Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Síða 28
28 %akamá[_________________________x>v Myrtur þegar hann var að skipta um dekk á bílnum Bill Cosby og eiginkona hans, Camille, á leið frá heimili sínu í New York til Los Angeles þar sem sonur þeirra var myrtur fyrir þremur árum. Ennis Cosby var fyrirmynd millj- óna ungra Bandaríkjamanna. Enn- is, sem var sonur hins heimsfræga sjónvarpsmanns BiIIs Cosbys, hefði getað lifað áhyggjulausu lifi án þess að afla sér menntunar. En Ennis vildi haga lífi sínu öðruvísi. Eftir áralanga baráttu við lesblindu lauk hann námi með framúrskarandi ár- angri frá Moorhouse-háskólanum í Atlanta og fékk starf sem kennari fyrir afvegaleidd börn i New York. í janúar 1997, þegar Ennis var nýorðinn 27 ára, fékk hann tækifæri til framhaldsnáms við háskólann í Los Angeles. Faðir hans var ákaf- lega stoltur. „Ég er ekkert hrifinn af því að benda á strákurinn sé fyrir- mynd ungra blökkumanna í Banda- ríkjunum. En úr þvi að það er nú tilfellið..." sagði Bill Cosby um þess- ar mundir. Sjálfur naut Bill Cosby gífurlegr- ar hyllli vegna sjónvarpsþátta sinna. Hann var auðugur maður og gaf árlega stórar fjárhæðir til góð- gerðarmála. Buguð af sorg En þann 16. janúar 1997 hrundi tilvera hans. Við æfingu á sjón- varpsþætti var Bill Cosby kallaður í simann. Náinn vinur færði honum hörmulega frétt: Ennis var látinn. Hann hafði verið skotinn til bana í Los Angeles. Hann hafði fundist við hlið Mercedesbifreiðar sinnar viö fjölfarinn þjóðveg. Ennis hafði aug- sýnilega verið að skipta um dekk á bílnum sínum þegar hann hafði ver- ið skotinn i höfuðið. Bill Cosby og eiginkona hans, Camille, voru buguð af sorg. Það voru líka þeir nemendur sem Ennis hafði starfað meö í New York. Þing- maðurinn Charles Rangel sagði í sjónvarpi að það væri ekki bara Cosbyfjölskyldan sem hefði misst son heldur öll Bandaríkin. En hvers vegna hafði morðið ver- ið framið? Lögreglustjóri Los Angel- es, Willie Williams, gekk út frá þvi að um ránmorð væri að ræða og morðinginn hefði af tilviljun átt leið þarna um. En lögreglan hafði þegar vitni að morðinu, Stephanie Crane. Hún var 47 ára gömul og handritahöfundur. Hún sagði að Ennis Cosby hefði hringt og beðið hana um að koma til að aðstoða hann. Hún bjó í um 10 mínútna akstursleið frá staðnum þar sem Ennis var staddur og ók strax af staö. Ennis hafði beðið Stephanie um að lýsa svæðið með ljósunum á bíl hennar á meðan hann skipti um dekk. Grunsamlegur náungi Hún var rétt komin á staðinn þegar hún sá grunsamlegan mann nálgast Ennis Cosby. „Ég varð dauðhræddi og flýtti mér í burtu,“ sagði Stephanie. En hún sneri aftur stuttu seinna og fann þá Ennis Cosby í blóði sínu við hlið bílsins. Engir aðrir voru nálægir. Lögreglunni var strax gert viðvart. Stephanie Crane sagði frá því að hún hefði hitt Ennis Cosby á samkomu í vikunni áður. Hún kvað manninn, sem hún sá við bílinn, hafa veriö hvít- an, hávaxinn, um tvítugt og með prjónahúfu á höfðinu. Það ruglaði lögregluna í ríminu að ekkert hafði verið fjarlægt úr bíl Enn- is Cosbys. Hann var með 500 dollara í vasa sínum og því þótti ljóst að ekki væri um ránmorð að ræða. Hinsvegar þótti ekki líklegt