Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Qupperneq 15
DV LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996
15
Svo virðist sem gróðavon hafi ráðið ákvörðun þeirra útgerðarmanna og skipstjóra sem stóðu að nauðgun á þessum frídegi sjómanna því umræddar útgeröir eru taldar með þeim stöndugri.
Það var því ekki svo að þarna væri um lífsspursmál að ræða heldur eingöngu spurning um að veiða meira, hvað sem það kostaði skjólstæðinga þeirra.
DV-mynd Sveinn
Sjómannadagurinn á íslandi á
ákveðinn sess í hugum sjómanna-
fjölskyldna og margra annarra.
Það má raunar segja að hjá mörg-
um sé þessi dagur hápunktur árs-
ins og notaður af fjölskyldum sjó-
manna til að halda hátíð saman.
Það er búið að vera áratugalangt
baráttumál samtaka sjómanna að
fá þennan dag lögfestan til að
tryggja með því að sem flestir sjó-
menn fái þar með að halda daginn
hátíðlegan og geti skipulagt líf sitt
í samræmi við það. Sá áfangi náð-
ist fyrir örfáum árum og þar með
þótti flestum sem málið væri í
höfn. Að vísu var fólki það ljóst að
undantekningar eru frá því að
mögulegt sé að tryggja öllum sjó-
mönnum þennan dag í landi; skip
í utanlandssiglingum og þau skip
sem veiða fyrir erlendan markað
hafa að sjálfsögðu ekki tök á því
að leita hafnar á þeim tíma. Öllum
öðrum er aftur móti auðvelt að
haga úthaldi sínu þannig að hafn-
arfrl sé tekið í þessari fyrstu viku
júnímánaðar.
Ástir
og ævintýr!
Þrátt fyrir ótai dægurlagatexta
um sjómannslífið og fylgifiska
þess, ástir og ævintýr, þá er líf sjó-
manna ekki öfundsvert og ekki
ástæða til að fjargviðrast yfir
háum tekjum þeirra. Þær þúsund-
ir sjómanna sem stunda sjó á
tekjuhæstu skipunum, togurum og
frystitogurum, búa við það að vera
fjarri fjölskyldum í allt að tvo
mánuði í senn. Það má í sjálfu sér
segja að þeir hafi gott að borða og
góðan aðbúnað en það breytir þó
ekki þeirri staðreynd að með at-
vinnu sinni fórna þeir öllu því
sem tilheyrir eðlilegu fjölskyldu-
lífi. Barnauppeldi lendir á eigin-
konum þeirra fjölskyldumanna
sem sjóinn stunda og þeir eru að-
eins að litlu leyti þátttakendur í
gleði og sorgum barna sinna.
Meirihluta ársins fara samskiptin
fram í gegnum síma eða jafnvel
um talstöð á opinni rás þar sem
allir geta hlustað. Háar en stop-
ular tekjur geta engan veginn
komið í stað þessara fórna sem oft
enda á því að fjölskyldur sundrast.
Oftar en ekki gerist það beinlínis
vegna þess að ekki gefst tími til að
greiða úr vandamálunum meðan
sjómaðurinn er í landi og ekki er
hægt að greiða úr þeim í gegnum
síma. Þeir föstu punktar sem eru í
lífi þessara fjölskyldna eru oft að-
eins tveir á ári: sjómannadagm'-
inn og jólin. Það er því varla hægt
að ganga af meiri hörku gegn þess-
um þjóðfélagshópi með annarri að-
gerð en að hafa af þeim þessi sjálf-
sögðu lágmarksfrí.
Róið á
sjómannadegi
Á nýliðnum sjómannadegi kom
þó babb í bátinn og þeir sem höfðu
trúað því í bamslegri blindni að
sjómannadagurinn væri heilagur
hrukku heldur betur við. Nokkrir
frystitogarar frá Reykjavík héldu
sjó á Reykjaneshrygg á sjómanna-
degi í trássi við vilja stærsta hluta
áhafna sinna. Þess voru jafnvel
dæmi að farið væri á sjó undir því
yfirskini að komið yrði til hafnar
að venju á sjómannadagshelgi.
Menn voru því blekktir til skips.
