Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Side 26
26 tónlist •k k LAUGARDAGUR 18. MAI1996 Topplag Killing Me Softly gæti orðið eitt af vinsælli lögum ársins ef heldur fram sem horfir. Lagið er búið að vera sjö vikur á lista, þar af sex vikur í toppsætinu. Þetta er endurgerð gamals lags Robertu Flack frá árinu 1973. Hástökkið Hástökk vikunnar á hin fræga írska hljómsveit, Cran- berries, með lag sitt, Saivation. Dolores O’Riordan og félagar voru í 33. sæti í síðustu viku en stökkva upp í það tíunda í þess- ari viku. Hæsta nýia lagið Hæsta nýja lagið á hljómsveit- in Nonchalant með lag sitt 5 O’clock. Það lag kemur beint inn i 26. sæti listans í fyrstu viku sinni. Oasis illir Liðsmenn og aðstandendur Oasis eru rasandi þessa dagana út í lögregluna í Manchester. Og sama er reyndar að segja um marga fleiri, þar á meðal örygg- ismálayfirvöld í borginni. Til- efnið er tvennir tónleikar sem Oasis hélt á Main Road leik- vanginum fyrir nokkru þar sem færri komust að en vildu. Og sökum mikillar aðsóknar urðu þúsundir aðdáenda að láta sér lynda að híma utan valiar og hlusta á dýrðina úr fjarska. Ýmsir í þessum hópi voru afar óánægðir með þetta hlutskipti og gengu í skrokk á nærstödd- um, rændu þá og rupluðu. Brut- ust út mikil ólæti og lögreglan réð ekki við neitt enda mjög fá- liðuð. Talsmenn Oasis og fleiri hafa gagnrýnt lögregluyfirvöld harðlega fyrir þetta og er málið í rannsókn. LaToya skilin Ekki er efn báran stök hjá Jackson-slektinu því litla systir Michaels, óþekktaranginn LaToya Jackson, er að skilja, rétt eins og stóri bróðir. Hún var gift umboðsmanni sínum, Jack nokkrum Gordon, sem að henn- ar sögn hefur iðulega barið hana eins og harðflsk. Hli ififll / V \ í boði á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00 vikuna IÍí.Tí. - 24.5 I ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM TOpp 4f{j 1 1 1 7 ...6. VtKANR. 1— KILLING ME SOFTLY FUGEES 2 2 2 7 LEMON TREE FOOL'S GARDEN qr: 5 9 4 BREAKFAST AT TIFFANY'S DEEP BLUE SOMETHING 4 3 3 5 I REALLY LOVED HAROLD EMILIANA TORRINI JE 9 - 2 READY OR NOT FUGEES 6 4 7 5 BECAUSE YOU LOVED ME CELINE DION (D 10 11 4 CAN'T GET YOU OFF MY MIND LENNY KRAVITZ 8 6 6 6 1,2,3,4 (SUMPIN' NEW) COOLIO |T 25 - 2 OLD MAN & ME (WHEN I GET TO HEAVEN) HOOTIE & THE BLOWFISH 33 40 3 ... HÁSTÖKK VHOJNNAR... SALVATION CRANBERRIES 11 8 8 7 FIRESTARTER PRODIGY 18 23 6 FASTLOVE GEORGE MICHAEL 13 7 4 6 STUPID GIRL GARBAGE 14 24 24 3 THREE IS A MAGIC NUMBER BLIND MELON 15 19 28 4 RETURN OF THE MACK MARK MORRISON 16 16 - 2 IT'S RAINING MAN WEST END GIRLS 17 11 15 3 L'OMBELICO DEL MONDO JOVANOTTI (18 ; 40 - 2 DOIN'IT LL COOL J ÍT) 13 13 8 YOU DON'T FOOL ME QUEEN 20 20 20 4 I WILL SURVIVE CHANTAY SAVAGE 21 12 14 7 GAS FANTASÍA OG STEFÁN HILMARSSON 22 15 26 5 SWEET DREAMS LA BOUCHE 23 17 25 5 PIU BELLA COSA EROS RAMAZZOTTI 24 21 22 5 GIVE ME A LITTLE MORE TIME GABRIELLE 25 28 - 2 DIZZY SPOON &) is m ' ... NÝTTÁ USTA ... 