Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 22. MAI 1999
, •/Öflrf
'jfc . ' .....
ik "w
stuttar fréttir
Leitað eftir sjóslys
i Óvíst var í gær hvort allir íar-
J þegar og skipveijar á skemmti-
I ferðaskipinu Sun Vista, sem sökk
undan Indónesíuströnd aðfera-
| nótt löstudags, hefðu bjargast. Yf-
s ir 1 þúsund manns tókst að kom-
J ast í björgunarbáta.
Ekki afturhvarf
1 Massimo D’Alema, fbrsætis-
I ráðherra Ítalíu, sagði í gær að
morðið á hátt-
settum ráðgjafa
atvinnumála-
ráðherra Ítalíu
á fímmtudag-
inn væri ekki
aflurhvarf til
hryöjuverkaár-
anna á áttimda
og níunda ára-
tugnum. D’Alema sagði morðið
árás á lýðræðið og draga þyrfti
morðingjana fyrir dómstól.
Leyft að ættleiða
Samkynhneigðir í Danmörku,
sem eru í skráðu sambandi, mega
nú ættleiða stjúpböm sín.
Lík í sýrubaði
Likamsleifar nokkurra manna
hafa fundist í kerjum með sýru í
yfirgefínni bankahvelfmgu í
bænum Snowtown í Ástralíu.
Fjölmiölar fullyrða að líkin séu
af þekktum bamaníðingum.
Banvænn ostur
Þrir yfirmenn hjá frönsku
ostagerðinni Fromagerie de
l’Armancon hafa verið settir í
gæsluvarðhald eftir að kona og
bam létust af því að hafa borðaö
Epoisses-ost sem i var listeria-
bakterían.
Rekinn frá Togo
Yfirvöld í Togo í Afríku vísuðu
í gær framkvæmdastjóra mann-
réttindasamtakanna Amnesty
Intemational, Pierre Sané, úr
landi stuttu eftir komu hans. Am-
nesty gagnrýndi fyrir tveimur
vikum mannréttindabrot í land-
inu.
Barak viðræðufús
Ehud Barak, nýkjörinn forsæt-
isráðherra ísraels, er reiðubúinn
að láta af hendi
þrjá fjórðu-
hluta Vestur-
bakkans, að því
er háttsettur
leiðtogi í sam-
steypustjóm-
inni segir í
tímaritinu For-
eign Report
sem gefið er út í London. Tíma-
ritið segir einnig að Barak muni
stöðva framkvæmdir við smíði
íbúða fyrir gyðinga á umdeildu
svæði á milli Jerúsalem og Bet-
lehem. Palestínumenn hafa beðið
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
um að stöðva byggingafram-
kvæmdimar.
Slátrari fær
klósett
Hinn einfætti 72 ára gamli her-
stjóri Rauðu khmeranna, Ta Mok,
sem handtekinn var í Norður-Kam-
bódíu 6. mars, hefur fengið vestrænt
klósett til sín í fangelsið. Lögfræð-
ingur hans sagði við fréttamann
Reuters að hann hefði átt erfitt með
að nota hin hefðbundnu klósett
Kambódíumanna þar sem fólk situr
á hækjum sér vegna þess að hann er
einfættur af völdum jarðsprengju.
Ta Mok fékk viðumefnið slátrar-
inn fyrir það að hafa á árunum 1975
til 1979 stjómað stórfelldum mann-
drápum í landinu á valdatíma
Rauðu khmeranna. Um 1,7 milljón
manns létu lífið á þessu tímabili. Ta
Mok og fyrrum félaga hans, Kang
Khek Leu, fyrrum yfirmanni
leynilögreglu Rauðu Khmeranna, er
haldið í fangelsi á grundvelli laga
frá 1994 sem banna kommúnísk
stjómmálasamtök. Enn hefur ekki
verið ákveðið hvenær réttarhöld
hefjast yfir þeim.
