Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Qupperneq 4
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996
éttir
Alþýðusambandsþing hefst í Kópavogi á mánudag:
Otti við heiftar-
leg stéttaátök
- vona að menn nái sáttum á þinginu, segir Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar
Ég hef vissar áhyggjur af uppstill-
ingu til forsetagengisins í ASÍ en
vona að menn nái sáttum,“ segir
Halldór Bjömsson, formaður Dags-
brúnar, um forystukreppuna í ASÍ
en þing sambandsins hefst eftir
helgina.
Orð Halldórs eru samnefnari fyr-
ir áhyggjur fjölmargra í forystusveit
Alþýðusambandsins sem óttast
heiftarleg átök milli stærstu
hópanna eða sambandanna innan
ASÍ á komandi þingi. Þessir hópar
eru verkamenn, sem eru fjölmenn-
astir, verslunarmenn og iðnaðar-
menn, en óánægja er hvað mest
meðal verkamanna og þeir knýja
hart á um breytingar á forystu ASÍ
og telja að núverandi forysta hafi
brugðist.
í þeim efnum vísa menn til niður-
stöðu launanefndar ASÍ um að for-
sendur síðustu kjarasamninga stæð-
ust og því ekki ástæða til að segja
þeim upp. Þeir sem harðastir eru í
andstööu gegn núverandi ASÍ-for-
ystu segja að þar með hafi forystan
veitt sjálfri sér náðarhöggið.
Erfðaprins Benedikts
Menn sem standa Benedikt Dav-
íðssyni nærri og DV hefur rætt við
telja að Benedikt muni ekki ætla að
gefa kost á sér til áframhaldandi
setu sem forseti ASÍ og leggi hart að
Grétari Þorsteinssyni, formanni
Samiðnar, með að gefa kost á sér.
„Það hafa auðvitað margir verið í
umræðunni en ég hef ekki bent á
neinn sérstakan," segir Benedikt
þegar þ'etta er börið undir hann
Hervar Gunnarsson hefur lýst þvi
yfir að hann muni gefa kost á sér á
ASÍ-þinginu til forseta ASÍ, en Her-
var er formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Akraness. Maður sem
stendur framarlega i forystusveit
Verkamannasambandsins segir að
ólíklegt sé að samkomulag náist á
þinginu um kosningu Hervars þar
sem stuðningur við hann sé ekki
eindreginn innan Verkamannasam-
bandsins, hvað þá annars staðar.
í skjóli ósamkomulags
En þótt félagar innan VMSÍ og
Landssambands verslunarmanna
séu fjölmargir á þeirri skoðun að
völd iðnaðarmannanna innan ASÍ
séu of mikil og hafl haft þær afleið-
ingar að kjör fyrrnefndu hópanna
eru eins og þau eru, - léleg, þá muni
þeir ekki koma sér saman um fram-
boð til nýrrar yfirstjórnar ASÍ,
þ.e.a.s. forseta og varaforseta. Þegar
sé búið að leita með logandi ljósi og
ekkert ótvírætt foringjaefni hafl
fundist. Líklegast sé því að Benedikt
Davíðsson sitji áfram sem forseti
ASÍ eða þá að nýr forseti, sem Bene-
dikt sjálfur muni benda á sem sinn
eftirmann, setjist í stólinn. Þessi
maður verði sem sé Grétar Þor-
steinsson.
Viðmælandi DV óttast að svo
kunni að fara að þingið muni litast af
hatrömmum átökum milli starfsstétta
innan ASÍ, einkum þó milii Verka-
mannasambandsins og annarra stétt-
arfélaga og -sambanda, og þau átök
samhliða áhugaleysi almennra félags-
manna í verkalýðsfélögum muni
veikja ASÍ og þingsins verði minnst í
sögunni sem upphafínu að endalok-
unum.
