Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996
2 *< fréttir
Hjónin sem misstu allt sitt í eldsvoða í vikunni í viðtali við DV:
Miðill hafði seð fyrir
brunann á Nönnugötunni
„Ég fór fyrir rúmu ári til miðils
sem varaði mig við. Hún sagði: „Það
kviknar í húsinu ykkar.“ Ég spurði
þá hvernig það gerðist. „Ég veit það
ekki, ég sé að það kviknar í, það er
til alls konar sjúkt fólk.“ Ég reikn-
aði ekki meö að þetta gerðist en mér
hefur ekki verið sama,“ sagði Júlí-
ana Torfhildur Jónsdóttir, kona
Guðna Ragnars Þórhallssonar sem
bjargaði tveimur drengjum þeirra,
Daníel, 5 ára, og Sverri, eins árs, úr
eldsvoða við Nönnugötu í vikunni.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn hjá RLR, sagði að elds-
upptök væru enn ókunn og vildi
ekkert segja um hvort grunur væri
um íkveikju þótt slíkt væri vissu-
lega ekki útilokað. Hjónin segja að
ekki hafi kviknað í út frá kerti enda
hafi ekkert slíkt verið logandi.
Guðni Ragnar og Júlíana fengu
að fara heim af spítalanum í gær
eftir meðferð vegna reykeitrunar,
sára á handlegg Guðna Þórs auk
þess sem augnhimnur höfðu brunn-
ið í Júlíönu. Drengirnir þeirra
höfðu fengið að fara á undan og
voru hjá afa sínum og ömmu í
Keflavík.
Tjörureykur og rosalegur
hitaveggur
„Lungun fylltust alveg, ég hélt að
mig væri að dreyma og ætlaði bara
að fara að sofa aftur en þá dró
Guðni mig áfram. Mér fannst ég
vera heila eilífð á leiðinni út,“ sagði
Júlíana.
„Konan mín ætlaði að hörfa und-
an þessu,“ sagði Guðni Ragnar.
„Síðan hugsaði ég: Ef við förum til
baka þá komumst við ekki af. Ég
ákvað strax að draga hana með mér,
þreifaði mig áfram í gegnum eldhús-
ið og alltaf magnaðist reykurinn
því meira sem við nálguð-
umst útidymar. Þegar
ég mætti þessum
mikla reyk og
hita fann és
Að því búnu
fór ég inn og
„ tók eldri
strákinn
Guðni Ragnar var óþægi-
lega lengi inni
Vilborg og Júlíana sögðu báðar
að óþægilega „langur tími“ hefði
liðið frá því að Guðni Ragnar
hvarf aftur inn í reykjar-
kófið þangað til hann
birtist með yngri
drenginn. Einnig
hefði liðið góð
stund þangað til
hann komst síð-
an sjálfúr út.
„Hann var
svo lengi
inni. Allir
voru
hræddir
m °s
- héldu
að
Guðni Ragnar og Júltana fengu að fara heim af spítalanum í gær eftir meðferð vegna reykeitrunar, sára á handlegg
Guðna Þórs, auk þess sem augnhimnur höfðu brunnið í Júlíönu. Drengirnir þeirra höfðu fengið að fara á undan og
voru hjá afa sínum og ömmu í Keflavík. DV-mynd GS
Sverri hafði verið komið til góðrar
meðvitundar hefði hún sjálf farið að
eiga erfítt með öndun og fengið
taugaáfall - það hefði fyrst þyrmt
yfir hana þegar henni varð ljóst að
barninu væri loksins borgið.
Nú skilur maður hvers
vegna...
Guðni sagði að með þessa reynslu
að baki væri honum orðið ljóst hve
líkaminn er vanmáttugur að takast
á við reyk og hita þegar kviknar í.
Kona hans tók undir þetta:
„Nú skilur maður hvers vegna
fólk er stundum ekki megnugt að
fara inn í hús að bjarga börnum eða
fólki i eldsvoða," sagði Júlíana.
Hjónin eru a.m.k. að einhverju
leyti tryggð gegn brunatjóni. Eftir
brunann hefur fólk hins vegar sett
sig í samband við sjúkrahúsið tO að
bjóða fram aðstoð. Vilborg Halldórs-
dóttir hefur stofnað bankareikning
vegna framlaga tii fjölskyldunnar
sem missti allt sitt í brunanum. Þau
höfðu verið að gera húsið sitt upp
síðustu 5 árin. Reikningurinn er í
aðalbanka Búnaðarbankans. Bank-
anúmerið er 301 en reikningurinn
nr. 26 6670.
