Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Síða 4
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996 éttir Alþýðusambandsþing hefst í Kópavogi á mánudag: Otti við heiftar- leg stéttaátök - vona að menn nái sáttum á þinginu, segir Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar Ég hef vissar áhyggjur af uppstill- ingu til forsetagengisins í ASÍ en vona að menn nái sáttum,“ segir Halldór Bjömsson, formaður Dags- brúnar, um forystukreppuna í ASÍ en þing sambandsins hefst eftir helgina. Orð Halldórs eru samnefnari fyr- ir áhyggjur fjölmargra í forystusveit Alþýðusambandsins sem óttast heiftarleg átök milli stærstu hópanna eða sambandanna innan ASÍ á komandi þingi. Þessir hópar eru verkamenn, sem eru fjölmenn- astir, verslunarmenn og iðnaðar- menn, en óánægja er hvað mest meðal verkamanna og þeir knýja hart á um breytingar á forystu ASÍ og telja að núverandi forysta hafi brugðist. í þeim efnum vísa menn til niður- stöðu launanefndar ASÍ um að for- sendur síðustu kjarasamninga stæð- ust og því ekki ástæða til að segja þeim upp. Þeir sem harðastir eru í andstööu gegn núverandi ASÍ-for- ystu segja að þar með hafi forystan veitt sjálfri sér náðarhöggið. Erfðaprins Benedikts Menn sem standa Benedikt Dav- íðssyni nærri og DV hefur rætt við telja að Benedikt muni ekki ætla að gefa kost á sér til áframhaldandi setu sem forseti ASÍ og leggi hart að Grétari Þorsteinssyni, formanni Samiðnar, með að gefa kost á sér. „Það hafa auðvitað margir verið í umræðunni en ég hef ekki bent á neinn sérstakan," segir Benedikt þegar þ'etta er börið undir hann Hervar Gunnarsson hefur lýst þvi yfir að hann muni gefa kost á sér á ASÍ-þinginu til forseta ASÍ, en Her- var er formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Akraness. Maður sem stendur framarlega i forystusveit Verkamannasambandsins segir að ólíklegt sé að samkomulag náist á þinginu um kosningu Hervars þar sem stuðningur við hann sé ekki eindreginn innan Verkamannasam- bandsins, hvað þá annars staðar. í skjóli ósamkomulags En þótt félagar innan VMSÍ og Landssambands verslunarmanna séu fjölmargir á þeirri skoðun að völd iðnaðarmannanna innan ASÍ séu of mikil og hafl haft þær afleið- ingar að kjör fyrrnefndu hópanna eru eins og þau eru, - léleg, þá muni þeir ekki koma sér saman um fram- boð til nýrrar yfirstjórnar ASÍ, þ.e.a.s. forseta og varaforseta. Þegar sé búið að leita með logandi ljósi og ekkert ótvírætt foringjaefni hafl fundist. Líklegast sé því að Benedikt Davíðsson sitji áfram sem forseti ASÍ eða þá að nýr forseti, sem Bene- dikt sjálfur muni benda á sem sinn eftirmann, setjist í stólinn. Þessi maður verði sem sé Grétar Þor- steinsson. Viðmælandi DV óttast að svo kunni að fara að þingið muni litast af hatrömmum átökum milli starfsstétta innan ASÍ, einkum þó milii Verka- mannasambandsins og annarra stétt- arfélaga og -sambanda, og þau átök samhliða áhugaleysi almennra félags- manna í verkalýðsfélögum muni veikja ASÍ og þingsins verði minnst í sögunni sem upphafínu að endalok- unum. „Ég vona að svo verði ekki,“ segir Benedikt aðspurður hvort stéttaátök séu í uppsiglingu. „Verkamannasam- bandið hefur verið langstærsti aðilinn innan ASÍ, bæði með tilliti til