Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Síða 18
18
Helgarblað
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000
I
Ert þú búinn að frá tölvupóst frá
Bonoí U2?
Maðkatínsla er kjörið sumarstarf fyrir unglinga:
14 ára og með 8000
krónur á tímann
Keðjubréf
frá Bono
Ef þú færð tölvupóst með titlinum
„Drop the Debt at the Okinawa
Summit“, þá siturðu í rauninni
uppi með bréf frá Bono í U2. Söngv-
arinn er nefnilega með í herferð
sem gengur út á það að minnka
skuldir þróunarlanda. 21. júlí byrjar
G7-ráðstefnan í Okinawa, og hafa
ríkustu lönd heims lofað að létta á
skuldum fátækustu landa heims
með 100 milljón dollurum.
Tölvubréfið frá Bono hijóðar ann-
ars svona:
„Hi, Bono here.
How’s things? I believe the leaders
of the richest nations want to drop
the debt. But they seem stuck. They
need a big virtual e-push NOW. Ple-
ase do this action and forward to
your friends.
4 love and peace, Bono“.
Uma kynn-
ir snyrti-
vörur
Leikkona snoppufríða, Uma
Thurman, hefur verið valin nýjasta
andlit franska snyrtivörufyrirtækis-
ins Lancöme.
Þetta er í
fyrsta sinn
sem amerísk
kona er valin í
þetta starf en
Uma mun feta
í fótspor hinna
klassísku feg-
urðardrottn-
inga Isabellu
Rossellini og Juliette Binoche.
Uma Thurman, sem á sænska
móður, hefur hingað til verið best
þekkt fyrir hlutverk sitt í kvik-
myndinni Pulp Fiction sem hún
fékk óskarstilnefningu fyrir.
Lyfjagleði
í pistli mínum um síðustu helgi fjallaði
ég um fyrstu kynni mín af gleðipillunni,
sem ég tel einhvern ljúfasta fagnaðarfund
sem ég hef átt við meðul um dagana, þó ég
hafi að vísu ýmislegt prófað í gegnum tíð-
ina.
Hins vegar lá mér svo mikið á hjarta
hvað áhrærir pillur þarna um daginn að
ég sá mér ekki fært að klára málið í ein-
um pistli heldur tók þann kostinn að slá
botninn í hugleiðingarnar í dag.
Að ekki sé nú talað um meðul með
lækningamátt.
Ef einhver léti sér detta í hug að aukin
lyfjaneysla bæri vott um versnandi heilsu-
far gæti maður ætlað sem svo að íslenska
þjóðin væri öll að geispa golunni sakir
heilsuleysis en margítrekaðar skoðana-
kannanir á heilsufari landsins barna gefa
ótvírætt til kynna að aldrei hafi þjóðin
verið eins stálslegin einsog þessa dagana.
Það er að segja til líkamans. Hinsvegar er
og reglulegri hægðir, verða náttúrulausir
og hætta að sofa hjá kellingunum sínum
og jafnvel öðru kvenfólki líka. Allt
gleðipillunum að þakka.
Margir hafa haft á orði að holdsins
lystisemdir megi svosem sitja á hakanum
ef allir geti 1 staðinn verið sífellt með já-
kvæðar hægðir og í sólskinsskapi.
Afar ítarlegar rannsóknir, byggðar á
skoðanakönnunum, hafa að undanförnu
„Kaupið í unglingavinnu er svo
ofboðslega lélegt, aðeins 200 krón-
ur á tímann. Það er miklu betra að
vinna við maðkatínslu,“ segir hinn
14 ára gamli Andri Guðmundsson
og upplýsir að þegar albest lætur
geti tímakaupið farið upp í 8000
krónur. Þetta er annað sumarið
sem Andri fæst við maðkatínslu en
hann byrjaði í fyrrasumar ásamt
einum félaga sínum. Nú tína þeir
hvor í sínu lagi en vísa hvor á ann-
an ef þeir eru sjálfír uppiskroppa
með beitu.
þennan undarlega geðræna tvískinnung
hjá þjóðinni annað en vænir skammtar af
geðlyfjum sem væri gráupplagt að byrja
að gefa börnum strax með móðurmjólk-
inni - svona einsog fyrirbyggjandi - og
svo öllum gleðipilluna tvisvar á dag svona
til vonar og vara.
Úti allar nætur
Maðkatínsla er hrein og klár
næturvinna því ánamaðkarnir láta
ekki sjá sig á daginn. Upp úr mið-
nættinu fer Andri því að taka sig
til en búnaðurinn við tínsluna er
ekki flókinn. Hann tínir maðkana
með berum höndum, safnar þeim í
plastdall þar sem fer vel um þá í
grænum mosa.
„Það sem gildir er að vera nógu
snöggur að grípa þá. Þeir eru
nefnilega fljótir að láta sig hverfa
þegar þeir heyra titringinn þegar
maður nálgast," segir Andri sem
laumast á hverju kvöldi um Mos-
fellsbæinn í leit að möðkum. Ef
maðkarnir seljast ekki strax verð-
ur hann að passa upp á að gefa
þeim næga næringu.
