Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Blaðsíða 13
JE>V LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
iðsljós
13
í GARÐ'^
MOLD
1
30 1. Élr1
Hentar vel í útikerin,
blómabeðin og
í kirkjugarðinn.
Tilvalin með
stjúpunum.
Don Johnson gerir sig að fífli
Þingmenn kvarta
yfir Springer
Alltaf þurfa pólitíkusarnir að eyði-
leggja fjörið. Einn þingmanna í
Chicago hefur einmitt ákveðið að
reyna að skemma fyrir öllum sem
skemmta sér yfir ófórum fólks í þætt-
inum hjá Jerry Springer. Þessi þing-
mannsdula vill að þeir sem fara að
slást í þættinum verði kærðir fyrir
lögbrot. „Ef slagsmál brytust út á
Hilton hótelinu, þá kæmi löggan,
næði í liðið og sturtaði því af sér í
næsta fangaklefa," segir þingmaður-
inn sér til málsbóta og vill sömu refs-
ingu fyrir fólk sem slæst í þætti Sprin-
gers. „Þetta fólk fremur glæpi í beinni
útsendingu og mér er spurn hvers
vegna lögreglan gerir ekkert i málun-
um,“ segir hann enn fremur. Lögregl-
an hefur hins vegar svarað því til að
það þurfi ekki að skerast í leikinn þar
sem slagsmálin séu sviðsett og það
viti hver stauli.
Jerry Springer og starfslið hans
hafa þagað þunnu hljóði um málið.
Þau vita sjálfsagt að ef tekið verður
mark á þingmanninum þá er þeim
eins gott að færa myndverið bara nið-
ur á lögreglustöð.
fímmtudag til mánudags
í bakka
Blandaðir litir
um jafnt sem óþekktum leikkon-
um sem störfuðu með honum. Síð-
an tjáði hann sig um þekkta karl-
leikara og sagði: „De Niro, Nichol-
son eða Brando, enginn þeirra
kemst með tærnar þangað sem ég
hef hælana!"
Don hefur auðvitað afsakað sig
með þeirri gömlu lummu að orð
hans hafi verið slitin úr samhengi.
„Blaðamaðurinn hefur sennilega
verið að reyna að gera mig að
fifli,“ sagði Don greyið um málið.
Það lítur líka út fyrir að blaða-
manninum Paul Brownfield hafi
tekist ætlunarverk sitt.
Meira en vinir
Ekki lesa þetta ef þú vilt ekki fá að
vita það fyrir fram, en kunnugir
Bandaríkjamenn segja að nýjasta Fri-
ends-syrpan endi með brúðkaupi al-
veg eins og sú síðasta. Meira að segja
tveimur brúðkaupum. Já, þið ráðið
hvort þið trúið því, en loksins munu
Ross og Rachel ná saman og komast
alla leið upp að altarinu. Og þau verða
ekki þau einu því Chandler og Monica
fylgja fast á hæla þeim.
Giftingarnar munu eiga sér stað í
Las Vegas, þar sem vinirnir koma
saman til þess að styðja Joey í leiklist-
arglímunni.
Ross og Rachel drekka sig augafull,
sem skýrir hvers vegna þau æða í það
heilaga, en Chandler og Monica kasta
hins vegar upp teningi og ef ákveðin
tala kemur upp þýðir það brúðkaup.
Og þessi ákveðna tala kemur auðvitað
upp og þau láta sig bara hafa það. Það
er spurning hvort ekki ætti að nefna
seríuna Meira en vinir.
Don Johnson er betri leikari en
Robert De Niro, Jack Nicholson og
Marlon Brando. Hver í ósköpun-
um segir slíka vitleysu? gætu les-
endur spurt sig. Hver nema Don
Johnson sjálfur.
Hann sagði víst margt fleira en
hann ætti að hafa sagt í viðtali við
blaðamann frá sunnudagsblaði
Los Angeles Times. Blaðamaður-
inn, Paul Brownfield, tók leikar-
ann í bakaríið að sögn kunnugra,
en hann hefur greint frá því að
Don hafi slátrað nokkrum vín-
flöskum á meðan viðtalið átti sér
stað, jafnvel þótt hann segist vera
edrú eftir meðferð á Betty Ford-
stofnuninni. Don trúði víst blaða-
manninum fyrir því að hann héldi
oft fram hjá glænýrri eiginkonu
sinni, Kelley Phleger, með þekkt-