Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Blaðsíða 20
» fréttaljós LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 LlV Kaupfélög þurfa að vinna upp forskotið sem nútíminn hefur á þau: Breytinga er þörf - lögin um samvinnufálög þrengja að kaupfálögunum Sumarið 1996 kom Jónas Haralz, fyrrverandi bankastjóri Landsbank- ans, í heimsókn til vinar sins, Aðal- steins Jónssonar, útgerðarmanns á Eskifirði. Aðalsteinn, eða Alli ríki eins og hann er oft kallaður, ákvað að stríða Jónasi og fór að rifja upp að einhvern tíma í fyrri tið hefði Jónas sagt við sig þegar Alli bað hann um lán að ekki væri hægt að lána neinum nema kaupfélaginu og Sambandinu. Það hefði Alla þótt skrýtið þar sem þá hafði kaupfélagið á staðnum farið þrisvar sinnum á hausinn á nokkrum árum. Þessi litla saga er gæti staðið sem minnisvarði um gamla tíma þegar viðskiptalífið var ofurselt pólitískum afskiptum og stjórnmálamenn skömmtuöu lánsfé til þeirra sem þeim voru þóknanlegir. Siðan hefur margt breyst. Sambandið er liðið undir lok GERIADRIR BETUR HEILIR STURTUKLEFAR og í viðskiptalífinu er krafa eigend- anna um arð höfð að leiðarljósi í einu og öllu. Nokkur fyrirtæki hafa þó ver- ið lengur að laga sig að breyttu við- skiptaumhverfi, sum of lengi eins og segja má um Kaupfélag Þingeyinga á Húsavík. Kaupfélag Þingeyinga hefur verið í brennidepli í vikunni vegna umræðu um mikla fjárhagsörðugleika félags- ins. Umfjöllunin um KÞ hefur leitt til þess að menn hafa beint sjónum að öðrum kaupfélögum í landinu og spurt sig hvort eins geti verið farið með þeirra stöðu. Samkvæmt upplýs- ingum frá Vinnumálasambandinu eru nú nítján kaupfélög starfandi í land- inu. Þar af eru sextán í rekstri og er þá Kaupfélag Þingeyinga ekki tekið með í þeirri tölu. Því er ekki að leyna að undanfarin ár hafa verið kaupfé- lögunum erflð á margan hátt. Heildar- afkoma kaupfélaga hefur ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir og síðan 1992 hefur þeim fækkað um sex. Þar með er hins vegar ekki sagt að kaup- félögin séu illa stödd vegna þess að þau eru kaupfélög. Því má ekki gleyma að atvinnurekstur í vissum byggðarlögum hefur ekki átt góðu c Fréttaljós Kjartan B. Bjdrgvinsson gengi að fagna og rekstrarvandi kaup- félaganna er oft aðeins þáttur í erfið- leikum atvinnulífsins í viðkomandi byggðarlagi. Þegar á heildina er litið standa kaupfélögin sem slík hvorki betur né verr en annar atvinnurekst- ur í dreifbýli. Ástæður erfiðleikanna Eigi að síður er þó ýmislegt sem betur mætti fara í rekstri kaupfé- laga. Að sögn Jóns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Vinnumála- sambandsins, ber flestum sem til þekkja saman um að reglur ís- lenskra laga standi samvinnufé- lögum mjög fyrir þrifum. Lögin séu spennitreyja á samvinnufélög- unum, ákvæði þeirra séu óþjál og alls ekki við hæfi nútímaaðstæðna í markaðsbúskap. Hvað þetta varð- ar hafa sjónir manna helst beinst að óljósu eignarhaldi kaupfélag- anna sem standi í vegi fyrir því að arðsemissjónarmið geti orðið ráð- andi í þeim. Óljóst eignarhaldið gerir það að verkum að félags- menn koma ekki fram á aðaifundi sem eigendur með það að leiðar- ljósi að félagið sé sem best rekið. Þess í stað eru þeir frekar í hlut- verki kröfuhafa sem sífellt ætlast til þess að kaupfélagið komi til móts við þá persónulega. „Það er alltaf verið ætlast til þess að kaup- félagið vinni svo mikið starf til að byggja upp atvinnulíf í byggðar- laginu að hagsmunir kaupfélags- ins sjálfs gleymast. Gott dæmi um þetta er hvernig Kaupfélag Þingey- inga lagði fjármagn í Aldin hf. þrátt fyrir að kaupfélaginu sjálfu blæddi út með því.“ Gott að láta berja sig Jóhannes Jónson, eigandi Bónus- verslananna, sem sjálfur hefur starfað í samvinnuversluninni, telur að þessi stefna hafi ekki síst bitnað harkalega á bændastéttinni og í raun hafi þróun samvinnuverslunarinnar stundum verið beinlínis fjandsamleg bændum. „Kaupfélögin eru fullkomlega óeðli- legt fyrirtækjaform meðan þau eru ekki fyrirtæki raunverulegra eigenda sinna eins og þau eiga að vera heldur einhverrá ráðinna manna. Það er ekki langt síðan að bændur fengu ekki krónu af 250 milijónum úr úreldingar- sjóði til Kaupfélagsins í Borgarnesi og nú er sagan að endurtaka sig í Kaup- félagi Þingeyinga. Það er einfaldlega verið að hirða eignina við nefið á bændunum. Það er eins og búið sé að berja svo mikið á bændum gegnum tíðina að þeim sé farið að þykja það gott.“ Rofar til Fastlega má gera ráð fyrir því að reglum um samvinnufélög verði breytt í náinni framtíð til móts við þau viðhorf sem hér hafa verið reif- uð. í viðskiptaráöur.eytinu er nú þegar unnið að frumvarpi sem felur í sér mikilvægar breytingar á nú- gildandi lögum um samvinnufélög. Er jafnvel hugsanlegt að frumvarpið verði lagt fyrir þing í haust. Jón Sig- urðarson segist í fyrsta lagi vilja sjá að opnað verði fyrir möguleikann á að uppfæra stofnfé fyrirtækisins til jafns við eigið fé til þess að greitt verði úr óljósu eignarhaldi félag- anna. í öðru lagi verði menn að auð- velda samvinnufélögum að breyta rekstrarformi sínu í hlutafélaga- form. Þannig opnist leiðir til að efla eignarvitund félagsmanna og stuðla að því að viðskiptalegir hagsmunir félagsins verði settir ofar hagsmun- um byggðarlags og atvinnuuppbygg- ingar - hagsmunum sem hingað til hafa íþyngt rekstri margra kaupfé- laga í landinu. Utsala Verðdæmi: Minkapels, verð óður kr. 695 þús. Verð nú 399 þús. Pelsfóðurskópur, verð óður kr. 95 þús. Verð nú 59 þús. Sértilboð: Bjórpelsar, síðir, verð aðeins 149 þús. PELSINN 4 Utsala Lokadagar útsölunnar Láttu drauminn rætast V/SA raðgreiðslur í 36 mánuði 50% ofslátlur af öllurn fatnaði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.