Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Qupperneq 34
42 íþróttir LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996 Ryan Giggs hafði betur í baráttunni við Ginola á knattspyrnuvellinum en ekki á meðal kvenþjóðarinnar. Vinsælustu „folarnir" Ryan Giggs, Manchester United og Frakkinn David Ginola hjá Newcastle eru af bresku kven- þjóðinni taldir með kynþokkafyllstu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Nýverið birti breskt blað umsagnir fimm kvenna um þá félaga og var samanburðurinn Giggs mjög óhagstæður. Beradette Hunt hafði þetta að segja: „Sonur minn styður Man Utd og Giggs er hans upp- áhaldsleikmaður. Ég er hins vegar mun hrifnari af Ginola. Giggs hefur barnalegt útlit og er ekki min týpa. Ginola er mun karlmannlegri. Ef þeir myndu bjóða mér út að borða mýndi ég þiggja boðið frá Ginola.“ Breski spjótkastarinn Tessa Sanderson sagði: „Báðir eru frábærir leikmenn. Ef ég ætti aö velja á milli stefnumóta með þeim myndi ég velja Ginola. Við erum að tala um mjög myndarlegan mann þar sem Ginola er og þessi harði svipur er mun meira freistandi en bamalegt útlit Giggs.“ Giggs hefúr greinilega færri stig hjá kvenþjóð- inni en fleiri á stigatöflunni sem máli skiptir í lok keppnistímabilsins. -SK Breskar meyjar halda varla vatni þegar David Ginola er annars vegar. Hann þykir kynþokkafullur í meira lagi. Bara talað um knattspyrnu - segir Tracey Meville, systir Man. Utd bræðranna Bræðurnir Phil og Gary Neville hjá Manchestér United lifa fyrir knattspyrnu og það kemst ekkert annað að hjá þessum snjöllu leik- mönnum framtíðarinnar. Bræðurnir hafa um 900 þúsund krónur í viku- laun hjá Man. Utd og þeir búa enn hjá foreldrum sínum. Á heimilinu er ekki tal- að um annað en knatt- spyrnu. Bræðurnir ræða vitanlega fátt annað, faðir þeirra er starfsmaður hjá Bury og móðir þeirra er aðstoðarritari hjá 3. deildar liðinu. Þriðja barn þeirra hjóna hefur, þótt ótrúlegt megi virðast, lítinn áhuga á knattspyrnu. Það er tvíburasystir Phils, Tracey. Hún hefur mátt þola ýmislegt um dagana og hefur fengið meira en nóg af öllu fótboltablaðr- inu í fiölskyldunni. Var alltaf látin leika í markinu Tracey hefur þetta að segja: „Þegar ég var lítil var ég alltaf dregin út að spila fótbolta með strák- unum. Það skipti engu máli hvernig veðrið var. Og ég var alltaf látin leika í markinu. í dag er þetta lítið breytt. Það er alltaf verið að horfa á fót- bolta í sjónvarpinu. Ég varð fljótlega leið á þessu sem krakki en það bar engan árangur að malda í móinn. Það var annað hvort að láta sig hafa leik dagsins eða fara í rúmið og sofa. Vinir mínir fóru að stríða mér á þessu. Þeir sögðu að það væri hægt að gera margt betra við tímann en að glápa á fótbolta daginn út og inn,“ segir Tracey. Og þrátt fyrir stóru orðin er orðin breyting á viðhorfi hennar til knattspyrn- unnar á síðustu árum. Stolt af því sem þeir eru að gera „Mér finnst skemmti- legt að fylgjast með þeim í dag og ég er stolt af því hvað þeir eru góðir. Það var alltaf draumur þeirra að leika með Man Utd og sá draumur er nú að ræt- ast. Þeir hafa mikil laun og ég er ánægð þeirra vegna og það er aldrei rígur á milli okkar,“ segir Tracey Neville. -SK Tracey Neville með bræðrum sínum, Phil til vinstri og Gary. Hún segir að ekki hafi verið talað um annað en knattspyrnu á heimilinu og hún hafi verið við það að fá nóg. í dag er hún aftur á móti sátt við sitt hlutskipti innan fjölskyldunnar og segir draum bræðra sinna loks vera að rætast. Hvað gerist í sumar? Tími sumaríþróttanna er runninn upp enn einu sinni. Mörg ár eru siðan knatt- spymumenn og kylfingar, svo að dæmi séu tekin, hafa getað undirbúið sig svo snemma fyrir átök sumarsins. Tíðarfar hefur verið óvenju gott. Knattspymu- og golfvellir lands- ins voru orðnir iðagrænir fyrr en nokkum varði og raunar má segja að hægt hafi verið að leika golf utan dyra í svo að segja allan vetur. Fyrst um knattspyrnuna: Það hefur oft verið kvartað yfir því að erfitt væri fyrir ís- lenska knattspyrnumenn að búa sig undir keppnistímabil. Þetta er rétt og vissulega hafa knattspyrnumenn okkar verið lengi að ná sér á strik og komast í svokallaða leikæf- ingu. Á komandi tímabili ætti þessu að vera öðruvísi farið. Leikmenn hafa getað æft á grasi mjög snemma og veðurfar hefur verið gott. Ef allt er eðlilegt á þetta að skila sér i mun betri knattspyrnu en boðið hefur verið upp á síðustu árin. Vorleikirnir undanfarið, leikir Reykjavík- urmótsins og Deildabikarsins, hafa margir hverjir verið mjög góðir. Þeir lofa góöu fyr- ir komandi tímabil svo ekki sé meira sagt. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt nokkurn mann minnast á vorbrag á leik- mönnum þetta vor- ið eins og svo oft áður. Golfið verður skemmtilegt Keppnistímabil kylfinga er að hefiast. Ein- stök veðurblíða hefur ekki síður verið kylfingum landsins kærkomin en knatt- spyrnumönnum. Um síðustu helgi var veður mjög ákjósan- legt til golfiðkunar. Ég fór að grennslast fyr- ir um golfmót en mér til nokkurrar furðu komst ég að því að engin golfmót voru á dag- skrá hjá klúbbun- um. Þegar ég leit- aði skýringa á þessu kom í ljós að golfklúbbar lands- ins höfðu ekki reiknað með marg- nefndu tíöarfari. Þegar mótum var raðað niður í vetur var einfaldlega ekki gert ráð fyrir því að hægt yrði að halda golfmót á þessum árstíma. íslandsmótið fer í ár fram í Vestmannaeyj- um á einum skemmtilegasta og fallegasta golfvelli landsins. Kylfingar ættu að hafa komið „vel undan vetri" ekki síður en knatt- spyrnumenn og menn bíða golfvertíðarinnar með mikilli óþreyju. Golfið á meiri athygli skilið Að mínu mati er golfið mjög vanmetin íþrótt hér á landi. Fjölmiðlar sinna grein- inni ekki sem skyldi og alls ekki vel, ef tek- ið er mið af tölum í nýbirtu iðkenda- og fé- lagatali íþróttasambands íslands. Þar kemur í ljós að þeir íslendingar sem iðka golf eru aðeins helmingi færri en þeir sem iðka knattspyrnu. Ef við gefum okkur að fiöldi iðkenda hverrar greinar eigi að ráða ein- hverju um umfiöllun fiölmiöla, þá er með góðu móti hægt að fullyrða að golfið verð- skuldar meira pláss í íslenskum fiölmiðlum. íþróttir í vikulokin - eftir Stefán Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.