Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Side 64
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Flóttamenn frá Júgóslavíu:
Ófundnir
enn
Komu stórs hóps flóttamanna frá
átakasvæðum í fyrrverandi
Júgóslavíu, sem von var á upp úr
síðustu áramótum, hefur seinkað.
Að sögn Hólmfríðar Gísladóttur hjá
Rauða krossinum eru ástæður þær
að ekki er enn byrjað að flytja fólk
á milli svæða í samræmi við Dayton
samkomulagið og hafa því væntan-
legir flóttamenn hingað til lands
ekki verið fundnir enn.
Hólmfríður segir að það hafi ver-
ið lagt í hendur fastanefndar Ai-
þjóða Rauða krossins í Genf að velja
flóttamennina hingað í samráði við
flóttamannastofnun SÞ. Ekkert hafi
heyrst frá flóttamannastofnuninni
enn, þrátt fyrir að félagsmálaráðu-
neytið og Rauði kross íslands hafi
—‘itrekað kallað eftir upplýsingum.
„Það þýðir að málið er einhvers
staðar í vinnslu hjá SÞ,“ segir
Hólmfríður. Aðspurð hvort þessi
dráttur stafi af því að það vanti
hreinlega flóttamenn sem vOji koma
tO íslands segir hún að svo sé ekki,
því miður. Vegna þess dráttar sem
orðinn er á málinu sé ekki von á
flóttamönnum hingað fyrr en í
fyrsta lagi í sumar.
-SÁ
Þaulsætinn
stútur við
stýrið
ísfirskur ökumaður þarf að öllum
líkindum að greiða 100 þúsund
krónur í sektir fyrir að hafa ekið
tvívegis ölvaður nú í vikunni. Mað-
urinn er auk þess réttindalaus.
Fyrst var umræddur maður tek-
inn á mánudaginn en lét sér ekki
segjast við það því síðdegis í gær
var hann tekinn aftur. Auk sekt-
anna getur maðurinn átt von á
fangavist fyrir brot sín. -GK
QFenner
REIMAR OG
REIMSKÍFUR
Powlsen
Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499
Sími 533 2000
Ókeypis heimsending
L O K I
Islenskar getraunir grípa til aðgerða gagnvart 17 manna hópi Lengjutippara:
Einvigi milli okkar
- segir talsmaður Getrauna - spiluðu fyrir 9 milljónir eina vikuna
íslenskar getraunir hafa gripið
til aðgerða með því að vara eigend-
ur sölustaða Lengjunnar við því að
taka við ávísunum vegna 17 manna
hóps sem hefur lagt milljónir
króna undir á viku við að tippa á
Lengjunni. Vegna tilkomu þessa
hóps er hagnaður getraunafyrir-
tækisins frá upphafí 10 prósentum
lægri en vonast hafði verið eftir -
eða um 20 mOljónum króna.
Samkvæmt upplýsingum DV
spOaði hópurinn fyrir rúmar 9
mOljónir króna í getraunaleiknum
vikuna 11.-18. mars en vann ein-
ungis innan við eina miUjón
króna tU baka. Næstu viku á eftir
voru 5 mOljónir króna lagðar und-
ir en þá unnust 10 mOljónir. Vinn-
ingshlutfaUið þá vikuna hefur
aldrei verið eins óhagstætt á
Lengjunni frá upphafi, 138 pró-
sent, og mörgum mOljónum krón-
um hærra en heildarsalan var.
„Síðustu 6 vikur hefur þessi
hópur verið svo stórtækur að
þetta er farið að snúast upp i ein-
vígi - við á móti þeim - ef þeir
vinna þá töpum við og öfugt. Við
viljum ekki þessa viðskiptavini
sem hætta hundruðum þúsunda
eða milljónum," sagði Sigurður
Baldursson hjá íslenskum get-
raunum við DV í gær.