„Ég vona að svo verði ekki,“ segir
Benedikt aðspurður hvort stéttaátök
séu í uppsiglingu. „Verkamannasam-
bandið hefur verið langstærsti aðilinn
innan ASÍ, bæði með tilliti til fjölda fé-
lagsmanna og einnig með langstærsta
hópinn inni í miðstjórn og þvi ráðið
ferðinni að langmestu leyti. Mér fýnd-
ist því eðlilegra að gagnrýni á stefnu
og störf kæmi frá öðrum en þeim,“
segir Benedikt Davíðsson. -SÁ
Brúöarpar DV fær 300 þúsund krónur til aö kaupa fyrir í gegnum smáauglýsingar:
Bað hennar á hnján-
um í drullupolli
- segir Einar um kvonfang sitt, Jarþrúöi
„Við sáum auglýsinguna, ákváð-
um bara að slá til og það var frá-
bært að vera valin. Auglýsingamar
í blaðinu hafa vakið mikla athygli
og fólk hefur tengt okkur við ýmis
fyrirtæki, forsetaframbjóðendur og
Frið 2000 en við höfum haldið þessu
leyndu þar til nú,“ segja Jarþrúður
Guðnadóttir og Einar Sigurðsson,
brúðarpar DV, en þau vom valin úr
fjölmörgum umsækjendum þegar
DV auglýsti eftir fólki í brúðkaups-
hugleiðingum. DV gefúr þeim 300
þúsund króna brúðargjöf sem þau
munu síðan nota til þess að byggja
upp framtíðarheimili i gegnum smá-
auglýsingar DV.
„Við vorum aðeins búin að velta
þessu upp og mig langaði til þess að
bera bónorðið upp á frumlegan hátt.
Ég var búinn aö hugsa mig lengi um
og mér datt ekkert annað í hug en
að fara með hana upp í Öskjuhlíð í
hádegi á mánudegi, krjúpa ofan í
drullupoll með blómvönd fyrir aftan
bak. Það gekk eftir, hún sagði já,“
segir Einar. Jarþrúður segir bón-
orðið hafa komið sér á óvart því
hún hafi talið að það væri svo mik-
ið um að vera hjá þeim á þessu ári
að brúðkaup væri ekki á dagskrá.
„Ég hélt við ætluðum að fara að fá
okkur pylsu,“ segir Jarþrúður.
„Við erum alveg sammála um
umgjörðina. Stóri dagurinn verður
17. ágúst og undirbúningurinn hef-
ur staðið frá því að ákvörðunin var
tekin í mars. Við leggjum mikið upp
úr tónlistarflutningi, bæði í veisl-
unni og í kirkjunni og síðan verður
dansað fram á kvöld. Við ætlum að
hafa matarveislu og það á að verða
gaman,“ segir Jarþrúður.
Einar og Jarþrúður kynntust fyr-
Forsetaframbjóðendur á ferðinni
- víöa um helgina
Forsetaefnin verða á feröinni um
helgina, ja&t erlendis sem hér á landi,
enda baráttan komin á fúilt. Gu'ðrún
Agnarsdóttur verður á Norðurlöndun-
um, fundar í Jónshúsi í Kaupmanna-
höfn i dag, i félagsheimili íslendinga-
félagsins í Gautaborg á morgun. Á
mánudag veröur hún í Helsinki í
tengslum við aðaifund norrænna
krabbameinsfélaga og á þriðjudag
hittir hún íslendinga í Stokkhólmi á
leiðinni heim.
Guörún Pétursdóttir og Ólafur
Hannibalsson taka á móti gestum á
Hótel Borg annað kvöld og bjóða al-
menningi upp á fjölbreytta skemmti-
dagskrá með tónlist, ljóðaupplestri og
ávörpum.
Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún
Katrín Þorbergsdóttir verða á ferðinni
um Noröurland um helgina en fram-
boöskynning þeirra hófst formlega á
Ðmmtudag. í dag verða þau á Dalvík
og Ólafsfirði og á Akureyri og Húsa-
vík á morgun. Síöan taka Austfirðir
við eftir helgi.
Pétur Kr. Hafstein og Inga kona
hans verða á ferðinni í höfuðborginni
um helgina, kíkja m.a. í Kolaportiö og
Granda og verða viöstödd kóramót í
Grafarvogskirkju á morgun.
Guðmundur Rafn Geirdal sagði víð
DV að hann ætlaði að einbeita sér að
söfnun meðmælenda um helgina. í
gær höfðu 240 manns lýst yfir stuðn-
ingi við hann. Þótt vika væri til stefnu.
sagðist hann hvergi banginn. Hann
ætlaöi að skila inn nöfnum meðmæl-
enda þótt tilskilinn fjöldi næðist ekki.
-bjb
ir þremur árum í Jeddah í
Saudi-Arabiu þar sem þau
voru bæði að vinna hjá
Atlanta. Einar starfar nú
sem flugþjónn hjá Flug-
leiðum en hún vinnur
hjá Tryggingafélaginu
Skandia. En af hverju að
ganga i hjónaband?
„Fyrir okkur
er þetta
svona eins
og inn-
sigli á
fjöl-
skyldu-
böndin.
Við
erum
búin að
gera
upp
hug
okkar
hvort
gagnvart
öðru og
höfum
ákveðið aö
búa saman og
eignast fjöl-
skyldu. Þetta er í
samræmi við trú
okkar og siði og
þetta lokar eigin-
lega hringnum,
ef svo má segja,“
segja hjónaleys-
in. Þau segjast
vera farin að
velta því fyrir
sér hvað þau
vantar í nýja
íbúð sem þau fá afhenta á næst-
unni og segjast vera farin að
skoða smáauglýsingarnar af
mikilli nákvæmni.
„Þetta er mikil búbót og
verður til þess að við get-
um boðið fjölskyld-
unni í mat fyrr
en ella. Borð-
stofuborðið
hefði annars
ekki verið á
fjárhagsáætl-
un fyrr en
eftir tvö ár,“
segir Jar-
þrúður.
Lesend-
ur DV geta
fylgst náið
með þeim
hjóna-
leysum
þegar
þau
velja
sér
innbú-
ið, allt
milli
himins
og jarðar, á
næstu dögum og
vikum. Þeir geta
þá notað tæki-
færið, kannað
hvort þeir eiga
ekki eitthvað af
óskalista pars-
ins unga og aug-
lýst í smáaug-
lýsingum DV.
-sv
Þetta er mikil búbót og verður til þess að við getum boðið fjölskyldunni í mat
fyrr en ella. Borðstofuborðið hefði annars ekki verið á fjárhagsáætlun fyrr en
eftir tvö ár, segja brúðhjónin tilvonandi, Jarþrúður Guðnadóttir og Einar Sig-
urðsson. DV-mynd GS
Dy Djúpavogi:
Það veröur mikill hátíðisdag-
ur hér á Djúpavogi sunnudag-
inn 19. maí þegar ný, stórglæsi-
leg kirkja verður vígð af biskupi
íslands, herra Ólafi Skúlasyni.
Athöfnin hefst kl. 15 og er búist
við fjölmenni.
Séra Sjöfn Jóhannesdóttir
messaöi í síðasta sinn í gömlu
kirkjunni á uppstigningardag
en gamla kirkjan hefúr þjónað
hlutverki sínu sem guöshús í
rúm 100 ár.
Ingimar Sveinsson, fyrrver-
andi skólastjóri, rifjaði upp sögu
kirkjunnar i stuttu máli. Þar
kom fram að heimildir eru um
kirkju á Hálsi frá 1200. Þann 8.
mars 1892 fauk Hálskirkja og
var byggð ný kirkja á Djúpavogi
1893.
Ýmsar minningar tengdar
gömlu kirkjunni flugu gegnum
huga kirkjugesta - viss tregi og
söknuður þegar Söfn lýsti því
yfir að gamla kirkjan væri nú
hætt að þjóna hlutverki sínu
sem guðshús safhaðarins. -HEB
Gamla og nýja kirkjan á Djúpa-
vogi.
Vito - nýr
sendi- og fjöl-
notabíll frá
Benz
Nýr fjölnotabíll, Vito, frá
Mercedes Benz verður frum-
sýndur hjá Ræsi hf. um helg-
ina. Þessi fjölnotabíO er til í
ýsmum útfærslum, allt frá því
að vera rúmgóður „stórfjöl-
skyldubíll" upp í það að vera
hefðbundinn sendibíll.
Sýndar verða fjórar gerðir,
einn bíll með sætum og 110
hestafla disilvél, tveir lokaðir
sendibílar með 108 og 110 ha.
dísilvélum og einn gluggabíll
með 113 hestafla bensínvél.
Aðrar gerðir bíla verða
einnig á sýningunni hjá Ræsi
um helgina, þar á meðal bæði
C- og E-línan frá Mercedes
Benz, og allar gerðir fólksbíla
frá Mazda.
Sýningin hjá Ræsi er opin í
dag, laugardag, kl. 10 til 16 og
frá kl. 12 til 16 á morgun,
sunnudag.
Djúpivogur:
Biskup
vígir nýja
kirkju
Vito - nýr fjölnotabíll frá
Mercedes Benz sem verður
frumsýndur um helgina.
Ræsir hf.: