Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Blaðsíða 51
JjV LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996 menning Til hamingju með afmælið 19. maí 80 ára Auður Einarsdóttir frá Garðhúsum í Grindavík, Dalbraut 27, Reykjavík. Hún tekur á móti ættingjum og vinum í Blómasal Hótel Loftleiða á af- mælisdaginn frá kl. 14 til 18. 75ára Katrín Guðmundsdóttir, Ljósvallagötu 32, Reykjavík. Þórarinn Sigurmundsson, Nýbýlavegi 40, Kópavogi. 70 ára Unnur Kristjánsdóttir, Dunhaga 17, Reykjavík. Elín Ólavia Þorvaldsdóttir húsmóðir, Haðalandi 19, Reykjavík. Maður hennar er Ágúst Jós- efsson bifvéla- virkjameistari. Þau eru áð heiman. Sigríöur Arnórsdóttir, Litlahvammi 3, Húsavík. Sigrún Laxdal málfræðingur, Skildingatanga 2, Reykjavík. Eiginmaöur hennar er doktor Sturla Friðriksson erfðafræðing- ur. Þau eru stödd í Lumleykastala, Durham, Englandi. Auður Kristjánsdóttir, Bræðraborgarstíg 55, Reykjavík. Guðmundur V. Guðmunds- son, Safamýri 13, Reykjavík. 60 ára Hrafnhildur S. Ólafsdóttir, Bólstaðarhlíð 62, Reykjavík. Júliana Sigurðardóttir, Álftamýri 63, Reykjavík. Ólöf Magnúsdóttir, Hringbraut 62, Keflavík. Ólafur Vignir Albertsson, Þverholti 7, Reykjavík. Guðjón Már Jónsson, Laugarbraut 21, Akranesi. Hann tekur á móti vinum og vandamönnum frá kl. 14 til 18 á afmælisdaginn í Framsóknar- húsinu á Akranesi. 50 ára Ellý Kratsch, Brekkubæ 36, Reykjavík. Margrét Guðmundsdóttir, Öldugötu 6, Hafnarfirði. Baldur Þorsteinsson, Grenilundi 19, Akureyri. Þorsteinn H. Magnússon, Lækjartúni 3, Mosfellsbæ. Bjarni Gunnar Sveinsson, Heiðarási 13, Reykjavík. Elísabet Kristjánsdóttir, Kleppsvegi 54, Reykjavík. 40 ára Ingibjörg Vigfúsdóttir, Skipholti 47, Reykjavik. Guðmundur Salómonsson, Steinagerði 4, Húsavík. Tómas Sveinsson, Dverghamri 8, Vestmannaeyj- um. Jón Logi Sigurbjörnsson, Háaleitisbraut 103, Reykjavik. Friðjón Örn Friðjónsson, Markarvegi 1, Reykjavík. Torfi Lngólfsson, Sléttahrauni 17, Hafnarfirði. Ámi Guðmundsson, Granaskjóli 36, Reykjavík. PáU Reynisson, Bleikjukvísl 20, Reykjavík. Freyja Magnúsdóttir, Vallartröð 1, Eyjafjarðarsveit. Sigríður Hermannsdóttir, Suðurvangi 23a, Hafnarfirði. Guðmimdur Finnsson, NorðurvöUum 2, Keflavík. Góður Otelló Sinfóniuhljómsveit íslands stóð að konsert- uppfærslu óperunnar Ótellós eftir Verdi í síð- ustu viku. Kom fram með hljómsveitinni ein- valalið einsöngvara ásamt Kór íslensku óper- unnar en stjórnandi var ítalinn Rico Saccani. Tónlist Áskell Másson Kristján Jóhannsson söng Ótelló og má geta þess að hann gaf laun sín m.a. til Samtakanna um byggingu tónlistarhúss. Aðrir söngvarar voru Lucia Mazzaria, sem söng hlutverk Des- demónu, eiginkonu Ótellós, Alan Titus söng Jago sjóliða, Alina Dubik söng Emilíu, konu Jagós, Antonio Marceno fór með Cassio, flokksstjóra í flotanum, Jón Rúnar Arason var feneyskur hefð- armaður, Loftur Erlingsson söng Montani, for- vera Ótellós, Sigurður Skagfjörð Steingrimsson söng Lodovicos sendiherra og sendiboðann söng Valdimar Másson. Einsöngvararnir komu og fóru af sviðinu eins og gert er ráð fyrir á leiksviði og skapaði það hreyfingu sem lífgaði upp á flutninginn. Undir- ritaður saknaði nokkuð hinna djúpu orgeltóna sem eiga að hljóma undir fyrsta atriðinu og ýta undir óróann sem þar ríkir en strax varð ljóst að söngvarar þessarar uppfærslu væru eins og best gerist. Rico Saccani stjórnaði hljómsveitinni blaðlaust, af miklu öryggi og smitandi eldmóði, enda er óhætt að segja að hljómsveitin lék sér- lega vel en einnig var samstarf hans með ein- söngvurunum með besta móti og Kór íslensku óperunnar átti ennfremur góðan dag. Á þar Garðar Cortes einnig þakkir skildar en hann er núverandi stjórnandi kórsins. Það er alltaf mik- ill viðburður þegar Kristján Jóhannsson kemur hingað heim og syngur fyrir okkur landa sína og þegar bætast við slíkir frábærir listamenn sem hér gerðist er ekkert venjulegt á ferðinni, enda held ég megi ætla að þessi flutningur hafi verið einhver sá jafnbesti sem hér hefur heyrst á óp- eru og voru raunar viðtökurnar eftir þvi. Ótelló er eitt besta verk Verdis og er meðal þess sem hæst hefur risið í ítalskri óperuhefð. Þegar slíkt listaverk er flutt á jafnglæsilegan hátt og var í Háskólabíói í síðustu viku er ekki hægt annað en heillast. Það eina sem skyggði á var vöntun verðugs tónleikahúss til að hýsa slíkan listvið- burð, eins og reyndar Kristján sjálfur minnti rækilega á með gjörðum sínum. Byggjum tónlisíarhús! í cefOK fjallahjólin eru sérstaklega hönnuð með íslenskar aðstæður í huga. Þau eru níðsterk og smíðuð með það að markmiði að þola hinar erfiðustu aðstæður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.