Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1999, Blaðsíða 51
Heimdallur seldi RÚV-brauð í Kringlunni:
Ríkisútvarpið verður að steingervingi
Heimdallur, félag ungra sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík, stendur nú
fyrir átaki undir kjörorðinu
„Lausnarorðið er frelsi". Að sögn
Ingva Hrafns Óskarssonar, lögfræð-
ings og formanns Heimdallar, er
átakið til komið þar sem félaginu
fmnst vanta hægri sjónarmið og
frjálslyndi í stjómmálaumræðu í
landinu. „Átakið er til þess að vekja
athygli á afmörkuðum málum sem
birtast sem víðtækt vandamál í hag-
kerfi og þjóðlífi landsins," segir
Ingvi. „Við emm að vekja athygli á
úreltum hagstjómartækjum eins og
innflutningshöftum, ríkisrekstri og
einokun." Til að vekja athygli á
þessum málum hefur félagið skrifað
greinar í dagblöð, birt auglýsingar
og haldið fundi, auk þess sem ný
vefsiða félagsins hefur veriö opnuð
á slóðinni www.frelsi.is.
Oviðeigandi ríkisrekstur
í einni auglýsingunni líkir
Heimdallur áskrift aö Ríkisútvarp-
inu-Sjónvarpi við að allir væru
skyldaðir til að kaupa ákveðna teg-
und af brauði, RÚV-brauð, og ef fólk
keypti ekki brauðið yrði brauðrist
viðkomandi innsigluð - líkt og gert
er ef landsmenn greiða ekki afnota-
gjöld af ríkisfjölmiðlunum.
“Við emm hiklaust á móti Ríkis-
útvarpinu, þar sem við teljum óvið-
eigandi að ríkið reki fjölmiðla. Þeh-
era ekki reknir á jafnréttisgrund-
velli og hafa allt aðra stöðu á mark- f: -
aðnum en aðrir fjölmiðlar. Einstak-
lingar eru fullfærir um að reka fjöl-
miðla og eðlilegt væri að þeir gerðu
það eins og þeir gera með almenn
fyrirtæki,“ segir Ingvi og segir
tækninýjungar auk þess vera að
gera fyrirtækið að steingervingi. Og
Heimdallur vill ekki að tollar og
gjöld séu lögð á innflutning á land-
búnaðarvörum í því marki sem gert
er í dag. „Við tókum tómata fyrir í
einni auglýsingu frá félaginu. Ekki
vegna þess að við höfum eitthvað
hom í síðu garðyrkjubænda, þar
sem þessi grein er næst því að <
starfa við eðlilegar markaðsaðstæð-
ur, heldur erum við að vekja athygli
á hinum stóra vanda í landbúnaðar-
kerfmu. Grænmeti er holl fæða og
afleitt að hún skuli ekki vera á
boðstólum á góðum kjörum,“ segir
hann.
Og Heimdallur seldi áfengi á Ing- ^
ólfstorgi í gær - „Allt fyrir málstað--
inn,“ sagði Ingvi að lokum. -hb
tú liQrga
S \lESS\ ma3ur
I LaRiliaunirjjJ ,
Björgvin Guðmundsson, í stjórn Heimdallar, með RÚV-brauð f Kringlunni I fyrradag.
DV-myndir Hilmar Þór
LAUGARDAGUR 27. FEBRUAR 1999
Qréttir
Til hamingju mel
afmælið 28. febrúar
95 ára
Guðrún Magnúsdóttir,
Grandavegi 47, Reykjavík.
85 ára
Pétur Kr. Sveinsson,
Akralandi 1, Reykjavík.
Ragnar Þorsteinsson,
Vogatungu 31a, Kópavogi.
Sigríður Hólmfreðsdóttir,
Snomabraut 58, Reykjavík.
80 ára
Gestheiður Jónsdóttir,
Fannborg 1, Kópavogi.
75 ára
Gestur Frímannsson,
Túngötu lOb, Siglufirði.
60 ára
Guðný Jónsdóttir,
Hamarsseli, Djúpivogi.
Helga Aðaðsteinsdóttir,
Borgarflöt 1, Stykkishólmi.