Hvað segja foreldrar þínir.
Finnst þeim allt í lagi að þú, 14 ára
gamall, sért úti allar nœtur?
„Já, þeim finnst þetta bara gott
hjá mér. Svo hefur pabbi líka
stundum farið með mér að tína.
Þetta er að koma hjá honum,“ seg-
ir Andri sem sefur alltaf fram að
hádegi eftir erfiðar nætur.
Annaö sumarið í röð vinnur Andri við það að tína og selja ánarnaðka til veiðimanna sem hann segir að sé miklu
betra en að vera í unglingavinnunni.
Safnar fyrlr golfsetti
Andri tinir um 500 maðka á
hverri nóttu og selur á 35 krónur
stykkið. Viðskiptavinina fær hann
í gegnum smáauglýsingar DV þar
sem hann auglýsir reglulega og eru
sumir orðnir fastakúnnar hjá hon-
um. Salan gengur best fyrir helg-
arnar.
„Dýrasti maðkurinn sem ég hef
selt var 23 cm langur og seldi ég
hann á 200 krónur. í fyrra var mik-
ill hörgull á möðkum og þá var
maður að fá 150 krónur á
maðkinn," segir Andri sem ekki
hefur verið í vandræðum með að
finna maðka fram að þessu. Sjálfur
er hann ekki mikill veiðimaður,
hefur aðeins einu sinni farið að
veiða en segir að það hafi veiðst
vel á ormana hans. „Þeir eru svo
stórir og feitir,“ segir Andri stoltur
enda telur hann þá vera norskætt-
aða, alla vega þá sem hann tínir í
garðinum hjá sér.
Og hvaö œtlarðu svo að gera við
sumarkaupið?
„Ég er að safna mér fyrir
golfsetti," segir Andri sem líklega
vinnur ekki sem maðkatínslumað-
ur aftur í bráð eftir þetta sumar
þar sem fjölskyldan er að flytja til
Spánar með haustinu.
Þess má að lokum til gamans geta
að DV hafði samband við fjöldann
allan af maðkasölumönnum á full-
orðinsaldri með áratugareynslu í
bransanum sem ekki vildu tjá sig
um starfið. Virðist sem mikil leynd
hvíli yfir maðkatínslunni og sam-
keppni er mikO milli sölumanna
sem þéna vel á þessu næturgöltri
sem víst nokk er skattfrjálst. -snæ
Þá er fyrst til að taka að í hittifyrra
einsog sálarlíf íslendinga sé í hálfgerðri verið gerðar á sálarástandi íslendinga. Út
keyptu íslendingar meðul fyrir 4 milljarða
en í fyrra fyrir 9,2 milljarða, svo það er
ekki lítið sem fólk hefur lasnast milli ár-
anna. Aukning á meðalasölu milli ára um
130%.
Mér er sagt að 80-90% af lyfjum sem
eru á markaði séu gersamlega gagnslaus
nema til þess eins að telja fólki trú um að
þau hafi lækningamátt.
Sagt hefur verið að trúin flytji fjöll og
svo sannarlega veit enginn hve trúin á
gagnslaus meðul hefur bjargað mörgum
frá langvarandi heilsuleysi.
klessu. Geðrænir kvillar eru það sem allir
eru að berjast við þessa dagana. Allar
náttborðsskúffur orðnar fullar af: Prozac,
Flúoxetin, Delta ,Tingus, Fontex, Zoloft,
Efexor, Seroxat og Cipramil. Þessi lyf eiga
það sammerkt að vera til þess ætluð að
slá á þunglyndi, þráhyggju og kvíða og
eru almennt kölluð „gleðipillur".
Gleðipillurnar kváðu jafna út geðsveifl-
ur, þannig að þeir sem áður voru þung-
lyndir, svartsýnir, nöldurgjarnir og með
hægðateppu verða af pillunum glaðir og
kátir, brosa framan í heiminn, fá mýkri
úr þeim hafa komið hinar furðulegustu
niðurstöður og svo drepið sé á þær helstu
eru íslendingar með þunglyndasta fólki á
jarðkringlunni en sama skoðanakönnun
sýnir að við erum jafnframt léttlyndastir
allra. Trúaðri og kirkjuræknari erum við
en flestir jarðarbúar en jafnframt heiðnari
en svo, að okkur detti nokkurntímann í
hug að fara í kirkju. Og samkvæmt síð-
ustu skoðanakönnun erum við auðvitað
bæði bjartsýnni en almennt gerist og
svartsýnni en annað fólk. Allir hljóta að
sjá í hendi sér að ekkert getur slegið á
Allir eru sammála um það að ekkert sé í
lífinu eftirsóknarverðara en lífshamingja,
en til að öðlast lífshamingju þarf andlegt
jafnvægi og sálarró og til að öðlast andlegt
jafnvægi og sálarró þarf pillur, pillur og
aftur pillur - heilan helling af pillum.
Ef þróunin í sölu á lyfjum verður sú
sama í framtíðinni einsog hingaðtil þá er
þess ekki langt að bíða að heildarlyfjasal-
an verði 20 milljarðar á ári. Og þá mega
margir vel við una. FIosi