Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
Vika í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva:
Hverjir fara
með Selmu?
Daníel Traustason er dansari og
nemi við Fjölbraut í Breiðholti. Dan-
íel á langan dansferil að baki. Hann
hefur heilmikla reynslu í samkvæm-
isdönsum og er margfaldur íslands-
meistari. Hann lék í vetur indíána og
sjóræningja í uppfærslu Borgarleik-
hússins á Pétri Pan. Hann vann með
Selmu í Grease og dansaði einnig í
myndbandi við lag Ný danskrar,
Biómarósahafið, þar sem Selma sá
um dansinn. Einnig vann hann með
Páli Óskari á tónleikaför hans um
landið. Sannkallaður dansari af
Guðs náð.
Brynjar Örn Þorleifsson er einnig
dansari. Hann er nemi f Borgar-
holtsskóla í Grafarvogi. Brynjar, \
eins og Daníel, hefur áraianga "
reynslu í samkvæmisdönsum að
baki og er margfaldur íslandsmeist-
ari í þeim. Brynjar lék í Grease og
dansaði einnig undir stjórn Selmu í
myndbandinu við lag Ný danskrar,
Blómarósahafið. Þá dansaði hann
Ifka með Páli Óskari á tónleikaför
hans um landið.
Hópurinn á góðri stund eftir æfingu. Þau hafa unnið hörðum höndum upp á síðkastið við að slípa atriðið. F.v. Brynj-
ar Örn Þorleifsson dansari, Rúna G. Stefánsdóttir bakraddasöngvari, Stefán Hilmarsson bakraddasöngvari, Selma
Björnsdóttir söngvari, Jóhanna Vigdís Arnardóttir bakraddasöngvari, Daníel Traustason dansari og Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson lagahöfundur.
Nú þegar vika er þangað til Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fer
fram er ekki seinna vænna en að kynna sér hverjir það eru sem halda utan
með Selmu og lagi hennar All out of Luck. í hinu fríða föruneyti eru dansarar,
bakraddasöngvarar, förðunarmeistari og fleiri aðstoðarmenn.
Hópurinn hefur unnið mikla undirbúningsvinnu upp á síðkastið. Vinnan hefur
einkum legið í því að slípa atriðið og er það orðið mjög kraftmikið og glaðlegt,
hlaðið lífi.
Ken Oldfield samdi dansana. Hann leikstýrði Selmu og hinum einmitt í hinum
geysivinsæla söngleik Grease. Systir Selmu, Guðfinna, hjálpaði einnig við gerð
dansanna og verður með í för. Hún lék einnig með Selmu í Grease. Rúnar
Freyr Gíslason, kærasti Selmu, fer með sem sérlegur aðstoðarmaður
kærustunnar og verður hann henni til halds og trausts.
Ragna Fossberg förðunarmeistari sér um að allir verði farðaðir eins vel og völ
er á. Umboðsmaður Selmu, Steinar Berg ísleifsson, fer einnig með og þarf
hann eflaust að hafa sig allan við til að grípa tækifærin sem skapast á slíkri
stórhátíð. Þá má einnig nefna Gísla Martein Baldursson, útsendara Sjónvarps-
ins, sem fer með hópnum og mun lýsa keppninni í beinni útsendingu.
Rúna G. Stefánsdóttir syngur eina
af bakröddunum. Hana þekkja gest-
ir Brodway eflaust vel en hún syng-
ur i Prímadonnum og hefur sungið í
Abba-sýningunni í rúmt ár. Rúna
hefur sungið að staðaldri f tíu ár, í
hinum ýmsu hljómsveitum og verk-
efnum. Hún vann fyrst með Selmu
og Þorvaldi í Rocky Horror þar sem
hún söng í kór.
Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Hansa,
syngur eina af bakröddunum. Hún
er nýútskrifuð úr Leiklistarskóla ís-
lands og leikur í lokaverkefni ár-
gangsins, Krákuhöllinni. Hún lék
einnig stórt hlutverk í sjónvarps-
mynd útskriftarhópsins, Guð er til
og ástin. Leiðir Jóhönnu og Selmu
lágu saman í söngleiknum Grease
en þar lék Jóhanna Rizzo, vondu
stelpuna, andstæðu góðu stelpunn-
ar Sandy sem Selma lék.
Stefán Hilmarsson, popparinn góð-
kunni, er án efa reyndasti förunaut-
urinn til Jerúsalem. Þetta er hvorki
meira né minna en í sjötta skiptið
sem hann fer fyrir hönd íslands í
keppnina. Fyrst tók hann þátt árið
1988 með Sverri Stormsker og söng
lag hans Sókrates. Hann mætti aftur
galvaskur til leiks árið 1991 með
Eyjólfi Kristjánssyni þegar þeir
sungu lagið Draumur um Nínu. Stef-
án hefur einnig samið textann við
tvö af íslensku framlögunum: Nei
eða já árið 1992, sem þær stöllur
Sigríður Beinteinsdóttir og Sigrún
Eva Ármannsdóttir sungu og Nætur
sem Sigríður Beinteinsdóttir söng.
Stefán lét ekki staðar numið þar,
hann söng einnig bakrödd hjá
Björgvini Halldórssyni árið 1995.
Stefán hittir væntanlega marga vini
og kunningja þar ytra og kennir hin-
um í föruneytinu eflaust hvernig á
að haga sér innan um Eurovision-el-
ítuna.
Selma Björnsdóttir, óskabarn þjóð-
arinnar, er vel æfð og til í slaginn.
DV-myndir Hilmar Þör
Þorvald Bjarna Þorvaldsson þarf
ekki að kynna. Hann á litríkan feril
að baki. Hann var aðallagasmiður
og gítarleikari Todmobile og hlaut til
að mynda íslensku tónlistarverð-
launin fyrir lagasmíðar árin 1994 og
1995. Þorvaldur er einmitt lagahöf-
undur All out of Luck. Þorvaldur
hefur einnig starfað við upptöku-
stjórn með helstu hljómsveitum og
tónlistarmönnum íslands og verið
tónlistarstjóri í fjöida söngleikja, t.d.
Rocky Horror Show, þar sem leiðir
hans og Selmu lágu fyrst saman,
Evita, Cats, Tommy, The Wall, Jesus
Christ Superstar o.fl. Hann hefur
samið tónlist fyrir kvikmyndir og
ýmsar uppfærslur, þ.á m. í íslensku
Óperunni, Borgarleikhúsinu, Þjóð-
leikhúsinu og Sjónvarpinu.
-hvs