Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Side 19
r enning
LAUGARDAGUR 18. MAI 1996
Bændur
GIRÐINGAREFNI
í ÚRVALI
MR búðin • Laugavegi 164
Símar: 551 1125 • 552 4355 • Fax: 581 4450
19
Áskell Másson
Tónlistarhátíðinni ErkiTíð ’96 lauk um þarsíðustu helgi með söngtónleik-
um á Sóloni íslandusi þar sem flutt voru verk íslenskra tónskálda. Á
fimmtudeginum voru haldnir kammertónleikar þar sem nemendur Tónlist-
arskólans í Reykjavík fluttu verk íslenskra höfunda. Fullt var út úr dyrum
á þeim tónleikum og sérlega ánægjulegt að vitna hve mikill áhugi virðist
vera hjá unga fólkinu á nýrri innlendri tónlist, enda skein einbeitingin úr
andlitum flytjendanna og var margt mjög vel gert hjá þessum framtíðartúlk-
endum okkar í tónlistinni.
Á föstudagskvöldið voru síðan tónleikar þar sem Caput-hópurinn flutti
þrjú verk jafnmargra höfunda. Fyrst er þar að telja Impromtu fyrir klarí-
--------------------------------- nettu og strengjasveit eftir ítalska
TÁnlig'l tónskáldið Aldo Clementi. Þetta er
I OllIISl fremur hæglát og líðandi tónlist að yf-
— irbragði en þar fléttast í þykkum
vefnaði kontrapunktískar línur, sem,
eins og hent var á í umræðum sem
fram fóru eftir tónleikana, minna
nokkuð á sönglínur í ítölskum óperum.
Síðan var flutt verkið Grand Duo Concertante III: Opnar dyr, eftir Atla
Heimi Sveinsson, sem hann samdi á síðasta ári. Það voru þeir Kolbeinn
Bjamason og Guðni Franzson sem léku verkið ásamt tónbandi. Verkið er í
fjórum þáttum og a.m.k. titillinn er fenginn að láni hjá meistara Schumann.
Mars konar hljóð koma við sögu á tónbandinu og eru þar nokkuð áberandi
barnshljóð, bæði hjal og grátur. Þriðji þátturinn er hárytmískur, þar sem
hljóðfærin og tónbandið skiptast stöðugt á köllum og reynir hann töluvert á
flytjendurna. Áður en verkinu lauk lék m.a. höfundurinn nokkra hljóðláta
moll- hljóma með og var síðan sem verkið fjaraði út.
Flutningur þessara verka var í alla staði frábær, hvorki meira né minna,
og átti það einnig við um síðasta verkið en það er eftir Danann Lars
Graugaard og heitir Tongues Evrobed, skrifað á síðasta ári fyrir
bassaflautu, gítar, píanó, slagverk, fiðlu og selló. Þetta verk er einstaklega
dimmtónað og málað dökkum litum, er yfirleitt hægt og liðandi en verður
undir lokin kröftugar upphrópanir eftir allmörg tremolando sem risa og
hníga í styrk. Eftir einleik á pákm- með berum höndum endar verkið á
hljómum leiknum af öllum hópnum.
Aðstandendum ErkiTíðar ’96 er hér með bæði þakkað og óskað til ham-
ingju með gott og ánægjulegt framtak, vonandi verður þessi hátíð regluleg-
ur listviðburður hér í höfuðborginni.
Caput-hópurinn var meðal þeirra sem komu fram á tónlistarhátíðinni ErkiTíð
'96 á dögunum.
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • OPIÐ LAUGARDAGA
AKAI
FISHER
GRUnDIG
HITACHI
KDL5TEF
Schneider
TEtiSAÍ
LiMiTEO
GEORGE MICHAEL ,
____________ OLDER__tllDOU
í eina viku
réttverð 1899
tilboðsverð 1499 17. maí - 24. maí S K-Í F A N
KRiniGLUMMI (OPIÐ VIRKA DAGA TIL 21:00, LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA TIL 18:00) S. 525 5030
STÓRVERSLUN LAUGAVEGI 26 (OPIÐ ALLA DAGA TIL 22:00) S. 525 5040 • LAUGAVEGI 96 S. 525 5065