Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998 J j"V
»» brídge________________________________________
Landsliðskeppni Bridgesambands Islands:
Dræm þátttaka eftir langa bið
Þegar ísland vann heimsmeistara-
titilinn í Japan 1991 hafði það eðlilega
þær afleiðingar að spilararnir sem
unnu tryggðu sér fast sæti í landslið-
um næstu ára. Fóru landsliðseinvald-
ar með málin og völdu fyrrverandi
heimsmeistarana með fáum undan-
tekningum. Síðan hefir mikið vatn
runnið til sjávar og þegar loks var
haldin landsliðskeppni þá brá svo við
að fáir fengust til þátttöku og engir
fyrrverandi heimsmeistara. Margar
gagnrýnisraddir höföu heyrst um ein-
valdsfyrirkomulagið, en þegar því var
loks aflétt sáu helstu gagnrýnendur
sér ekki fært að mæta í landslið-
skeppnina. Vera má að Norðurlanda-
mót hafi ekki nóg aðdráttarafl!
Sjö pör skráðu sig í kvennaflokk og
spiluðu þær um fjögur sæti helgina
2.-3. maí. Soflia og Hrafnhildur unnu
þá keppni og völdu Svölu Pálsdóttur
skák
og Amgunni Jónsdóthn með sér í úr-
slitakeppnina. Ólöf Þorsteinsdóttir og
Guðný Guðjónsdóttir voru í öðru sæti
í undankeppninni og völdu Erlu Sig-
urjónsdóttur og Dröfn Guðmundsdótt-
ur með sér. Einvígi þeirra um lands-
liðssætin fór þannig að þær fyrr-
nefndu unnu 112 spila einvígið með 12
impa mun. Lokatölur voru 314-298.
Ekki mikill munur það.
í opna flokkinn skráðu sig 5 pör og
var ákveðið að sleppa undankeppn-
inni og mynduðu fjögur pörin tvær
sveitir sem spila skyldu 112 spila ein-
vigi um hnossið.
Var önnur sveitin skipuð þeim
bræðrum Antoni og Sigurbirni Har-
aldssonum og Jakobi Kristinssyni og
Jónasi P. Erlingssyni en hin Páli
Valdimarssyni, Ragnari Magnússyni,
Þórði Bjömssyni og Þresti Ingimars-
syni.
Þeir fyrmefndu unnu spennandi
einvígið eftir að hafa verið undir
fyrstu 84 spilin. Lokatölur voru
275-264.
Þegar mjótt er á mununum skiptir
hvert einasta spil miklu máli. Þröstur
Ingimarsson gleymir áreiðanlega ekki
spilinu í dag alveg strax.
V/A-V
V/Allir * 3
♦ K98764
4 G98764
4 KG82
»984
4 Á52
4 K102
4 ÁD9653
» D105
-f 3
4 ÁD5
í lokaða salnum sátu n-s Ragnar
Magnússon og Páll Valdimarsson en
a-v Jónas P. Erlingsson og Jakob
Kristinsson. Þar gengu sagnir á
þessa leið:
Vestur Norður Austur Suður
1 » 2 G 3 4 5 4
pass pass dobl allir pass
Tvö grönd sögðu frá láglitum en
þrjú lauf voru góð hækkun í hjarta.
Páll velur árásarleiðina, stekkur í
fimm lauf í stað þess að bíða átekta.
Ragnar gaf fjóra slagi og tapaði 300.
Þetta virtist heldur neikvætt, því lík-
lega tapast fjögur hjörtu, héldu þeir.
En víkjum í opna salinn. Þar sátu
n-s bræðumir Sigurbjörn og Anton en
a-v Þórður og Þröstur. Sagnir byrjuðu
eins:
Vestur Norður Austur Suður
1 » 2 grönd 3 4 3 4
4 » pass pass dobl
pass pass pass
Anton ákveður strax að verjast og
undirbýr vörnina með því að benda á
útspil í spaða. Málin þróast síðan eins
og hann bjóst við. Einu vonbrigði
hans eru þau að Sigurbjöm spilar
ekki spaða út heldur tígli. Þröstur er
líka hissa á útspilinu, svínar strax og
fær slaginn á tíuna. Það er nokkuð
ljóst að norður á engan spaða, en hvað
á hann mörg tromp? Þröstur spilar
hjartaás og staldrar við. Getur verið
að norður hafi byrjað með einspil í
hjarta og tvo sexliti? Getur verið að
suður sé að dobla með tvíspil í hjarta?
