Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 T^V fjölskyldumál Þriðja árið Það er oft sagt að þriðja árið sé það erfiðasta í hjónabandinu þótt það hafi aldrei verið vísindalega sannað. Anna og Guðmundur, sem litu inn hjá mér í vikunni sem leið, höfðu lent í þessari „þriðja árs þreytu“. Það lá reyndar vel á þeim. „Við erum búin að búa hvort í sínu lagi í hálft ár og núna viljum við reyna aftur,“ sögðu þau. „Við hitt- umst fyrir fjórum árum og urðum strax rosalega ástfangin," sagði Anna. „Þegar við vorum búin að vera saman í eitt ár ákváðum við að gifta okkur. Fyrst gekk allt rosa- lega vel. Auðvitað komu upp ein- hver smádeilumál en það var ekk- ert sérstakt. Árið eftir giftinguna eignuðumst við Jónu Pálu. Mér fannst frábært að verða mamma þó að fæðingin sjálf hafi verið erfið. En Jóna Pála var góð, fékk engar magakveisur, svaf vel og okkur hafði aldrei liðið betur. Þetta varð samt erfiðara hjá okkur eftir þvi sem á leið. Ekki batnaði ástandið þegar viö fluttum í hálfkláraða íbúð. Guðmundur sá þá um allt, ég gat lítið hjálpað honum.“ Guð- mundur hélt áfram: „Þetta var mjög erfiður tími hjá mér. Ég varð að sjá um allan flutninginn, ganga frá peningamálunum, gera íbúðina i stand og skila þeirri gömlu. Um leið hafði ég nóg að gera í vinn- unni. Ég er trésmiður og við vor- um komnir á eftir með skil á hús- næði sem við vorum að vinna í, þannig að það var mikil eftirvinna. Þegcir ég kom heim úr vinnunni var ég dauðþreyttur og við fórum alltaf að rífast.“ „Já,“ sagði Anna, „við vorum farin að rífast um allt, oft algera smámuni. Ég þoldi ekki hvernig hann gekk um heimilið og hann var alltaf að rífast í mér út af peningamálunum. Svo vorum við með skítkast hvort út í annað. Þetta var óþolandi ástand. Þegar Guðmundur kom heim vildi hann hvíla sig áður en hann byrjaði að vinna í íbúðinni. Um helgar vildi hann bara slappa af heima en ég vildi fara meira út og hitta fólk. Og við gátum aldrei talað um málið. Þetta kom líka niður á kynlífinu. Það var alltaf óþægileg spenna í kringum það. Að lokum þoldi ég ekki meira. Ég varð að komast út úr þessu“ . Guðmundur var á sama máli. Hann flutti í herbergi rétt hjá þeim mæðgum og hjálpaði til með Jónu Pálu. En svo fóru þau að fara út saman aftur. Þau töluðu um það sem hafði gengið á, töluðu tímun- um saman og fundu að þau voru jafnástfangin og áður. Þau höfðu bara ýtt frá sér tilfinningunum á erfiðu tímabili. Eins og vill verða hjá mörgum ungum fjölskyldum voru Anna og Guðmundur ekki reiðubúin að takast á við vinnuá- lagið sem fylgir því að stofna fjöl- skyldu. Bam krefst umhyggju og umsjónar foreldra sinna allan sóla- hringinn. Margir átta sig ekki á því fyrr en á reynir. Svo þarf að borga alla reikningana, koma sér þaki yfir höfuðið, standa sig í vinn- unni o.s.frv.! Og þau sem áður voru ein í heiminum, ung og ástfangin Þórhallur Heimisson og gátu gert það sem þau vildu, þegar þau vildu. Á þessu tímabili í lífinu er hætta á að þreyta hlaupi í sambandið, enda álagið mikið. Parið er afltaf þreytt , rífst jafnvel um það hvort þeirra sé þreyttara! Þegar svona er ástatt verður kyn- lífið bara enn ein skyldukvöðin. Spurningin er hvernig hægt sé að standast þetta álag? Parið verður Pariö verður aó lœra aö taka frú tíma fyrir sig. Ekki til þess endilega að gera eitthvað stórt heldur fyrst og fremst til þess að fú nœði til aó vera saman. að læra að taka frá tíma fyrir sig. Ekki til þess endilega að gera eitt- hvað stórt heldur fyrst og fremst til þess að fá næði til að vera sam- an. Ef við gleymum sambandinu okkar er hætta á að við lendum í því sama og Anna og Guðmund- ur. Þau lokuðu óþægindin innra með sér en það leiddi til óánægju og spennu í sambandinu og þau voru alltaf að deila og nöldra. En ef par er sammála um að deilur og erfiðleikar séu til þess að takast á við og leysa, og að það sé á ábyrgð beggja að leysa þær þá getur þetta tímabil, sem mörgum er svo erfitt, orðið tfl þess að styrkja sambúðina þegar fram i sækir. Þórhaflur Heimisson <nm breytingar Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefúr fimm atriðum ver- ið breytt. Finnir þú þessi fimm at- riði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okk- ur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigur- vegaranna. 