Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Page 6
6 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 Útlönd DV Stoltenberg myndar nýja stjórn í Noregi: Umhverfisverndarsinnar mótmæltu viö höllina Jens Stoltenberg var reiðubúinn til baráttu þegar hann kom af fundi Haralds Noregskonungs í gær. Stolt- enberg hafði fengið umboð til stjórnarmyndunar og kvaðst ætla að ræða við þingflokksformenn. „Gangi allt að óskum ætti að vera mögulegt að ljúka stjórnarmyndun í næstu viku,“ sagði Stoltenberg. En það var ekki bara Stoltenberg sem var reiðubúinn til baráttu. Þeg- ar Stoltenberg kom út í hallargarð- inn beið hans fjöldi mótmælenda frá umhverfisvemdarsamtökum sem lýstu yfir andúð sinni á stefnu hans í umhverfismálum. Mótmælendur bám spjöld með áletrununum gegn gasorkuverum. Margir umhverfis- verndarsinna létu þau orð falla að baráttunni væri ekki lokið. Áður hafði umhverfisverndarsimiinn Frederik Hauge lýst yfir óánægju sinni með nýja forsætisráðherrann. „Stoltenberg er nú augljóslega skítugasti strákurinn í bekknum. Það verður gaslykt af honum í mörg ár,“ sagði Hauge í útvarpsviðtali. Jens Stoltenberg Jens Stoltenberg nýtur ekki mikils trausts kjósenda. Aöeins 29 prósent telja aö hann veröi betri forsætisráðherra en Bondevik. Ríkisstjórn Kjells Magnes Bondeviks sagði af sér vegna þess að norska stórþingið hvatti hana á fimmtudagskvöld til að samþykkja byggingu loftmengandi gasorku- vera. í gær var talið að Thorbjern Jag- land, leiðtogi Verkamannaflokks- ins, yrði nýr utanrikisráðherra. Hann er sagður hafa áhuga á emb- ættinu en vildi þó ekki tjá sig um það í gær. Ekki lítur út fyrir að kjósendur hafi mikla trú á verðandi stjóm Jens Stoltenbergs. Samkvæmt skoð- anakönnun norska blaðsins Dag- bladet telja 29 prósent kjósenda að Stoltenberg verði verri forsætisráð- herra en Kjell Magne Bondevik. Að- eins 19 prósent voru þeirrar skoðun- ar að Jens Stoltenberg yrði betri forsætisráðherra. 42 prósent kjós- enda höfðu ekki skoðun á hæfni Stoltenbergs. Takist Stoltenberg, sem er 40 ára, að mynda stjórn verður hann yngsti forsætisráðherra Noregs hingað til. Stuttar fréttir Flytur til New York Rithöfundurinn Salman Rushdie ætlar að flytja til ástkonu sinnar í New York. Ástkon- an, Padma Laks- hmi, er 29 ára fyrir- sæta, leikkona og höfundur mat- reiðslubókar. Rushdie, sem er 53 ára, er enn kvæntur þriðju eigin- konu sinni sem hann á 2 ára son með. Bretar spara nú þær 140 millj- ónir króna sem það hefur kostaö að gæta Rushdies á ári. Sjúklingar fá hasspillur Krabbameinssjúklingar á sjúkra- húsum í Árósum fá hasspillur til að draga úr ógleði. Hasspillurnar eru gefnar þegar venjuleg lyf duga ekki við ógleðinni sem getur verið mikil. Ekki fórnarlamb njósna Heimildarmenn innan NATO sögðu í gær að bandaríska Stealth- flugvélin hefði ekki verið skotin niður af Serbum vegna leka innan samtakanna. Ellefu ára telpa í Svíþjóð kæfð með biblíu Ellefu ára stúlka í Skogás sunnan við Stokkhólm í Svíþjóð var kæfð með biblíu aðfaranótt aðfangadags. Áður hafði telpunni og 12 ára stjúp- bróður hennar verið misþyrmt í margar klukkustundir. Honum tókst að flýja kvalara sína. 41 árs gamail maður, 36 ára kona og 21 árs systir hennar koma fýrir rétt á mánudaginn vegna morðsins. Þremenningamir kváðust telja að bömin væm haldin iilum öndum. Húsmóðirin á heiiriilinu var stöðugt kvefuð og kenndi iilum öndum í bömunum um. Faðirinn taldi at- vinnuleysi sitt stafa af sömu orsök- um. Bömin, sem talið er að séu mun- aðarlaus, komu til Svíþjóðar frá Kongó í september í fyrra. Þau bjuggu í leiguíbúð hjá þremenning- unum. Konumar em systur móður drengsins. Babitsky Rússneski fréttamaöurinn Babitsky hvarf í þrjár vikur eftir dularfull fangaskipti. Babitsky veit ekki hvort hann er ákærður Aðstoðardómsmálaráðherra Rúss- lands sagði í gær að