Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Page 37
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ1996
45
^ssi
0 4 * 5 0 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Þú þarft aðeins eitt símtal
í Lottósíma DV til að fá nýjustu
tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó
og Kínó f
pct umosíMi
Skartgrípaverslun
í fullum gangi til sölu.
Áhugasamir sendi inn nöfn og tilboð á
auglýsingadeild DV fyrir 20. júní, merkt
„Skartgrípaverslun 5820“.
Htlönd
Ibúar rússneska smáþorpsins Bútka ekki einhuga um forsetaframbjóðanda:
Jeltsín einn getur
bætt ástanaið
- segir hún Ira, þótt sumir grannar hennar kunni að vera á öðru máli
LAGER SALA
I
Þessi fallegu og vönduðu furusófa-
sett eigum við til á lager og verðið
er ótrúlegt, aðeins ^ 86.800
°V'ðwd948 , (3+1+1)
G.Á. húsgögriehf
Brautarholti 26 • 2. hæð - Sími: 553-9595
Ljúbov Kúz-
netzova segir að
tími sé kominn fyr-
ir Borís Jeltsín
Rússlandsforseta
að koma aftur
heim.
„Hann ætti að
koma og sjá ástand
vegarins hjá okk-
ur, húsanna og
hálfköruðu brúar-
innar, koma bara
og sjá hvemig við
lifurn," sagði Kúz-
netzova einn sval-
an dag í vor þar
sem hún stóð fyrir
utan hrörlegt timb-
urhúsið sitt,
hrukkótt og rjótt
andlitið vafið inn í
hlýjan klút, stein-
snar frá húsinu þar
sem Jeltsín fæddist
í þorpinu Bútka.
Lffið í Bútka,
óhrjálegri húsa-
þyrpingu í Úral-
fjöllum, 1700 kíló-
metra austur af
Moskvu, við jaðar
mikils furuskógar,
hefur lítið breyst
frá því Jeltsín flutti
þaðan árið 1935. Og
hætt er viö að
hann fengi ekki allt
of blíðar viðtökur
heimamanna, að
minnsta kosti
sumra þeirra.
Seint koma
sumir...
Efhahagsumbætumar í anda þess
sem tíðkast á Vestiu-löndum, sem
Jeltsín hefur beitt sér fyrir frá því
hann settist á forsetastólinn árið
1991, hafa ekki sett mark sitt svo
neinu nemi á Bútka og fjölda svip-
aðra þorpa. Ekki er talið útilokað að
það geti haft áhrif á möguleika for-
setans á endurkjöri i kosningunum
á morgun, þar sem kommúnistinn
Gennadí Zjúganov mun veita hon-
um harða keppni. Skoðanakannanir
benda til að hvorugur þeirra muni
ná tilskildum meirihluta atkvæða í
fyrstu umferð. Þá verður kosið aftur
milli tveggja efstu manna i næsta
mánuði.
íbúarnir í Bútka em fyrir löngu
búnir að gefa upp alla von, sem þeir
ólu þó einu sinni í bijósti, um að
hetja þorpsins, sem braust til æðstu
metorða og varð að lokum æðstráð-
andi innan Kremlarmúra, mundi
láta þá njóta góðs af.
Forarpyttir við brúna
Sumar götur þorpsins eru enn
ekkert nema moldartroðningar þar
sem kýr og hænur em nánast einu
vegfarendurnir. Ljóta steinsteypta
brúin yfir lækinn sem rennur í
gegnum þorpið er enn ókláruð, með
forarpytti við hvom enda. Flest hús-
anna eru úr timbri. Húsið við
Verkamannagötu 22, þar sem
Jeltsín varði fyrstu fjórum æviámn-
um, er dæmigert einnar hæðar hús,
þar sem eldiviðnum hefur verið
staflað upp að framanverðu.
„Lffið er verra en fyrir fimm
árum, ef eitthvað er,“ sagði eftir-
launaþeginn ívan Rógózin í kvört-
inu sem er bæði
stofa hans og svefh-
staður.
Oblasov réð sér
ekki fyrir kæti þeg-
ar forsetinn sendi
honum þakkarbréf
fyrir framlag hans í
þágu ættjarðarinnar
í heimsstyrjöldinni
þegar þess var
minnst fyrr í mán-
uðinum að 51 ár var
liðið frá sigrinum
yfir nasistum.
