Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
hann leikstýrði
Robert De Niro í
fyrsta skipti en
De Niro átti eftir
að leika í mörg-
um myndum
hans. Með Mean
Streets var Scor-
sese kominn í
fremstu röð nýrr-
ar kynslóðar í
amerískri kvik-
myndagerð.
Guðlastari?
Daniel Day Lewis og Winona Ryder í The Age of Inn-
ocent.
skóla en hætti þar eftir eitt ár og
helgaði sig kvikmyndum. Hann
komst að í kvikmyndaskóla New
York-háskólans og náði sér í BS- og
MA-gráður.
Hann leikstýrði nokkrum stutt-
myndum á námsárum sínum en tók
síðan að sér kennslu við háskólann
og lauk á því tímabili fyrstu kvik-
mynd sinni, Who’s That Knocking
at My Door? Harvey Keitel lék aðal-
hlutverkið og Thelma Schoonma-
ker klippti myndina en bæði hafa
margsinnis unnið með Scorsese
síðan.
Hann hélt svo til Hollywood og
vann að ýmsum verkefnum þangað
til Roger Corman gaf honum tæki-
færi til að leikstýra ódýrri B-mynd,
Boxcar Bertha, fyrstu mynd hans
sem fékk einhverja dreifingu að
ráði. Hann hélt síðan aftur til New
York og gerði Mean Streets þar sem
Taxi Driver
(1976), Raging
Bull (1980) og The
Last Temptation
of Christ (1988)
marka þrjá há-
punkta á ferli
Scorsese en hann
hefur einnig leik-
stýrt mörgum
öðrum frábærum
myndum. The
Last Temptation
of Christ er
sennilega sú sem
hvað mestar deil-
ur hefur vakið en
mörgum þótti
þessi skáldskapur um mannlegan
Jesús hreinasta guðlast.
Upphaflega ætlaði hann að gera
myndina árið 1983 en fjórum vikum
áður en tökur átti að hefjast hættu
fjárfestar við að fjármagna mynd-
ina. Scorsese neyddist því til að
gera myndir fyrir breiðari áhorf-
endahóp um skeið. The Color of Mo-
ney varð fyrsta mynd hans til að ná
einhverjum vinsældum að ráði og
gerði honum kleift að gera loksins
The Last Temptation of Christ.
Næsta verkefni Scorsese er
Bringing out the Dead, með Nicolas
Cage í aðalhlutverki en áætlað er
að tökur hefjist í haust. Einnig er í
burðarliðnum mynd um ævi Dean
Martin, með Tom Hanks í aðalhlut-
verkinu. Vinnuheiti myndarinnar
er Dino (gælunafn söngvarans) og
stefnt er að þvi að ljúka henni árið
2000. -PJ
Scorsese-myndir
Mean Streets (1973)
★★★Myndin sem kom Martin
Scorsese á kortið. Harvey Keitel
leikur smákrimma sem er eigin-
lega of góðlegur fyrir starfið sitt.
Hann er ástfanginn af flogaveikri
konu og vinur frænda hennar (Ro-
bert De Niro) sem er hálftruflaður
vandræðagemlingur. Þarna koma
mörg af höfundareinkennum Scor-
sese vel fram. Þótt hann hafi gert
betri myndir síðar markai- Mean
Streets ákveðin tímamót á ferli
hans.
Raging Bull (1980)
★ ★ ★ ★vart-hvít mynd byggð á
sjálfsævisögu hnefaleikakappans
Jakes LaMotta. Einhver metnaðar-
fyllsta mynd Scorsese og var m.a.
útnefnd besta mynd áratugarins af
ofúrgagnrýnendunum Siskel og
Ebert. Robert De Niro fékk ósk-
arsverðlaun fyrir túlkun sína á
LaMotta og Thelma Schoonmaker
fyrir klippinguna. Hrátt raunsæið,
hrottafengin hnefaleika- og ofbeld-
isatriði, sálræn barátta og loks
hálfaumkunarverð örlög aöalsögu-
hetjunnar gera- myndina afar eft-
irminnilega.
The Last Temptation
of Christ (1988)
★★★★\far umdeild mynd sem
kallaði reiði margra trúaðra yfir
Scorsese, sem eitt sinn ætlaði að
verða prestur. Myndin var byggð
á skáldsögu Nikos Kazantzakis en
í henni er Jesús afar mannlegur,
breyskur og fullur af efasemdum.
Willem Dafoe leikur aðalhlutverk-
iö og hefur aldrei verið betri. Þaö
var ekki síst ný sýn á hlutverk
Júdasar í sögu frelsarans sem
reitti marga til reiði en Harvey
Keitel leikur hann óaðfmnanlega.
Goodfellas (1990)
★★★'Í Joe Pesci fékk ósk-
arsverðlaunin fyrir túlkun sína á
hrottafengnum og geðsjúkum
leigumorðingja i þessari maflu-
mynd sem er byggð á sögu
Nicholas
Pileggi.
Ray
Liotta
leikur
hálf-
ítalskan
ungan
mann
sem
kemst
inn í
glamúr-
veröld
Sharon Stone i Casino. mafj_
ósanna í hverfinu en leiðin liggur
að lokum niður á við. Myndin
skartar einnig Robert De Niro í
einu af aðalhlutverkunum.
Caslno (1995)
★★'ÁFjallar um innreið mafi-
unnar í spilaborgina Las Vegas.
Hálfgerð endurtekning á Good-
Fellas en merkileg sakir einhverr-
ar bestu frammistöðu Sharon Sto-
ne á ferlinum. Robert De Niro og
Joe Pesci eru í nánast sömu hlut-
verkum og i GoodFellas.
