Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Page 56
Alla laugardaga
Vertu viðhúin(n)
vinnirtgti
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst.óháð dagblað
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ1996
Húsavík:
Hjón í smá-
bíl alvar-
lega slösuð
Hjón á miðjum aldri slösuðust al-
varlega þegar þau lentu á japönsk-
um smábíl sínum í árekstri við
jeppa við gatnamót svokallaðs kísil-
vegar og þjóðvegarins sunnan Húsa-
vikur.
Áreksturinn varð á þriðja tíman-
um í gær. Jeppinn kom inn á þjóð-
veginn og var beygt til suðurs en
fólksbíllinn kom að sunnan. Varð
áreksturinn mjög harður og fót-
brotnuðu bæði hjónin, auk þess sem
þau hlutu önnur meiðsl. Nota varð
klippur til að ná þeim úr bílnum.
Ökumaður jeppans slapp ómeiddur.
Hjónin voru flutt á sjúkrahúsið á
—‘■•Akureyri. Þau munu ekki í lífs-
hættu. -GK
Útkomutími
á þriðjudag
Vegna þjóðhátíðardagsins kemur
DV ekki út að morgni fyrsta út-
komudags eftir helgi eins og venja
er. Blaðið kemur á götuna fyrir há-
degi 18. júní og til kaupenda á hefð-
__- bundnum þriðjudagstíma.
DV kemur næst út þriðjudaginn
18. júní.
Smáauglýsingadeild DV er opin í
dag til kl. 14.00 og á morgun frá kl.
16-22.00.
Lokað verður mánudaginn 17.
júní.
Síminn er 550 5000.
Verð kr.
1.199.000.-
Bílheimar ehf.
.Sœvarhöfba 2a Sími: 525 9000
. ER ÞETTA EKKI
HÁLF^ERÐ SARDINA
HJA BORGAR-
STJÓRANUM?
Norðmenn koma í veg fyrir að loðnuveiðarnar hefjist 20. júní í stað 1. júlí:
Töpum hálfum milljarði
í útflutningstekjum
- loðnan er nú veiðanleg í torfum en hætt við að hún dreifi sér þegar kemur fram á sumar
„Útgerðarmenn sóttu um það
til sjávarútvegsráðuneytisins að
loðnuveiöar mættu hefjast 20. júní
í stað 1. júlí. Vegna samninga ís-
lendinga og Norðmanna um loðnu-
veiðarnar þurfti samþykki Norð-
manna fyrir því. Þeir drógu það
svo lengi að svara og gáfu loðin
svör, þegar þau loks bárust, að við
mátum það sem neitun þeirra,"
sagði Ari Edwald, aðstoðarmaður
sjávarútvegsráðherra, í samtali
viö DV.
„Ég tel að með þessu séum við
að tapa allt að 500 milljónum
króna í útflutningstekjum. Okkur
hefur ekki tekist að veiða upp
loðnukvótann siðustu árin og nú
er hann stærri en nokkru sinni
eða um 1,1 milljón lesta. Það hefði
þ'ví verið hægt fyrir loðnuskipin
að fara í tvo túra hvert á tímabil-
inu 20. júní til 1. júlí. Þar við bæt-
ist að loðnan er nú i torfum og því
veiðanleg en hefur viljað dreifa
sér þegar líður á sumarið," sagði
Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Haraldar Böðvars-
sonar hf. á Akranesi, í samtali viö
DV.
Samkvæmt heimildum DV meta
menn það svo að Norðmenn hafi
verið með þessa stífni vegna deil-
unnar um veiðar í Barentshafi.
Jafnvel að þeir hafi viljað nota
þetta loðnuveiðimál sem einhvers
konar skiptimynt í deilunum við
íslendinga.
Þá hefur DV heimildir fyrir því
að íslendingar muni hafa þetta at-
riði í huga þegar loðnuveiðisamn-
ingurinn við Norðmenn rennur út
eftir 2 ár og gera þarf nýjan samn-
ing. Sem kunnugt er fá norsk skip
að veiða loðnu innan íslensku
landhelginnar og ef þeir fengju
það ekki gætu þeir ekki náð þeim
kvóta sem þeir fá úthlutað sam-
kvæmt samningum þjóðanna.
-S.dór
„Það veiddust tveir laxar í morgun, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri veiddi 5 punda lax í Fossinum og Aöal-
steinn Guðjonhsen rafmagnsveitustjóri veiddi 10 punda í Fossinum. Báðir veiddust fiskarnir á maðkinn,“ sagði
Bergur Steingrímsson hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur í gærdag. En Elliðaárnar voru opnaðar í gærmorgun, degi
fyrr en ætlað var vegna steypuframkvæmda við ána. Á myndinni aðstoðar Stefán Á. Magnússon Ingibjörgu Sólrúnu
við laxlöndunina í Elliðaánum í gærmorgun en fiskurinn var 5 pund. G.Bender/DV-mynd Sveinn
Spennandi leikur:
Evrópu-
meistari
DV
Evrópumeistari DV er spennandi
leikur sem allir lesendur DV geta
tekið þátt í og tengist Evrópukeppn-
inni í knattspyrnu sem nú stendur
yfir. Leikurinn hefst á þriðjudaginn
og verður kynntur þá með atkvæða-
seðli á íþróttasíðum DV.
Spurt verður tveggja spuminga:
Hver verða þrjú efstu liðin og hver
verður markakóngur keppninnar?
Dregið verður daglega úr öllum
innsendum seðlum. Glæsileg verð-
laun verða dregin út daglega og
nöfn vinningshafa birt í blaðinu.
Vinningar eru m.a. miðar á tónleika
Bjarkar, geisladiskar, bíómiðar og
fleira. í lokin verður dregið úr rétt-
um innsendum seðlum og Evrópu-
meistari DV hlýtur Sony mynd-
bandsupptökuvél að verðmæti
59.900 kr. frá Japis.
Atkvæðaseðlarnir munu birtast
daglega í DV. Þátttakendur geta
sent inn eins marga seðla og þeir
vilja meðan á leiknum stendur.
Veðrið á morgun:
Léttskýjað suðaustan-
og austanlands
Á morgun verður fremur hæg norðanátt og þokusúld á Norður- og
Norðausturlandi og verður hiti þar 5 til 7 stig. Þurrt verður að mestu
annars staðar og hiti 8 til 13 stig, léttskýjað suðaustan- og austanlands.
Veðrið í dag er á bls. 61
Veðrið á mánudag, 17. júní:
Bjartviðri
um mestallt land
Á mánudaginn verður hæg breytUeg eða vestlæg átt, bjartviðri um
mestaUt land en þó þokuslæðingur á annesjum norðanlands.
Hiti verður 12 til 18 stig að deginum, hlýjast suðaustan tU.