fjölda fé- lagsmanna og einnig með langstærsta hópinn inni í miðstjórn og þvi ráðið ferðinni að langmestu leyti. Mér fýnd- ist því eðlilegra að gagnrýni á stefnu og störf kæmi frá öðrum en þeim,“ segir Benedikt Davíðsson. -SÁ Brúöarpar DV fær 300 þúsund krónur til aö kaupa fyrir í gegnum smáauglýsingar: Bað hennar á hnján- um í drullupolli - segir Einar um kvonfang sitt, Jarþrúöi „Við sáum auglýsinguna, ákváð- um bara að slá til og það var frá- bært að vera valin. Auglýsingamar í blaðinu hafa vakið mikla athygli og fólk hefur tengt okkur við ýmis fyrirtæki, forsetaframbjóðendur og Frið 2000 en við höfum haldið þessu leyndu þar til nú,“ segja Jarþrúður Guðnadóttir og Einar Sigurðsson, brúðarpar DV, en þau vom valin úr fjölmörgum umsækjendum þegar DV auglýsti eftir fólki í brúðkaups- hugleiðingum. DV gefúr þeim 300 þúsund króna brúðargjöf sem þau munu síðan nota til þess að byggja upp framtíðarheimili i gegnum smá- auglýsingar DV. „Við vorum aðeins búin að velta þessu upp og mig langaði til þess að bera bónorðið upp á frumlegan hátt. Ég var búinn aö hugsa mig lengi um og mér datt ekkert annað í hug en að fara með hana upp í Öskjuhlíð í hádegi á mánudegi, krjúpa ofan í drullupoll með blómvönd fyrir aftan bak. Það gekk eftir, hún sagði já,“ segir Einar. Jarþrúður segir bón- orðið hafa komið sér á óvart því hún hafi talið að það væri svo mik- ið um að vera hjá þeim á þessu ári að brúðkaup væri ekki á dagskrá. „Ég hélt við ætluðum að fara að fá okkur pylsu,“ segir Jarþrúður. „Við erum alveg sammála um umgjörðina. Stóri dagurinn verður 17. ágúst og undirbúningurinn hef- ur staðið frá því að ákvörðunin var tekin í mars. Við leggjum mikið upp úr tónlistarflutningi, bæði í veisl- unni og í kirkjunni og síðan verður dansað fram á kvöld. Við ætlum að hafa matarveislu og það á að verða gaman,“ segir Jarþrúður. Einar og Jarþrúður kynntust fyr- Forsetaframbjóðendur á ferðinni - víöa um helgina Forsetaefnin verða á feröinni um helgina, ja&t erlendis sem hér á landi, enda baráttan komin á fúilt. Gu'ðrún Agnarsdóttur verður á Norðurlöndun- um, fundar í Jónshúsi í Kaupmanna- höfn i dag, i félagsheimili íslendinga- félagsins í Gautaborg á morgun. Á mánudag veröur hún í Helsinki í tengslum við aðaifund norrænna krabbameinsfélaga og á þriðjudag hittir hún íslendinga í Stokkhólmi á leiðinni heim. Guörún Pétursdóttir og Ólafur Hannibalsson taka á móti gestum á Hótel Borg annað kvöld og bjóða al- menningi upp á fjölbreytta skemmti- dagskrá með tónlist, ljóðaupplestri og ávörpum. Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir verða á ferðinni um Noröurland um helgina en fram- boöskynning þeirra hófst formlega á Ðmmtudag. í dag verða þau á Dalvík og Ólafsfirði og á Akureyri og Húsa- vík á morgun. Síöan taka Austfirðir við eftir helgi. Pétur Kr. Hafstein og Inga kona hans verða á ferðinni í höfuðborginni um helgina, kíkja m.a. í Kolaportiö og Granda og verða viöstödd kóramót í Grafarvogskirkju á morgun. Guðmundur Rafn Geirdal sagði víð DV að hann ætlaði að einbeita sér að söfnun meðmælenda um helgina. í gær höfðu 240 manns lýst yfir stuðn- ingi við hann. Þótt vika væri til stefnu. sagðist hann hvergi banginn. Hann ætlaöi að skila inn nöfnum meðmæl- enda