Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Síða 31
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
t
Fimmvörðuháls:
Vinsæl gönguleið
Verbúðum breytt í hótel
í Grundarfirði hefur verbúð-
um, sem voru í eigu Fiskiðjunnar
Skagfirð-
Hopp á milli landa
Hjá Campus Travel og Air
France getur ungt fólk undir 26
ára aldri keypt nokkurs konar
„Interrail-flugmiða". í boði eru
miöar sem gilda frá sjö dögum og
upp í sex mánuði. Miðinn gildir í
fjögur til átta flug og þó að þess sé
krafist að fólk bóki fyrir fram er
ekkert mál að fá fluginu sínu
breytt. Með miðanum er hægt að
fljúga til meira en 96 áfangastaða
víðs vegar i Evrópu. Á slóðinni
campustravel.co.uk er heimasíðu
Campus Travel að finna.
Spilavíti í Atlantic City
Fyrir 20 árum voru Atlantic
City-búar í vandræðum. Ferða-
mönnum til borgarinnar hafði
fækkað til muna og leit út fyrir
að sú þróun myndi halda áfram.
En borgarbúar dóu ekki ráðalaus-
ir og fyrsta spilavíti borgarinnar
leit dagsins ljós. Ferðamönnum
fiölgaði snarlega á ný og í dag
koma milljónir ferðamanna ár-
lega til Atlantic City og eyða þar
milljörðum í spilavíti. Fjárhættu-
spil er löglegt í borginni og eru
þar rekin tólf glæsileg spilavíti.
Reykholt
■ i
Laugardaginn 1. ágúst var opn-
uð ný svefnpokagisting í Reyk-
holti. Gistingin er i 15 tveggja tfl
fiögurra manna herbergjum í
tveggja hæða
húsi, Útgörð-
um, sem er ,
samtengt að- ,
alhótelbygg- <
ingunni. Öll |
herbergin
eru með handlaug og góðum rúm-
um og/eða kojum. Snyrting og
sturta er á báðum hæðum.
Á Hótel Reykholti var einnig
nýlega tekin í notkun tveggja her-
bergja íbúð, svíta sem er leigð út
í eina eða fleiri nætur.
Suðurskautsfarar
Þeir sem fara á suðurpólinn
þurfa ekki að hafa áhyggjur af
háu verðlagi og of miklu fiöl-
menni. Slæmt veður og villidýr
eru aftur á móti hlutir sem suður-
skautsfarar þurfa að gæta sín á.
Besti tíminn til að heimsækja pól-
inn er seint í desember og byrjun
janúar. Þá er hlýjast á þessum
slóðum og nær hitinn 1-2 gráðum
C. Jökulísinn bráðnar lítið eitt og
skip fá meira rými tU að sigla.
Walt Disney World
Disney World er einn frægasti
skemmtigarður í heimi. Garður-
inn er gríðarstór og verður að
gera ráð fyrir
a.m.k. þremur
dögum til að
skoða hann og
njóta þess sem í
boði er. Miðar í
garðinn gilda
ýmist í einn dag,
þrjá, fióra eða
sex daga. Að-
gangseyrir fyrir
fullorðna í einn
dag er um 40$ en í fióra daga um
130$. Aðgangseyrir fyrir bam (3-9
ára) er 32$ i einn dag en 103$ fyr-
ir þrjá daga.
-me
Fimmvörðuháls kallast háls-
inn milli Eyjafjallajökuls og
Mýrdalsjökuls. Á síðari
árum hefur leiðin frá Skóg-
um yfir Fimmvörðuháls og
niður í Þórsmörk verið ein af vin-
sælustu gönguleiðum landsins.
„Við höfum verið með vikulegar
ferðir yfir hálsinn í aflt sumar og
höldum því áfram út ágúst en einnig
verðum við með tvær gönguferðir í
september," segir Mörður Finnboga-
son hjá Útivist. „Við leggjum af stað
frá Reykjavík á laugardagsmorgnum
og keyrum sem leið liggur inn að
Skógum en þaðan göngum við yfir
hálsinn. Leiðin er ýmist gengin á ein-
um degi eða gist yfir nótt i skálanum
okkar, Fimmvörðuskála, sem er vel út-
búinn og getur hýst rúmlega 20
manns. Það tekur um 6 klst. að ganga
upp í skálann en öll leiðin tekur á
milli 8 og 10 klst.
Við göngum frá Skógum meö
Fimmvörðuháls er falleg gönguleið.
Torfajökulssvæðið, Landmannaafrétt
Fimmvörðuskáli er vel útbúinn og skemmtilegur skáli sem getur hýst rúm-
lega 20 manns.
í góðu skyggni sést inn yfir Emstrur,
og austur til Mýrdalsjökuls.
fram Skógaá sem rennur til suð-
urs í fögrum fossum og flúðum.
Farið er yfir Skógaá á göngubrú
og haldið áfram upp Skógaheiði að
Fimmvörðuskála. Frá Fimm-
vörðuskála er gengið um Jökul-
fannir og ása um Goðalandsbrúnir
á Þrívörðuskeri og niður Bröttu-
fonn.
í góðu skyggni er stórkostlegt
útsýni frá norðanverðum hálsin-
um inn yfir Emstrur, Torfajökuls-
svæðið og til fjalla á Landmanna-
afrétti. Eins er víðsýnt frá Fimm-
vörðuskála austur til Mýrdals og
niður eftir hálsinum.