rússneski fréttamaðurinn Andrei Babitsky hefði verið ákærður fyrir að hjálpa uppreisnarmönnum í Tsjetsjeníu. Skrifstofa ríkissaksóknara vísaði þessu á bug. Babitsky flutti fréttir frá Tsjetsjeníu á vegum Radio Liberty og gramdist rússneskum ráðamönnum fréttaflutningurinn. Afhentu Rússar Tsjetsjenum Babitsky í stað rússnesks herfor- ingja sem hafði verið gripinn í Tsjetsjeníu. Eftir fangaskiptin, sem sættu alþjóðlegri gagnrýni, hvarf Babitsky í þrjár vikur. Sjálfur kvaðst Babitsky í gær ekkert vita um ákæru gegn sér. Sprengjuárás á Sri Lanka Aö minnsta kosti 18 manns létu lífíö og 40 særöust þegar sprengia sprakk í Colombo á Sri Lanka /' gær. Sprengian sprakk á aöalgötu aö þinghúsinu í borginni. Skothríð heyröist í kjölfar sprengingarinnar og fleygðu þá óttaslegnir borgarbúar sér niöur. Lögreglan lokaöi götum í nágrenninu og varö þá mikil röskun á umferð. Hætta við málshöfðun gegn barnfóstrunni Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Cherie, eiginkona hans, samþykktu í gær að falla frá málshöföun gegn fyrrverandi bam- fóstru sinni gegn því að hún greindi alls ekki frá einkalifi fjöl- skyldunnar. Talsmaður breska forsætisráð- herrans sagði að bamfóstran, Ros Mark, hefði lofað Cherie Blair, sem er lögfræðingur, að hún myndi ekki veita upplýsingar um hagi Blairhjónanna. Cherie Blair greip til aðgerða siðastliðinn mánudag til þess að vernda einkalíf fjöl- skyldu sinnar og koma i veg fyrir útgáfu endurminninga bamfóstr- unnar. Siðastliðinn sunnudag fengu Blairhjónin sett lögbann á Cherie og Tony Bresku forsætisráöherrahjónin hafa samiö viö fyrrverandi barnfóstru sína. breska blaðið Mail on Sunday sem hugðist birta útdrátt úr bók bam- fóstrunnar. „Cherie Blair hefur samþykkt að höfða ekki mál gegn fyrrverandi bamfóstru sinni, Ros Mark,“ sagði talsmaður forsætisráðherrans. Að sögn talsmannins féllst barnfóstran á að greina ekki frá neinum trúnað- arupplýsingum um Cherie Blair og fjölskyldu hennar. Bamfóstran mun einnig hafa lofað að afhenda Blair- hjónunum öll eintök af handriti sínu sem hún hefur undir höndum. Talsmaður forsætisráðherrans sagði aö enn væri í undirbúningi málshöfðun gegn útgefanda bókar barnfóstrunnar og blaðinu Mail on Sunday. Lestarslys í London Nær þrjátíu manns slösuðust þeg- ar farþegalest ók á mannlausa kyrr- stæða lest á Waterloo-járnbrautar- stöðinni í London í gær. Engar barnafyrirsætur Yfirvöld í Lettlandi hafa bannað fegurðarsamkeppnir fyrir yngri en 18 ára. Sams konar bann er í gildi fyrir fyrirsætur. Aznar spáð sigri á Spáni Joaquín leiðtoga sósíalista, sögðu þó í gær að bilið milli þeirra færi minnkandi. Samkvæmt skoðanakönnun síðast- liðinn mánudag var fylgi Aznars 4-5 prósentustigum meira en fylgi Al- munia. Erbakan í fangelsi Tyrkneskur dómstóll dæmdi í gær fyrrverandi forsætisráðherra Tyrklands og leiðtoga múslíma, Necmettin Erbakan, í eins árs fang- elsi. Var hann fundinn sekur um að hvetja til hatursherferðar í ræðu fyrir 6 árum. Norðmanni rænt í Brussel Norskum stjómarerindreka var rænt er hann ætlaði að setja bensín á bílinn sinn við Brussel á miðviku- dagskvöld. Tveir vopnaðir menn þvinguðu Norðmanninn í farang- ursgeymsluna á bíl hans, óku hon- um upp í sveit og misþyrmdu hon- um. Þvinguðu árásarmennirnir Norðmanninn til að gefa upp PIN- númer á krítarkorti sínu. Norðmað- urinn komst úr farangursgeymsl- unni eftir 6 klukkustundir. Lögmaður Sharifs myrtur Einn verjenda Nawaz Sharifs, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, var myrtur í gær. Plastumslög gegn Haider Námsmaður í Vín hefur fundið nýja leið til að sýna and- stöðu gegn Jörg Haider, leiðtoga Frelsisflokksins í Austurríki. Náms- maðurinn selur plastumslög utan um vegabréf með áletr- uninni „Ég kaus ekki þessa stjórn" á 7 tungumálum. r I I I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.