Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Side 16
i6 theygarðshornið LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 T>V Er pólitíska spillingin hiá öryrkjum? Þegar voldugasti stjómmála- maður landsins hafði sýnt þjóð sinni með eftirminnilegum hætti mikilfengleik valds síns með því að fá prest rekinn sem ritara nefndar fyrir smásögu hlaut hann eftir svo frægan sigur að skima vandlega í kringum sig eftir verð- ugum andstæðingi sem hann mætti reyna afl sitt við. Fyrir hon- um varð Öryrkjabandalagið. Tildrög árásar Davíðs Oddsson- ar á samtök öryrkja eru þau að fyrir síðustu kosningar vöktu þau með eftirminnilegum hætti athygli á því að ísland hefur gengið lengst vestrænna ríkja í því að tekju- tengja örorkubætur með þeim af- leiðingum að kjör öryrkja eru hér bágari en forsvaranlegt er. Þetta var gert með ýmsum hætti, enda bandalagið með óvenju skeleggan og ódeigan talsmann, Garðar Sverrisson. Meðal annars voru birtar auglýsingar. í þeim vitnaði bandalagið til orða valinkunnra manna um þessi efni, svo sem biskups yfir íslandi og ritstjóra Morgunblaðsins, auk annarra sem kynnst hafa kjörum öryrkja hér á landi vegna starfa sinna. Þessar auglýsingar Öryrkjabandalagsins eru nú í málflutningi forsætisráö- herra landsins orðnar að sérlegum fjárstuðningi við Samfylkinguna. Formaður Sjálfstæðisflokksins - maðurinn sem tekur við leyndum íjárframlögum sem engmn koma við hversu há eru, frá aðilum sem engum koma við hverjir eru, sem síðan fara inn á bankareikninga sem engum koma við hvar eru - lýsir Öryrkjabandalaginu sem stæðisflokksins opinberaðist sá skilningur að stjómmálaflokkar séu í stefnu sinni og málflutningi á einhvern hátt skuldbundnir þeim sem styrkja starf þeirra. Þetta er athyglisvert. Alit einu sér maður árásir Dav- íðs á Baug og Bónusveldið í nýju ljósi. Hafi Baugsmenn látið fé af „Hafi Baugsmenn lát- ið fé af hendi rakna fyrir síðustu kosning- ar í sjóði Sjálfstœðis- flokksins þá myndi maður œtla að sið- frœði Davíös Odds- sonar meinaði honum að halda uppi árás- um á þá. “ hendi rakna fyrir síðustu kosning- ar í sjóði Sjálfstæðisflokksins þá myndi maður ætla að siðfræði Davíðs Oddssonar meinaði honum að halda uppi árásum á þá. Því hlýtur maður að draga þá ályktun að þeir hafi látið undir höfuð leggj- ast að borga sinn hlut í kosninga- baráttunni síðustu og sé nú refsað fyrir það. Hið sama hlýtur að gilda um Jón Ólafsson. Og séra Öm Bárður Jónsson hlýtur nú að eygja úrræði til að stilla geð ráðherrans virkar. Það var þegar hann minnti á að íslensk erfðagreining styrkti kosn- ingabaráttu Samfylkingarinnar og spurði um leið hvort það geti talist siðlegt að eftir kosningar hafl ýms- ir þingmenn þess sama flokks unn- ið gegn hagsmunum fyrirtækisins. í þessum orðum formanns Sjálf- helstu upp- sprettu póli- tfskrar spiil- ingar í land- inu. Önsum þessu ekki. Umræðan á ekki að snúast um þetta. Ráð- herrann hlýtur að hafa eitt- hvað að fela því að umræð- an snýst um það hvort gera eigi fjárreiður flokkanna op- inberar - það er að segja að flokkamir greini frá því hvaðan stærstu fjárframlögin til þeirra koma. Þessu er Davíð Oddsson andvígur. Hvers vegna? Sjálfur gerði hann í ræðu sinni á Alþingi grein fyrir hugmyndum sínum um tengsl slíkra fjárframlaga og stefnu flokkanna - alveg óvart ljóstraði hann því upp hvað í húfi er og veitti okkur landsmönnum óvænta innsýn í skilning sinn á samspili stjórnmála og viðskipta- hagsmuna. Við fengum að sjá hvernig Sjálfstæðisflokkurinn _£__* *-L_m______1_____u Guðmundur Andri Thorsson í sinn garð: hann fer einfaldlega i hverjum mánuði með tíund af kaupinu sínu til Kjartans Gunn- arssonar. * * * Þetta var merkileg ræða. Og verður sennilega kennd í stjórn- málafræðikúrsum víða um lönd þegar frám líða stundir. Kannski að pólitísk hugsun Leiðtogans Mikla hafi risið hæst á ferli hans þegar kom að því að útskýra að málefni Kristilega demókrata- flokksins í Þýskalandi komi okk- ur hér ekki hót við. Hvers vegna? Vegna þess að reglur voru brotn- ar þar í landi - sem vissulega sé spilling - en þessar reglur séu hins vegar ekki við lýði hér á landi. Og engar reglur því brotn- ar. Og allt í lagi að fara sínu fram. Og með öllu óþarft að fara að setja slíkar reglur. Þær yrðu bara brotnar - og þá sætum við uppi með spillingu. Magurílífi Hættvii annan umgang - Ragnar Stefánsson jarieilisfræðingur lýsir deginum þegar Hekla byrjaði að gjósa Laugardagurinn 26. febúar, þeg- ar Hekla gaus, byrjaði dálítið leti- lega en meö hefðbundnum