Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1996, Side 20
24
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996
íþróttir
Bandarísku atvinnumannadeildinni í knattspyrnu hleypt af stokkunum á laugardaginn:
Tekst knattspyrnunni að
brjóta niður síðasta vígið?
- og ná sömu eða meiri vinsældum og körfuboltinn, hafnaboltinn eða ameríski fótboltinn
Þegar ákveðið var að Bandaríkjamenn
fengju að halda heimsmeistarakeppnina í
knattspyrnu árið 1994 var það með einu skil-
yrði: Að þetta fjölmenna og víðlenda riki setti
loksins á stofn alvöru atvinnudeild.
Alan Rothenberg, formaður bandaríska
knattspymusambandsins og framkvæmda-
stjóri HM, taldi að ekki yrði vandamál að
koma því um kring og lofaði að fyrstu leikirn-
ir færu fram vorið 1995. Hann neyddist síðan
til að fresta því um eitt ár, þetta var viða-
meira verkefni en svo að því yrði lokið á
nokkrum mánuðum eftir að HM-hasarinn var
úti sumarið 1994.
Byrjað um páskana
En nú er bandaríska deildakeppnin orðin
að veruleika. Hún heitir MLS-deildin (Major
League Soccer) og fyrsti leikurinn verður háð-
ur á Spartan leikvanginum í San Jose laugar-
daginn 6. apríl. Þá tekur heimaliðið, San Jose
Clash, á móti Washington DC United.
Þetta er önnur tilraun Bandaríkjamanna til
að stofna alvöru deildakeppni. NASL-deildin
var sett á laggimar árið 1968 og lifði til 1984
en þá var hún lögð niður. Ástæðan var aðal-
lega sú að New York Cosmos var eina félagið
með verulega traustan fjárhagsgrundvöll og
gat keypt til sín gamlar stjörnur á borð við
Pele og Beckenbauer. Flest önnur félög urðu
gjaldþrota eftir tilraunir til að hnekkja veldi
Cosmos.
Deildin drottnar
MLS-deildin á engan sinn líka hvað skipu-
lag varðar. Deildin sjálf drottnar yfir félögun-
um tíu sem hana skipa og þrjú þeirra eru al-
farið í hennar eigu. Það er deildin sem semur
við leikmenn og sér um að deila þeim út til fé-
laganna á eins jafnan hátt og mögulegt er. Fé-
lögin eru bundin af „launaþaki" til þess að
útilokað sé að eitt eða tvö þeirra sogi til sín
alla bestu leikmennina eins og Cosmos gerði
forðum.
Stjörnum útdeilt eftir þjóðerni
Þann 7. febrúar var leikmönnunum skipt
niður á félögin. Áður haíði fjórum þekktustu
leikmönnunum verið komið fyrir hjá ákveðn-
um félögum og þar var tekið mið af þjóðerni
þeirra. Italinn Roberto Donadoni fór til New
York/New Jersey þar sem margir landar hans
búa. Talsvert er af Bólivíumönnum í Was-
hington og þangað fór Marco Echteverry, Jor-
ge Campos, markvörðurinn litríki frá Mexíkó,
hittir fyrir marga landa sína í Los Angeles og
Carlos Valderrama, Kólumbíumaðurinn hár-
prúði, er i Tampa Bay af sömu ástæðum.
Áhersla á sóknarleik
Það vekur athygli að af 34 erlendum leik-
mönnum í deildinni eru aðeins fimm Evrópu-
búar og Donadoni er sá eini sem kallast má
verulega þekktur. Sá sem mestu ræður varð-
andi útlendingana er indverskættaður knatt-
spyrnusérfræðingur deildarinnar, Sunil
Gulati að nafni. Hann vill______________
að sóknarleikur verði alls
ráðandi í deildinni og tel-
ur að því markmiði verði
best náð með því að fá leikmenn frá Suður- og
Mið-Ameríku. í þeim hópi eru Valderrama,
Echteverry, Adrian Paz frá Uruguay og Hugo
gamli Sanchez frá Mexikó. Þá náði Gulati
einnig í Doctor Khumalo frá Suður-Afriku en
sá piltur hefur vakið mikla athygli að
undanfómu og i raun merkilegt að hann skuli
hafna hjá Columbus Crew en ekki hjá
einhverju af stórliðum Evrópu.
Þá er athyglisvert að útlendingarnir 34
koma frá 19 löndum. Þar af eru þrír Mexíkan-
ar, þrir Nígeríumenn og þrír Jamaíkubúar og
siðan eru einn eða tveir frá hverju hinna land-
anna. Evrópubúamir skiptast þannig að tveir
koma frá Italíu, tveir frá Júgóslavíu og einn
frá Englandi.
