Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Page 14
14
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996 T>V
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14,105 RVÍK, SIMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Lærum af ísfirðingum
Stjórnmálamenn gömlu flokkanna og nýrra samfylk-
inga gömlu flokkanna á sameinuðum ísafirði eru ekki
verri en aðrir stjórnmálamenn í landsmálum eða sveit-
arfélagamálum þjóðarinnar. Samt eiga þeir skilið rass-
skellingu fönklistans í kosningunum um síðustu helgi.
Eins og aðrir hefðbundnir stjórnmálamenn í landinu
eiga þeir gömlu ekkert erindi í valdastóla. Þeir eru hug-
myndafræðilega innantómir framagosar eins og aðrir
hefðbundnir stjórnmálamenn í landinu. Þeir eru gamal-
kunna tegundin, sem hefur gert þjóðina fátækari.
Við hressumst við að sjá ungt framhaldsskólafólk
skáka hinum hefðbundnu stjórnmálaflokkum og nýjum
samfylkingum þeirra. Við spyrjum, hvað sé hægt að gera
á landsvísu, úr því að hægt er að ná mörg hundruð
manna stuðningi og tveimur bæjarfulltrúum á ísafirði.
íslenzkir kjósendur hafa hagað sér aumlega á undan-
fórnum áratugum. Þeir hafa vísvitandi kosið yfir sig öm-
urlega gasprara og vilja gera einn slíkan að forseta lýð-
veldisins. Sigur fönklistans á ísafirði er ljós í þessu sam-
einaða svartnætti kjósenda og stjórnmálamanna.
Oftast hefur ástandið verið svo slæmt, að menn and-
varpa og segja ekkert geta bjargað þjóðinni, nema skipt
verði um kjósendur fyrst. Raunar er ótrúlegt, hvað ís-
lenzkir kjósendur hafa leyft stjórnmálaflokkum og póli-
tíkusum að komast upp með áratugum saman.
Við erum að dragast aftur úr nágrannaþjóðunum og
stéttaskipting er um leið að aukast innanlands. Fólk hef-
ur í vaxandi mæli verið að flýja til útlanda frá lágtekjun-
um og stéttaskiptingunni, sem hér á landi stafa eingöngu
af mannavöldum, en ekki af slökum gæðum landsins.
Eymdarbotn landsins er í sölum Alþingis, þar sem
leikarar fara hamförum í ræðustóli, láta eins og þorps-
fífl, semja ferskeytlur og haga sér eins og þeir séu ger-
samlega úr sambandi við umhverfið. Þeir blaðra klukku-
stundum saman án þess að finna kjarna neins máls.
Á Alþingi og i ríkisstjórn er talað um allt milli himins
og jarðar og samdar um það ferskeytlur, en hvergi
minnst orði á neitt sem máli skiptir, svo sem viðbrögð
íslendinga við óðfluga efnahagssamruna Evrópu og um
stöðu landsins í breyttri heimsmynd 21. aldar.
Þegar tölvur og sími eru að búa til nýja tegund af upp-
lýsingaþjóðfélagi og framleiða óendanlega athafnamögu-
leika á nýjum sviðum, efna stjórnmálamennirnir til
hverrar nefndarinnar á fætur annarri til að skoða málið
og framleiða um það doðrant á doðrant ofan.
Ekkert skortir á umfjöllun um upplýsingahraðbraut-
ina, nema að ráðherrar yrki um hana fleiri ferskeytlur.
Hins vegar er ekki gert það, sem gera þarf. Ekki er séð
um, að bandvídd þessarar brautar sé á hverjum tima
mun rýmri en sem svarar notkun líðandi stundar.
Núverandi stjórnmálamenn eru upp til hópa ófærir
um að búa þjóðina undir 21. öldina. Hingað til hefur ver-
ið talið, að þetta væri tröllheimskum kjósendum að
kenna, umbjóðendum stjórnmálamanna. En glætan frá
ísafirði sýnir, að kjósendum er ekki alls varnað.
