Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Page 30
30 fólk LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 JjV Sigvaldi J. Kárason er eftirsóttur klippari. Hann hefur klippt að meira eöa minna leyti um sjö íslenskar kvikmyndir. Sumar hafa ekki verið sýndar enn. Aðrar, eins og Englar alheimsins, ganga lát- laust. DV-mynd Pjetur vil ekki smitast af handrítinu - 26 ára klippari er sá allra eftirsóttasti „Þegar ég 'sest niður og geri fyrsta grófklipp af kvikmynd vil ég ekki hafa lesið handritið. Mér finnst nóg að sjá myndefnið og setja það saman í fyrstu atrennu án þess að smitast af handrit- inu.“ Þannig lýsir Sigvaldi J. Kárason klippari vinnubrögðum sínum í sam- 'tali við DV. í gærkvöld var frumsýnd kvik- myndin Fíaskó, frumraun Ragnars Bragasonar leikstjóra. Þetta er gam- ansamur harmleikur um leitina að ástinni í Reykjavík nútímans þar sem þrjár sögur rekja sig saman í þéttri fléttu. „Mér finnst hún frábær. Mér flnnst hún sýna að íslensk kvikmyndagerð er af mjög háum standard þrátt fyrir litla peninga. Hér er verið að gera mjög góða hluti og áhugamennskan sem einkenndi íslenskar kvikmyndir framan af er algerlega horfin.“ Engar afsakanir að vera byrjandi „Hér er að mínu viti kominn leik- stjóri sem virkilega kann að vinna með fólki og gera góða hluti úr sínum hugmyndum. Það sem er skemmtilegt við þetta verkefni er að þetta er fyrsta myndin sem ZiK Zak framleiðir, frumraun leikstjórans, fyrsta myndin sem ég klippi í fullri lengd og fyrsta myndin sem Ágúst Jakobsson tekur í fullri lengd og fyrsta myndin sem Barði Jóhannsson semur tónlist við. En það notar þetta enginn sem afsök- un fyrir því að gera ekki eins vel og raun ber vitni.“ Sigvaldi ólst upp í Breiðholtinu og fékk snemma ódrepandi áhuga á kvik- myndagerð. „Það má segja að áhuginn hafi kviknað fyrir alvöru í litlu kjallara- herbergi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þar sem við skólafélagarnir lékum okkur oft við að gera stuttar kvikmyndir sem voru sýndar innan skólans. Þarna varð ég staðráðinn í því að fást við þetta sem ævistarf." Sigvaldi er aðeins 26 ára gamall en hefur sett flngrafór sín á ótrúlega margar kvikmyndir þrátt fyrir það. Fíaskó er fyrsta myndin sem hann klippir en hann klippti einnig Engla alheimsins sem Friðrik Þór Friðriks- son gerði og er að slá gömul og ný aö- sóknarmet íslenskra kvikmynda. „Það var afar skemmtilegt verkefni sem einkenndist af því að Friðrik hafði skýra sýn á það sem hann vildi fá. Það má eiginlega segja að sú mynd hafi verið klippt í tökunum því það var ekki svo mikið sem ég þurfti að gera. Friðrik kom aldrei inn í klippi- herbergið meðan ég var að vinna.“ Duglegur að klippa Sigvaldi vann fyrsta grófklipp af kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Myrkrahöfðingjanum, en sleppti svo hendinni af því verkefni og gróf- klippti einnig tyrknesk/islenska kvik- mynd sem heitir Split og flallar um baráttu Sophiu Hansen. Hann klippti kvikmynd Jóhanns Sigmarssonar, Óskaböm þjóðarinnar, sem enn hefur ekki verið sýnd, hann er nær búinn að klippa 101 Reykjavík, frumraun Baltasars Kormáks sem kvikmynda- leikstjóra sem enn hefur ekki verið frumsýnd, og er um þessar mundir að setjast við að klippa Gemsa, kvik- mynd Mikaels Torfasonar sem er í framleiðslu og vinnslu hjá ZikZak. Eins og þetta sé ekki nóg mun hann líka klippa Ikingut, sem er næsta mynd íslensku kvikmyndasam- steypunnar, og Villiljós sem er sér- stætt verkefni í framleiðslu hjá ZikZak og eru flmm sögur í einni mynd, gerðar af jafnmörgum ungum leikstjóram. Þeir eru Ragnar Braga- son, Dagur Kári Pétursson, Inga Lísa Middleton, Ásgrímur Sverrisson og Einar Þór Daníelsson. „Ég hef ekki sagt nei við neinn enn þá. Mér flnnst þetta óskaplega skemmtilegt starf. Þetta er eins og að fást við risastórt púsluspil með tug- þúsundum stykkja og sjá það allt ganga upp.