5 O'CLOCK NONCHALANT 27 EX 1 THE ONLY THING THAT LOOKS GOOD BRYAN ADAMS 36 I 37 3 SOMETHING DIFFERENT SHAGGY | NÝTT SILENT WINGS TINA TURNER 30 30 32 4 MISSION OF LOVE SIX WAS NINE 31 31 - 2 SATURNUS VINIR VORS OG BLÓMA 32 22 12 6 DEAD MAN WALKING BRUCE SPRINGSTEEN 33 34 - 2 ALWAYS BE MY BABY MARIAH CAREY 34 37 - 2 SINGIN IN THE SUN VIRIDIAN GREEN 35 29 39 4 JOURNEY PAPA DEE 36 14 5 4 X-FILES DJ. DADO Jlí NÝTT CECILIA SUGGS JD 39 I ~ I 2 BEFORE PET SHOP BOYS ísn NÝTT 1 YOU SHOULD BE DANCING E. SENSUAL jA NÝTT 1 YOU STILL TOUCH ME STING Jackson-fjöl- skyldan í vanda Jackson-familían getur vart á heilli sér tekið þessa dagana því útlit eru fyrir að dagblað í Suð- m-- Kóreu ætli sér að hirða Encino- búgarðinn í Kaliforníu af henni. Málavextir eru þeir að blaðið Segye Times borgaði Jackson-fjölskyldunni tæpar 400 milljónir króna fyrir tón- leika með Mikjáli Jacksyni sem voru síðan aldrei haldnir. Blað- ið fór í mál vegna samningsrofs og vann málið. Jackson-hjónin neituöu að borga og þegar að var gáð virtust þau hreinlega ekki eiga neitt sem væri hægt að taka upp í skuldina. Naskir snápar blaðsins komust hins vegar að því að Encino- búgarðurinn hafði verið fluttur yfir á nafn Michaels skömmu eftir að for- eldrar hans töpuðu málinu og þes'sari eignayfirfærslu ætla Kóreumennirnir að hnekkja. Super-gabb Aðdáenaur bresku hljóm- sveitarinnar Supergrass voru heldur beiur dregnir á asnaeyr- unum fyrir nokkru. Einhverjir prakkarar gerðu sér það að leik fyrir nokkru að hengja upp til- kynningar hér og þar í Oxford þar sem fólk var beðið að koma og leika statista í myndbandi fyrir Supergrass. Var fólk sér- staklega beðið að koma í klæðn- aði frá áttunda áratugnum. Und- irtektir voru feiknagóðar; alls mættu um 300 manns á svæðið, margir í múnderingu af skraut- legasta tagi. Gallinn var bara sá að þetta var allt saman gabb og engin Supergrass myndataka að sjálfsögðu. Tóbak er hið mesta böl eins og dæmin sanna. Þetta fengu hljómsveitin Shed Seven og að- dáendur hennar heldur betur að reyna á tónleikum í Edinborg á dögunum. Sveitin var rétt stig- in á svið þegar einn liðsmanna hennar, Rick Witter, kveikti sér makindalega í sígarettu. Vissu menn þá ekki fyrri til en bjöll- urnar gullu, slökkvilið mætti á staðinn og allir voru reknir út í snatri. Enginn fannst eldurinn en Rick kallinn var frekar rjóð- ur á vangann þegar sveitinn sté á svið að nýju. -SþS- Kynnir: Jón Axel Ólafsson Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn er nidurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DVihverri viku. Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist a hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 á sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn tekur þátt i vali “Woríd Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard. GflTT UTVARP! Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markáðsdeild DV - Tölvuvinnsla:,Dódó - Handrit: Sigurður Helgi Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson -Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backrr og Jóhann Garðar ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.