Heimildarmenn innan bresku stjórnarinnar um Kosovo:
Litill arangur af
loftárásunum
Þrátt fyrir fréttir af liðhlaupi
serbneskra hermanna í Kosovo er
fjöldi þeirra í héraðinu enn 40 þús-
und, sá sami og þegar loftárásir Atl-
antshafsbandalagsins, NATO,
hófust. Þetta hafði breska blaðið
The Times eftir heimildarmönnum
innan bresku stjómarinnar í gær.
Talsmaður breska varnarmálaráðu-
neytisins vísaði frásögn The Times
á bug og hélt því fram að NATO
væri að ná markmiðum sínum.
„Það var aldrei markmiðið að
drepa serhneska hermenn né aðra.
Takmark okkar var að stöðva of-
beldið og þjóðemishreinsanimar í
Kosovo og að skaða hernaðarmann-
virki,“ sagði talsmaðurinn.
Heimildarmenn The Times segja
ekkert benda til að serbneskir her-
menn í Kosovo séu á leið frá hérað-
inu þó svo að hernaðarmannvirki
hafi verið eyðilögð eða skemmd.
Yfirvöld í Grikklandi tilkynntu í
gær að þau ætluðu ekki að leyfa
tyrkneskum herflugvélum að fljúga
í grískri lofthelgi til þess að taká
þátt í loftárásum NATO á
Júgóslavíu. Mikil andstaða er í
Grikklandi við loftárásirnar.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
fer stuðningur almennings í Þýska-
landi við árásirnar einnig minnk-
andi. 60 prósent studdu loftárásim-
ar í apríl en 52 prósent nú.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, og Martti
Ahtisaari, forseti Finnlands, munu
hittast nú um helgina í Stokkhólmi.
Athisaari mun greina Annan frá
stöðu mála eftir viðræður sínar í
Moskvu við Talbott, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, og
Tsjernomyrdín, samningamann
Rússa í Kosovodeilunni.
Átta þúsund eitt hundrað og tíu börn í Sofíu í Búlgaríu burstuðu saman í sér tennurnar í gær. Börnin ætluðu að
reyna að komast I heimsmetabók Guiness og vera stærsti hópurinn sem kemur saman til slíkra verka.
Jeltsín í frí til Svartahafs:
Hækkar umdeilda í tign
Áður Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seti hélt óvænt í frí í gær til Svarta-
hafsins gaf hann nokkram ráðherr-
um nýtt tækifæri. Hann endurskip-
aði meðal annarra Igor Ivanov ut-
anríkisráðherra og Igor Sergejev
varnarmálaráðherra.
Rússlandsforseti skipaði Nikolaí
Aksijonenko, fyrrum ráðherra lest-
arsamgangna, í embætti fyrsta að-
stoðarforsætisráðherra og Vladimir
Rusjajlo, fyrrverandi aðstoðarinn-
anríkisráðherra, í embætti innan-
rikisráðherra.
Rússneskir fjölmiðlar segja Aksi-
jonenko og Rusjajlo menn fjár-
málafurstans Borís Berezovskís.
Viðskiptablaðið Kommersant skrif-
aði í gær að Berezovskí, sem hefur
náin tengsl við fjölskyldu Jeltsíns,
hefði nú tekið við stjóminni. Rusja-
jlo hefur neitað öllum samskiptum
við Berezovskí.
Stepasjín heldur áfram stjómar-
myndun á meðan Jeltsín er í fríi
eftir dramatíska viku. Fyrst rak
Rússlandsforseti stjórn sína, síðan
komst hann hjá því að verða dreg-
inn fyrir ríkisrétt og að lokiun var
forsætisráðherraefni hans sam-
þykkt í Dúmunni, neðri deild
þingsins.
Gert er ráð fyrir að Stepasjín
muni heimsækja Jeltsin við Svarta-
hafið í næstu viku til þess að ræða
frekari ráðherraembætti.
