Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Blaðsíða 56
 xtim 1 kuöLd Tvötaldur i. vinmngur m FRETTASKOTIÐ ISÍMINN SEM ALDREI SEFUR ■0r Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ LAUGARDAGUR 15. AGUST 1998 i* Húsavík: Starfsmenn Fl hætta - óánægja með áætlanir Þrír starfsmenn Flugfélags ís- lands á Húsavik, þeirra á meðal stöðvarstjórinn, Auður Gunn- arsdóttir, hafa sagt upp störfum sínum og eru þessa dagana að hætta. Meginástæða þessa er sú að áætlanir félagsins til Húsa- víkur hafa staðist mjög illa í allt sumar. Mikil óánægja hefur ver- ið meðal viðskiptavina félagsins á Húsavík með þjónustuna í sumar og hafa starfsmenn verið undir miklu álagi af þeim sök- um og eru orðnir langþreyttir á því að vera eins konar stuðpúði milli óánægðra viðskiptavina og yfirstjórnarinnar í Reykjavík. Auður Gunnarsdóttir stað- festi í samtali við DV að hún hefði sagt upp starfi sinu, að hluta til vegna óánægju með ástandið og að hluta til vegna þess að hún fékk tækifæri til að skipta um starfsvettvang. Áætlunarflug Flugfélagsins til Húsavíkur hefur að mati Húsvíkinga staðist óvenjuilla í sumar, bæði hefur flugi ítrekað seinkað eða hreinlega fallið nið- ur hvað eftir annað. Bæjar- stjórn hefur ályktað og krafist úrbóta. Sömu sögu er að segja á ísafirði þar sem bæjarstjórnin hefur ályktað í sömu veru. -SÁ Bjarga pysjum DV, Vestmannaeyjum: Pysjutíminn í Vestmanna- eyjum stendur nú sem hæst. Börnin eru á ferð á hverri nóttu við að bjarga pysjun- um sem eru -*öÖum að yfir- gefa lundahol- urnar í fjöllun- um í kringum bæinn sem hafa verið heimili þeirra frá því þær litu þennan heim. Pysjumar fljúga á ljósin í bænum en þeg- ar þær lenda geta þær enga björg sér veitt. Kem- ur þá til kasta bamanna sem safna þeim í kassa á nóttunni og sleppa þeim morguninn eftir. Það er ekki verra að vera með góða vettlinga því að pysjurnar geta bitið. -ÓG Sindri Þór úr Reykjavík að sleppa pysju á Eið- inu. DV-mynd Ómar TEFLDI HUN A TWER HÆTTUR? Vilhjálmur Egilsson: Alvörutilboð „Ég tel að ríkisstjómin hljóti að þurfa að skoða þetta tilboð. Mér finnst þetta í fljótu bragði vera alvörutilboð fyrst talað er um átta milljarða króna. Ég tel líka að sameinað- ur Búnaðarbanki og íslandsbanki gæti orðið öflug og arð- vænleg eining á ís- lenska fjármagns- markaðnum. Ef ríkis- stjórn tæki þessu tilboði og notaði pen- ingana til að borga niður skuldir þá sparaði hún sér 400 tfl 500 mifljónir í vaxtagreiðslur árlega. Spumingin er hvort Búnaðarbankinn hafi skilað slík- um upphæðum í arð,“ segir Vilhjálmur Egflsson alþingismaður um tilboð íslandsbanka í Búnaðarbankann. -RR Friörik Sophusson var útnefndur þingmaður ársins á fundi Heimdallar f gær. Hér tekur Friðrik við verðlaununum úr höndum llluga Gunnarssonar, formanns Heimdallar. DV-mynd Hiimar Þór Alvarlegt bílslys Tveir voru fluttir slasaðir á slysa- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir alvarlegt bílslys sem varð á Hellis- heiði á sjöunda tímanum í gær- kvöld. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar á Selfossi voru mennimir einir í bílunum en tildrög slyssins em óljós. Bílarnir eru mikið skemmdir eftir áreksturinn. -JHÞ Guöfríður Lilja Grétarsdóttir, íslandsmeistari í skák, komst í hann krappan: í - leið eins og leynilöggu, segir Guðfríður Lilja í samtali við DV væri innbrot í gangi. Þá kom einhver ægileg spennuþörf upp hjá mér því ég fór aftur að bygg- ingunni til að sjá hvort þeir myndu nokkuð sleppa. Mér fannst heil eilífð líða þar til tveir lög- reglumenn komu að. Ég fór með þeim inn í húsið þar sem ég var með lykla að húsinu. Þegar við opnuðum einar dyrnar skutust tveir skuggar fram hjá okkur. Lögreglumennirnir náðu að góma þá eftir snarpa rimmu. Ég slapp sem betur fer við átök en var þarna alveg í hasarnum." Gómaði glæpamenn ...............i „Ég svaf alein i skólastofu og það var enginn annar í byggingunni. Um nóttina vaknaði ég upp við læti frammi á gangi. Ég hugsaði með mér að þetta væri eitthvað dularfullt. Síðan heyrði ég að einhver var að reyna opna hurðina að skólastof- unni. Ég varð auðvitað skithrædd enda bjóst ég við að þetta væru innbrotsþjófar. Ég var að spá í hvort ég ætti að öskra en það hefði ekki þjónað neinum tilgangi. Þá kom baráttuhugur upp í mér og ég ætlaði ekki að láta innbrotsþjófana sleppa," segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, margfaldur ís- landsmeistari kvenna í skák. Hún lenti í mikilli lifsreynslu í Hróarskeldu í Danmörku nýlega þeg- ar hún gómaði tvo þekkta danska glæpamenn. Guðfríður Lilja var í heimavist í skólanum í bæn- um Hróarskeldu þegar atvikið gerðist að nætur- lagi. Skreið út um glugga „Ég opnaði glugga á stofunni og stökk út með ferðatölvuna og veskið mitt með mér. Ég sá að dularfullur maður, eflaust einn innbrotsþjófanna, var fyrir utan bygginguna, sjáifsagt til að vakta hvort einhver kæmi óvænt að þeim. Ég náði að laumast fram hjá honum og í símaklefa til að hringja í lögregluna. Þá var engin símaskrá í klef- anum. Ég hugsaði með mér að neyðamúmerið 112, sem er heima, gilti líka í Danmörku. Það reyndist rétt og ég komst í samband við lögregl- una. Ég sagði þeim að koma eins og skot því það Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, margfaldur Islands- meistari kvenna í skák, gómaði tvo þekkta glæpa- menn að næturlagi í bænum Hróarskeldu í Danmörku. Þekktir glæpamenn „Þegar þeir voru færðir á stöðina kom í ljós að þetta voru þekktir glæpamenn í Danmörku. Þeir höfðu brotið upp allar dyr í þessum hluta skóla- byggingarinnar í leit að einhverju til að stela. Mér leið hálfilla að sofa áfram ein í skólanum næstu nótt á eftir en mér tókst nú að vinna bug á hræðsl- unni og eftir á finnst mér þetta hálfskondið því ég hef aldrei lent i neinu þessu líkt. Mér leið eins og leynilöggu í bíómynd," segir Guðfríður Lilja. Skólayfirvöld í bænum gáfu Guðfríði Lilju verð- laun, m.a. fína rauðvínsflösku, og hún fékk mikið hrós frá lögreglunni fyrir að hafa náð glæpamönn- unum. Greint var frá atvikinu í dönskum dagblöð- um og var henni hampað þar sem mikilli hetju. Guðfríður Lilja var stödd á skákmóti í Danmörku og gómaði ekki aðeins innbrotsþjófa heldur náði líka inn ELO-stigum i safnið. -RR Veðrið á morgun og mánudag: Hæg norö- vestanátt Næstu daga verður fremur hæg norðvestlæg átt á landinu. Viða verður léttskýjað um landið vest- anvert en skúrir norðan og aust- an til. Hiti verður á bilinu 6 til 13 stig, mildast sunnan til. Veðrið í dag er á bls. 57.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.