Alla vega er engin innkoma á blindan,
eða hvað? Loks tekur hann hjarta-
kóng og spilið er tapað. En var þá eng-
in leið að vinna það?
Segjum að Þröstur
spili laufi í öðrum
slag, lítið frá norðri,
tían úr blindum og
suður fær slaginn á
drottninguna. Hann
er nú kirfilega enda-
spilaður. Til þess að
gera eitthvað spilar
hann laufás sem
Þröstur trompar. Nú
spilar Þröstur spaða og lætur gosann.
Suður er nú endaspilaður í annað
sinn og verður að gefa Þresti innkomu
á blindan til þess að svína trompinu.
Umsjón
Stefán Guðjöhnsen
Ekki svo fjarlæg spilaleið. Og hún
hefði gefið 10 impa og landsliðssæti á
einum impa.
Stefán Guðjohnsen
4 1074
» ÁKG762
4 DG10
4 3
Þröstur Ingi-
marsson.
limman sýndi snilldartakta
- setjast Fischer og Spassky að tafli í Búdapest í haust?
Stórmeistaramir Jan Timman og
Loek van Wely háðu tiu skáka ein-
vígi í hollenska bænum Breda nú í
maí og lauk þvi sl. þriðjudag. Einvígi
þeirra virtist ætla að verða lítt
YANMAR
Loftkældar dísilvélar
Hagstætt verö
isÍímMb
” Skútuvogi 12A, s. 568 1044
spennandi, því að eftir jafntefli í upp-
hafstaflinu vann van Wely 2. og 3.
skákina sannfærandi. Timman lætur
sér hins vegar ekki allt fyrir brjósti
brenna og með harðfylgi tókst hon-
um að jafna stöðuna, svo að eftir tíu
skákir hafði hvor hlotið 5 vinninga. í
bráðabana hafði van Wely aftur á
móti betur, vann tvær skákir en
Timman aðeins eina, en ein varð
jafntefli.
Mesta athygli í einvíginu vakti 6.
skákin, sem var glæsilega tefld af
Timmans hálfu. í hefðbundinni Sikil-
eyjarvörn fórnaði hann hrók fyrir
riddara og lét svo hinn hrókinn líka
flakka fyrir léttan mann. Hugsanlegt
er að van Wely hefði getað varist bet-
m- en eins og skákin tefldist gafst
Timman færi á að halda áfram upp-
teknum hætti: fórnaði peði og svo
biskupi til þess að brjóta varnir
svarts endanlega á bak aftur. ' •
Hvítt: Jan Timman
Svart: Loek van Wely
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 Rc6 7. h3
Á þennan hátt tefldi Fischer
nokkrum sinnum (raunar lék hann
peðinu fram í 6. leik) en engu að síð-
ur er þessi leikmáti ekki sérlega hátt
Umsjón
Mnw - H • 9 :
'
skrifaður. Hvítur vill gjarnan leika
g2-g4 án þess að sólunda leik til því
til stuðnings.
7. - e6 8. g4 Be7 9. Bg2 h6 10. f4
Dc7 11. 0-0 Rxd4 12. Dxd4 e5 13.
Dd2 exf4 14. Hxf4 Be6 15. Hafl 0-
0?!
Stingur höfðinu í gin ljónsins í
þeirri bjargfóstu trú að ljónið sé
tannlaust. Hann er bersýnilega
hvergi banginn, því að annars hefði
hann getað leikið 15. - Bc4, eða 15. -
Rd7. Timman grípur tækifærið.
16. Hxf6! Bxf6 17. Hxf6 gxf6 18.
Df2!!
Þetta hafði Timman í huga. Hótun-
in er Bd4 og DxfB og máta.
18. - Kg7?
Hinn varnarmöguleikinn er 18. -
De7 og eftir á að hyggja er hann sá
eini sem er raunhæfur. Áfram gæti þá
teflst 19. Dh4 Hfc8 20. Bd4 Kg7(?) 21. g5
hxg5 22. Dxg5+ Kf8 23. BxfB Dc7 24.
Rd5 Bxd5 25. exd5 Db6+ 26. Kh2 og
svartur er vamarlaus. En í stað 20. -
Kg7 er 20. - Hc5! betra og svartur
kynni að klóra í bakkann.
