Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Page 18
18
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996 UV
Mánudagur 13. maí. Sautján dagar þar til
listahátíö hefst. Ég vaknaði í morgunsárið
við fuglasöng á sveitaheimili mínu að Þóru-
stöðum í Ölfusi. Við Árni, bóndi minn, nut-
um ristaða brauðsins og kaffitársins á með-
an farið var yfir leifar helgarblaðanna. Þar
sem við leigjum smáíbúð í bænum eru alltaf
nokkrir búslóðaflutningar í gangi. Ég tíndi
til möppur og tölvudiska frá Listahátíð, sem
ég hefði nýtt mér við vinnu heima um helg-
ina, og náði í nautakjöt af nýslátruðu úr
frystikistunni. Síðan þeysti ég af stað á
pickupnum yfir Hellisheiðina.
Það var ljúft að aka austan í morgunkyrrð
og sólskinsblíðu en leikurinn tók að æsast
um leið og ég ók inn í borgina. Ég þurfti að
koma mér vestur á Hringbraut með kjötið í
kæli áður en haldið yrði til vinnu. Um leið
og ég steig inn á skrifstofu Listahátíðar byrj-
aði ballið. Ég var að fara á morgunfund í út-
varpinu ásamt Sigurði Björnssyni, formanni
framkvæmdastjórnar, til að semja um sölu
Listahátíðar á efni í útvarp og sjónvarp og
þurfti að undirbúa fundinn á meðan ýmis
óvænt erindi dundu á mér. Við Sigurður sát-
um langan fund í Efstaleitinu ásamt Mar-
gréti Oddsdóttur, dagskrárstjóra útvarps,
Signý Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar.
DV-mynd GVA
hefur úrslitavald um dagskrá hátíðarinnar.
Efnisskrá funda er trúnaðarmál svo það fer
ekki lengra. Tölvupóstur, pappírar og sím-
hringingar biðu að loknum fundi klukkan
fimm. Til dæmis náðum við Ómar Einarsson
hjá íþrótta- og tómstundaráði saman en við
erum með sameiginlegar áhyggjur vegna
kostnaðar við atriði í Laugardalshöll. Enn
einu sinni hugsaði ég á þessum undirbún-
ingstíma Listahátíðar hvílík blessun það
væri ef íslendingar ættu tónlistarhús. Að-
standendur Laugardalshallar eru allir af
vilja gerðir en höllin er jú íþróttahús og
kostar ótrúlegar tilfæringar að breyta henni
í tónleikahöll hverju sinni. Við Ómar grín-
uðumst með að hún Anna Mjöll þyrfti endi-
lega að vinna Eurovision svo við fengjum að
setja upp þær viðbótarbreytingar sem til
þarf í höllina.
Afmæliskvöldverður
Undir sjö dreif ég mig heim til að elda af-
mæliskvöldverð fyrir Torfa, son minn. Jó-
hann, eldri sonur Áma, sem býr hjá okkur,
afboðaði sig í matinn vegna prófalesturs í
Dagur í lífi Signýjar Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Listahátíðar:
A þönum frá morgni til kvölds
Sigurði Valgeirssyni, dagskrárstjóra Sjón-
varps, Guðmundi Emilssyni tónlistarstjóra
og Herði Vilhjálmssyni fjármáiastjóra. Ókk-
ur miðaði í samningaátt en boðað var til
þriðja fundar um málið að lokum.
Er á skrifstofuna var komið biðu mörg
skilaboð og ég reyndi að sinna þeim allra
nauðsynlegustu en hélt þó það loforð sem ég
hef gefið sjálfri mér að sleppa ekki hádegis-
leikfiminni hennar Lellu í Kramhúsinu
nema líf liggi við. Væntanleg 21 árs afmælis-
gjöf til Torfa Frans, sonar míns, beið nýs eig-
anda svo ég kom við hjá honum á leiðinni í
vinnuna. Þá náði ég líka í tillögu okkar
ágætu hönnuða, Barkar og Dags á Mynda-
smiðju Austurbæjar, að veggspjaldi Listahá-
tíðar og fyrsta eintak af aðaldagskrá hátíðar-
innar.
