Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Blaðsíða 8
8 tíælkerinn LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996 jO^V Guðrún Pátursdóttir forsetaframbjóðandi er sælkeri vikunnar: „Mér finnst gaman að prófa eitt- hvað nýtt en ég er ekki mjög þolin- móð við að fara eftir uppskriftum og stundum ekki nógu forsjál. Oft hendir það mig að eiga ekki það sem þarf og þá þarf ég að spila svo- lítið af fingrum fram. Það gengur furðuvel. Við getum sagt að ég sé ekki nógu hlýðinn kokkur en ég hef gaman af að borða og elda góðan mat,“ segir Guðrún Pétursdóttir for- setaframbjóðandi. Guðrún segir að gjaman sé eldað- ur einfaldur matiu- á heimili henn- ar og Ólafs Hannibalssonar vara- þingmanns. Fiskur sé mikið á boðstólum, gjaman fiskur í ofni með sítrónusafa eða appelsínusafa og grænmeti soðinn í silfurpappir. En sér Guðrún ein um matreiðsluna á heimilinu? Ólafur eldar þjóðlegu réttina „Ólafur var einu sinni kokkur á síldarbát og kann ýmsa þjóðlega rétti eins og góðar fiskibollur eftir uppskrift tengdamömmu og svo eld- ar hann bestu kjötsúpu í heimi en það vill kannski verða svo að mamman eldar oftar,“ segir Guð- rún. Hún segir að þau hjónin gangi jafnt í öll störf. „Það sem þarf að gera er gert og við hjálpumst að. Svo höfum við haft góða hjálp í bamfóstm telpn- anna okkar. Hún er afskaplega góð- ur og listrænn kokkur og býr til dæmis til taílenskan mat,“ segir Guðrún. Hér koma uppskriftirnar sem Guðrún Pétursdóttir gefur lesend- um. Fylltir sveppir -fifrir þijá til fjóra 12 stórir sveppir sítrónusafi 1 msk. ólífuolía 1 msk. smjör ‘A bolli saxaöur laukur (eöa einn meðalstór) 2 msk. gróft saxaðar valhnetur 1 pressað hvítlauksrif 150 g frosió spínat, látiö þiöna og vökvinn kreistur úr 30 g mulinn fetaostur 30 g rifinn Gruyére ostur (eöa Óðalsostur) 2 msk. saxað ferskt dill salt og svartur nýmalaður pipar að vild Stilkamir em fjarlægðir af svepp- unum. Sveppahettumar eru hreins- aðar með rökum klút eða pappírs- þurrku. Sítrónusafi er kreistur yfir og allt lagt til hliðar. Ofhinn er hitað- ur í 200 gráður. Olía og smjör hit- að á pönnu. Laukurinn er mýktur við hæg- an hita uns hann tekur aðeins á sig lit. Valhnetum og hvítlauk er blandað saman við laukinn og aðeins hrært i. Spinati er hrært saman við og hrært stöðugt í um fimm minút- ur. Pannan er tekin af hitanum og kæld lítiUega. Ostum, dilli, salti og pipar er blandað saman við. Sveppahöttunum er raöað á ofn- fast fat og blöndunni skipt jafnt á milli þeirra. Bakað í átta til tíu mtn- útur í efri hluta ofnsins eða þar til fyllingin brúnast og sveppirnir hitna í gegn. Pastasalat með appelsínum og laxi 250 g pastafiðrildi 2 tsk. ólífuolía 250 g nýtt, roðflett laxaflak 2 vorlaukar eöa % lítill blaólaukur 2 appelsínur, börkur og hvítar himnur fjarlœgðar. Appelsínunum er skipt í báta. 1 sellerístilkur ‘/2 bolli pekanhnetur 3 bollar finstrimlaö rauókál eða 250 g Olíusósa y4 bolli ólífuolía 1 msk. sítrónusafi 1 tsk. sojasósa 1 hvítlauksrif Sett í kmkku með loki, hrist vel saman. Pastað er soðið samkvæmt leið- beiningum á pakka, vatnið látið renna vel af. Pastað er blandað ol- íunni í skál. Laxinn er léttsoðinn og kældur. Öllu er blandað saman í skál rétt áður en bera á réttinn fram. Olíusósunni er hellt yfir og blandað létt saman við. Óreganóbollur -16-18 stykki 2 dl mjólk 2 dl heitt vatn 3 msk. olía 1 bréf þurrger 1 tsk. óreganó 1 tsk. sykur 1 tsk. salt 2 dl grahamsmjöl um 500 g hveiti Blandið saman mjólk og heitu vatni, bætið geri og olíu saman við. Blandið síðan óreganó, sykri, gra- hamsmjöli og hluta hveitisins sam- an við. Hnoðið vel og bætið í hveiti eftir þörfum. Breiðið klút yfir skál- ina og látið hefast uns deigið hefur tvöfaldast. Hnoðið aftur og formið bollur. Látið hefast aftur í um /2 klukkustund. Penslið með mjólk, stráið óreganó yfir og bakið við 200 gráður í 25 mínútur. -GHS - fyrir fjóra - Þessi einfaldi og bragð- góði réttur er heppilegur sem meðlæti með kjöt- rétti en einnig er hægt að hafa hann sem léttan grænmetisrétt með brauði. Nauðsynlegt er að hafa púrrulaukana jafn stóra. 