómur verka
hans er mjög fallegur og markviss.
Þessar athugasemdir gilda um
Hljómplötur
Finnur Torfi Stefánsson
verkin á fyrrgreindum hljómdiski.
Þau eru Le Visage Nuptial, Le Soleil
des Eaux og Figures, Doubles, Pris-
mes. Tvö fyrrgreindu verkin byggja
á ljóðum eftir franska skáldið René
Char. Verkin voru öll samin tiltölu-
lega snemma á ferli höfundarins en
hafa síðan tekið margvíslegum end-
urskoðunum og lagfæringum. Ekki
þarf að koma mönnum á óvart að
mikilla bókmenntalegra áhrifa gæt-
ir í verkum þessum, ekki aðeins
Franska tónskáldið Pierre Boulez.
hvað VEirðar notkun sungins texta
heldur einnig í byggingu verkanna
yfirleitt. Hljómamálið er með vilja
haft grátt og er þar ekki að leita
byggingarefnis verkanna svo sem er
um hefðbundna tónlist. í stað þess
er áherslan lögð á litadýrð hljóm-
sveitarinnar og á sjálft „hljóðið" í
verkunum auk textans, þar sem það
á við. Mikil hugmyndaauðgi og
vandvirkni kemur fram í þessum
efnum og margar lausnir eru ein-
staklega snjaUar, má t.d. nefna notk-
un kvennakórsins í Le Visage
Nuptial. Ekki þarf að spyrja að
flutningnum hvorki hjá söngvurum
né hljómsveit og er alit þar unnið af
einstakri nákvæmni og smekkvisi.
NEXOL
NEFÚÐALYF
taktu pað í nefið
Virka efnið xýlómetazólín vinnur gegn stíflu
og slímmyndun í nefi. Notið Nexól ekki lengur
en 10 daga í senn án samráðs við lækni.
Sjúklingar með gláku, hjartasjúkdóma eða
skjaldkirtilssjúkdóma ættu ekki að nota lyfið.
Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
Fróðleg eg spenn
íslensk/dönsku b
Leyndnrdómnr íss
eldgos og skógar
Kvikmvndasvninq
jr forlíðarinnnr,
Sýningin
er opin
daglega frá
lcl. 15-20
og um
helgar frá
kl. 11-18
MIÐAVERÐ: 200 KR. ÓKEYPIS FYRIR BÖRN UNDIR 12 ÁRA ALDRI