1. verölaun: United-sími með símanúmerabirti frá Sjónvarpsmiðstöðmni, Síðumúla 2, að verðmæti kr. 6.990. 2. verðlaun: Tvasr Orvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kólibrísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningarnir veróa sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 557 c/o DV, pósthólf 5380,125 Reykjavík Finnur þú fimm breytingar? 558 BRETLAND SKÁLDSÖGUR - KIUUR: 1. Tom Clancy: Rainbow Six. 2. Danielle Steel: The Klone and I. 3. Dlck Francis: Field of Thirteen. 4. Ruth Rendell: A Sight for Sore Eyes. 5. Sebastian Faulks: Charlotte Grey. 6. James Patterson: When the Wind Blows. 7. Elvi Rhodes: Spring Music. 8. Charlotte Bingham: The Kissing Garden. 9. Nicholas Evans: The Loop. 10. Jane Green: Mr Maybe. RIT ALM. EÐLIS - KIUUR: 1. Amanda Foreman: Georgina, Duchess of Devonshire. 2. Chris Stewart: Driving over lemons. 3. Tony Adams o.fl.: Addicted. 4. Anthony Beevor: Stalingrad. 5. Frank McCourt: Angela’s Ashes. 6. Bill Bryson: Notes from a Small Island. 7. John Gray: Men Are from Mars, Women Are from Venus. 8. Richard Branson: Losing My Virginity. 9. Slmon Winchester: The Surgeon of Crowthorne. 10. Tony Hawks: Around Ireland with a Fridge. INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR: 1. Dick Francis: Second Wind. 2. Thomas Harris: Hannibal. 3. Danielie Steel: Granny Dan. 4-Roddy Doyle: A Star Called Henry. 5. Penny Vincenzi: Almost a Crime. 6. Ruth Rendell: Harm Done. 7. lain Banks: The Business. 8. Jill Cooper: Score! 9. Kathy Reichs: Death Du Jour. 10. Elizabeth George: In Pursuit of the Proper Sinner. INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS: 1. Alex Ferguson: Managing My Life. 2. John Humphrys: Devil's Advocate. 3. Simon Singh: The Code Book. 4. Bob Howitt: Graham Henry; Supercoach. 5. Brian Keenan o.fl.: Between Extremes. 6. Lenny McLean: The Guv'nor. (Byggt á The Sunday Times) BANDARÍKIN SKÁLDSÖGUR - KIUUR: 1. Anita Shreve: The Pilot’s Wife. 2. Tom Ciancy: Rainbow Six. 3. Penelope Fitzgerald: The Blue Flower. 4. Arthur Golden: Memoirs of a Geisha. 5 Judy Blume: Summer Sisters. 6. Patricia Cornwell: Point of Origin. 7. Rebecca Wells: Divine Secrets of the Ya-Ya Sisterhood. 8. Margaret Truman: Murder at Watergate. 9. Sidney Sheldon: Tell Me Your Dreams. 10. Tami Hoag: Still Waters. RIT ALM. EÐLIS - KIUUR: 1. Robert C. Atkins: Dr. Atkins' New Diet Revolution. 2. Frank McCourt: Angela’s Ashes. 3. John Berendt: Midnight in the Garden of Good and Evil. 4. Mlchael R. Eades o.fl.: Protein Power. 5. John E. Samo: Healing Back Pain. 6. Jared Diamond: Guns, Germs and Steel. 7. Sebastian Junger: The Perfect Storm. 8. Adeline Yen Mah: Falling Leaves. 9. William L. Ury: Getting Past No. 10. Gary Zukav: The Seat of the Soul. INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR: 1. Patricia Cornwell: Black Notice. 2. Thomas Harris: Hannibal. 3. Melissa Bank: The Giri’s Guide to Hunting and Rshing. 4. Jeffery Deaver: The Devil’s Teardrop. 5. Tim F. LaHaye: Assasins. 6. Catherine Coulter: The Edge. INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS: 1. Suzanne Somers: Suzanne. Somers'Get Skinny on Fabulous Food. 2. Mitch Albom: Tuesdays with Morrie. 3. Christopher Andersen: Bill and Hillary: The Marriage. 4. Bill Philips: Body for Life. 5. H. Leighton Steward o.fl.: Sugar Busters. 6. Sally Bedell Smith: Diana, in Search of Herself. (Byggt á The Washlngton Post)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.