Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Blaðsíða 64
> o
a
0:0
SO
■3
2 LT3
<
C/3 O
(-
k LO
>
2 L£3
FRÉTTASKOTIÐ
SfMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 23. MAÍ1998
Skólaferðalag:
Börn heim
í leigubíl
sem kostaði 16 þús.
Fjórir 10 ára nemendur sem
höfðu verið í skólaferðalagi voru
sendir heim I leigubíl austan úr
Þjórsárdal á miðvikudag eftir að
þeir höfðu ekki hlýtt fyrirmælum
kennara sem töldu þá í hættu.
Leigubíllinn kostaði 16 þúsund
krónur.
Málavextir eru þeir að þrír bekk-
ir 10 ára barna úr Selásskóla fóru í
ferðalag austur í Þjórsárdal á mið-
vikudaginn. Þegar þangað var kom-
ið fóru börnin upp í fjall og hlýddu
ekki kennurum sem skipuðu þeim
að koma niður. Börnin voru í hættu
að mati kennaranna - þeirra sem
, ^hvrgó báru á ferðinni.
Úr varð að ákveðið var að senda
börnin heim í leigubíl sem kostaði
rúmar 16 þúsund krónur. Eftir að
heim var komið var rætt við for-
eldra um að þeir myndu taka þátt í
kostnaði við bílferðina.
Skólastjórinn sagði við DV í gær
að skólinn hafi greitt fargjaldið.
Hins vegar yrði gengið frá málinu
eftir helgi. Hann sagðist ekki reikna
með að foreldrarnir muni bera
kostnaðinn þar sem slíkt hefði ekki
verið tilkynnt fyrirfram. -Ótt
Kosningar:
_ Vísirá
vaktinni
Vakt verður á kosninganóttina á
kosningavef Vísis. Fréttamenn
veíjarins munu jafnharðan og tölur
berast uppfæra þær. Uppfærðar
verða kosningatölur og viðbrögð
frambjóðenda jafnskjótt og þau ber-
ast. Blaðamenn DV verða á ferð og
flugi alla kosninganóttina og ræða
við frambjóðendur í eldlínunni. Af-
rakstur þeirrar vinnu mun jafnóð-
um birtast á vefnum. Búist er við
spennandi kosninganótt og þá ekki
síst i höfuðborginni þar sem D- og
R-listar berjast um yfirráð næstu
-fjöfgur árin. Slóðin er www.visir.is.
Reykjavik
Lögregluþjónar gera fleira en að handtaka og sekta fólk sem sveigir lög. Þeir koma á stundum fólki og málleysingjum til hjálpar í amstri hversdagsins og
forða frá slysum eða öðrum ógöngum. Hér hafa laganna verðir stöðvað umferð til að gæsapar með unga sína komist yfir götu. DV-mynd S
Fjórir slösuðust í sundlauginni á Hótel Örk:
Konu bjargað
rotaðri á grúfu
- ætlar í mál. Fóru ekki að reglum segir hótelstjórinn
Femt slasaðist eða hlaut meiðsl í
rennibrautinni við sundlaugina á
Hótel Örk um síðustu helgi. Ung
kona rakst utan í, rotaðist og fékk
slæman heilahristing. Hún kom
meðvitundarlaus niður í laugina og
lenti á grúfu í vatninu þar sem
henni var bjargað. Hún kveðst ætla
í mál við hótelið.
Vinkona hennar viðbeinsbrotn-
aði en tveir karlmenn hlutu skrám-
ur. Fjórmenningamir höfðu rennt
sér niður hver í sínu lagi. Vinnueft-
irlit ríkisins lætur taka brautina út
eftir helgi. Hótelstjórinn segir að
fólkið hafi ekki farið að settum regl-
um þegar það slasaðist.
„Við vorum tíu manna hópur og
ákváðum að fara í rennibrautina á
hótelinu. Það síðasta sem ég man
var að ég var að renna mér niður -
svo kom bara högg. Það næsta var
þegar ég lá á sjúkrabörum og lækn-
ir var að skoða augun í mér,“ sagði
Hildur Hörn Daðadóttir í samtali
við DV. Hún kveðst ætla að kæra
hótelið fyrir illa búin tæki.
Hildur og önnur ung kona sem
viðbeinsbrotnaði í rennibrautinni
voru báðar fluttar í sjúkrabíl til
Reykjavíkur. Þá höfðu tveir karl-
menn úr hópnum fengið skrámur í
brautinni þannig að blæddi úr.
Valdimar Jónsson hótelstjóri sagði
við DV að hann hefði átt samtal við
karlmann úr hópnum eftir að fólkið
slasaðist:
„Ég fékk skýringu á því sem gerð-
ist. Þama er 3-4 fermetra skilti sem
segir hvernig á að fara í rennibraut-
ina. Fólkið hafði hins vegar gert það
í galsaskap, sem er stranglega bann-
að, m.a. að liggja í brautinni. Það er
ekki nóg að lesa fyrirmælin eftir á.“
Valdimar sagði jafnframt að
gæsla hafi verið í lauginni. Að-
spurður um hvort gæslumaðurinn
hafi ekki skakkað leikinn, sérstak-
lega með tilliti til þess að fjórmenn-
ingamir fóm hver í sínu lagi, sagði
Valdimar að slíkt væri erfitt.
Gísli Rúnar Sveinsson, fulltrúi
Vinnueftirlits ríkisins, sagði í gær að
rennibrautin hefði verið í fullkomnu
lagi þegar skoðunarmaður tók hana
út í haust. Sami maður mun rann-
saka brautina eftir helgi. Gísli sagði
að slys hefðu orðið áður í umræddri
rennibraut - þá oftast þegar gestimir
fóru ekki eftir reglum. -Ótt
Skagafjöröur:
Hrossasótt-
in komin
að Hjalla
DV, Akureyri:
Hrossasóttin, sem kom upp á
bænum Flugumýri í Skagafirði á
dögunum, hefur ekki breiðst
hratt út, og er reyndar ekki vitað
um nema einn annan bæ í
Skagafirði þar sem sóttin hefur
stungið sér niður, en það er á ná-
grannabænum HjaOa. Nokkur
samgangur var á mOli bæjanna
bæði fyrir og um það leyti sem
sóttin kom upp að Flugumýri.
Sóttin hefur þegar farið í hross
í öOum hesthúsunum að Flugu-
mýri og í útigangshross einnig.
En útbreiðsla hennar hefur verið
mjög hæg sem fyrr sagði. „Jú,
það kemur mér að mörgu leyti á
óvart hvað þetta hefur gengið
hægt fyrir sig. Reyndar var sótt-
in búin að „maOa" í um mánað-
artíma í Reykjavík áður en hún
fór aö breiðast verulega út,“ seg-
ir Sigríður Björnsdóttir, dýra-
læknir að Hólum í Hjaltadal.
Ekki hefur heyrst um nein tilfeOi
sóttarinnar á Norðurlandi utan
Skagafjarðar. -gk
Veðrið á morgun og
á mánudag:
Hlýjast í
innsveitum
Á morgun og á mánudaginn
verður fremur hæg vestlæg eða
breytOeg átt. Sums staðar verður
þokusúld úti við ströndina en
þurrt og víða bjart veður inn tO
landsins. Hiti 7 til 14 stig að deg-
inum, hlýjast i innsveitum.
Veöriö í dag er á bls. 65.
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ FINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA
4
á
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
A