hætti. Fjölskyldan fór í vikutiltektina skömmu fyrir hádegið. íbúðinni er skipt í fjóra hluta og sérhver fjöl- skyldumeðlimur sér um sinn hluta, samkvæmt fyrir fram ákveðnum reglum. Svo drifum við hjónin okkur í heimsókn til pabba míns á Sunnuveginum og sátum þar og kjöftuðum. Honum er illa við að keyra bíl í snjónum og slóst því i fór með okkur inn í Hagkaup í Skeifunni til að gera vikuinn- kaupin. Hætt við að panta annan umgang Eftir rápið í búðinni settumst við inn á veitingahús í nágrenn- inu til að hvíla lúin bein. Pabbi og Ingibjörg fengu sér bjór en ég fékk mér te. Upp úr kl. 5 hringdi svo GSM-sími Veðurstofunnar sem ég var með í vasanum. Þetta var Páll Einarsson sem sagðist sjá smá- skjálfta á sírita frá jarðskjálfta- nema sem er þar sem heitir Litla- Hekla í vesturhlíðum Heklu sjálfr- ar. Hann hafði komið upp á Raun- vísindastofnun. til að skipta um pappír á síritunum. Hann taldi lík- legt að skjálftarnir ættu upptök í Heklu, og hugsanlega væri gos í aðsigi. Ég sagðist mundu drífa mig upp á Veðurstofu til að skoða málið betur. Það var hætt við að panta annan umgang en gengið frá reikningnum. Ég hringdi á spá- deild Veðurstofunnar og bað að- stoðarfólkið þar að fylgjast vel með tölvuskjá sem þar er og sýnir jarðskjálftahreyfingar frá stöðvum um allt land. Sjálfvirkt viðvörun- arkerfl Veðurstofunnar, sem gefur merki ef skjálftar á ákveðnum stöðum verða meiri en venjulega, var ekki farið að gefa merki. Það gat verið eðlilegt þar sem næsti mælir í landsneti Veðurstofunnar er í Haukadal, suður af Heklu, enn lengra frá Heklutoppi en Litla- Hekla. Gosaskan stórhættuleg þotuhreyflum Ég kom upp á Veðurstofu um kl. hálfsex, rétt mátulega til að heyra köll frá viðvörunartölvum. Viðvör- un 5 í Heklu sögðu tölvurnar, en 5 er hæsta viðvörunarstig í þessu kerfl. Ástæðan fyrir viðvöruninni var að mælakerfið hafði staðsett sjálfvirkt skjálfta af stærðinni 1 um 2 km frá Heklutoppi, á litlu dýpi. Eftir að hafa skoðað þetta smástund hringdi ég í bakvakt Al- mannavama og sagði frá grun- semdum okkar. Páll var þá þegar búinn að hringja. Hafþór, sem var bakvaktarmað- ur hjá Almannavömum, hafði þeg- ar gripið til fyrstu aðgerða að heiman og ætlaði svo að drífa sig niður í Almannavarnir. Ég hafði síðan samband við Flugmála- stjórn, bæði til að spyrjast fyrir um hvort einhverjar flugvélar væru nálægt Heklu og eins til aö benda á að líklegt væri að Heklu- gos væri í aðsigi og mikilvægt að láta flugið vita hvað gæti verið í aðsigi, enda gosaska stórhættuleg, sérstaklega fyrir þotuhreyfla. Ég fór upp á efstu hæð í veður- stofuhúsinu til að hvetja til þess að veðurfræðingur léti reikna út líklega slóð gosösku ef gos kæmi upp fljótlega. Ég bað líka um að veðurradar Veðurstofunnar yrði stilltur þannig að myndir bærust þéttar því ljóst væri að gosmökk- urinn, sem við reiknuðum með að mundi fara upp í a.m.k. 10 km hæð ef gos yrði, mundi sjást á veðurrat- sjánni. Ég hringdi í Guðmund Haf- steinsson, forstöðumanns spásviðs Veðurstofunnar, og hann ætlaði að drífa sig tii okkar og kalla til veð- urfræðing á bakvakt. Hringdi og sagði gosið byrja eftir 20 mínútur Ég beið síðan eftir því að sjá hvort þenslumælir, sem er í bor- holu í Sámsstaðamúla, skammt norður af Búrfellsstöö, sýndi merki um að gossprunga undir Heklu væri farin að þenjast út, hringdi í annan starfsmann jarð- eðlissviðs til að biðja hann að koma á vettvang og hafði samband við Almannavarnir og Flugmála- stjórn til að staðfesta að goslíkur færu vaxandi. Kl. 7 mínútur fyrir 6 hringdi ég svo i Almannavarnir og sagði að gos mundi örugglega byrja eftir um það bil 20 mínútur, enda þenslumælirinn í Sámsstaðamúl- anum kominn á bullandi ferð og farinn að sýna að gosrás Heklu var að opnast. Benti ég á að mikl- vægt væri að senda út tilkynningu um þetta til almennings, m.a. vegna þess að fólk gæti verið þama á ferli. Gosið hófst svo kl. 17 mínútur yfir 6. Ríkissjónvarpið kom svo upp á Veðurstofu með tökubíi og ég var settur í beina út- sendingu upp úr kl. 7. Um áttaleytið var svo settur fundur í vísindamannaráði Al- mannavarna en þá voru komnir þangað jarðfræðingar sem höföu flogið að Heklu til að kanna gosið. Sjónvarpið greip mig aftur í beina útsendingu kl. 9. Skömmu fyrir 10 komst ég loksins í afmælisveisl- una sem mér hafði verið boðið í hjá vinkonu minni, Birnu Þórðar- dóttur. Einhverjir afgangar vom eftir af matnum. Þarna var fjöl- mennt og glatt á hjalla og þarna lauk þessum viðburðaríka degi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.