Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Blaðsíða 23
: LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996 menmng Hindemith Meðal þekktustu og áhrifamestu tónskálda á fyrri hluta þessarar ald- ar var þýska tónskáldið Paul Hinde- mith (1895-1963). Hann var mjög af- kastamikið tónskáld og samdi m.a. mörg hljómsveitarverk af ýmsu tagi. Merkilegur þáttur í starfi Hindemiths voru ýmis verk samin fyrir áhugamenn í hljóðfæraleik og nemendur. Með því reyndi hann að ná til nýrra hópa tónlist- arunnenda og iðk- enda og barðist með því gegn þeirri tilheigingu sem hann þóttist verða var við að fögur tónlist ein- angraðist hjá menningarlegri há- stétt. Eftir síðari heimsstyrjöld fór Hindemith úr tísku. Tónlist hans þótti of hefðbundin í stíl til þess að eiga upp á pallborðið hjá hinum rót- tæku serialistum sem þá réðu ríkj- um í nýrri tónlist. Nú hefur serial- isminn ýst til í straumi tímans og á síðustu áratugum hafa fjölbreytt viðhorf verið uppi sem m.a. hafa birt mönnum sýn til allra átta og einnig aftur í hinn forna arf. Við þessar aðstæður hafa menn getað aftur notið framlags Hindemiths og veitt honum þann sess sem hann á skilið. í hljómdiskaverslunum er fáan- legur diskur sem nefnist Paul Hindemith, Orchestral vorks. Þar leikur Queensland Symphony Orchestra undir stjórn Werners A. Alberts ýmis hljómsveitarverk eftir tónskáldið. Þótt verk Hindemiths hafi hljómað gamaldags í eyrum serialista verður með engu móti sagt að þau séu ekki frumleg. Stefræn úrvinnsla og hefðbundin form eru að sönnu áberandi í verk- um hans en hvort tveggja með- höndlar hann þó á einkar persónu- legan hátt. Þá er hljómfræði hans mjög sjálfstæð. Hindemith var ágæt- ur hljóðfæraleik- ari sjálfur og set- ur það svip á verkin. Segja má að þau séu spil- aramúsík í þeim skilningi að þau sýna mikinn skilning á list hljóð- færaleikarans. Meðal ágætra verka á diski þess- um má nefna Nobilissima Visione, hljómsveitarsvítu við ballett byggð- um á lífi heilags Franz frá Assisi og Philharmonic Concerto, tilbrigði fyrir hljómsveit við stef eftir Hindemith sjálfan. Þetta verk sýnir vel færni Hindemiths í hljómsveit- arútsetningum. Þá má nefna Symphonic Metamorphoses sem einnig er balletttónlist. Þetta er eitt þekktasta verk Hindemiths og mik- ið flutt um allan heim. Það byggist á stefjum eftir Carl Maria von Weber. Flutningur Queenslands hljóm- sveitarinnar á verkum þessum er yfirleitt góður þótt heyra megi snurður á stöku stað. Hljómsveitin er áströlsk og sýnir að þeir andfætl- ingar okkar geta látið til sín taka í flutningi á fagurri tónlist. Tónlist Finnur Torfi Stefánsson PFAFF Sauma- og Pijónavéla Sýning AÐ GRENSASVEGI 13 Guðbjörg Anfonsdóttir Fatahönnuður kynnir nýju 7570 saumavélina ósamt Júlíu, Erling og Magnúsi. með7570 vélinni getor þú saumað ra.a. kiossaum, bútasaum, útsaum, applikerað auk þess að sauma öll þau spor sem þari til aðsauma nœstumallt!!! Þórunn kynnir okkar frábæru passap prjónavélar verðui með sýnishom a og pruíui 19 md. kl.12.00 til 17“ PFAFF GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 533 2222 FAX 533 2230 23 Guðrún Pétursdóttir og Ólafur Hannibalsson hitta stuðningsmenn og aðra áhugasama í Gyllta salnum, Hótel Borg, sunnudaginn 19. maí kl. 20.30. Kynnir verður Einar Thoroddsen læknir. Éj . v Örstutt ávörp flytja Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur, Sigurður Guðmundsson læknir og Sigríður Halldórsdóttir húsmóðir. Skáldin Ingibjörg Haraldsdóttir og Thor Vilhjálmsson lesa ljóð Helga Þórarinsdóttir lágfiðluleikari flytur ljúfa tóna. Jórunn Viðar og Lovísa Ljeldsted leika saman á píanó og selló. Valgeir Guðjónsson tekur lagið. Borgardætur skemmta með söng. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir! Húsið verður opnað kl. 20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.