Svo virðist sem gróðavon hafi ráð-
Reynir Traustason
ið ákvörðun þeirra útgerðar-
manna og skipstjóra sem stóðu að
nauðgun á þessum frídegi sjó-
manna því umræddar útgerðir eru
taldar með þeim stöndugri. Það
var því ekki svo að þama væri um
lifsspursmál að ræða heldur ein-
göngu spurning um að veiða
meira hvað sem það kostaði skjól-
stæðinga þeirra. Það má reikna
með að þetta hafi verið svartur
dagur í lífi þeirra fjölskyldna sem
nú horfðust í augu við það fyrsta
sinn að það vantaði þann einstak-
ling sem allt snerist um á sjó-
mannadegi.
Samskipta-
námskeið
Ein útgerð í landinu a.m.k. hef-
ur sýnt sjómönnum og fjölskyld-
um þeirra mikinn skilning og gert
sér grein fyrir þeirri erfiðu stöðu
sem einkalif þessa fólks er í. í því
ljósi hefur útgerðin efnt til nám-
skeiða með sjómönnum og konum
þeirra þar sem sálfræðingar leita
leiða til að veita hvomm hópi fyr-
ir sig innsýn í þá ólíku heima sem
þeir búa við. Þetta fyrirkomulag
mun væntanlega auðvelda fólki að
halda sjó í kröppum lífsdansi og
fyrirbyggja að til hjónaskilnaða
með tilheyrandi sundrung fjöl-
skyldna komi. Það skýtur nokkuð
skökku við þegar einmitt þessi út-
gerð heldur skipi sínu til veiða á
hátíðisdegi sjómanna. í þeirri að-
gerö hlýtur að felast alger þver-
sögn og vekur upp spumingar um
raunverulegan velvilja útgerðar-
mannanna.
Skálkaskjól
í lögum um sjómannadag eru
undanþáguákvæði til að tryggja að
þær útgerðir sem sannanlega
þurfa að halda skipum sínum úti
verði ekki brotlegar. Þessi ákvæði
em það skálkaskjól sem útgerðim-
ar notuðu til að halda skipum sín-
um á Reykjaneshrygg meðan obbi
íslenskra sjómanna hélt daginn
hátíðlegan í faðmi fjölskyldna
sinna. Það verður ekki séð að
nauðsyn hafi staðið til þessa
óhæfuverks sem unnið var gegn
þeim hópi sjómanna sem hlýddi á
sjómannamessuna 200 sjómílur
suðvestur af Reykjaneshrygg og
heyrðu í gegnum skruðninga stutt-
bylgjuútvarpsins að þeir væru
sannkallaðar hetjur hafsins.
Spurningin er einfaldlega sú hvort
ekki eigi að afnema þennan hátíð-
isdag þannig að það sé þá á hreinu
að stunda megi sjó og auka enn á
hagnað einstakra stórútgerða.
Slíkt er allavega hreinlegra en að
reka rýting í bak þeirra sem það
eiga síst skilið.
Fleiri starfsstéttir en sjómenn
eiga daga sem em sjálfsagðir frí-
dagar. 1. maí er frídagur verka-
manna og reyndar orðinn almenn-
ur frídagur flestra stétta í landinu.
Það hvarflar ekki að nokkrum
manni að skipa verkamönnum til
starfa að óþörfu á þeim degi. Frí-
dagur verslunarmanna er einnig
orðinn almennur frídagur þjón-
ustustétta, sem og flestra annara.
Fæstir sjómenn njóta þess að eiga
frí þessa daga af eðlilegum ástæð-
um. Það er fáheyrt að atvinnurek-
endur reyni að brjóta á þeim
samnings- og lögbundna rétti að
eiga frí þessa daga. Það myndi
seint hvaríla að einhverjum bank-
anum að krefjast þess af starfs-
fólki sínu að það héldi opnum
bankanum á frídegi verslunar-
manna. Frekar er ótrúlegt að fisk-
vinnslufyrirtæki reyni að svæla
verkafólk sitt til vinnu 1. maí.
Sjómannadagurinn á aö vera
heilagur og ósnertanlegur, ekki
síður en frídagur verslunar-
manna. Ætli sjómannasamtökin
að halda haus gagnvart sínum um-
bjóðendum og vemda mannrétt-
indi þeirra verða þau að stöðva
með hörku alla þá tilburði sem
eru 1 þá átt að stela sjómannadeg-
inum.