50 ára
Eiríkur H. Sigurgeirsson,
Hjallahlíð 33, Mosfellsbæ.
Guðbjörn Dagbjartsson,
Hvítárdal, Flúðum.
Ingibjörg Björgvinsdóttir,
Túngötu 4, Stöðvarfirði.
Jónína Zophoníasdóttir,
Mýram 2, Egilsstöðum.
Teresa Obara,
Borgarbraut 1, Grundarfirði.
Tryggvi Pálsson,
Kjartansgötu 8, Reykjavík.
Þorvaldur Ásgeir Hauksson,
Esjugrund 44, N/A
40 ára
Hildur Bjömsdóttir,
Þingási 46, Reykjavík.
María Norðdahl,
Laxakvísl 3, Reykjavík.
Sigrún Lilja Jónadóttir,
Heiðargerði 14, Reykjavík.
Sigurjón Pálmi Dyer,
Sæbólsbraut 26, Kópavogi.
Sigurvin Ómar Jónsson,
Vesturbergi 100, Reykjavík.
Sturla Geirsson,
Dísarási 6, Reykjavík.
Trausti Ragnar Tryggvason,
Þverholti 10, Akureyri.
Trausti verður fertugur á
mánudaginn. Opið hús
verður á sunnudaginn að
Þverholti 10 frá kl. 15.
Austurlensk sjálfsvörn leið til betra lífs:
Líkaminn er vopn
Feðgarnir Ingólfur Eyfells, 54 ára,
og Eyjólfur sonur hans, 14 ára,
stunda Tae Kwon Do af kappi hjá
ÍR, fara yfir endilanga
Reykjavík vestan af Nesi
fjóram sinnum í viku í
Breiðholtið. Þar iðkar stór
hópur þessa austurlensku
sjálfsvarnaríþrótt sem
fundin var upp fyrir ár-
þúsundum í Kóreu. Fá-
tækt fólk fann upp íþrótt
sem sögð var gera lík-
amann að beittu vopni
gegn óvinum. Þeir feðgar
eru ánægðir með að velja
austurlenska glímu sem tóm-
stundagaman. Handbolti og aðrar
íþróttir eiga ekki við alla. En allir
eiga sína íþrótt ef
vel er gáö.
Nú skyldi maður
ætla að
rtí’
ensk glíma
væri nokkuð hrottaleg en svo er
ekki, nema í keppni þeirra allra
hörðustu, sem þá eru vel varðir fyr-
ir höggum. Fjölbreytnin í hreyfing-
um er mikil, það reynir mjög mik-
ið á teygjur, úthald og líkam-
legt þrek. En það reynir
líka á einbeitingu
og samhæfingu.
Þeir hörðustu
geta farið að
kurla við með berum
lúkunum, jafnvel múr-
steina. Eyjólfur reyndi að slá i
spýtu og gekk vel. Tólf millimetra
spónaplata er frumraunin.
Ingólfur segir að sonur hans hafi
ákveðið fyrir rúmu ári að fara í Tae
Kwon Do. „Ég þurfti þá að aka hon-
um alla þessa leið og úr því maður
var kominn alla þessa leið sá ég að
eins gott væri að nýta tímann. Ég
hafði séð að teygjurnar voru líkar
því sem ég hafði gert í jóga-æfingum
og fannst þær traustvekjandi. Ég
dreif mig því með í þetta. Þetta er
virkilega gott og við höfum náð
saman svona á nýjan máta. Við
erum með sama beltið og erum jafn-
ingjar í æfingasalnum. Við keppum
ekki enda bara búnir að vera ár.
Eyjólfur er því ekki farinn að leggja
mig enn þá, hvað sem verður,"
sagði Ingólfur, sem iðkar lika
skautaíþróttina og sund af kappi,
hvort tveggja úrvalsgreinar fyrir þá
sem vilja rækta líkamann og við-
halda honum eins og best verður
gert. -JBP
~w~
Tae Kwon Do - kóreska íþróttin sem fer sigurför um heiminn og nýtur vaxandi vinsælda hér á landi. Þessi íþrótt gefur líkamanum alhliða styrk. Hér er æf-
ing hjá ÍR sem er eitt nokkurra félaga sem býður upp á þessa nýju ólympíufþrótt.