Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1998, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1998, Page 23
r í I > ) i > ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) Hér má sjá unglinga- landsliðið okkar frá því í fyrra en við eigum marga efnilega ís- hokkíspilara, að sögn Bjarna Bjarnasonar. íþróttir „Skautar eru ótrú- leg almennings- íþrótt og ég held aö fólk geri sér ekki almennilega grein fyrir vin- sældunum fyrr en það heyrir tölurn- ar,“ segir Bjarni m.a. í viðtalinu. DV-mynd S 23 „Hér í Reykjavík erum við með tvö félög sem stunda íshokkí, Skautafélag Reykjavíkur og Bjöminn, og undan- farin ár hefur farið fram mikið upp- byggingarstarf, sérstaklega hjá yngri flokkunum," segir Bjami Bjamason, formaður íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur, en íshokkí er með vin- sælustu íþróttagreinum í heimi sök- um hraðans og spennunnar sem það býður upp á. Rúmlega 500 sem spila „Það hafa verið fimm flokkar í gangi, unglingaflokkar og síðan meist- araflokkurinn og það er mikill fjöldi ungmenna sem stundar þetta. Sam- kvæmt nýjustu tölum era um 150 í hvom félagi auk þess sem svipaður flöldi er í íshokkídeild Skautafélags Akureyrar." Að sögn Bjama eigum við íslend- ingar ungmenni sem em efhi i mjög góða íshokkíspilara. „Það hafa nokkr- ir strákar farið reglulega til æfinga í Svíþjóð en Svíar era þekkt ís- hokkíþjóð og eiga marga spilara í NHL-deildinni auk þess sem sænska deildin er mjög sterk. Akureyringam- ir eiga lika tvo stráka í Kanada sem hafa verið að spreyta sig með liðum þar en Kanadamenn eru einmitt heimsmeistarar núna.“ Bjami segir að íslendingar hafi áhuga á íshokkí en aðstæður hafi ver- ið þannig að íþróttin hafi ekki getað notið sín. „Það er varla hægt að bjóða fólki að standa úti í norðangarra til að fylgjast með leikjum. Þess vegna held ég að allt eigi eftir að snarbreytast þegar nýja húsið verður tilbúið, áhugi almennings á að koma á eftir að aukast mjög.“ Skautar almenningsíþrótt Bjami segir að aðsókn stráka í is- hokkí hafi aukist mjög eftir að byrjað var að sýna frá leikjum í NHL-deild- inni á Sýn. „Þá kom sprenging. Áður en sýningar hófust vora 12 í yngsta flokknum en þremur vikum seinna vora komnir yfir 50 strákar í hann. Sjónvarpið hefur mjög mikil áhrif. „Skautar era ótrúleg almennings- íþrótt og ég held að fólk geri sér ekki abnennilega grein fyrir vinsældunum fyrr en það heyrir tölumar. Meðan svellið i Laugardalnum var óyfirbyggt var það oft lokað vegna veðurs en samt komu á ári 60 þúsund manns og ég held að ekkert íþróttamannvirki geti státað af sömu tölu í ástundun. Þessi tala á síðan eftir að hækka gríð- arlega með yfirbyggingunni auk þess sem tíminn sem opið er verður lengd- ur mjög. Þetta verður mikil upplyft- ing fýrir borgarbúa." Lítið um meiðsli En nú sýnist manni að íshokkí sé nokkuð harkaleg íþrótt, er mikið um meiðsli? „Leikmennimir era svo vel varðir að enginn á að þurfa að meiðast. í yngri flokkunum era t.d. reglur um að allir þurfi að hafa grind fyrir and- litinu á hjálminum og hálshlíf til að verja hálsinn. Eftir tvítugt ráða leik- menn sjálfir hvort þeir nota þennan búnað. Vissulega era ákeyrslur en búnaðurinn ver leikmenn vel og tek- ur af öll högg. Þegar þeir era komnir í allan gallann finna þeir til mikils ör- yggis og er alveg sama þótt þeir detti,“ segir Bjami. -ggá .. .Látíð blómin tala Blómaverslanimar - fagmennska ífyrirrúmi ISLENSK GARÐYRKJA - okkar allra vegna! er á sunnudaginn amnrn Úr Sögu daganna eftir Árna Björnsson „Nokkuð var ort um Góu á 17.-19. öld sem dóttur Þorra eða eiginkonu. Var þá stundum reynt í gamni að skjalla hafía til að bœta veður ... Heitið konudagur er kunnugt frá miðri 19. öld og er nú útbreitt. Sá siður að eiginmenn gefi konum sínum blóm á konudaginn hófst á sjötta áratug 20. aldar. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.