íslenzkir kjósendur þurfa að læra af ísfirðingum. Þeir
þurfa að muna eftir pólitískum afglöpum umboðsmanna
sinna og byrja að rjúfa sauðtryggð sína við hina hefð-
bundnu stjórnmálaflokka og forustumenn þeirra. Þeir
þurfa að fara að gera tilraunir í stjórnmálum.
Þegar búið er að skipta út stjórnmálaflokkunum og
pólitikusunum er loksins komin forsenda þess, að unnt
verði að lifa vel í landinu á 21. öldinni.
Jónas Kristjánsson
Aðþrengt forsetaefni
grípur
Fyrir rúmri viku birti skoðana-
könnunarstofnun Louis Harris
niðurstöðu af könnun á stöðu
væntanlegra frambjóðenda stóru
flokkanna í Bandaríkjunum í for-
setakosningunum í nóvember.
Hún var á þá leið að fylgi Bills
Clintons forseta, fyrirsjáanlegs
merkisbera demókrata, væri
næstum tvöfalt á við það sem
skipar sér um Bob Dole, sem sam-
kvæmt forkosningum á visa tiln-
efningu repúblikana til forseta-
framboðs. Af þeim sem afstöðu
tóku voru 64 af hundraði hlynntir
Clinton en aðeins 31 af hundraði
stóð með Dole.
Þessi úrslit í skoðanakönnun
eru rækilegasta staðfestingin til
þessa á því stjórnmálaástandi í
Bandaríkjunum sem birst hefur í
margs konar myndum síðustu
mánuði. Clinton forseti hefur rifið
sig upp úr fylgislægð undanfar-
inna missera en Repúblikana-
flokkurinn er í fylgiskreppu með-
al þess kjósendahóps sem úrslit-
um ræður í kosningum.
Eins og endranær þegar á móti
blæs í stjómmálum hafa komið
upp erjur innbyrðis hjá
repúblikönum út af því hverjum
helst sé um að kenna mótgangur-
inn í almenningsálitinu. Sér í lagi
hefur Dole sætt ákúrum fyrir að
reka slæglega baráttu, hafa óljós
stefnumið og kunna ekki að ná til
almennings með málflutning sinn.
Einkum hefur Dole verið legið á
hálsi fyrir að helga sig allt of mik-
ið starfi leiðtoga meirihluta
repúblikana í Öldungadeild þings-
ins. Bragðvísi við meðferð mála
og útsjónarsemi við óhjákvæmi-
legar málamiðlanir á þeim vett-
vangi séu ekki þeir eiginleikar
sem mest þörf sé á til að afla vænt-
anlegu forsetaefni alþýðuhylli.
Margir frammámenn repúblik-
ana hafa því um skeið lagt að Dole
að afsala sér leiðtogahlutverkinu
fyrir þingflokkinn til að geta beitt
sér betur i undirbúningi raun-
verulegrar kosningabaráttu. Nú
hefur Dole brugðist við þessum
óskum með því að lýsa yfir að
hann hafi ákveðið að segja af sér
þingsetu að fullu og öllu og ein-
beita sér þaðan í frá að því að
koma málstað sínum á framfæri
við bandarísku þjóðina.
En þá á eftir að greina frá því í
einstökum atriðum hver sá mál-
staður á að vera. Almenn óánægja
með Repúblikanaflokkinn stafar
einmitt af því að honum hefur
með málatilbúnaði á þingi og mál-
flutningi forsetaefna í nýafstað-
inni forkosningabaráttu tekist að
koma sér út úr húsi hjá veruleg-
um hluta þeirra kjósenda sem
ómissandi eru, eigi flokkurinn að
geta gert sér vonir um sigur í for-
setakjörinu í nóvember.
Dæmigerðir fyrir þá frammá-
til örþrifaráðs
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
menn sem komið hafa óorði á
Repúblikanaflokkinn eru Newt
Gingrich á þingi og Pat Buchanan
meðal keppinauta Dole um til-
nefningu í forsetaframboð. Eftir
þingkosningar 1994, þegar
repúblikanar urðu í meirihluta í
báðum þingdeildum í fyrsta skipti
í næstum hálfa öld, taldi Gingrich,
leiðtogi flokksins í Fulltrúadeild-
inni, sér alla vegi færa og boðaði
byltingu í bandarískum þjóðfé-
lagsháttum. Nú telst hann óvin-
sælastur bandarískra stjórnmála-
manna.