Aðrar myndir Scorsese:
Who's That Knocking at My
Door? (1968)
Boxcar Bertha (1972)
Alice Doesn't Live here anymore
(1974)
Taxi Driver (1976)
New York, New York (19771
King of Comedy (1983)
After Hours (1985)
The Color of Money (1986)
Cape Fear (1991)
The Age of Innocense (1993)
Kundun (1997)
-PJ
myndbönd ••<•’•
4. -3. ágúst
SÆTI Tfyrri 1 VIKA i J VIKUR f fl LISTAj i i TITILL i ÚTGEF. j • J’; j TEG. i
1 j 4 j T ) 2 j ) j t j Dvil's Advocate j Warner Myndir J Spenna
2 i i i 3 j Good Will Hunting j j Skífan J1 "íL ) j Drama j
3 í 2 1 2 j j i Kissthe Girls j CIC Myndbönd j Spenna
4 J | 3 j' i 4 ■j" j.k.ríVi j j j Boogie Nights J iiglj;:*: J Myndform j j'- > Drama j
5 i Ný i 1 J J Jackie Brown j Skffan j Spenna
6 j i 5 i; 5 j r j j Picture Perfect j Skffan J j Gaman
7 i 6 i 7 j Jackal ) CIC Myndbönd J Spenna
8 í 7 WmmM ;J,á; j 4 j * i j j j Seven Years In Tibet J j SamMyndbönd J j Drama J
9 J. 8 i 6 j j. Father's Day 1 Warner Myndir 1 Gaman J
10 j ) 9 j 1 7 j - j ) ’ j Copland ' í J Skífan j j j Spenna j
11 í 10 j 5 j j Starship Troopers j Sam Myndbönd j Spenna
12 j j 12 J . j 4 j ... j j Amerícan Warewoif In Paris J J Skífan j : J Spenna
13 í 11 i 5 j j Shadow Of Doubt J j Myndform j Spenna
14 1- 14 j i 8 j j j George Of The Jungle ) Sam Myndbönd Gaman i
15 i ■= T 12 j i í j j. TheGame ) Háskólabíó ) Spenna
16 i 17 j J j 2 j L j Pentagon Wars j Bergvík J . T; j Gaman j
17 i Ný j i j j Borrowers Háskólabíó j Gaman
18 j j 16 i 9 j’ i j i j Tomorrow Never Dies J J SamMyndbönd j J Spenna J -v:ví:svf
19 i 13 i 3 j i Face j SamMyndbönd j Spenna
20 ; Ný ) ' ) 1 j Always Outnumbered J Bergvík J 1 Drama i
Myndband vikunnar
Wag the Dog
★★★
Kvensamir forsetar og
úrræðagóðir leikstjórar
Það eru vægast sagt
vandræði í Hvíta húsi
myndarinnar, rétt
eins og í raunveru-
leikanum. Svo virðist
sem forsetinn hafi átt
i full innilegu sam-
bandi við unga stúlku
er var þar í stuttri
heimsókn og einungis
nokkrir dagar til
kosninga. Það verður
því að bregðast skjótt
við og stjómar Con-
rad Brean (Robert De
Niro) varnaraðgerð-
um sem em fyrst og
fremst fólgnar í því að
dreifa athygli fjöl-
miðla frá hinni við-
kvæmu yfirsjón forsetans. Brean
fær til liðs við sig kvikmyndafram-
leiðanda frá Hollywood, að nafni
Stanley Motss (Dustin Hoffman,
óskarstiln.). Saman setja þeir á svið
stríð og það við Albani af öllum
þjóðum.
Það þótti furðuleg tilviljun þegar
kvikmyndin Wag the Dog var frum-
sýnd hversu mjög umfjöllunarefn-
inu svipaði til kvenna(vanda)mála
Bill Clintons. Nú þegar hún kemur
út á myndbandi hefur umfjöllun um
ástarleiki hans og Monicu Lewin-
sky aftur náð hámarki. En líkt og í
myndinni hafa atburðir utan úr
heimi gefið Clinton
tækifæri til að
beina umræðunni í
aðra átt. í kvik-
myndinni var sett á
svið stríð i Albaníu
en í raunveruleik-
anum hafa hinar
hörmulegu spreng-
ingar við sendiráð
Bandaríkjanna í
Keníu og Tansaníu
orðið fréttaefni
númer eitt. Hér er
ekki verið að ýja að
því að Clinton-
stjórnin hafi eitt-
hvað með tilræðin
áð gera heldur að
afleiðingamar séu
þær sömu. Kvennamál forsetans
falla í skuggann af annars konar og
meira spennandi „dramatík".
Þetta verður að teljast besta
mynd leikstjórans Barrys Levin-
sons í langan tíma. Þrátt fyrir frá-
bæran leikarahóp er handritið (ósk-
arstiln.) senuþjófur myndarinnar
sem er engin venjuleg grínmynd
heldur einkar hvöss háðsádeila á of-
ríki fjölmiðla vestræns samfélags.
Ekkert er eins og það sýnist í heimi
þar sem sannleikur og réttlæti eru
einungis tæknibrellur. Við erum
háð fjölmiðlum og þeir móta tilveru
okkar þar sem þekking og veraldar-
sýn einstaklinga byggir á umfjöllun-
arefnum, túlkunum og framsetn-
ingu fjölmiðla. Það er ljóst af yfir-
ferð myndarinnar að hún ætlar sér
æði mikið og ekki verður annað
sagt en að vel hafi til tekist. Um-
fram allt sannar þó Wag the Dog að
gamanmyndir þurfa ekki að vera
næringarlítið heilafóður.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri:
Barry Levinson. Aðalhlutverk: Ro-
bert De Niro, Dustin Hoffman,
Anne Heche og Willie Nelson.
Bandarísk, 1998. Lengd: 101 mín.
Öllum leyfð.
Björn Æ. Norðfjörð^