19. e5!
Tilgangur þessarar peösfórnar er
að rýma e4-reitinn, sem kemur bisk-
upi eða riddara hvíts að góðum notum
eins og brátt kemur í ljós.
IENSEN'
MAORASSER
3000 m2
Sýningarsalur
mm 14 cki j (I u
IENSEN URVAL
IENSEN HVÍLD
1ENSEN ENDING
IENSEN fiJÓNUSTA
JENSEN GÆ3I
Springdýnur
Rammadýnur
(þad er ekki nóg ad dreyma um góða dýnu)
Þú verður að vita hvar hún fæst!
Rúmbotnar m/rafmagnsstillingu
T »a uncrÁrM * 15 ára ábyrgð a fjaðrakjarna, 5 ára heiidarabyrgð
JN\ - nUDÖO&N • Sérstærðirfáanlegar
SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI 568 6822 * Teigjanlegt bómullaráklæði, má bvo við 60 gráðu hita
Op*ð: Mávfös. 9-18 • Lau.10-16 • Sun. 14-16 • Mjúkar ■ Millistifar ■ Stífar - Mjög stífar
19. - fxe5 20. Bxh6+! Kg6
Engu betra er 20. - Kxh6 21. DÍ6+
Kh7 22. Be4+ (reiturinn góði!) Kg8 23.
Dg5+ Kh8 24. Dh6+ Kg8 25. Dh7 mát.
21. Dh4!
Og eftir þennan leik kaus van Wely
að gefast upp. Hvítur hótar 22. Dg5+
Kh7 23. Dg7 mát. Ef 21. - Hg8 kæmi e4-
reiturinn aftur í góðar þarfir, því að
eftir 22. Re4! er fátt til varnar Dh5+
Kh7; Rf6+ og mát í næsta leik.
Sannarlega glæsileg sóknarskák.
Tefla Fischer og
Spassky í haust?
Haft er eftir Boris Spassky í við-
tali við rússneska skákritið „64“
að þriðja einvígi hans við Bobby
Fischer sé fyrirhugað í Búdapest í
haust. Einvígið yrði ekki með
hefðbundnu sniði, heldur yrði tafl-
mönnunum í byrjun skákarinnar
stillt upp á handahófskenndan
hátt að baki peðanna.
Fischer hefur þá trú að þessi að-
ferð muni leysa hefðbundna skák
af hólmi, sem byggist nú orðið allt
of mikið á „teóríu“. Með nýju að-
ferðinni er engin þörf á að leggja
löng og margslungin byrjunaraf-
brigði á minnið. Mönnunum er
raðað upp í byrjun tafls með að-
stoð tölvuforrits, sem Fischer hef-
ur sjálfur hannað.
Eins og frægt er orðið hvarf Fis-
cher af sjónarsviðinu eftir „einvígi
aldarinnar" við Spassky í Laugar-
dalshöllinni 1972. Hann tefldi ekki
opinberlega eftir það í 20 ár, þar til
hann birtist skyndilega í Svart-
fjallalandi og mætti þá Spassky
öðru sinni. Stjórnvöld í Bandaríkj-
unum litu taflmennsku hans þar
alvarlegum augum vegna við-
skiptabanns á Júgóslavíu, sem þá
var í algleymingi. Síðan hefur
Fischer verið í útlegð í Búdapest.
Hann á yflr höfði sér háar sektir
og varðhald ef hann snýr aftur til
Bandaríkjanna. Fischer er nú 55
ára gamall en Spassky 61 árs.
Anand sigraði í Madrid
Rússneska stórmeistaranum
Peter Svidler tókst ekki að brjóta
Caro-Kann vöm Indverjans Visw-
anathans Anands á bak aftur í
lokaumferð stórmótsins í Madrid,
sem tefld var á fimmtudag. Skák-
inni lauk með jafntefli eftir 23
leiki og þar með tryggði Anand sér
sigurinn á mótinu.
Anand hlaut 6,5 vinninga úr 9
skákum. Svidler kom næstur með
5,5 vinninga, en þriðja sæti deildu
Lekó frá Ungverjalandi og Spán-
veijinn San Segundo, sem fengu 5
vinninga. Næstir komu Krasen-
kov, Illescas og Adams með 4,5 v.,
Yermolinski fékk 4 v., Beljavskí 3
og Granda Zuniga 2,5 v.
-JLÁ