að morðinginn hefði þekkt fómarlamb sitt. Ennis Cosby var nýfluttur til Los Angeles og þekkti engan í borginni. Lögreglan fékk nú óvænta aðstoð. Hið alræmda slúðurblað National Enquirer hét 100 þúsund dollurum þeim sem gæti gefið upplýsingar um morðingjann. Nokkrum dögum seinna gaf maður sig fram og fullyrti að hann vissi hver morðinginn væri. Maðurinn sagði vin sinn hafa haft hug á að kaupa byssu og komist í samband við mann, Mike að nafni. Sá hefði viljað selja byssu. Taugaóstyrkur byssusali „Við hittum Mike,“ sagði maðurinn sem ekki vildi láta nafns síns getið. „Ég tók eftir því að Mike var mjög taugaóstyrkur. Hann bað okkur um að hitta sig við götu nálægt Los Ang- eles-ánni. Við lögðum bílnum við fjöl- býlishús. Ég varð eftir í bílnum en fé- lagi minn og Mike hurfu inn í nokkra runna. Ég heyrði Mike segja frá því að hann væri nýbúinn að skjóta svart- an strák og að ekki væri fjallað um annað í sjónvarpinu. Mike sagði að hann yrði að láta sig hverfa um hríð. Hann fann ekki byssuna sem hann kvaðst hafa falið i runnunum ásamt prjónahúfu. Honum datt í hug að byssan hefði ef til vill dottið í ána. Maöurinn, sem hafði gefið sig fram við slúðurblaðið, greindi frá því að þeir hefðu síðan ekið að heimili Mikes. Félagarnir voru vissir um að Mike hlyti að vera morðingi Ennis Cosbys. Hann hafði greinilega veriö undir áhrifum krakks og vís til alls. Lögreglan var heppnari National Enquirer lét lögregluna vita af vitnisburði mannsins. Lögregl- an fór á staðinn þar sem Mike hafði árangurslaust leitað að vopni sínu. Hún var heppnari en hann og fann skammbyssuna, vafða inn í prjóna- húfu. Rannsókn sýndi að þetta var byssan sem Ennis hafði verið skotinn til bana með. Þann 12. mars 1997 handtók lögregl- an Mikhail Markhasev, 18 ára inn- flytjanda frá Úkraínu, vegna morðsins á Énnis Cosby. Fyrir rétti viður- kenndi Markhasev að hafa einnig Ennis Cosby sigraðist á lesblindu sinni og kenndi afvegaleiddum börnum og unglingum. skotið til bana skólavörð þegar hann var 16 ára. Hann hafði þá verið félagi í mexíkósku götugengi. Verjandi hans benti á að Mark- hasev hefði lent í slæmum félagsskap og hefði leiðst út í heróínneyslu. Markhasev var engu að síður fundinn sekur um morð að yfirlögðu ráði og dæmdur til dauða. Hann bíður nú ör- laga sinna á dauðaganginu í San Quentin-fangelsinu. Hópur lögmanna vinnur að því að fá dauðadóminum hnekkt. Bill Cosby lýsti því yfir að það hefði verið léttir að fá að vita að morðing- inn hefði fundist og aö hann gæti ekki framið fleiri voðaverk. „Mér hefur verið sagt að Mikhail sé fínn og vel gefinn piltur sem hafi bara ; aldrei fengið tækifæri til þess að sýna það,“ sagði sjónvarpsmaðurinn heimsfrægi. Bill Cosby lét þessi orð um morðingja sonar síns ekki nægja. Hann stofnaði sjóð í nafni sonar síns til aðstoðar afvegaleiddum börnum innflytjenda. „Ef við getum hjálpað öðrum frá sams konar örlögum og Mikhail Markhasev hlaut hefur Ennis ekki lifað til einskis," sagði Bill Cosby. Lögreglan i Los Angeles setti upp vegatálma á moröstaönum. Mikhail Markasev lenti f slæmum félagsskap og leiddist út í fíknefnaneyslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.