I sólskininu fyrir utan skrifstofuna á
Bernhöftstorfu biðu mín Steinunn Birna
Ragnarsdóttir píanóleikari, forsvarsmaður
Zilla píanókvartettsins, og Hallfríður Ólafs-
dóttir flautuleikari, forsvarsmaður Camer-
arctica, en báðir þessir kammermúsíkhópar
eru með tónleika í Loftkastalanum á Lista-
hátíð. Við funduðum um samninga.
Tíminn of stuttur
AUtof stuttur tími gafst á skrifstofunni til
að annast ólokin erindi því vikulegur fram-
kvæmdastjórnarfundur Listahátíðar átti að
hefjast klukkan þrjú. Mér tókst þó að líta á
tillögu Listasafns íslands að sameiginlegu
boðskorti safnsins og okkar vegna opnunar-
hátíðarinnar 31. maí, sinna erindum vegna
tónleika Heimskórsins, tæknilegum atriðum
við danssýningu Maureen Flemming í Loft-
kastalanum o.fl. Meðal þeirra sem tókst að
grípa í skottið á mér fyrir fundinn var Þór-
unn Jónsdóttir, Menningarstofnun Banda-
ríkjanna, sem hefur verið afar hjálpleg. Ein-
ar Örn Benediktsson, samstarfsmaður minn,
reifaði nokkur atriði sem tengdust bæði
Klúbbi Listahátíðar og sýningum í Loftkast-
alanum en við ákváðum að bíða betra næðis
til að ræða málin. Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir,
fjölmiðlafúlltrúi hátíðarinnar, sagði mér frá
ýmsu sem var á döfinni. Ég var enn að
skrifa dagskrá fundarins þegar fulltrúar í
framkvæmdastjórn mættu á svæðið. Hulda
G. Geirsdóttir, annar samstarfsmaður minn,
var búin að undirbúa fundinn að öðru leyti
og ljósritaði jafnóðum gögn sem ég henti í
hana.
Nú er ekki pláss lengur til að funda á
skrifstofu Listahátíðar svo leitað var skjóls á
loftinu í Humarhúsinu. Þar mættu auk Sig-
urðar formanns og okkar Huldu Þórunn Sig-
urðardóttir, Silja Aðalsteinsdóttir, Anna
Líndal og Óskar Ingólfsson en þetta ágæta
listafólk myndar framkvæmdastjórnina sem
Háskólanum og Árni hringdi af Hvaleyrinni
þar sem hann var kominn í kvöldgolf.
Nautakjötið kom nú að góðum notum í
Stroganoffpottrétt. Ég ákvað að hafa þetta í
anda barnaafmælanna - síðasta tækifærið
úr því sonurinn var orðinn myndugur,
keypti kók í gleri, sælgæti og ís í eftirmat.
Við sátum svo bara sex við borðið, Torfi
Frans afmælisbarn, Guðrún Jóhanna, átján
ára dóttir mín, Melkorka Tekla, elsta dóttir-
in, Kristján Hrafn, unnusti hennar, og Jón
Páll, vinur og frændi Torfa. Þeir félagar eru
að gera stuttmynd saman og áttu að hefjast
næturtökur á Kaffibarnum undir miðnætti.
Borðhaldið var hið skemmtilegasta. Þetta
unga fólk er allt á kafi í listum og umræð-
urnar voru fjörugar að vanda. Um miðnæt-
tið stillti ég vekjaraklukkuna á sjö til að ná
að skrifa þennan pistO í morgunsárið áður
en vinna hæfist að nýju.
Finnur þu fimm breytingar? 359
Þið ætlið þó ekki að fara strax?
Klukkan er rétt hálffjögur og fjörið rétt að byrja.
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fimmtugustu og
sjöundu getraun reyndust vera:
1. Birkir Freyr Bjarkason 2. Þóra Karlsdóttir
Rauðási 16 Gíslholti
110 Reykjavík 851 Hellu
Myndirnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í Ijós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi að
verðmæti kr. 7.100, frá Hljómbæ Skeif-
unni 7, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bókin
Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fin og rík og liðin lík.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 359
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík