Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Side 18
18 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996 B „Ég vaknaði um hálfsjöleytið um morguninn og byrjaöi á því að fara í sturtu eins og ég geri venjulega. Ég sest yflrleitt ekki niður svona snemma á morgnana til þess að borða morgunmat en fæ mér ávexti fljótlega eftir að ég vakna. Ég vakti síðan ellefu ára gamlan son minn og undirbjó morgunmat fyrir hann áður en hann færi í skólann. Þegar ég kom í vinnuna heilsaði ég upp á næturvaktmanninn á Til- kynningaskyldunni og drakk með honum morgunkaffiö eins og ég geri venjulega á morgnana. Ég hef fyrir vana aö mæta alltaf fyrir kl. átta í vinnuna. Mér finnst gott að nota tækifærið áður en síminn er opnaður hjá okkur til þess að geta skrifað í ró og næði. Starfið hjá Slysavamafélagi íslands byggir að mjög miklu leyti á símhringingum ásamt ábendingum og fyrirspurn- um frá almenningi til mín. Það þýðir að tími til þess að skrifa er oft ekki mikill. Þegar ég var búin að drekka morgunkaffið með vakt- manninum hitaði ég kaffi fyrir starfsfólkið svo það gæti fengið sér það um leið og mætt var í vinnuna. Það er í nógu að snúast hjá Herdísi Storgaard, slysavarnafulltrúa Slysavarnafélags íslands. þar sem tekið var á móti mér. Þar hófst yfirferð um bæinn þar sem ég skoðaði helstu leiksvæði bama á staðnum. Það vom opin leiksvæði, skólar, gæsluvellir og sundlaugin þar sem hættur geta leynst fyrir börn. Átak í Borgarnesi Þetta tók meginhluta dagsins en að lokum gerðum við matarhlé. Ég borðaði mjög skemmtilegan kvöld- verð á Hymunni með konunum í Borgamesi sem tóku á móti mér. Við fónnn út saman fjórar sem stóðum aö þvi að kalla saman fund um átak í slysavömum bama í Borgarnesi. Síðan hittum við fólk sem var búið að kalla saman. Ég útskýrði fyrir þeim hvað þeim var ætlað í þessu verkefni sem kallast Gerum bæinn betri fyrir bömin. Við vorum búin að vera í stöð- ugu sambandi við vöruflutninga- bílstjóra til þess að koma mér í bæ- inn. Síðan fékk ég far með honum. Það er ekki fyrir hvern sem er að klifra upp í svona bil í þröngu pilsi. Það er líkast því að fara i brú á skipi. Ég kom mjög seint heim til mín eða um hálfeittleytið. Þetta Dagur í lífi Herdísar Storgaard, slysavarnafulltrúa Slysavarnafálags íslands: Gerum bæinn betri fyrir börnin Spjaliað við Rúrí Þá gat vinnudagurinn minn loksins hafist. Þennan ákveðna dag, sem við erum að tala um, átti ég fund með Rúrí listakonu. Skemmdarverk höfðu verið unnin á öryggisgrind í kringum eitt lista- verka Rúríar i Laugardalnum og því verið ákveðið að setja enn þá öflugra öryggisnet í kringum það. í kringum listaverkið er djúpt vatn og grindin var sett til þess að lítil börn dyttu ekki ofan í og drukkn- uðu. Rúrí þurfti að bera undir mig hvort nýja öryggisnetið, sem var mjög sterkt, væri ekki slysagildra fyrir böm. Kl. 10.30 fór ég á mömmumorgun í Vídalínskirkju í Garðabæ. Þar hitti ég nokkrar mömmur og fræddi þær um öryggisatriði í sam- bandi við bömin þeirra og það helsta sem þarf að huga að þegar maður er með smábörn. Ég kom aðeins inn á að sumarið væri fram undan og hvaða hættur væru al- gengastar. Litlu börnin em meira úti og stundum í gæslu eldri systk- ina. Þá er hætta á drukknun þar sem vatn myndast. Einnig talaði ég við þær um hjólreiðar og hjálma ásamt öryggi á sundstöðum. Við drukkum saman kaffi og áttum saman umræður um efniö. Ég hringdi á leigubíl en hann fór í vit- lausa kirkju. Á meðan ég beiö úti hitti ég leikskólakennara í Garða- bæ og við ræddum öryggismál á leiksvæðum í Garðabæ því ég hafði fyrir nokkru tekið út öll leik- svæði í Garðabænum. Ein móðirin notaði tækifærið að biðja mig að skoða hjálm sonar síns, hvort hann væri ekki rétt settur á höfuðið. Brunað í Borgarnes Ég rétt komst niður í vinnu til þess að skipta um tösku og fá mér brauðsneið í hádegismat því fyrir klukkan eitt brunaði ég af stað út á Umferðarmiðstöö. Ég fór þaðan með rútunni í Borgarnes kl. 13.00 var dæmigerður dagur í mínu lífi. Ég tók leigubíl heim frá Vöruflutn- ingamiöstöðinni og kötturinn var sá eini sem var vakandi og tók á móti mér þegar ég kom heim. Mað- urinn minn vinnur líka mikið og þarf aö fara mikið út á land. Það er því púsluspil að koma þessu saman því við eigum ellefu ára gamlan dreng. -em Jæja, frú Petersen, samkvæmt þyngd yðar ættuð þér að vera 3,42 metrar á hæð. Nafn:. Heimili:- Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sextugustu og fyrstu getraun reyndust vera: 1. Georg Georgsson Brimnesbraut 19 900 Dalvík 2. Friðbergur Hreggviðsson Fögruhlíð 19 220 Eskifirði Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum veriö breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: SHARP vasadiskó með útvarpi, að verðmæti kr. 7.100, frá Bræðrunum Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur, að verömæti kr. 1.790. Annars vegar James Bond-bókin Gullauga eða Goldeneye eftir John Gardner og hins vegar bók Luzanne North, Fin og rík og liðin lik. Vinningarnir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 362 c/o DV, pósthólf 5380

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.