-Ótt
Guðni Þór segir að það hafi verið
að hrökkva eða stökkva við að
bjarga fjölskyldunni enda við þykk-
an og banvænan tjörureyk að efja
og gífurlegan hita:
„Við vöknuðum bæði samtímis.
Ég fann megnan tjörureyk í and-
rúmsloftinu og stóð upp til að kanna
hvað væri að gerast. Ég sá ekki
neitt og þreifaði mig áfram að hurð-
inni og opnaði. Júlíana var fyrir aft-
an mig. Þá kom þessi rosalegi hita-
veggur og enn svartari reykur, bara
eins og þykk tjara. Það var ekki
hægt að anda,“ sagði Guðni Ragnar.
Júlíana taldi sig vera sofandi til að
byrja með þegar maður hennar dró
hana áfram:
erfitt með að starfa. Ég varð að nota
alla þá orku sem ég átti. Ef við hefð-
um farið til baka til að ná í strákana
hefði verið úti um okkur. Við hefð-
um öll dáið.“
Drengurinn eins og hann
væri dáinn
„Þegar við komumst út, nakin,
náðum við súrefni og fórum fyrir
endann á húsinu. Ég tók upp blóma-
pott til að bijóta svefnherbergis-
gluggann okkar þar sem drengirnir
voru,“ sagði Guðni Ragnar.
„Potturinn brotnaði bara á glugg-
anum en þá tók ég upp múrstein og
barði honum í gegnum rúðuna. Síð-
an reif ég hana úr með höndunum.
Niðurstaða rannsóknar á tannheilsu barna:
Mjög góður árangur
„Ég óska heilbrigðisyfirvöldum á
íslandi til hamingju, sem og tann-
læknum," sagði Sigfús Þór Einars-
son, prófessor í tannlækningum, á
fundi sem heilbrigðisráðherra, Ingi-
björg Pálmadóttir, boðaði til þar
sem kynntar voru niðurstöður
könnunar á tannheilsu meðal barna
og unglinga á fslandi.
Á fundinum kom meðal annars
fram að síðastliðin tíu ár hafa tann-
skemmdir minnkað yfir 70% að
meðaltali í fulloröinstönnum. Tann-
skemmdatíðni hefur lækkað heldur
minna í barnatönnum eða um rúm-
lega helming hjá sex ára bömum.
Þetta er þriðja könnunin af þessu
tagi, sú fyrsta var gerð 1986, þá 1991
og svo aftur nú í ár.
Árið 1986 voru skemmdar, tapað-
ar eða fylltar fullorðinstennur að
meðaltali 6,6 á landinu öllu hjá 12
ára börnum. Nú tíu árum siðar er
þessi tala hjá sama aldurshópi að-
eins 1,5 eða 77% lægri. Þessi lækk-
un í tannskemmdum fullorðinst-
anna er 72% hjá 15 ára bömum og
90% hjá 6 ára bömum á sama tíma-
bili.
„Árangurinn er góður og áróðri,
flúori og aukinni notkun flúortann-
.krems er fyrir að þakka. Neysla á
sykri, sælgæti og gosdrykkjum hef-
ur aukist eða staðið í stað og er með
því mesta í heiminum. Marktækur
munur er á tannskemmdum á höf-
uðborgarsvæðinu og á minni stöð-
um úti á landi þar sem sjoppan er
félagsheimilið og krakkar hafa
meira fjármagn handa á milli,“ seg-
ir Sigfús Þór.
-sv
Þú getur svaraö þessari
spumingu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
já iJ
nei _2|
,r o d o
FOLKSINS
904-1600
Á að tryggja nafnleynd
kynfrumugjafa?
því ég heyrði enn þá grátinn í þeim
yngri og vissi að hann var á lífi.
Reykurinn var rosalega þykkur og
ég hafði ekkert súrefni. Ég tók
stærri strákinn upp og rétti hann út
um gluggann. Því næst þreifaði ég
mig áfram eins og blindur maður að
Sverri, yngri stráknum. Um leið og
ég rétti hann út í súrefnið hætti
hann að gráta,“ sagði Guðni.
„Þegar drengurinn kom út var
hann eins og dáinn,“ sagði Júlíana.
„Það var rosalegt áfall. Vilborg Hall-
dórsdóttir, nágranni okkar, hristi
hann og reyndi að koma í hann lífi.
Þá var eins og hann kipptist við,“
sagði móöirin.
eitthvað væri að,“ sagði Júlíana.
„Vöðvi hafði rifnað í handlegg
Guðna Ragnars við að brjóta rúð-
una og bundu nágrannar hans um
blóðugt skurðsárið. Hann heyrði
síðan fólk í kringum sig kalla:
„Hvar er slökkviliðið, hvar er
slökkviliðið.“ Stuttu síðar heyrði ég
að sjúkrabílarnir voru komnir,"
sagði Guðni Ragnar. Móðirin hafði
miklar áhyggjur af yngri drengnum
eftir að honum var bjargað: „Hann
var meðvitundarlítill í sjúkrabíln-
um og líka eftir að við komum með
hann upp á spítala. Hjúkrunarfólkið
var heillengi að koma honum i
gang,“ sagði hún.
Júlíana sagði að um leið og
!stuttar fréttir
Ólíkar væntingar
Samkvæmt atvinnukönnun
Þjóðhagsstofnunar í apríl eru
væntingar atvinnurekenda um
| eftirspurn eftir vinnuafli ólíkar
1 eftir búsetu. Atvinnurekendur
á höfuðborgarsvæðinu vildu
t fækka starfsfólki um 200 en á
| landsbyggðinni vildu atvinnu-
rekendur fjölga fólki um sama
fjölda.
Háeffun frestað
| Hlutafélagið Póstur og sími
I tekur til starfa um næstu ára-
| mót en ekki 1. október nk„ nái
| breytingartillögur meirihluta
i samgörigunefndar Alþingis
| fram aö ganga. RÚV greindi frá
| þessu.
!! Hagstæð vöruskipti
Vöruskipti við útlönd í mars
sl. voru hagstæð um 2,7 millj-
arða króna. Þá voru fluttar inn
vörur fyrir 10,5 milljarða en út
fyrir 13,2 milljarða.
Skóli dæmdur
Hæstiréttur hefur dæmt
Þelamerkurskóla í Eyjafirði og
nærliggjandi hreppa til að
greiða ungum pilti um 1 millj-
ón í bætur vegna slyss sem
hann varð fyrir við skólann
fyrir fimm árum.
Forræðisdeila leyst
Utanríkisráðherra Tyrk-
lands er umhugað um að
forræðisdeila Sophiu Hansen
verði leidd til farsælla lykta.
RÚV greindi ft-á þessu.
Látinna minnst
Alnæmissamtökin standa
fyrir guðsþjónustu i Fi-ikirkj-
unni á morgun þar sem þeirra
| verður minnst sem látist hafa
S af völdum alnæmis. Þetta er
: oröinn árlegur viðburður i
| starfi samtakanna.
SÁÁ-álfur til sölu
„ Árleg sala SÁÁ á álfinum
stendur yfir um helgina, tU
| styrktar forvarnarstarfs á veg-
| um samtakanna. Gengið verð-
ur í hús og álfurinn boðinn við
j fjölfarna staöi. -bjb
Pétur Kr. Hafstein varð fyrstur forsetaframbjóðenda til að skila inn meðmæl-
endalistum. Tveir af stuðningsmönnum hans, Óskar Friðriksson og Valgerð-
ur Bjarnadóttir, fóru á fund Jóns Steinars Gunnlaugssonar, formanns yfir-
kjörstjórnar í Reykjavík, í gærmorgun og skiluðu inn listum stuðnings-
manna úr höfuðborginni. Síðar um daginn var listum skilað til kjörstjórnar í
Reykjaneskjördæmi. DV-mynd S
Guðrún Pétursdóttir var þriðja í röð forsetaframbjóðendanna til að skila inn
meðmælendalistum hjá yfirkjörstjórn Reykjavíkur svo hún gæti vottað með-
mælendur gilda. í millitíðinni fór fulltrúi Ólafs Ragnars á fund Jóns Steinars
Gunnlaugssonar, formanns yfirkjörstjórnar. Þau Guðrún og Ólafur Hanni-
balsson voru varla lent eftir flug frá ísafirði um miðjan dag í gær þegar þau
sáust storma inn á skrifstofu Jóns Steinars með listana. Listum Guðrúnar
Agnarsdóttur verður skilað eftir helgi. DV-mynd ÞÖK