“ Margir vita lítt um hvað starf klipp- arans snýst en það er í stuttu máli það verkefni að taka allt efni sem tekið hefur verið i eina kvikmynd, sem get- ur verið á bilinu 12-50 tímar að heild- arlengd, og klippa það niður i 1,5 til 2 klukkustunda langa kvikmynd. Við þetta starf lokar klipparinn sig af í sínu klippiherbergi og venjulega kem- ur leikstjóri myndarinnar lítið að verkinu fyrr en fyrsta grófklipp er komið saman. „Þetta er auðvitað allt rækilega merkt á hverja senu eftir kúnstarinn- ar reglum en stundum missir maður alveg þráðinn og hringir ráðalaus í leikstjórann sem segir manni þá venjulega að lesa handritið," segir Sigvaldi og glottir. Víldi ekki læra leikstjórn Sigvaldi sótti fyrir þremur árum um skóla í Bretlandi sem heitir NFTS, eða National Film and Television School, og lagði inn með sér stutta kvikmynd, Rottur, sem hann hafði leikstýrt og sett saman. „Þessi mynd var alger draumur. Ég fékk fína leikara með mér, bæði Karl Guðmundsson, Rúrik Haraldsson, Er- ling Gíslason, Jóhann G. Jóhannsson og Ólaf Darra Ólafsson sem þarna steig sín fyrstu skref sem kvikmynda- leikari." Það er kaldhæðnislegt en Sigvaldi hefur ekki enn Iokið gerð þessarar kvikmyndar sem skilaði honum inn í þennan ágæta skóla. Gríðarlega hörð samkeppni er um skólavist i þessari menntastofnun sem er ein sú virtasta á sínu sviði og tekur við um 400 umsóknum árlega. 12 af þeim era kallaðir inn í Trekara viðtal og síðan valdir 6 úr þeim hópi. Sigvaldi var kallaður inn í viðtal og þar sátu við borðið menn sem ráð- lögðu honum að læra kvikmyndaleik- stjórn. „Ég hef sjálfsagt stuðað þessa gömlu menn því ég sagði að það væri ekki hægt að kenna leikstjóm. Annað- hvort kynni maður að segja sögu eða ekki. Ég vildi læra klippingu." Þessir rosknu heiðursmenn þökk- uðu hinum hrokafulla íslendingi fyrir komuna og hann bjóst ekki frekar við að heyra frá þeim aftur. Hann var samt tekinn inn í skólann þetta ár en hefur verið fremur laus við námið. „Mér fannst eftir fyrsta árið að það væri ekki verið að kenna mér mikið og var farinn að leiðbeina öðrum nemendum. Síðan hef ég haft svo mik- ið að gera við klippingu hér heima að ég hef mest lítið verið við námið. Ég er samt skráður i skólann og fer alltaf og sýni þeim það sem ég er að gera og þeir hvetja mig áfram og taka þessu fyrirkomulagi vel.“ Sigvaldi segir að það sé mikilvægt fyrir hann í starfi að ná gððu sam- starfi við leikstjórann sem hann er að klippa fyrir þó hann vilji lítið af hon- um vita meðan fyrsta samsetning fer fram. „Þetta er auðvitað barnið hans og leikstjórinn hefur síðasta orðið. Sum- ir frægir klipparar vinna eftir mottó- inu: „My way or no way“ en ég er ekki þannig. Þetta er samstarf sem tekur 3-6 mánuði í allt og mikilvægt að klipparinn sé leikstjóranum til halds og trausts því oft fá þeir hálfgert áfall þegar þeir sjá fyrsta klipp. Sigvaldi segir að þó skólinn ytra opni honum ýmsar dyr á alþjóðlegum vettvangi vilji hann helst vinna við ís- lenska kvikmyndagerð. Lynch, Wenders og Loach „íslensk kvikmyndagerð er ein- stök. Ég hafði Fíaskó með mér utan um daginn og sýndi mönnum hana og þeir héldu ekki vatni yfir því hvað væri verið að gera hér uppi á klakanum og spurðu bara hvað hún hefði kostað margar milljónir punda. Það er gott að vera klippari við góðar aðstæður úti með aðstoðar- menn við hlið sér og mann sem færir manni kafTi. í islensku kvik- myndaveri er sennilega bæði þröngt og kalt og rakt en það er skemmtilegt." Sigvaldi segist munu verða áfram við námið þó starfið gefi lít- il grið og hugsi sér að ljúka því. En hverjir eru hans áhrifavaldar í kvikmyndagerð? „Ég er alæta á kvikmyndir og horfi á bókstaflega allt. Þó finnst mér að ég verði að nefna menn eins og David Lynch, Wim Wend- ers og Ken Loach sem kvikmynda- gerðarmenn sem ég hef mikið dá- læti á, en margir bandarískir leik- stjórar eru einnig góðir.“ En hvað með íslenska kvik- myndagerðarmenn? Er einhver sérstakur sem skarar fram úr? „Það væri ekki sanngjarnt af mér að segja eitthvað um það. Ég á vonandi eftir að vinna með þeim öllum.“ -PÁÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.