15-6 púrrulaukar salt rifinn ostur smjör ; Púrran er skoluð og soðin i léttsöltuðu vatni i 4-5 mínútur. Vatninu er hellt af og laukamir sett- ir í eldfast form. Ostinum er dreift yfir og smjör- klípum sömuleiðis. Fatiö er sett í ofninn í 200 gráð- ur í 12-15 mínútur. -GHS Ingibjörg Magnúsdóttir er matgæðingur vikunnar: Kjúklingaréttur og vinsælt rúsínubrauð „Ég er í gönguhóp, við göngum alltaf á sunnudagsmorgnum og för- um svo lengri feröir á sumrin. Við erum 14 í hópnum og boröum oft saman.Kjúklingaréttinn fékk ég hjá Guddú, sem er I hópnum, og við erum öll búin að útbreiða réttinn meðal annarra vina og ættingja við miklar vinsældir," segir Ingibjörg Magnúsdóttir skrifstofumaður en hún er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Ingibjörg gefur uppskrift að kjúkl- ingarétti og rúsínubrauði, sem hún segist hafa fengið frá vinnufélaga sin- um. Ingibjörg segir uppskriftina að frekar stóm brauði svo að gjaman megi skipta deiginu í tvennt. Rúsínufláttubrauð ‘/2 dl volgt vatn 25 g pressuger 50 g smjörlíki ca 350 g (6 dl) hveiti 1 jógúrt án ávaxta 1 egg 1 tsk. salt 1 msk. sykur 100 g rúsínur (3 dl) egg til aö pensla meó Þegar gerið hefur verið leyst upp í vatninu er bræddu smjörlíki, jógúrti og eggi blandað saman við. Hveiti, salti, sykri og rúsínum er blandað sman í skál og vökvablöndunni bætt út í. Deigið er hnoðað létt og látið hefast í 45 mínútur. Deigið er hnoðað aftur og skipt í þrjá hluta. Búnar em til lengjur sem em fléttaðar saman, byrja í miðjunni og út til beggja hliöa. Endamir em settir inn undir brauðið. Brauðið er látið hefast í 20 mínútur áður en það er sett inn í 200 gráðu heitan ofhinn. Bakað í um 25 mínútur. Kjúklingaréttur 1 kjúklingur (unghœna) 1 dós aspassúpa 1 dós sveppasúpa 2 bollar sellerí 1 msk. laukur 1 bolli valhnetur 1 tsk. salt y2 tsk. pipar 2 tsk. sítrónusafi 1'á bolli majones 6 harðsoðin egg 2 bollar kartöfluflögur 2 bollar kartöfluflögur ofan á réttinn með hrísgrjónum og hvítlauksbrauði. „Ég skora á Herborgu Þorgeirsdóttur, vinkonu mína. Hún er snilling- ur í mat- argerð og brauð- bakstri,“ segir Ingi- björg. -GHS Öllu er blandað saman og sett í eldfast mót. Ofan á réttinn em settir 2 bollar af flögum. Bakað í ofni þar til það er orðið heitt í gegn. Rétturinn er borinn fram Ingibjörg Magnúsdóttir skrifstofumaður gefur uppskrift að kjúklingarétti, sem notið hefur mikilla vinsælda meðal vina og ættingja, og rúsínufléttubrauði. DV-mynd ÞÖK Fljótlegt og gómsætt Þegar gestir koma í kvöldverð 3 er gott að geta sinnt gestunum af alúð og þurfa þá ekki að nota of mikinn tíma í matargerðina. Hér á eftir koma nokkrar uppskriftir að gómsætum réttrnn sem era 3 fljótlegir í matreiðslu. Uppskrift- imar eru allar miðaðar við fjóra. Heitt grænmetissalat 4 msk. ólífuolía | 2 hvítlauksrif '/2 fennikelrót, nióurskorin 100 g niöurskornir sveppir í y2 kúrbitur, skorinn í þunnar sneiðar I y2 blaölaukur, niðurskorinn y2 rauö paprika í strimlum salt og mulinn pipar l‘/2 dl þurrt hvítvín ferskt basilikum l sítróna Olían er hituð á steiking- arpönnu, hvítlaukurinn er steiktur í eina mínútu og græn- h raetinu bætt út í. Hrært í pönn- í unni þannig að grænmetið steik- i ist jafnt á nokkuð miklum hita. í Saltað og piprað og hvítvíninu hellt yfir. Pannan tekin af eftir 3 nokkrar sekúndur. Borið fram með fersku basilíkumblaöi og f sítrónubátum. Léttsaltaður þorskur með furuhnetum 1 kg léttsaltaöur þorskur 50 g smjör j 2 hvítlauksrif, marin 1 stór, gróft skorinn laukur Áfennikelrót, gróft niöurskorin 1 dós tómatar, 400 g 2 msk. rúsínur salt pipar 2 msk. furuhnetur, ristaöar í pönnu 2-3 msk. söxuó persilja Fiskurinn er skorinn í bita og lagður í sjóðandi vatn í um þaö bil sex mínútur. Smjörið er ! brætt og hvítlaukur og laukur . steiktir. Fennikel, tómötum, salti og pipar bætt út í og látið sjóða þar til fennikelrótin er oröin meyr. Kryddað eftir þörfum. Sósan er borin fram í djúpu, heitu fati. Fiskstykkin eru lögð í og furuhnetum og persilju dreift ofan á. Borið fram með kartöfl- um og eöa brauði. Ananas með möndlukremi og berjum 2 dl rjómi 6 msk. möndlur, helmingurinn fint skorinn !2 msk. sykur 4 sneióar ananas . fersk eðafryst ber Rjóminn er þeyttur og möndl- um, sykri, gjaman ananassafa eöa jafnvel líkjör bætt út í. Eftir- ! rétturinn er borinn fram með an- : anassneið, berjum, til dæmis hindberjum, og sniðugt er að skreyta kremið meö möndl- unum. -GHS I n ...irrrrmn«»r »i mi—w
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.