þótt tilskilinn fjöldi næðist ekki. -bjb ir þremur árum í Jeddah í Saudi-Arabiu þar sem þau voru bæði að vinna hjá Atlanta. Einar starfar nú sem flugþjónn hjá Flug- leiðum en hún vinnur hjá Tryggingafélaginu Skandia. En af hverju að ganga i hjónaband? „Fyrir okkur er þetta svona eins og inn- sigli á fjöl- skyldu- böndin. Við erum búin að gera upp hug okkar hvort gagnvart öðru og höfum ákveðið aö búa saman og eignast fjöl- skyldu. Þetta er í samræmi við trú okkar og siði og þetta lokar eigin- lega hringnum, ef svo má segja,“ segja hjónaleys- in. Þau segjast vera farin að velta því fyrir sér hvað þau vantar í nýja íbúð sem þau fá afhenta á næst- unni og segjast vera farin að skoða smáauglýsingarnar af mikilli nákvæmni. „Þetta er mikil búbót og verður til þess að við get- um boðið fjölskyld- unni í mat fyrr en ella. Borð- stofuborðið hefði annars ekki verið á fjárhagsáætl- un fyrr en eftir tvö ár,“ segir Jar- þrúður. Lesend- ur DV geta fylgst náið með þeim hjóna- leysum þegar þau velja sér innbú- ið, allt milli himins og jarðar, á næstu dögum og vikum. Þeir geta þá notað tæki- færið, kannað hvort þeir eiga ekki eitthvað af óskalista pars- ins unga og aug- lýst í smáaug- lýsingum DV. -sv Þetta er mikil búbót og verður til þess að við getum boðið fjölskyldunni í mat fyrr en ella. Borðstofuborðið hefði annars ekki verið á fjárhagsáætlun fyrr en eftir tvö ár, segja brúðhjónin tilvonandi, Jarþrúður Guðnadóttir og Einar Sig- urðsson. DV-mynd GS Dy Djúpavogi: Það veröur mikill hátíðisdag- ur hér á Djúpavogi sunnudag- inn 19. maí þegar ný, stórglæsi- leg kirkja verður vígð af biskupi íslands, herra Ólafi Skúlasyni. Athöfnin hefst kl. 15 og er búist við fjölmenni. Séra Sjöfn Jóhannesdóttir messaöi í síðasta sinn í gömlu kirkjunni á uppstigningardag en gamla kirkjan hefúr þjónað hlutverki sínu sem guöshús í rúm 100 ár. Ingimar Sveinsson, fyrrver- andi skólastjóri, rifjaði upp sögu kirkjunnar i stuttu máli. Þar kom fram að heimildir eru um kirkju á Hálsi frá 1200. Þann 8. mars 1892 fauk Hálskirkja og var byggð ný kirkja á Djúpavogi 1893. Ýmsar minningar tengdar gömlu kirkjunni flugu gegnum huga kirkjugesta - viss tregi og söknuður þegar Söfn lýsti því yfir að gamla kirkjan væri nú hætt að þjóna hlutverki sínu sem guðshús safhaðarins. -HEB Gamla og nýja kirkjan á Djúpa- vogi. Vito - nýr sendi- og fjöl- notabíll frá Benz Nýr fjölnotabíll, Vito, frá Mercedes Benz verður frum- sýndur hjá Ræsi hf. um helg- ina. Þessi fjölnotabíO er til í ýsmum útfærslum, allt frá því að vera rúmgóður „stórfjöl- skyldubíll" upp í það að vera hefðbundinn sendibíll. Sýndar verða fjórar gerðir, einn bíll með sætum og 110 hestafla disilvél, tveir lokaðir sendibílar með 108 og 110 ha. dísilvélum og einn gluggabíll með 113 hestafla bensínvél. Aðrar gerðir bíla verða einnig á sýningunni hjá Ræsi um helgina, þar á meðal bæði C- og E-línan frá Mercedes Benz, og allar gerðir fólksbíla frá Mazda. Sýningin hjá Ræsi er opin í dag, laugardag, kl. 10 til 16 og frá kl. 12 til 16 á morgun, sunnudag. Djúpivogur: Biskup vígir nýja kirkju Vito - nýr fjölnotabíll frá Mercedes Benz sem verður frumsýndur um helgina. Ræsir hf.:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.