Skrá um löggjafarmálefni, sem
Gingrich skírði „Sáttmála við
Bandaríkin", hefur ýmist runnið
út í sandinn eða reynst illa þokk-
uð af almenningi, einkum niður-
skurður á fé til skólamála og um-
hverfismála. ítrekuð lokun rikis-
stofnana vegna fjársveltis af völd-
um þingmeirihlutans hefur komið
repúblikönum í koll.
Á síðastu vikum hefur vart ann-
ar stjórnmálaviðburður verið
rúmfrekari í bandarískum fjöl-
miðlum en hvernig Alfonse
D’Amato, öldungadeildarmaður
frá New York, tók í hnakkadramb-
ið á Gingrich og Buchanan.
D’Amatao er einhver áhrifamesti
stuðningsmaður Dole á þingi og
átti mestan þátt í að tryggja hon-
um yfirburðasigur í forkosning-
um í New York.
Að dómi D’Amatos eru
repúblikanar vísir til að bíða af-
hroð í nóvember, fái mann eins og
Gingrich og Buchanan að móta
mynd flokksins í almenningsálit-
inu. Kallar hann þá og þeirra nóta
„heimspekilega erkiklerka“ vegna
hugmyndafræðilegrar mótunar á
málflutningi hópsins. Árásir
Buchanans á konur, svertingja og
samkynhneigða séu óþolandi fyrir
flokkinn og hann ætti sem minnst
að fá að koma fram á flokksþing-
inu í ágúst. Bob Dole á því verk
fyrir höndum ef hann á að sýna
sigurstranglegan flokk í sjónvarpi
frá því þingi.
Dole hefur sætt ákúrum fyrir að reka slælega baráttu, hafa óljós
stefnumið og kunna ekki að ná til almennings með málflutning sinn.
skoðanir annarra____________________r>v
Jafnvægi nauösynlegt
í „Það er nauðsynlegt aö finna jafnvægi á milli
I þess að gæta efnahagslegra hagsmuna Bandaríkj-
: anna og beita viðskiptaþvingunum til þess að hafa
I áhrif á hegðun Kína. Bandarísk fyrirtæki hagnast á
: viðskiptum við Kína og viðskiptin skapa atvinnu.
I En þau styrkja einnig stjórnvöld sem brjóta mann-
I réttindi á þegnum sínum, kúga nágranna sína og
c grafa undan stefnu Bandaríkjanna í vopnaeftirlits-
* málum með því að selja parta í kjarnavopn til ann-
I arra ríkja.“
Úr forystugrein New York Times 13. maí.
Aukið bil milli
ríkra og fátækra
I „Munurinn milli ríkra og fátækra í Noregi vex aug-
ljóslega. Áður óbirtar tölur frá Hagstofu sýna að frá
I því að Gro tók við völdum 1986 hefur munurinn
milli ríkra og fátækra aukist á hverju ári. Tölumar
sýna að árið 1986 voru nettótekjur 10 prósent þeirra
heimila sem fátækust voru 4,1 prósent af heildar-
tekjunum. Árið 1994 voru nettótekjumar 2,9 pró-
sent.“
Úr grein í Dagbladet 14. maí.
Áhyggjur vegna flugslysa
„Hið hræöilega flugslys í Everglades í Flórída hef-
ur gefið tilefni til nýrra, alvarlegra áhyggjuefna.
Eftir að hafa rannsakað ValuJet flugfélagið í
nokkra mánuði skrifaði blaðamaðurinn Elizabeth
Marchak í Cleveland að óhöpp hjá flugfélaginu
væru að minnsta kosti fjórum sinnum fleiri en hjá
þremur stærstu félögunum, United, American og
Delta. Hefði það ekki átt að vera tilefni til aðgerða?“
Úr forystugrein Washington Post 15. maf.