Landsliðsmenn á heimleið
Flestir leikmenn bandariska landsliðsins
munu spila í deildinni, þar með taldir margir
sem hafa leikið sem atvinnumenn í Evrópu
undanfarin ár. Alexi Lalas er á heimleiö frá
Italíu og spilar með New England, John
Harkes er kominn frá Englandi til Was-
hington, Roy Wegerle frá Englandi til
Colorado og Eric Wynalda frá Þýskalandi til
San Jose. Þessir leikmenn líta á það sem
skyldu sína að koma heim og taka þátt í að
byggja upp deildakeppnina.
Af 10 þjálfurum í deildinni eru aðeins þrír
sem hafa getið sér einhverja frægð. Það eru ír-
inn Frank Stapleton hjá New England, ítalinn
Eddie Firmani hjá New York/New Jersey og
Englendingurinn Bob Houghton hjá Colorado.
Stóru leikvangarnir „minnkaðir"
Forráðamenn deildarinnar gera sér grein
fyrir því að Róm verður ekki byggð á einni
nóttu. Þeir vonast eftir 10 til 12 þúsund áhorf-
endum að meðaltali á leik til að byija með og
að nægilega vel takist til að sú tala fari smám
saman hækkandi. Leikirnir fara fram á hin-
um risastóru leikvöngum sem byggðir voru
fyrir ameríska fótboltann, eins og Rose Bowl í
Los Angeles, Giants Stadium í New York og
Cotton Bowl í Dallas. Þeir taka allt að 100 þús-
und áhorfendum en „fyrir útlitið" verður stór-
um hluta áhorfendasvæðanna lokað, allavega
fyrst í stað. Góðir leikvangar sem taka 20-30
þúsund áhorfendur eru einfaldlega ekki til í
Bandaríkjunum.
Knattspyrnan er vinsælust allra íþrótta en
hún á eftir að brjóta niður síðasta vígið,
Bandaríkin. Þar ráða ameríski fótboltinn,
hafnaboltinn og körfuboltinn ríkjum.
MLS-deildin virðist njóta mikils velvilja, sjón-
varpsstöðvar og auglýsendur hafa tekið hana
upp á arma sína en deildin mun ekki fá lang-
an tíma til að sýna sig og sanna. Þegar nýja-
brumið fer af þarf hún að spjara sig á hörðum
markaði og þá verða gæðin og vinsældimar
að vera til staðar. -VS
12 leikmenn
10
- í MLS-deildinni
8
6
Suður-Ameríka Miönoröur-Ameríka
Afríka
Evrópa
i
San Jose Clash
Denver
/ 1
Colorado Raplds
I ®
Columbus Crew
Kansas Clty Wiz
;/ V
Boston
■ W
New England Revolution
NY/NJ Metrostars
I é
Washingtc DC Únlted
"0
Los Angeles Galaxy
Harðjaxlinn Alfreð Gíslason meiddist undir lok leiksins að Hlíðarenda á
laugardaginn og þurfti að fara af leikvelli en hann segist verða tilbúinn í
slaginn í kvöld þegar KA fær Val í hemsókn.
Handknattleikur:
Tryggja Valsmenn
sér titilinn fjórða
árið í röð?
- þriðji úrslitaleikur KA og Vals á Akureyri í kvöld
Valsmenn geta tryggt sér tslands-
meistaratitilinn i handknattleik
fjórða árið í röð vinni þeir sigur á
KA í þriðja úrslitaleik liðanna um
titilinn á Akureyri í kvöld.
Höfum ekki lagt árar í bát
„Við gerum okkur alveg grein
fyrir því að staðan er erfið en við
höfum engan veginn lagt árar í bát.
Við höfum leikið illa i þessum
tveimur fyrstu leikjum. Vömin hef-
ur ekki fundið taktinn og í sökninni
höfum við verið að gera allt of mörg
mistök. Það er ekki það að Vals-
menn hafa verið að leika svona vel
heldur höfum við leikið langt undir
getu,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálfari
KA, við DV í gær.
Alfreð gat ekki klárað leikinn að
Hlíðarenda á laugardaginn. Han fór
meiddur af leikvelli eftir að hafa
fengið þungt högg á hnéð.
Höfum allt að vinna
„Ég get ekki sagt að ég sé mjög
brattur en ég mun ekki láta þessi
meiðsli aftra mér frá því að spila
þennan leik. Við ætlum að selja
okkur mjög dýrt. Við höfum allt að
vinna og engu að tapa og við lítum
á leikinn sem bikarleik. Ef við vinn-
um erum við komnir aftur með í
baráttuna en tapist leikurinn, sem
ég veit að verður ekki, er tímabilið
búið. Auðvitað er fólk hér fyrir
norðan ekki ánægt með stöðu mála
og við ætlum að sýna því að miklu
meira býr í liðinu eins og við höfum
við höfum sannað í vetur,“ sagði Al-
freð.
-GH