Frá Bröttufonn er haldið um
Heljarkamb og farið eftir Kattar-
hryggjum niður i Strákagil við
Bása. Þar lýkur göngunni en fyrir
þá sem vilja er hægt að dvelja í
nokkra daga í vel útbúnum skál-
um okkar í Básum. Básar eru
hrein útivistarparadís. Þar er
fjöldi fallegra gönguleiða og lands-
lag sem svíkur engan.“ -me
ings og
Soffaníasar
Cesilssonar
hf„ verið
breytt i
hótel. Á
hótelinu
er gisti-
rými fyrir
allt að 40
manns og
i umguuui VeÍt-
ingasalur þar sem sjávarréttir
eru ofarlega á matseðlinum. Nýir
eigendur hótelsins eru hjónin
Ingibjörg Torfhildur Pálsdóttir og
Eiður Örn Eiðsson.
Heilsusetrið Grotta Giusti í Toscana:
Afslöppun í fögru umhverfi
í hinu fagra Toscana-héraði á ítal-
íu, á milli aldagamalla ólífutrjáa og
frjósamra hlíða með ávaxtatrjám og
blómaangan, er Grotta Giusti-heilsu-
setrið. Heillandi umhverfið og stór-
kostleg aðstaða hótelsins skapar and-
rúmsloft sem endurnærir líkama og
sál með undraverðum hætti. Dagana
5.-13. september bjóða Samvinnu-
ferðir-Landsýn sannkallaða heilsu-
ferð til Grotta Giusti-heilsusetursins.
Sérstaða Grotta Giusti er hellir
sem gerður er af náttúrunnar hendi
með heitri uppsprettu neðanjarðar.
Innangengt er úr hótelinu i heflinn
og eftir því sem dýpra er farið inn í
hann verður gufan heitari. Þannig
ieggur náttúran sitt af mörkum við
að skapa hina fullkomnu aðstöðu til
afslöppunar. í þessari ferð er unnt að
velja um þrjár mismunandi leiðir í
meðferð þannig að allir ættu að geta
valið heilsumeðferð við sitt hæfi.
Heitar uppsprettur, leirböð, gufuböö,
nudd og slökun og hver einstakling-
ur er meðhöndlaður sérstaklega eftir
þeirri dagskrá sem hann hefur valiö
sér.
Úrvalsaðstaöa
Byggingin, sem reist var á 19. öld,
var áður heimili skáldsins Giuseppe
Giusti en hýsir í dag glæsilegt fiög-
urra stjömu hótel með 70 loftkæld-
um herbergjum. Öll herbergin eru
með baði, gervihnattasjónvarpi,
minibar, síma og öryggishólfi. Fullt
Af hótelinu er innangengt í helli sem gerður er af náttúrunnar hendi með heitri uppsprettu neðanjarðar.
fæði er innifalið í verði, morgun-
verðarhlaðborð og fiögurra rétta há-
degis- og kvöldverður. Á staðnum er
sundlaug, tennisvellir, líkamsrækt-
araðstaða, fallegar gönguleiðir og
guflfallegur golfvöllur með stórkost-
legu útsýni yfir hinar frjósömu hæð-
ir Toscana.
Skammt frá hótelinu er Montecat-
ini; fallegur smábær með verslunum,
kafíihúsum og veitingastöðum. Hin
gullfallega borg Flórens er aðeins í
um 40 mínútna akstursfiarlægð og
einnig er kjörið að skreppa til Pisa
og sjá hinn víðfræga skakka tum en
þangað er einungis um hálftima-
keyrsla.
Fararstjóri í ferðinni er Sóley Jó-
hannsdóttir danskennari.
Hægt er að komast í ferð á heilsu-
setrið Grotta Giusti allt árið um
kring og er lágmarksþátttaka í ferð
tuttugu manns en hámarksþátttaka
þrjátíu. -me
mamm
Puerto Vallarta er elnstakt veður og
frábærar strendur.
Hjarta Mexíkós
Puerto Vallarta hefur í mörg ár ver-
ið einn af eftirsóttustu ferðamanna-
stöðunum í Mexíkó. Staðurinn býður r-
upp á allt sem þarf, einstakt veðuifar,
frábærar strendur, mikla náttúrufeg-
urð og lágt verðlag. t lystbátahöfninni
Marina Vallarta búa um 300.000 íbúar.
Bærinn státar af miklu úrvali versl-
ana, glæsilegra hótela og fiölbreyttra
veitingastaða. Næturlif bæjarins er frá-
bært, hvort sem farið er á mexíkóska
skemmtistaði með E1 mariachi tónlist
eöa eitthvert hinna fiölmörgu diskó-
teka.
Puerto Vallarta er í Jalisco héraði
sem er heimahérað tequiladrykkjarins.
18.-25. nóvember verður ferð á veg-
um Úrvals-Útsýnar til Vallarta. Gist
verður í Puerto Vallarta Beach Hotel
sem er fallegt hótel við ströndina í
syðsta hluta gamla bæjarins. -me
L
Landsbanki
íslands
Aukin
þjónusta
Þú getur pantað
gjaldeyri í síma
560 60C Oog sótt
hann í afgreiðslu
okkar á 2.hæð
í Leifsstöð.
Opið allan sólarhringinn