9500
9000 Dow Jones
London
DwU 6456,8
JJW CAAfl
JwU 4000' FT-SEIOO
S 0 N D
Frankfurt
5248,02
6000 í
‘HAAJ
2000 DAX40 -
í8B88B8RBHhHBB8Bk . -
S 0 N D
erlendis
i»»vi
Flugfélög vara
við öngþveiti í
Evrópu í sumar
Evrópsk flugfélög vara við
I öngþveiti í sumar. Hvetja þau til
samvinnu milli flugumferðar-
stjóra hinna ýmsu landa, að því
| er segir í breska blaðinu Fin-
ancial Times.
Búist er við meiri seinkunum
: en hörmungarárið 1989 þegar
ferðamenn urðu að bíða klukku-
stundmn saman á flugvöllum um
alla Evrópu. Þetta hefur blaðið
eftir Karl-Heinz Neumeister,
framkvæmdastjóra Samtaka evr-
ópskra flugfélaga, AEA.
í mars síðastliðnum voru
seinkanir á þriðjungi alls flugs í
Evrópu. Er það tvöfalt meira en
í mars í fyrra. Óttast er að
ástandið eigi eftir að versna
vegna stríðsins í Kosovo.
Breskur plötu-
snúður á Spáni
Ívar raðnauðgari
Bretinn Richard Baker, sem er
34 ára, hefur verið fundinn sekur
um að hafa nauögað tólf konum á
milli 15 og 35 ára á S-Englandi í
fyrra. Lögregla óttast að Baker,
| sem starfaði sem plötusnúður í
Torremolinos á Spáni, kunni að
hafa nauðgað um eitt hundrað
konum. í réttarhöldunum yfir
Baker, sem haldin voru í
London, kom fram að hann á að
J hafe nauðgað fjölda kvenna á
Spáni. Baker var handtekinn þar
í fyrra eftir að tvær sænskar
stúlkur sökuðu hann um að hafa
gefið þeim lyfið Rohypnol áður
en hann nauðgaði þeim. Hann
var látinn laus vegna skorts á
J sönnunargögnum.
| Lögreglan telur að hann hafi
nauðgað konum kerfisbundið á
ferðamannastaðnum. Konurnar,
j sem Baker réðist á, óttast að
í þær séu smitaðar af alnæmi því
J að hann hefur alltaf neitað að
j gangast undir alnæmispróf
Samkvæmt vitnum hótaði
j Baker að myrða stúlkurnar
j segðu þær til hans. Baker hefúr
nokkrum sinnum setið inni
| vegna nauðgana. Móðir hans
i segir að honum nægi ekki 20
j stúlkur á dag. Faðir hans vill
í láta gelda hann.
Erfðabreyttur
maís drepur
fiðrildislirfur
Erfðabreyttur maís getur
1 drepið fiðrildi. Þetta er niður-
j staða rannsóknar sem fram-
j kvæmd var við Comellháskól-
J ann í Bandaríkjunum. Vísinda-
menn fóðmðu fiðrildislirfur með
;■ frjódufti frá erfðabreyttum maís.
Nær helmingur lirfanna drapst
j eftir nokkra daga. Hinn helming-
i urinn stækkaði minna en eðli-
I legt er. Annar lifrahópur var
fóðraður á frjódufti úr venjuleg-
um maís. Sá hópur óx og dafnaði
j eðlilega. Það sama gerðist með
| þriðja hópinn sem fekk ekkert
frjóduft úr maís.
Gómaður við að
reyna að leigja
leigumorðingja
Dansk-bandarískur milljóna-
i mæringur, Flemming Larsen,
I hefúr verið handtekinn í Kali-
í fbmíu í Bandaríkjunum fyrir að
. ætla aö kaupa þjónustu leigu-
morðingja. Larsen á keðju stór-
I markaða í Bandaríkjunum og
(vildi hann ryðja úr vegi einum
starfsmanna sinna sem hafði
| lengi skuldaö honum fé. Larsen
j ræddi vandamál sín á
| hádegisverðarfundi með manni
p sem hann hélt að væri
| leigumorðingi. Daninn vissi ekki
I að sá sem hann reyndi að fá til
verksins var lögreglumaður er
1 tók samtal þeirra upp á segul-
; band.