Nágrannakona
Oblasovs, sem
kvaðst heita íra,
hrópaði að blaða-
manni þegar hann
gekk fyrir glugga
hennar og sagðist
ætla að kjósa Jelts-
ín. „Hann er sá eini
sem getur bætt
ástandið.“
Þegar kýrin
gefur upp
öndina
Jeltsín bjó með
foreldrum sínum í
Bútka þar til fjöl-
skyldunni reyndist
ógerningur að ná
endum saman eftir
að kýrin þeirra gaf
upp öndina. Faðir
hans sagði upp starfi
sínu á samyrkjubú-
inu, kom fjölskyldunni og litlum
eigiun þeirra fyrir á vagni og hélt á
vit nýs lífs í bænum Bereznikí í Úr-
alfjöllum þar sem hann fékk vinnu
við að byggja pottöskuverksmiðju.
Þótt Jeltsín hafi stundað nám í
borginni Jekaterínbúrg, 250 kíló-
metra vestur af Bútka, og verið for-
ingi kommúnista á svæðinu frá 1976
til 1985, hefur hann ekki komið til
fæöingarþorps síns í mörg ár. For-
eldrar hans sneru aftur heim áður
en yfir lauk en þau eru nú bæði lát-
in.
Einu ummerki þess að Jeltsín
hafi nokkru sinni búið í Bútka er
æskuheimili hans, svo og húsið sem
foreldrar hans bjuggu í síðar. Einu
sinni var talað um að reisa sérstakt
safn í þorpinu til minningar um
Jeltsin en allar slíkar hugmyndir
virðist hafa dagað uppi.
Nærri drukknaður í
skírnarfonti
Jeltsín segist þó ekki hafa gleymt
Bútka. Hann segir að fyrstu æviárin
hafi haft afgerandi áhrif á mótun
hans sem persónu og gert hann jafn
harðan og raun ber vitni. Hann
skrifaði í sjálfsævisögu sinni að
blindfullur þorpspresturinn hefði
misst hann ofan í bráðabirgða
skírnarfont þegar hann var að gefa
piltinum nafn og að móðir hans hafi
orðið að hlaupa til og bjarga hon-
um.
Presturinn lét það ekki á sig fá og
sagði: „Úr því hann komst lifandi
frá þessum hremmingum er það til
sannindamerkis um að hann hefur
sterk bein og ég skíri hann Borís.“
Byggt á Reuter
Kósakkar í Nóvotsjerkassk gáfu Borís Jeltsín forláta sverð þegar hann
heimsótti þá um daginn. Forsetinn lofaði kósökkum stöðugleika ef þeir
léðu honum atkvæði sín. Símamynd Reuter
Fréttaljós
á laugardegi
unartón. „í gamla daga áttum við
nóg hey til að gefa skepnunum en
verðbólgan hefur séð til þess að við
höfum ekki efni á að kaupa hey
núna.“
Margir nágranna Rógózíns tóku
undir með honum og sögöu að erfiö-
ara væri að draga fram lffið núna
en þegar Jeltsín var kosinn forseti
fyrir fimm árum, aðallega vegna
verðbólgunnar, atvinnuleysisins og
lágra eftirlauna.
„Umbætumar ná ekki mjög fljótt
til staða eins og þessa. Þeirra verð-
ur líklega fyrst vart í stærri bæjun-
um,“ sagði kona á eftirlaunum sem
sagðist heita Valentína.
Þakkarbráf frá
forsetanum sjálfum
Flestir þorpsbúar skelltu bara
upp úr þegar þeir voru spurðir
hvem þeir ætluðu að kjósa í kosn-
ingunum á morgun, 16. júní. Fáir
vildu láta nokkuð uppi um hvem
þeir styddu og aðrir sögðust enn
vera óákveðnir. Þeir þorpsbúar
voru þó til sem voru hreint ekkert
feimnir viö að lýsa yfir stuðningi
sínum við hetju heimabæjarins.
„Ég hef það kannski ekkert
betra en áður en ég ætla nú samt
að kjósa Jeltsín," sagði Stepan
Oblasov, fyrram hermaður sem
barðist í heimsstyrjöldinni síðari
og hefur mynd af Jeltsín á sínum
yngri árum uppi á vegg í herberg-
Sími 562 2262
Á 4 stöðum - 4 x betra
26 • Reykjavík • S.562 2262
14 • Reykjavík • S.567 2900
Skeifunni 5 • Reykjavík • S.581 4788
Bæjarhrauni 6 • Hafnarfirði • S.565 5510
■n .*rv» r*.*r»
Tölvu-
^"VIS skjávarpar
Öflug gœðatceki!
r
Þú gerir kröfur - við líka!
sími: 581 2099