Einn talsmanna sautjánmenning-
anna sagði við DV að sumir úr
hópnum „hefðu grætt heUing en aðr-
ir væru í minus“. Sumir hefðu hætt
af því að þeir töpuðu en aðrir látið
staðar numið þegar þeir græddu:
„En við erum ekki að spila fyrir
meira en menn í hópnum eru
borgunarmenn fyrir. í honum eru
sumir málsmetandi menn í góðum
stöðum með góð laun," sagði mað-
urinn sem ekki vOdi láta nafns
síns getið.
Sigurður hjá Getraunum sagði
að hópurinn stóri hefði „skekkt
alla spilamennskuna":
„Þetta á að vera leikur en ekki
fjárglæfrastarfsemi þar sem eignir
eða aleiga eru lögð undir. Öðrum
þátttakendum hefur fækkað vegna
þess að við höfum þurft að lækka
vinningsstuðlana - þá missa aðrir
áhugann. Þetta er því slæmt fyrir
aOa,“ sagði Sigurður. Kössum á
sumum sölustöðum var á tímabOi
lokað vegna hárra geymsluávís-
ana frá hópnum - söluaðOanna
vegna og hættu á að innstæða
reyndist ekki fyrir hendi ef hópur-
inn tapaði.
„Okkur finnst ótækt að Get-
raunir staðhæfi að við séum að
spila fyrir peninga sem eru ekki
t0,“ sagði talsmaður sautjánmenn-
inganna. „Við höfum staöið í skO-
um og öH uppgjör gengið hnökra-
laust. Það hefur komið einu sinni
og einu sinni fyrir að söluaðilar
hafi verið beðnir um að geyma
ávísanir f einn og einn dag. Ég skil
að Getraunir séu ekki hrifnar af
því að hafa svona stóran hóp,
menn vOja vernda sína starfsemi.
En það er kannski komirrn tími til
að við skiptum okkur upp,“ sagði
Lengjuspilarinn. -Ótt
Þær Olöf Jónasdóttir, 4ra ára, og Gunnhildur G., 5 ára, klappa Freyju sem er þýskur fjárhundur. Þær sögðust oft hafa
klappaö hundum. DV-myndir Rasi
Hundarheim-
sækja leik-
skólabörn
„Áður en þið klappið ókunnugum
hundi skuluð þið alltaf spyrja hvort
þið megið það, leyfið honum síðan
að lykta af handarbakinu á ykkur,“
sagði Björn Ólafsson hundaeigandi
við börnin á Vesturási við Klepps-
veg í gær.
Pjórar tíkur í fylgd eigenda sinna
heimsóttu börnin í leikskólanum.
Tilgangur heimsóknarinnar var að
börnin fengju að kynnast hundum.
„Það er mjög skemmtilegt að fá
þessa gesti, það hafa ekki komið dýr
áður í heimsókn hingað en við höf-
um farið með börnin í Húsdýragarð-
inn og svo förum við alltaf í sveit á
hverju ári,“ sagði Vilborg Tryggva-
dóttir, leikskólastjóri á Vesturási.
Börnin kunnu svo sannarlega að
meta heimsóknina og ekkert þeirra
var hrætt. Hundarnir tóku hlutverk
sitt alvarlega og voru tO fyrirmyndar.
Tíkurnar heita Bríet, af briard
kyni, hún er stór og loðin, Aska, ís-
lenskur fjárhundur, Freyja, þýskur
fjárhundur eða schafer, og Loweesa,
lítO selskapstík af tegundinni shi-
htzu. -ÞK
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Rigning um vestanvert landið
Á morgun verður hæg breytOeg átt, skýjað og sums staðar dálítil súld vestan til á landinu en léttskýjað annars staðar.
Hiti verður á bilinu 4 tO 9 stig, hlýjast um landið suðaustanvert.
Á mánudag verður fremur hæg suðlæg átt og rigning víða um landið vestanvert en skýjað að mestu austan tO.
Hiti 2 tO 7 stig, hlýjast sunnan tO.
Veðrið í dag er á bls. 69
Mánudagur
Sunnudagur